Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 52
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 144. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Áfram í Evróvisjón  Ísland komst áfram í und- anrásum Evróvisjón-söngvakeppn- innar í Belgrad í gærkveldi og verður 11. landið í töfluröðinni í úrslitunum sem fram fara á laug- ardag þar sem keppa 25 þjóðir. » Forsíða Mikill aðflutningur fólks  Enn flyst mikið af erlendum ríkisborgurum til landsins og brottflutningur þeirra sem fyrir eru í landinu hefur ekki aukist þrátt fyrir dekkri horfur í efna- hagslífinu. Ef þróunin verður áfram sú sama og var á fyrsta árs- fjórðungi í ár eru horfur á að nýtt metár hvað varðar fjölgun er- lendra ríkisborgara hér á landi sé í uppsiglingu, að því er fram kem- ur í nýju vefriti fjármálaráðuneyt- isins. » 2 SKOÐANIR» Ljósvakinn: Það er nefnilega vit- laust gefið Staksteinar: Stóraukin samskipti við Katar Forystugreinar: Eftirspurn og framboð | Sterkur leikur UMRÆÐAN» Opið bréf til Kristjáns Möllers sam- gönguráðherra Hamingja og fögnuður Landskipulag? – Já! Í góðum tengslum við umhverfið Lítill lúxusbíll Vespan er elskuð og virt Húsbílar á fjallvegum BÍLAR» 1  1 1 1 1 2# (3  , ' ( 4    #    1 1 1  1 1 *5 %/  1  1 1 1  1 1 67889:; <=:8;>4 ?@>6 59>96967889:; 6A> 55:B>9 >7: 55:B>9 C> 55:B>9 0; >D:9>5; E9?9> 5<E=> 6: =0:9 4=>4; 0' ;<989 Heitast 15° C | Kaldast 8° C Sunnan og suðaustan 5-13 m/s, hvassast við suðvesturströndina. Bjart norðan- og aust- antil, annars skýjað. » 10 Hljómsveitin Sever- ed Crotch fær að spila á Neurotic Deathfest þótt henni hafi fyrst verið hafn- að. » 49 TÓNLIST» Komust inn að lokum KVIKMYNDIR» Suður-amerísk stemning ríkir í Cannes. » 44 Gestir á tónleikum Johns Fogertys fengu mikið fyrir að- gangseyrinn því hann lék hátt í 30 lög. » 46 TÓNLIST» Peninganna virði KVIKMYNDIR» Indy er enn lipur með svipuna. » 48 LEIKLIST» Ilmur bregður sér í gervi Janis Joplin. » 42 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Afklæddist á götu í varnarskyni 2. Ættu allir að flytjast til Íslands? 3. Dæmdur í 16 ára fangelsi 4. Ísland áfram í Evróvisjón  Íslenska krónan styrktist um 0,26% ostur.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -0 8 0 3 GOTTI á tilboði Nú færðu GOTTA-ost í sérmerktum kílóastykkjum á tilboði í næstu verslun! Í ÞEIRRI hrinu verðhækkana sem á neyt- endum dynja um þessar mundir má í einstaka til- vikum sjá já- kvæðar hliðar. Kona ein, forfall- inn „kókisti“ eins og allt hennar heimilisfólk, hef- ur um nokkurra ára skeið keypt 18 plastflösku kippu af hálfslítra kóki í hverri viku í Bónus í Árbænum. Síðan virðisaukinn á matvælum var lækk- aður og þar til nýlega kostaði flask- an 84 krónur og kippan því 1.512 krónur, sem þýddi að ársneysla heimilisins var 78.624 krónur. Núna er flaskan á 91 krónu, kippan 1.638 krónur og því væri kókþamb fjölskyldunnar komið í 85.176 krón- ur á ári, ef ekki hefði verið gripið í taumana. Konan ákvað að fram- vegis kæmi kranavatnið í staðinn fyrir kók á sínu heimili. Fyrir vikið er ekki ólíklegt að senn komist heimilisfólkið í betra form og verði alsælt með ákvörðunina. Þess má svo geta að sums staðar kostar hálfslítra kók 140 krónur eða meira. | vjon@mbl.is Auratal 7 krónum dýrari Þar til nýverið kostaði hálfslítra kók í plastflösku 84 kr., núna kostar hún 91 kr. ♦♦♦ ÞRÍR ungir menn frá Hvammstanga undirbúa ferð um smábæi í Banda- ríkjunum og hyggjast taka ferðalag- ið upp á myndband. Þeir Sigurður Hólm Arnarsson, Daníel Geir Sig- urðsson og Halldór Einar Gunnars- son eru búnir að útvega sér gistingu hjá Amish-fólki í Pennsylvaníu og í Nýju-Mexíkó verður haldin indíána- helgiathöfn þeim til heiðurs. Undirbúningur hefur staðið yfir sleitulaust frá áramótum, enda að mörgu að hyggja þegar leiðin liggur utan alfaraleiðar. Afraksturinn verð- ur að öllum líkindum notaður í sjón- varpsþætti, sem verða sýndir hér á landi. Áhugasamir kaupendur hafa þegar gefið sig fram. | 42 Mynda smá- bæjarlífið Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is „HÁR hreindýra eru hol að innan þannig að það er eins og þau séu í björgunarvestum. Dýrin eru mjög létt í vatninu út af þessu. Vatn er engin fyrirstaða fyrir dýr- in. Þau skella sér óhikað út í,“ sagði Skarphéðinn Þór- isson, líffræðingur á Náttúrustofu Austurlands, en hóp- ur hreindýra synti óhikað yfir Jökulsá skammt frá stöðvarhúsinu í Fljótsdal. Gústaf F. Eggertsson eft- irlitsmaður náði myndum af dýrunum en sjaldgæft er að ná myndum af hreindýrum á sundi. Skarphéðinn sagði að hreindýr væru miklir sund- garpar. Straumhörð Jökulsá í Fljótsdal var engin fyr- irstaða fyrir þennan 32 dýra hóp. Hann sagði að klauf- ar dýranna væru þannig lagaðar að þær nýttust til að krafsa í snjóinn á vetrum og bera dýrin yfir snjóskafla og mýrar en auk þess gætu dýrin notað þau til að róa yfir vötn. Skarphéðinn sagði ekki óþekkt að tarfar í svokölluðum Austurfjöllum upp af Egilsstöðum skelltu sér yfir Lagarfljót á haustin til að komast að kúnum sem væru upp á heiði. Nú eru kýrnar að bera uppi á heiði en tarfar og vetrungar eru á þvælingi niðri í byggð að gæða sér á nýgræðingnum. Varð fyrir árás Það er nóg að gera hjá starfsfólki Náttúrustofu Aust- urlands þessa dagana en það er að rannsaka hreindýr og gæsir m.a. fyrir Landsvirkjun. Ýmislegt getur kom- ið upp á í þessari vinnu. Því fékk Reimar Ásgeirsson að kynnast þegar hann ætlaði að merkja nýborinn kálf austanundir Þrælahálsi. Kýrin réðst á Reimar og á vef Náttúrustofu Austurlands er fullyrt að kýrin hafi gert tilraun til að drepa hann. Reimar sagði í samtali við Morgunblaðið að það væri kannski fullmikið sagt en hún hefði vissulega reynt að hrekja sig frá kálfinum. „Hún kom á fullri ferð með hausinn undir sér og renndi sér á mig. Ég náði að grípa í hornin rétt áður en hún náði til mín og smeygja mér til hliðar þannig að annað hornið rétt stakkst í úlpuna.“ Kýrin gerði fleiri til- raunir til að hrekja Reimar í burtu en hann náði að smeygja sér undan eins og fimasti nautabani. Hreindýr réðst á starfsmann við kálfamerkingar Ljósmynd/Gústaf F. Eggertsson Sundkappar Hreindýrin á Austurlandi eru miklir sundkappar að sögn Skarphéðins Þórissonar líffræðings. Hreindýrin synda yfir Jöklu Ljósmynd/Reimar S. Ásgeirsson Móðurást Þessi kýr réðst á Reimar Ásgeirsson þegar hann hugðist koma fyrir merki í eyra kálfsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.