Morgunblaðið - 23.05.2008, Page 1
STOFNAÐ 1913 139. TBL. 96. ÁRG. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
ÉG ER
GERSEMI
SEGIR DUSTIN, SÁ
ÍRSKI Á EVRÓVISJÓN
FÓLK >> 45
SÉRBLAÐ UM TÍSK-
UNA FYLGIR MORG-
UNBLAÐINU Í DAG
TÍSKA OG
FÖRÐUN
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
NEYSLUMUNSTUR íslenskra fíkla er
breytt frá því sem var. Meira er um blandaða
neyslu og örvandi vímuefni eru enn í sókn.
Afleiðingin er sú að fíklarnir verða fyrr veik-
ir og mun veikari. Félagslegum vandamálum
fjölgar og sífellt fleiri verða óhæfir til þátt-
töku í samfélaginu. Á meðan fást ekki fjár-
veitingar til að sinna málaflokknum með við-
unandi hætti. „Neyslan endurspeglar fram-
boðið og frá 1995 hefur verið stanslaus aukn-
ing í neyslu amfetamíns,“ segir Valgerður
Rúnarsdóttir, læknir hjá SÁÁ. Vandinn sé
stór og afleiðingarnar hrikalegar.
Erfitt er að henda reiður á því hver er
ástæðan fyrir þessari miklu neysluaukningu
örvandi vímuefna. Fíknin fer ekki í mann-
greinarálit en af samtölum við fólk sem lifir
og hrærist í meðferðarstarfi er ljóst að hún
gengur í erfðir. Ef ekki eiginlegar erfðir, þá
félagslegar. „Við erum að fá krakka, afkom-
endur fíkla, sem félagsmálakerfið hefur gjör-
samlega brugðist, jafnvel frá fæðingu,“ segir
Guðmundur Týr Þórarinsson, forstöðumað-
ur Götusmiðjunnar. „Börn búa inni á heim-
ilum þar sem er svoleiðis subbuskapur og
viðbjóður, þau eru með ónýtar tennur og
eiga engin almennileg föt.“
Sýn á málaflokkinn horfin
Í Morgunblaðinu í gær kom fram að til-
kynningum til barnaverndarnefnda hefur
fjölgað mikið á umliðnum árum en fjöldi
starfsmanna stendur því sem næst í stað.
Þar af hefur tilkynningum vegna vanrækslu
barna fjölgað gríðarlega. Guðmundur segir
ástandið hafa orðið til þess að ungum fíklum
sé ekki sinnt. „Börnin eru því úti að skaða
sjálf sig og samfélagið; látin hrærast um á
einhverjum borðum fram yfir 18 ára aldur og
þá eru nefndirnar lausar við þau.“ Hann full-
yrðir að fíkniefnaneysla hafi aukist í yngri
aldurshópunum. „Við erum gjörsamlega bú-
in að missa sýn í þessum málaflokki.“
Ungt fólk á milli 20 og 25 ára er í miklum
meirihluta þeirra sem lagðir eru inn á Vog
og segir Valgerður marga eiga börn. Þegar
það á við er afar mikilvægt að vernda börnin
og hjálpa foreldrunum. Valgerður lofar starf
barnaverndarnefnda og Félagsþjónustunnar
sem hún segir sýna þessu fólki mikinn stuðn-
ing og skilning. „En þetta er stór vandi, af-
leiðingarnar hrikalegar og fjölskyldurnar og
börnin, þ.e. allir þeir sem standa að virkum
fíklum, oft í miklum erfiðleikum.“ | 9
Fyrr veikir
og veikari
BERGUR G. Gíslason,
framkvæmdastjóri og
einn af forystumönnum
íslenskra flugmála og
Árvakurs hf., útgáfu-
félags Morgunblaðsins,
í nær hálfa öld, lést á
Landspítalanum að-
faranótt fimmtudagsins
22. maí, 100 ára að aldri.
Bergur G. Gíslason
fæddist í Leith í Skot-
landi 6. nóvember 1907.
Foreldrar hans voru
Garðar Gíslason, stór-
kaupmaður í Reykjavík og einn af
stofnendum Árvakurs 1919, og Þóra
Vigfúsdóttir. Eiginkona hans er Ingi-
björg J. Gíslason. Þau eignuðust
fimm dætur og eru fjórar þeirra á lífi.
Að loknu stúdents-
prófi frá Menntaskólan-
um í Reykjavík stundaði
Bergur verslunar- og
iðnnám í Bretlandi.
Hann gerðist fastur
starfsmaður við fyrir-
tæki föður síns 1928 og
vann fyrstu tvö árin í
Hull, en tók við fram-
kvæmdastjórn fyrirtæk-
isins 1940. Hann átti auk
þess sæti í viðskipta-
sendinefndum fyrir
hönd Íslands um árabil.
Í Bretlandi kynntist Bergur flugi
og eftir heimkomuna varð hann einn
af helstu frumherjum íslenskra flug-
mála og átti mikinn þátt í uppbygg-
ingu Flugfélags Íslands. Hann tók
þátt í stofnun og starfi Flugmála-
félags Íslands, var stjórnarformaður
Flugfélags Íslands 1940 til 1945 og
síðan varaformaður fram að stofnun
Flugleiða hf. 1973, en stjórnarmaður
Flugleiða til 1981. Þá sat Bergur í
flugráði í 12 ár.
Bergur sat alla aðalfundi Árvakurs
frá 1941 til 1998, en hann tók sæti í
varastjórn 1943 og var í aðalstjórn
1963 til 1998.
Bergur G. Gíslason sýndi útgáfu
Morgunblaðsins alla tíð mikinn
áhuga. Í áratugi kom hann í reglu-
legar heimsóknir í höfuðstöðvar
blaðsins og miðlaði hugmyndum um
efni þess til starfsmanna. Morgun-
blaðið flytur eftirlifandi eiginkonu
hans Ingibjörgu og fjölskyldu þeirra
innilegar samúðarkveðjur.
Bergur G. Gíslason látinn
Komdu í leikhús
Dagbók Önnu Frank >> 43
Leikhúsin í landinu
Engin
sætuefni
25% minni sykur
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
S
A
4
12
68
03
.2
0
0
8
ÞAU Regína Ósk og Friðrik
Ómar sungu sig inn í úrslitin
með laginu „This is my life“ í
seinni undankeppni Evróvisjón,
sem fram fór í gærkvöldi.
„Þetta er hægt, Íslendingar
geta náð árangri,“ sagði Friðrik
Ómar í gærkvöldi. „Ísland getur
alveg unnið Evróvisjón. Við
stefnum á ekkert annað en sigur
á laugardaginn. Það er ekkert
annað sem kemur til greina,“
Úrslitin fara fram næstkom-
andi laugardagskvöld. Alls
keppa 25 þjóðir til úrslita, en
auk Íslands komust Svíþjóð,
Danmörk, Króatía, Úkraína,
Albanía, Georgía, Lettland,
Tyrkland og Portúgal upp úr
seinni undankeppninni.
Íslensku keppendurnir eru
bjartsýnir á framhaldið eftir að
hafa náð þessum árangri í und-
ankepninni.
Eurobandið komst í úrslit
Reuters
Tilþrif Eurobandið tók sig vel út á sviðinu í gærkvöldi og skilaði
frammistaða þeirra Íslandi upp úr undankeppni í fyrsta skipti.
„Íslendingar geta
náð árangri“
Húrra fyrir Eurobandinu | 51
UMBOÐSMAÐUR barna og tals-
maður neytenda hafa lagt fram leið-
beinandi tillögur í sambandi við
neytendavernd barna og leggja með-
al annars til að hvorki gos né sælgæti
verði við afgreiðslukassa verslana.
Talsmaður neytenda og umboðs-
maður barna hafa unnið saman að
aukinni neytendavernd barna und-
anfarin rúm tvö ár. Hluti vinnunnar
hefur snúið að því hvernig ýta megi
undir heilbrigðari lífsstíl og jákvæð-
ari líkamsímynd barna og unglinga.
Meðal annars hefur verið haft sam-
ráð við almannasamtök, fræðimenn,
hagsmunasamtök fyrirtækja á
markaði, sjónvarpsstöðvar og full-
trúa auglýsingastöðva.
Samkvæmt tillögunum á öll mark-
aðssókn sem beinist að börnum að
leitast við að miðla heilbrigðri lík-
amsmynd og mannvirðingu og forð-
ast óheilbrigðar staðalmyndir.
Sælgæti, flögur, gos eða þvíumlíkt
á ekki að vera nærri kassa í dag-
vöruverslunum. Ennfremur er
mælst til þess að auðvelt verði fyrir
fólk með börn að fara um dagvöru-
verslun án þess að þurfa að fara
framhjá matvælum sem höfða sér-
staklega til barna og hafa hátt inni-
hald salts, sykurs eða fitu, einkum ef
þau eru í sjónhæð ungmennanna.
Lagt er til að markaðssókn á mat-
vöru með hátt innihald salts, sykurs
og fitu miðað við opinberar lýð-
heilsuviðmiðanir sé ekki beint að
börnum.
Þegar opinbert norrænt hollustu-
merki verði að veruleika er lagt til að
aðeins matvæli sem uppfylli kröfur
merkisins séu nálægt verslunar-
kassa og auglýstar í sjónvarpi á tím-
um þegar ung börn séu líkleg til þess
að horfa. Sama eigi við um auglýs-
ingar í kvikmyndahúsum, á DVD-
diskum fyrir börn og auglýsingar á
áberandi stöðum í sundlaugum og
íþróttamannvirkjum.
Margrét María Sigurðardóttir,
umboðsmaður barna, segir að tillög-
urnar verði ræddar með hagsmuna-
aðilum í hringborðsumræðum á
þriðjudag. Hún segir að allir vilji veg
barna sinna sem mestan og því trúi
hún því og treysti að tillögunum
verði vel tekið.
Vilja gos
og sælgæti
frá kössum
Umboðsmaður barna og talsmaður neyt-
enda leggja fram leiðbeinandi tillögur
Í HNOTSKURN
» Umboðsmaður barna og tals-maður neytenda leggja til að
sælgæti, flögur, gos eða þvíum-
líkt verði ekki nærri kassa í dag-
vöruverslunum.
» Einnig er lagt til að ekkiþurfi að fara framhjá sæl-
gæti í búðum.
» Hagsmunaaðilum er boðið íumræður um tillögurnar á
þriðjudag og sérstaklega er lögð
áhersla á mætingu fulltrúa hags-
munasamtaka fyrirtækja á
markaði og sjónvarpsstöðva.
Morgunblaðið/Golli