Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 42
Þú ættir að skammast
þín, Regína. Ég pissa
bara í sundlaugar … 45
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞAÐ var nú bara hringt í mig og
mér boðið þetta,“ segir leikkonan
Ilmur Kristjánsdóttir sem hefur tek-
ið að sér hlutverk Janisar Joplin í
sýningunni Janis Joplin 27 sem sett
verður upp í Íslensku óperunni í
haust. Upphaflega stóð til að Arn-
björg Hlíf Valsdóttir myndi fara með
hlutverk söngkonunnar, en sam-
kvæmt upplýsingum frá Íslensku óp-
erunni sagði hún sig frá hlutverkinu
„vegna persónulegra kring-
umstæðna“.
En hvers vegna telur Ilmur að hún
hafi orðið fyrir valinu? „Af því að ég
er svo lík henni,“ segir hún og hlær.
„Nei nei, ég veit það svo sem ekki. En
við eigum örugglega margt sameig-
inlegt.“
Var aðeins 27 ára
Mikil tónlist verður í sýningunni,
og mun Bryndís Ásmundsdóttir
syngja lög Janisar, en Ilmur fara með
talað mál. Aðspurð segir hún verk-
efnið leggjast mjög vel í sig. „Ég sá
einhvern tímann heimildarmynd um
Janis Joplin og þá hugsaði ég með
mér að ég yrði að leika hana einhvern
tímann, af því að hún heillaði mig svo
mikið,“ segir Ilmur sem hefur hlust-
að þónokkuð á Joplin. „Ég er kannski
enginn harður aðdáandi hennar, en
mér fannst hún strax mjög spennandi
þegar ég fór að fylgjast með henni.“
Janis Joplin 27 er eftir Ólaf Hauk
Símonarson og er byggt á ævi söng-
konunnar bandarísku, en nafnið vísar
til þess að hún var aðeins 27 ára þeg-
ar hún lést. Leikstjóri verksins er
Sigurður Sigurjónsson og tónlistar-
stjóri Jón Ólafsson. Æfingar eru þeg-
ar hafnar, en stefnt er að frumsýn-
ingu um miðjan ágúst.
Ilmur leikur Janis Joplin
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Ilmur „Ég sá einhvern tímann heimildarmynd um Janis Joplin og þá hugsaði
ég með mér að ég yrði að leika hana einhvern tímann...“
Leikverkið Janis Joplin 27 sett upp í Óperunni í haust
Goðsögn Janis Joplin.
Tónleikar
bandaríska tón-
listarmannsins
Johns Fogertys í
Laugardalshöll-
inni í fyrrakvöld
þóttu heppnast
nokkuð vel. Þó
virðist úrslitaleik-
urinn í Meist-
aradeild Evrópu hafa haft sín áhrif
á tónleikana því fjölmargir gestir
komu seint í Höllina, og voru
nokkrir þeirra meira að segja
klæddir Manchester United-
treyjum. Fogerty steig á svið um
21.30, og átti þá leiknum að vera
lokið, en þar sem hann fór bæði í
framlengingu og vítaspyrnukeppni
voru menn að tínast inn á tón-
leikana fram yfir kl. 22.
Þá varð vart við töluverða ölvun
á tónleikunum og þurfti meðal ann-
ars að vísa nokkrum ölóðum Fo-
gerty-aðdáendum á dyr.
Ekki fylgir sögunni hvort þar
hafi verið á ferðinni menn sem setið
höfðu að sumbli yfir fótbolta fyrr
um kvöldið.
Fótbolti í Moskvu trufl-
aði Fogerty í Höllinni
Í eilífu
áhorfsstríði
ljósvakamiðl-
anna réttir
Sjónvarpið
hlut sinn frá
því í síðustu
viku þegar
Stöð 2 mældist
með meira
mínútuáhorf í
aldurs-
flokknum 12-
49. Þó munar ekki miklu í hlutdeild
þeirra í heildaráhorfi í sama ald-
ursflokki; Sjónvarpið fær 32,8% og
Stöð 2 31,2%.
Evróvisjónþáttur Páls Óskars
var með 29% áhorf síðasta laug-
ardag og trónir á toppnum þá vik-
una sem vinsælasti sjónvarpsþáttur
landsins.
Páll Óskar er engum öðrum líkur
í sjónvarpi og hér er aftur skorað á
sjónvarpsstöðvarnar að virkja
þessa augljósu hæfileika Palla.
Örfá prósentustig
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
ÞRÍR ungir menn frá Hvammstanga, þeir Sig-
urður Hólm Arnarsson, Daníel Geir Sigurðsson
og Halldór Einar Gunnarsson, fengu þá hug-
mynd á dögunum að flakka um stóran hluta
Bandaríkjanna, heimsækja fjölda smábæja og
gera úr ferðalaginu ferðaþætti. Meðal þess sem
þeir félagar hyggjast mynda og gera er að búa
með Amish-fólki í tvo daga og kynnast fornum
helgisiðum indíána.
Sigurður Hólm segir tilganginn þann að kynn-
ast fjölbreyttri menningu og siðum í Bandaríkj-
unum, gríðarlega margt sé í boði smábæjum
þeim sem þeir ætla að heimsækja.
„Við fljúgum fyrst til Boston og förum beint
þaðan til Pennsylvaníu og verðum hjá Amish-
fjölskyldu þar í einhverja tvo daga, kynnumst
þar þeirra lifnaðarháttum. Síðan höldum við nið-
ur eftir, munum væntanlega stoppa einhvers
staðar í Tennessee, Alabama eða Mississippi, það
er ekki alveg komið á hreint. Í Texas munum við
kíkja í bæi, á ródeó og svoleiðis.“
Indíána-athöfn í Silver City
Í Silver City í Nýju-Mexíkó hafa indíánar boð-
ist til að vera með athöfn fyrir þremenningana
að fornum sið, ætla að sýna þeim inn í aldagaml-
an menningarheim indíana í Ameríku. Allt verð-
ur þetta tekið upp á myndband á almennilegar
græjur og greinilegt að vel á að standa að verki.
„Við ætlum líka að taka margar myndir og
vera með öflugt myndablogg á heimasíðunni
okkar (www.sveittir.net), setjum inn nýjar
myndir á hverjum degi,“ segir Sigurður.
Þeir félagar ætla að reyna að selja þættina í
sjónvarp að ferðalagi loknu og segir Sigurður
mikinn áhuga fyrir því á ónefndum stöðvum.
Hann segir ekki ákveðið hversu margir bæirnir
verða sem þeir félagar heimsækja en þeir muni
eiga leið um mörg fylki Bandaríkjanna. Halldór
mun sjá um tæknilegu hliðina í ferðalaginu, þ.e.
myndatöku og hljóðvinnslu.
– Hvernig fer maður að því að redda sér gist-
ingu hjá Amish-fólki og indíána-helgiathöfn?
„Góð spurning. Það er bara gríðarlega mikil
vinna og leit á Google,“ svarar Sigurður. Hann
hafi eytt öllum kvöldstundum frá áramótum í leit
á netinu og í skipulag ferðarinnar. Hann vonast
til þess að þættirnir verði sýndir í haust í sjón-
varpi en eitthvað verður um vídeóblogg þangað
til. Hægt verður að fylgjast með þessari miklu
ævintýraferð á www.sveittir.net.
Amish-fólk og indíánar
Smábæjargæjar ætla að
gera ferðaþætti í smá-
bæjaferð um Bandaríkin
Morgunblaðið/Golli
Sveittir? Halldór Einar Gunnarsson, Sigurður Hólm Arnarsson og Daníel Geir Sigurðsson.