Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ VEÐUR Við Íslendingar höfum að undan-förnu stóraukið samskipti okk- ar við Katar. Forseti Íslands fór þangað í opinbera heimsókn fyrr á þessu ári. Í Morgunblaðinu í gær kom fram að Ólafur Ragnar Gríms- son hefði sl. þriðjudag átt fund með emírnum af Katar, hans hátign sjeik Hamad Bin Khalifa Al Thani, í Doha, höfuðborg Katar.     Í fréttatilkynn-ingu um ferð forsetans til Kat- ar kom fram, að hann hefði rætt við emírinn um samstarf á sviði fjármálaþjónustu og bankastarf- semi, í orku- málum og á sviði erfðafræði. Jafnframt kom fram að emírinn af Katar væri á leið til Íslands í júlí.     Hvað ætli forsetinn hafi verið aðgera í Katar sl. þriðjudag?     Yfirleitt sjá bankarnir sjálfir umsín samskipti við erlenda aðila. Hið sama má segja um orkufyrir- tæki og fyrirtæki á sviði erfða- fræði.     Emírinn hefur verið umsvifamikillí fjárfestingum á Vesturlöndum að undanförnu. Tengist ferð forset- ans til Katar slíkum fjárfestingum?     Fyrir nokkrum mánuðum bárustfréttir af því að arabískir fjár- festar, sem taldir voru frá Katar, hefðu keypt 2% hlut í Kaupþingi, sem hefur jafnframt opnað skrif- stofu í Katar.     Hvað ætli valdi stórauknumáhuga okkar Íslendinga á Kat- ar?     ??? STAKSTEINAR Ólafur Ragnar Grímsson Stóraukin samskipti við Katar SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                       *(!  + ,- .  & / 0    + -                       12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                          :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).?                                        *$BC                         !   "    #$  %       &  ' (    *! $$ B *! ! "# !# $  %#  &% <2 <! <2 <! <2 $#"  ' ( )*+ % ,  CD                    )  $ %  *  #& +  , -        B  E" 2   )  $ %  *  #& +  , -        /        ) -       )   ,#  &. #$    #&     ' / 0  $     -. %//  %#0% +%' ( Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Sigríður Laufey Einarsdóttir | 21. maí Er réttarkerfinu sama um börnin? Skelfilegt ástand er virðist vera með ómann- úðlegar/óleysanlegar lagalegar forsendur sem geta tæplega talist ásættanlegar viðkom- andi börnunum, sem Ingibjörg skrifar um. Tek undir með Ingibjörgu að svona mál eru meira inni á skrifstofum sem kennitölur en ekki nægileg samskipti við þá sem eru með börnin... „það er bara eins og drengirnir séu kennitölur í óþægi- legu máli en ekki brothættar litlar sál- ir“. Meira: logos.blog.is Jenný Anna Baldursdóttir | 22. maí Blóðbað í borginni Fáránleiki tilverunnar er dásamlegur stundum. ...nú á að fjarlægja orð- ið sex af auglýsinga- spjöldum um myndina „Sex in the city“. Aldrei of varlega farið. Orðið kynlíf er stórhættulegt. Bara að sjá það og lesa hvetur til stóðlífis og raðfullnæginga úti á götu. Það hvetur til siðferðislegrar hnignunar í þjóðfélagi sem má ekki vamm sitt vita. Ójá, mikill djöfulsins viðbjóður þetta kynlíf. Það hefur mörgum mann- inum orðið að aldurtila. Meira: jenfo.blog.is Áslaug Friðriksdóttir | 22. maí 2008 Eru ljón á veginum? Hlutur kvenna í nýsköp- un og frumkvöðlastarfi er mun minni en karla, þetta er merkilegt og ekki get ég ímyndað mér að hugmyndir eða sköpunarkraftur kvenna sé nokkuð lakari en gengur og gerist meðal karla. En hvaða ljón eru á veginum? At- hyglisvert er að fá innsýn inn í sögu þeirra kvenna sem fetað hafa braut einkaframtaksins og fylgt sýnum hug- myndum og sýn. Hvaðan kom krafturinn til að fylgja sýninni... Meira: aslaugfridriks.blog.is Ágúst H. Bjarnason | 22. maí 2008 Fönix geimfarið lendir á Mars með skurð- gröfu og „hálf-íslensk- an“ vindhraðamæli... .... Sunnudaginn 25. maí, skömmu fyrir mið- nætti að íslenskum tíma, lendir ómannað könnunarfar NASA, sem kallast Mars Fönix eða Mars Phoenix nærri norðurskauti Mars, eða á 68 breidd- argráðu. Um borð í lendingarfarinu er eins konar skurðgrafa sem leita mun að ís í jarðvegi hnattarins og rannsaka hvort í honum er að finna lífrænar sameindir. Það er auðvitað mjög mik- ilvægt vegna mannaðra geimferða til Mars að vita af vatni þar. Meðal fjöl- margra vísindatækja um borð í geim- farinu verður vindmælir sem dr. Har- aldur Páll Gunnlaugsson frá Árósa- háskóla í Danmörku hefur tekið þátt í að hanna og smíða. Þessi vindmælir er aðeins 20 grömm að þyngd, en of- urnæmur þar sem lofthjúpur Mars er hundrað sinnum þynnri en lofthjúpur Jarðar. Vindmælirinn er auðvitað danskur, en ekki beinlínis „hálf- íslenskur“, – og þó, kannski smávegis Haraldur hélt mjög fróðlegt erindi á vegum Stjarnvísindafélags Íslands, Eðlisfræðifélags Íslands og Jarðfræði- félags Íslands þriðjudaginn 20. maí. Sagt var frá helstu niðurstöðum úr leiðöngrum bandarísku og evrópsku geimferðastofnananna (NASA og ESA) til Mars á undanförnum árum og gefið yfirlit um stöðu þekkingar á hnett- inum. Sérstaklega var fjallað um fyr- irbæri á Mars sem eiga sér hliðstæður í náttúru Íslands. Helstu vís- indatækjum Fönix geimfarsins var lýst og fjallað um niðurstöður þær sem bú- ast má við að berist frá lending- arstaðnum á næstu mánuðum með áherslu á tækjabúnað þann sem Har- aldur hefur tekið þátt að þróa og smíða. ... Mjög fróðlegt er að heim- sækja vefsíðu vinnustaðar Haraldar, The Mars Simulation Laboratory, við Árósaháskóla. Þar er m.a. stórt hylki þar sem líkt er eftir lofthjúpnum á Mars þar sem loftþrýstingur er aðeins um 1/100 þess sem við erum vön, og hægt að framkalla vind af ýmsum styrkleika. Í þessu hylki var vindmæl- irinn prófaður við mismunandi að- stæður. Ferðalag Fönix geimfarsins niður á yfirborð Mars tekur um 7 mín- útur. Meira: agbjarn.blog.is BLOG.IS FRÉTTIR FLUGFÉLAGIÐ Iceland Express braut lög um eftirlit með óréttmæt- um viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins með framsetningu sinni á verðupplýsingum um flugfar- gjöld á bókunarvef sínum. Þetta kemur fram í úrskurði Neytendastofu, þar sem segir að fyr- irtækinu sé gert að breyta framsetn- ingunni á þann veg að „heildarverð hvers flugfars með sköttum og öðr- um greiðslum komi fram í beinu framhaldi af því verði sem Iceland Express selur flugfarið á án skatta og annarra greiðslna“, eins og það var orðað í úrskurðinum 13. maí sl. Tilefni úrskurðarins var kvörtun Icelandair yfir verðupplýsingum í bókunarferli Iceland Express með bréfi 18. febrúar sl., þar sem þess var óskað að „Neytendastofa taki til skoðunar hvort framsetning á verð- upplýsingum í bókunarferli Iceland Express samræmist 6. gr. laga nr. 57/2005 um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi mark- aðarins og 2. gr. reglna nr. 580/1998 um verðmerkingar“. Á vefsíðu Iceland Express hafi ekki verið gefnar upplýsingar um heildarverð, heldur verð fyrir full- orðinn farþega án skatta og annarra gjalda. Matthías Imsland, forstjóri Ice- land Express, segir fyrirtækið hafa þegar í stað brugðist við úrskurði Neytendastofu. „Ég túlka þetta ekki þannig að það hafi verið úrskurðað okkur í mót, vegna þess að úrskurðurinn fel- ur í sér að við þurfum að hliðra að- eins til í bókunarvélinni,“ segir Matthías. „Það var gengið í það verk um leið og við fengum þennan úrskurð að breyta forritinu. Þetta verður lagað í næstu uppfærslu, hvort sem það verður í dag [í gær] eða á morgun [í dag]. Þótt Neytendastofa úrskurði að þetta hafi verið óleyfilegt þá taka þeir tillit til sjónarmiða okkar. Við vísuðum til heimasíðu flug- félagsins Air Berlin sem er sam- bærileg okkar síðu, þar sem settir eru fram verðrammar fyrir neðan bókunarupplýsingarnar eins og Neytendastofa vill að við gerum. Á vefsíðu okkar höfum við verið með verðramma til hliðar þar sem sundurgreiningin hefur verið. Við komum til með að færa þennan ramma undir bókunarvélina og hafa hann þar mjög sýnilegan. Við kom- um til með að skipta honum þannig að hann verði með flug á útleið og á heimleið.“ Framsetningin var lögbrot

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.