Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ 3. útdráttur 22. maí 2008 Harley Davidson FatBoy + 3.200.000 kr. (tvöfaldur) 4 2 3 8 9 V i n n i n g u r Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur 5 3 0 9 5 5 9 1 6 6 0 3 1 5 6 9 0 8 9 Vi n n i n g u r Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 7673 12153 26976 32781 41608 59246 11189 13264 29697 39575 56835 60960 V i n n i n g u r Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) 1 1 5 6 1 3 1 3 8 2 2 9 6 5 3 2 6 4 0 4 1 3 0 6 5 5 2 6 5 6 0 2 0 9 7 0 7 4 1 2 5 2 6 1 3 4 3 5 2 3 2 0 4 3 4 1 2 3 4 1 6 4 3 5 5 5 1 3 6 0 4 0 3 7 3 6 5 6 2 9 6 7 1 3 8 3 0 2 3 3 6 5 3 4 6 1 5 4 1 8 9 6 5 6 0 0 6 6 2 9 5 9 7 4 5 4 7 3 2 6 0 1 5 0 2 5 2 4 6 0 4 3 5 1 7 9 4 5 4 8 7 5 6 2 1 9 6 3 0 4 3 7 4 6 0 8 4 7 4 5 1 5 0 4 6 2 4 6 4 8 3 5 9 0 9 4 6 3 1 9 5 6 4 0 7 6 3 3 9 6 7 5 1 0 1 6 3 1 7 1 5 3 1 9 2 5 4 0 1 3 5 9 8 0 4 7 9 1 1 5 7 0 5 4 6 3 5 6 3 7 5 9 3 8 9 4 6 6 1 5 4 7 4 2 6 0 5 9 3 7 7 4 4 4 9 6 5 4 5 7 4 9 6 6 3 8 2 0 7 9 4 8 8 9 9 2 1 1 7 0 2 0 2 6 2 2 2 3 8 8 2 2 5 0 4 5 1 5 7 7 8 4 6 4 5 2 8 7 9 4 9 6 1 0 8 4 1 1 8 0 9 9 2 6 9 4 6 3 9 7 6 8 5 1 4 2 4 5 7 9 8 5 6 5 3 1 5 7 9 6 0 2 1 1 3 9 6 1 8 3 1 2 2 7 2 4 4 4 0 0 1 1 5 1 5 5 7 5 8 1 4 5 6 6 3 9 0 1 2 2 6 0 1 9 2 6 5 2 9 6 3 2 4 0 5 5 9 5 1 9 8 3 5 8 3 1 1 6 7 2 6 6 1 2 6 0 0 2 0 6 1 7 2 9 9 4 0 4 0 6 1 9 5 2 6 7 1 5 8 3 4 2 6 8 0 3 6 1 2 6 3 0 2 2 7 5 4 3 1 4 5 5 4 0 7 8 2 5 3 1 9 9 5 9 9 8 2 7 0 5 9 2 V i n n i n g u r Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur) 21 9480 18537 23978 34106 42484 52112 59679 66834 73139 283 9584 18561 24098 34167 42518 52166 59730 67666 73157 412 10318 18562 24269 34392 42578 52215 60187 67722 73482 629 10429 18573 24608 34638 42795 52420 60268 68062 73883 856 10521 18602 24913 34855 42970 52532 60652 68128 73995 977 10707 18676 24950 34858 43005 52738 60798 68304 74293 1122 10797 18786 25000 34891 43270 53238 61292 68388 74309 1260 11096 18916 25110 34932 43930 53653 61410 68510 74415 1660 11253 19355 26791 35127 44135 53829 61440 68549 74435 1765 11301 19382 26936 35350 44363 53993 61479 68720 74471 2498 11335 19551 27141 35385 44704 54070 61492 68757 74734 2977 11543 19579 27797 35958 44793 54154 61523 68805 74898 3041 12117 20050 27839 35963 45148 54582 62094 68864 75010 3269 12637 20095 27843 36133 45377 54745 62311 69389 75586 3776 12685 20262 28218 36169 45582 54829 62352 69447 75749 3842 13899 20606 28348 36564 45608 54871 62472 69514 76011 4010 14138 20770 28963 36570 45754 54909 62661 69537 76120 4884 14223 21011 29067 37037 45803 55103 62672 69629 76205 5104 14323 21122 29164 37203 46263 55545 62876 70176 76346 5207 14466 21180 30126 37237 46871 55657 63321 70180 76612 5257 15050 21444 30291 37570 47319 55864 63487 70223 76833 5409 15139 21471 30570 38037 47850 56310 63764 70243 76881 5938 15299 21504 30773 38040 47898 56520 63922 70335 77430 6181 15325 21540 30918 38413 48073 56706 63951 70550 78207 6400 15521 21699 31090 38429 48892 56753 63972 70596 78275 6551 15524 21798 31284 38754 49013 56878 64181 71266 78452 7334 15665 21839 31423 39252 49014 57372 64258 71334 78597 7674 16109 22075 32166 39330 49186 57426 64421 71382 78598 7710 16127 22150 32187 39363 49286 57536 64634 71385 78939 7946 16640 22500 32257 39812 49452 57631 64854 71435 78985 7995 17028 22634 32338 39992 49632 57821 64892 71471 79078 8785 17455 22871 32371 39998 49716 57951 65061 71532 79110 8848 17481 23127 32595 40030 50400 57993 65311 71863 79121 8947 17597 23165 33016 40670 50422 58179 65458 72011 79162 8953 17644 23222 33328 40690 50515 58746 65588 72215 79330 9036 17724 23254 33439 40865 50744 59026 65870 72297 79383 9115 17754 23431 33486 41390 50861 59345 65936 72450 79560 9360 17756 23550 33637 41417 50925 59370 66482 72479 79783 9469 17839 23612 33780 41666 50997 59525 66619 72603 79793 9475 18067 23870 34098 42109 51635 59551 66687 72680 79871 Næsti útdráttur fer fram 29. maí 2008 Heimasíða á Interneti: www.das.is MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi opið bréf frá Félagi framhaldsskólakennara til þing- manna: „Félag framhaldsskólakennara veitti menntamálanefnd Alþingis umsögn um frumvarp til framhalds- skólalaga 28. janúar sl. Félagið tel- ur ýmislegt í frumvarpinu geta orð- ið efni í góða menntastefnu ef rétt er staðið að málum. Þrátt fyrir það hefur félagið lagt mikla áherslu á að frumvarpið yrði fært til betri vegar í meðferð þingsins. Það er því sann- arlega mikið áhyggjuefni að í áliti meirihluta menntamálanefndar á frumvarpinu sem kemur fram á síð- ustu starfsdögum þingsins er ekki tekið á helstu ágöllum frumvarps- ins. Þeir eru í stórum dráttum þess- ir:  Fyrirætlanir í 23. gr. um að draga eigi úr miðstýringu í náms- framboði og í námskrárgerð eru ekki markvissar. Ráðherra á bæði að staðfesta námsbrautarlýsingar skólanna og setja þeim viðmið- unarnámskrár. Félagið telur að skólarnir eigi að fá skýrt umboð til að móta sínar áherslur eins og var fyrir lagasetninguna 1996.  Í nefndarálitinu er talað gegn skerðingu á inntaki stúdents- prófsins og lögð áhersla á að út- færslan og vinnan í framhaldi af nýjum lögum eigi að miðast við það. Þessu ber að fagna. Félagið telur engu að síður mikilvægt að vinna gegn hættu á „útþynningu“ stúd- entsprófsins sem háskólarnir hafa varað sterklega við. Tilgreina verð- ur lágmarksfjölda námseininga til stúdentsprófs.  Í skýrslunni „Breytt námskipan til stúdentsprófs“ (2004) komu fram áform um að stytta námstíma til stúdentsprófs um eitt ár með því að skerða námið. Til mótvægis var tal- að um að hægt væri að færa ein- hverja framhaldsskólaáfanga yfir til grunnskólans auk þess sem til stóð að lengja skólaárið um fimm daga. Í þingræðum á vordögum 2007 kom fram að öll slík áform hefðu verið lögð til hliðar. Taka þarf af tvímæli um að breyting- arnar sem nú eru boðaðar með frumvarpinu feli í sér skerðingu á náminu. Ljóst er að færsla fram- haldsskólaáfanga yfir til grunnskól- ans og lenging skólaársins um fimm daga vega ekki upp námseiningar sem svara til heils árs náms.  Í frumvarpinu er ráðgert að lengja skólaárið um fimm daga. Af efni frumvarpsins verður ekki ráðið hvað á að gera við þessa daga.  Í frumvarpinu er ráðgert að taka upp einingakerfi evrópskra há- skóla í íslenskum framhaldsskólum. Hugmyndunum um ECTS- einingarnar var kastað skýr- ingalaust inn í frumvarpsvinnuna á haustdögum 2007 og fengust aldrei ræddar á þeim vettvangi þrátt fyrir ítrekaðar óskir kennarasamtak- anna. Skýra þarf tilgang þess að ráðast skuli í þessa grundvall- arbreytingu.  Í frumvarpinu þarf að birtast ótvíræður vilji stjórnvalda til að styrkja fjárhagslegt svigrúm og forsendur framhaldsskóla til að bjóða nemendum upp á nám við hæfi, fjölbreytt nám og sveigj- anlega námsframvindu.  Frumvarpið er óskýrt um fram- haldsskólapróf og fræðsluskyldu til 18 ára aldurs. Hér verða að koma fram skýrari áform um að stjórn- völd ætli sér að taka aukna ábyrgð á námsvist og skólagöngu ólögráða nemenda. Með fræðsluskyldunni þarf að veita nemendum skil- greindan rétt til framhalds- skólavistar í grennd við heimili sitt. Það myndi ráða bót á þeirri miklu námsaðgreiningu nemenda sem ríkir á skólasvæði suðvesturhorns- ins.  Í frumvarpinu felast misjöfn tækifæri eftir landshlutum. Smærri skólar í dreifðum byggðum geta lent í erfiðleikum með að bjóða upp á þá breidd í námi sem þeir þurfa til að sinna sínu byggðarlagi. Gera þarf grein fyrir mótvægisaðgerðum gegn vaxandi aðstöðumun milli landsbyggðar og höfuðborg- arsvæðis í þessum efnum.  Frumvarpið tryggir ekki ólög- ráða framhaldsskólanemendum sambærilegan stuðning, ráðgjöf og þjónustu og ólögráða nemendum á öðrum skólastigum. Mikilvægt er að taka upp sambærileg ákvæði um þessi atriði og í frumvarpi um grunnskóla þannig að litið verði á skólagöngu ólögráða nemenda sem eina heild frá upphafi skyldunáms til 18 ára aldurs.  Í frumvarpinu þarf að fjalla með skýrari hætti um tengsl milli grunnskóla og framhaldsskóla.  Í frumvarpinu þarf að fjalla með skýrari hætti um aukna náms- og starfsráðgjöf fyrir nemendur í framhaldsskólum.  Frumvarpið tryggir ólögráða nemendum ekki gjaldfrjálsa skóla- göngu eins og margar tillögur starfshópa að 10 skrefa sam- komulaginu gerðu ráð fyrir. Ákvæði frumvarpsins um að komið verði til móts við kostnað nemenda vegna námsgagna eru óútfærð.  Setja þarf skýr gæðaviðmið um þjónustu við nemendur í fjar- og dreifnámi í 21. gr. og einnig að tryggja jafnan aðgang þeirra að náminu. Fjar- og dreifnám felur í sér breytingar á kennsluháttum sem munu hafa áhrif á gæði í skóla- starfi til framtíðar.  Frumvarpið þarf að tryggja aukinn rétt nemenda og kennara til þátttöku í ákvörðunum um innra starf framhaldsskóla. Skilgreina þarf betur verksvið skólafunda og verksvið kennarafunda. Breyting- arnar sem lagt er til að gerðar verði á verksviði kennarafunda m.v. núgildandi lög eru hvorki fag- legar né skynsamlegar. Þær eru ekki heldur í samræmi við markmið frumvarpsins um aukið vægi kenn- arafunda í tengslum við nám- skrárgerð og stefnumótun skóla. Þegar frumvörpin um skólastigin þrjú eru borin saman kemur greini- lega fram að frum- varpið um fram- haldsskólann boðar mestu og stærstu breytingarnar. Þær eru þó hreint ekki allar sýnilegar því gert er ráð fyrir að menntamálaráð- herra setji tugi reglugerða um ýmis atriði í nýjum lögum. Það hlýtur að vera réttmæt og eðlileg krafa að löggjafinn skýri betur einstök atriði í stað þess að setja ákvarð- anir um þetta alfarið í hendur ráð- herra. Þegar frumvarpið fór inn á þing á jólaföstu átti það töluvert langt í land með að verða að nothæfum lagaramma fyrir skólastigið. Svo er enn, núna þegar örfáir dagar eru til þess að þingið geri hlé á störfum sínum. Hætta er á því, verði frum- varpið nú keyrt í gegnum þingið, að fólk standi uppi með lög sem end- urspegla ekki álit og góðan vilja löggjafans. Nauðsynlegt er að gefa sér tíma til eðlilegrar þróunar á ýmsum greinum, samræmingar og annarra nauðsynlegra lagfæringa. Mikilvægt er að frumvarpið verði ekki að lögum frá Alþingi nema í sátt við nemendur, kennara og skóla og að ekki fari á milli mála að ný lög um framhaldsskóla skili nemendum jafngóðri menntun og þeim stendur nú til boða. Auk þess er grundvallaratriði að nægt fjár- magn verði tryggt til að standa undir öllum kostnaði sem til fellur vegna þeirra breytinga sem ný lög munu hafa í för með sér. Mikill ágreiningur var um mörg stór efnisatriði í vinnunni að samn- ingu frumvarpsins og vegna vinnu- bragða. Stefnumótunarvinnu ým- issa fjölskipaðra nefnda sem unnu að tíu skrefa samkomulagi KÍ og menntamálaráðherra frá 2. febrúar 2006 og sem hafa átti til hliðsjónar við frumvarpsvinnuna var í raun ýtt til hliðar. Fulltrúar KÍ í endurskoð- unarnefndinni treystu sér ekki til að standa að skilabréfi nefnd- arinnar til menntamálaráðherra vegna þessa og sögðu sig frá vinnunni. Að lokum skal minnt á einfalda staðreynd. Núverandi áfangakerfi framhaldsskóla sem kom til fyrir rúmum 30 árum varð til vegna atorku og hugsjóna þeirra sem störfuðu í skólunum. Nú þegar ætl- unin er að færa skólunum aftur það umboð sem þeir eitt sinn höfðu til að móta sínar áherslur til hagsbóta fyrir nemendur og skólastarfið er lykilatriði að sátt ríki hjá starfs- mönnum skólanna sem munu bera uppi breytingastarfið. Félag framhaldsskólakennara leggur fast að þingmönnum að bíða með að samþykkja ný lög um fram- haldsskóla. Næstu mánuði ætti að nota til þess að sníða af frumvarp- inu helstu gallana og ná sáttum um þessi mikilvægu mál. Eru kenn- arasamtökin fús sem fyrr að leggja góðum málefnum lið. Opið bréf Félags framhalds- skólakennara til þingmanna Aðalheiður Steingrímsdóttir Magnús Ingólfsson Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskóla- kennara, Kennarasambandi Íslands, Magnús Ingólfsson, varaformaður Félags framhaldsskólakennara, Kennarasambandi Íslands.“ Gullsmárinn Úrslit 19.5. 13 borð meðalskor 112. N/S Magnús Halldórss. – Þorsteinn Laufdal 152 Birgir Ísleifsson – Örn Einarsson 133 Gunnar Sigurbjörnss. – Karl Gunnarss. 127 Tómas Sigurðss. – Sigtryggur Ellertss. 119 A/V Steindór Árnason – Einar Markússon 138 Jón Stefánsson – Eysteinn Einarsson 129 Aðalheiður Torfad. – Ragnar Ásmunds. 129 Ragnhildur Gunnarsd. – Ólafur Gunnars. 128 Frá eldri borgurum í Hafnarfirði. Þriðjudaginn 20. maí var spilað á 18 borðum. Meðalskor var 312. Úr- slit urðu þessi í N/S: Oddur Jónsson – Katarínus Jónss. 352 Bragi Björnsson – Auðunn Guðmss. 343 Ragfn Kristjánss. – Oliver Kristóferss. 341 Sverrir Jónss. – Skarphéðinn Lýðsson 340 A/V Jón Lárusson – Halla Ólafsd. 417 Óskar Hjaltason – Jón Sævaldss. 382 Knútur Björnsson – Elín Björnsd. 376 Ásgrímur Aðalstss. – Eyjólfur Ólafsson 350 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is ÞAU mistök urðu í frétt, sem birtist í Morgunblaðinu í gær og sagði frá fundi um geðheilbrigðismál, sem Árni Tryggvason og Hugarafl efna til í Norræna húsinu á sunnudag, að myndir af þeim Eyrúnu Thorstensen hjúkrunarfræðingi og Herdísi Bene- diktsdóttur í Hugarafli víxluðust. Báðar verða þær meðal fyrirlesara á fundi Hugarafls, sem eru samtök fólks með geðröskun og iðjuþjálfa. Fundurinn í Norræna húsinu stend- ur frá kl. 16.30 til 18.30. Beðist er vel- virðingar á mistökunum. Myndir með frétt víxluðust Eyrún Thorstensen Herdís Benediktsdóttir TILLÖGU um hækkun á leigu Fé- lagsbústaða um 10% var vísað til umsagnar velferðarráðs á fundi borgarráðs í gær. Hækkunin er umfram ársfjórð- ungslega hækkun á leigu vegna verðlags og er rökstudd með til- vísan til hækkunar meðallvaxta Íbúðalánasjóðs vegna kaupa á íbúðum frá árinu 2001, hækkunar íbúðaverðs umfram verðlag og hækkunar fasteignagjalda umfram verðlag. Fram kemur að í samþykktum Félagsbústaða sé gert ráð fyrir að reksturinn sé sjálfbær og sam- kvæmt áætlunum muni veltufjár- munir frá rekstri ekki standa að fullu undir afborgunum stofnlána í ár og halla muni undan fæti á kom- andi árum. Rúmlega tvö þúsund íbúðir eru nú í eigu Félagsbústaða. Leiguhækkun vísað til velferðarráðs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.