Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 19 Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is ÞAÐ verður erfitt fyrir Parísarbúa að láta Erró fara framhjá sér næsta mánuðinn, því ein stærsta og flott- asta verslunarmiðstöð borgarinnar, BHV á Rue de Rivoli, ætlar að skarta listaverki eftir málarann okk- ar, þrjátíu metra breiðri og sex metra hárri fresku, á framhlið húss- ins. Málað fyrir sýningarplássið Verkið málar Erró sérstaklega fyrir þessa óvenjulegu sýningu, sem verður opnuð á mánudaginn. Laug- ardaginn 31. maí áritar Erró bækur um list sína á staðnum. Listaverkið verður sýnt til 18. júní, en þá kemur Erró og dreifir mynd- um af verkinu til vegfarenda. Þetta verður fyrsta sýningin af þessu tagi sem haldin er í þessu víðfræga versl- unarhúsi, áður hafa listamenn ein- ungis sýnt í litlum hluta plássins. Það mun ekki vera að ástæðulausu að forsvarsmenn BHV völdu Erró til að ríða á vaðið, í fréttum erlendra miðla segir að hrifning Errós á dæg- urmenningu, hetjum teiknimynda- sagna og öðrum fyrirbærum popp- kúltúrsins hafi ráðið þar miklu. Erró hefur alltaf lagt upp úr því að ná til sem flestra og er varla hægt að ímynda sér stað sem fleiri augu rata á, því milljónir fara um þessa götu daglega. Mikilvægur hlekkur Erró er þó ekki bara utanhúss í París, því sýning á verkum hans frá árunum 1960-1972 stendur yfir í Grand Palais. Meira en hundrað verk frá þeim tíma eru sýnd þar og segir í fréttum frönsku miðlanna að með sýningu Errós gefist einstakt tækifæri til að enduruppgötva mik- ilvægan hlekk í franskri myndlist sjöunda og áttunda áratugarins. Erró úti og Erró inni  Tvær sýningar á verkum Errós í París  Risaverk sýnt á Rue de Rivoli  Eldri verk í Grand Palais Útimálverk Verk Errós á BHV versluninni á Rue de Rivoli í París. MYNDLIST Listasafn Íslands List mót byggingarlist – Steina, Franz West, Finnbogi Pétursson, Monica Bonvicini, Elín Hansdóttir Til 29. júní 2008. Opið þri.-su. kl. 11–17. Aðgangur ókeypis. Sýningarstjóri: Hall- dór Björn Runólfsson. Aðstoðarsýning- arstjórar: Harpa Þórsdóttir og Bryndís Ragnarsdóttir. TENGSL myndlistar og bygging- arlistar eru í brennidepli á sýning- unni „List mót byggingarlist“ í Listasafni Íslands. Sýningin er framlag safnsins til Listahátíðar í ár og hafa 5 listamenn verið valdir til þátttöku sem allir eru þekktir fyrir „umbyltingar sínar á um- hverfinu“ eins og segir í sýning- arskrá. Val listamannanna mótast af sýningarhugmynd sem speglar umræðu síðustu ára um rými safnsins, ekki bara sem „umgjörð“ listaverka heldur einnig virk áhrif þess – rýmisleg, bygging- arfræðileg, hugmyndafræðileg – á tilurð, sköpun, miðlun og viðtökur listaverka. Innsetning Finnboga Péturs- sonar (f. 1959), Eldur-Loft, í sal 2 skírskotar óneitanlega til hug- mynda um safnið (ekki síst þjóð- listasafnsins) sem helgidóms þar sem safngestinum er ætlað að verða fyrir einhvers konar upp- ljómun og jafnvel trúarlegri reynslu. „Gripurinn“, sem þar er á stalli, er þó af hvikulu tagi og bók- staflega brennir upp „rými“ safns- ins. Listin felst hér í gjörningi sem snýr rýminu sér í hag og varpar flöktandi ásýnd þess á veggi. Monica Bonvicini (f. 1965) riðlar einnig valdahlutföllum og býður sýningargestum í sveiflu sem und- irstrikar stöðu þeirra á mörkum þiggjanda og geranda – og veltir upp áleitnum spurningum um „vald áhorfandans“, vald sem listamenn og söfn láta, eða virðast láta hon- um í té í hinu gagnvirka merking- arsambandi milli áhorfanda og verks/safns, sem svo mjög hefur verið til umræðu síðustu árin. Bonvicini vinnur í sal 1 með leð- ur, keðjur og grindur, auk nokk- urra innrammaðra blekteikninga. Innsetning hennar fjallar öðrum þræði um dýrkun eða blæti í tengslum við list og listasöfn, hvort sem það birtist í upphafningu list- arinnar (t.d. í einstökum bygg- ingum) eða markaðs- og söfn- unarverðmæti. Bonvicini afhjúpar tengsl slíks blætis við karllægt vald í samfélaginu og hvernig það getur birst sem valdatákn/ reðurtákn í formi „mónúmental“ bygginga sem teygja sig upp á við sem táknmynd fyrir ríkjandi hug- myndafræði samfélagsins. Strúktúr Bonvicini er vandlega sam- anreyrður úr grófum efnum sem tengjast byggingariðnaði og ýktri karlmennsku – og fýsnum sem gefa til kynna valdbeitingu og hlut- gervingu. Steina (f. 1940) nýtir sér sér- stætt rými safnsins í sal 3 á hug- vitsaman hátt og býr þar til fagurt sjónarspil – sem kallast formrænt á við verk Finnboga. Verkið, sem ber heitið Of the North, er nokk- urs konar landslagsmynd í formi tölvustýrðrar myndbands- og hljóð- innsetningar. Í því leynist lúmsk skírskotun til hugmyndarinnar um málverkið sem blekkingu eða glugga út í heiminn. Verk Steinu er þrívíddarblekking sem virðist sýna 5 mismunandi plánetur (raun- ar 10 eftir því hvernig á það er lit- ið) sem hringsnúast. „Yfirborðið“ virðist á hreyfingu, líkt og jarð- skorpan vissulega er, og minnir stundum á púpu eða egg sem er við að klekjast út. Verkið vísar þannig ýmist til alheimsins, makró- kosmos, eða hins smásæja míkró- kosmos. Náttúruformin í verkinu eru á mörkum hins þekkjanlega og umbreytast, fyrir tilstilli tækninn- ar, á köflum í hreina „afstraksjón“. Verkið býr yfir annarleika sem tengist í senn dulvitund og áhrifum tækninnar á skynjunina. Ef einhverjir hafa efast um val sýningarstjóra á Elínu Hansdóttur (f. 1980) umfram eldri eða þekktari íslenska innsetningalistamenn, þá sýnir hún hér að hún stendur fylli- lega undir væntingum. Elín notar gamalkunnugt stef – völundarhúsið – til að leiða áhorfandann inn á við (í rými og skynjun) og í átt til frumstæðs, dulvitaðs ótta. Útfærsla verksins (þ.m.t. hljóð) er vönduð og áhrifarík: áhorfandinn er afvopn- aður og króaður af í eigin skynjun. Aðeins einn áhorfandi fær að skoða verkið í einu og af þeim sökum þurfa sýningargestir að bíða í röð við innganginn. Biðin vísar til „að- dragandans“ eða þeirrar eftirvænt- ingar sem oft er skrifuð inn í bygg- ingarlist stórra safna og er ætlað að undirbúa safngesti fyrir hina „upphöfnu“ reynslu sem á sér stað innandyra. Elínu tekst að skapa slíka eftirvæntingu sem er jafn- framt mikilvægur hluti reynsl- unnar. Hún líkir því að vissu leyti eftir hinni upphöfnu safnareynslu en ýkir hana og afvegaleiðir. Framlag Franz West (f. 1947) er á sinn hátt „afslappað“ og býður upp á leik, en það fölnar í sam- anburði við „upplifunar“-stemn- ingar hinna listamannanna. Vegg- spjöld Wests virðast skírskota til annarra rýma í tengslum við „list- heiminn“, en skírskotunin er frem- ur óljós. Bekknum á stigapallinum og skúlptúrnum við innganginn er e.t.v. ætlað að snúa út úr hefð- bundnu hlutverki slíkra hluta en gerir það ekki á nægilega eftirtekt- arverðan hátt. Að öðru leyti má segja að á þessari sýningu eigi sér stað frjó samræða milli myndlistar og bygg- ingarlistarinnar, ekki síst lista- safnsbyggingarinnar – samræða sem birtist í samspili hinna ólíku verka og hristir hressilega upp í áhorfandanum. Anna Jóa Rými og andrými Snúningur „„Yfirborðið“ virðist á hreyfingu, líkt og jarðskorpan vissulega er, og minnir stundum á púpu eða egg sem er við að klekjast út,“ segir gagnrýnandi um verkið Of the North á sýningu í Listasafni Íslands. Samfellan sem formar líkamann Laugavegi 80 • Sími 561 1330 www.sigurboginn.is Ný sending M b l9 23 02 3 TÓNLIST Múlinn á DOMO Hjónabandsglæpir bbbmn Óskar Guðjónsson tenórsaxófón, Kjartan Valdimarsson píanó, Matthías M.D. Hem- stock trommur. Fimmtudaginn 15. maí. ÓSKAR, Kjartan og Matthías hafa leikið lengi hver með öðrum hér og þar, en þetta tríó er framhald sam- vinnu þeirra við tónmynd Óskars við leikritið „Hjónabandsglæpi“ eftir Eric-Emmanuel Schmitt er Edda Heiðrún Backman setti upp í Þjóðleikhúsinu í vetur. Tónleikarnir hófust á lagi eftir Óskar, „Bopedí bopeda“, var það skírt á staðnum og í kjölfarið fylgdi „Pentax“ eftir Kjartan. Það fór ekkert á milli mála að hann var höfundurinn er impressjónískt tónaflóðið barst frá píanóinu í for- spilinu og nýklassíkin braust í gegn í spunanum áður en Roland- inn var tekinn í gagnið. Síðan fylgdi sparleg tónsmíð eftir Matt- hías, „Sink-opur“, sem Óskar blés af næmi. Rafmagn kom við sögu og Kjartan beygði tóna sína og teygði. Það verður aldrei ofsagt hversu flottan tón Matthías hefur á trommusettið. Það þarf líka að stilla það eins og önnur hljóðfæri. Óskar blés skala í tónsmíð sinni „Gula manninum“ og Kjartan var pastoralskur í píanóleiknum. Eng- in heimsins Amiina hefði náð þess- ari tæru kyrrð er ríkti í spili hans, lækjarhjali og þyt í stráum, þótt Beethoven hefði reynst slíkt auð- velt. Eftir hlé lék tríóið „Impro- vade“ í tveimur hlutum. Fyrri hlutinn draumkenndur eins og lag- ið sem skaust inn á milli „Olym- pus“ eftir Kjartan; síðari hlutinn ómstríður og dúett Óskars og Matthíasar í anda Coltranes og El- vins. Þá blés Óskar örstutt „Sátt- arferli“ sem gæti orðið glettilega flott verk er það verður þróað áfram. Sama má segja um leik tríósins. Þetta er upphaf að flottu samspili endist þeim örendi. Í það minnsta spilltu fæðingarhríðirnar ekki fyrir. Vernharður Linnet Léttbær fæðing Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.