Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 13 Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is ÁFORM menntamálaráðherra um styttingu náms til stúdentsprófs ganga aftur í frumvarpi um fram- haldsskóla og allt tal um sátt er því orðin tóm. Þetta segir í áliti minni- hluta menntamálanefndar á frum- varpinu en undir það rita Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, og Höskuldur Þór Þórhalls- son, þingmaður Framsóknarflokks. Leggja þau til að málinu verði vísað frá. Fjögur skólafrumvörp voru á dagskrá Alþingis í gær en mennta- málanefnd var að mestu leyti ein- huga í umsögnum sínum um þau öll, að undanskildu framhaldsskóla- frumvarpinu. Kolbrún og Höskuldur segja markmiðin göfug en stytting náms til stúdentsprófs sé innbyggð í fyr- irkomulagið sem mælt er fyrir um. Einingafjöldinn óljós „Það byggist á þeirri staðreynd að frumvarpið tilgreinir hvorki eininga- fjölda né námstíma til stúdents- prófs. Núverandi stúdentspróf er 140 námseiningar sem miðað er við að nemendur ljúki á fjórum árum en í fyrirmælum frumvarpsins er hvorki ljóst hversu margar nýjar einingar stúdentsprófið verður né heldur hve mörg námsár eru til stúdentsprófs,“ segir í álitinu þar sem því er jafnframt haldið fram að rökin fyrir því að taka upp ECTS- einingakerfið séu afar veik. „Þá er ljóst að mistekist hefur að skapa nauðsynlega sátt um frumvarpið meðal skólafólks, en slík sátt er grundvöllur þeirra róttæku breyt- inga sem stjórnvöld hafa hug á að gera á framhaldsskólanum,“ segir jafnframt í álitinu. Stúdentspróf ekki skert Meirihlutinn, þ.e. fulltrúar Sam- fylkingar og Sjálfstæðisflokks, áréttar hins vegar í áliti sínu að nám til stúdentsprófs sé ekki skert með frumvarpinu. Það veiti eftir sem áð- ur aðgang að háskólanámi og að há- skólar eigi ekki að geta krafið nem- endur um frekara undirbúningsnám. Þá leggur meirihlutinn áherslu á að vandað verði til verka við upptöku ECTS-einingakerfisins. Styttra í stúdent? Áform um styttingu náms til stúdentsprófs ganga aftur í frumvarpi um framhaldsskóla, segir minnihlutinn Morgunblaðið/Frikki Deilur Þingmenn eru ekki á eitt sáttir um framhaldsskólafrumvarpið en minnihlutinn telur það fela í sér styttingu náms til stúdentsprófs. Í HNOTSKURN »Stytting náms til stúdents-prófs um eitt ár og lenging skólaársins hafa lengi verið í um- ræðunni á Íslandi. »Árið 2005 lagði mennta-málaráðherra fram tillögur um styttingu en þær mættu mik- illi andstöðu, m.a. frá framhalds- skólakennurum og nemendum. Hægt og hljótt Umræður mjökuðust hægt áfram á Alþingi í gær og stóðu fram á nótt. Leikskólafrumvarp mennta- málaráðherra var rætt í sex klukku- tíma þó að almennur samhljómur væri um það. Ljóst var að stjórn- arandstaðan fór sér að engu óðs- lega enda enn ósamið um hvernig síðustu þingfundum vorsins verður háttað og hvaða mál verða kláruð. Engar stórbreytingar Ekki voru gerðar neinar grundvall- arbreytingar á skólafrumvörpunum fjórum í meðförum menntamála- nefndar en nefndin lagði áherslu á að samræma þau sem mest. M.a. verður staða ófaglærðs starfsfólks skóla tryggð betur auk þess sem áhersla er lögð á íslenska tungu á öllum skólastigum. Ekki á einu máli Lúðvík Berg- vinssyni, Sam- fylkingu, barst í gær liðsstyrkur frá flokksbróður sínum, Árna Páli Árnasyni, sem tók undir með að leggja ætti niður embætti ríkislög- reglustjóra í nú- verandi mynd. Siv Friðleifsdóttir, Framsókn, vildi svör frá Sjálfstæðis- flokknum um hvort þingmenn hans styddu þessar hugmyndir. Í stuttu máli var svarið: nei. Dagskrá þingsins Þingfundur hefst kl. 10:30 í dag með óundirbúnum fyrirspurnartíma. Rætt verður utan dagskrár um hval- veiðar annars vegar og fast- eignamarkaðinn hins vegar. Siv Friðleifsdóttir MEIRIHLUTI iðnaðarnefndar leggur til að viðmiðunarmörk við banni á varanlegu framsali vatns- réttinda verði 10 megavött en ekki sjö eins og upphaflega var gert ráð fyrir í orkufrumvarpi iðnaðarráð- herra. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að aðeins megi veita afnot af vatns- og jarðhitaréttindum í 65 ár en margir umsagnaraðilar vildu fremur að miðað væri við 100 ár. Meirihlutinn leggur til að nefnd sem á að móta reglur um leigu vatns- og jarðhitaréttinda fjalli sér- staklega um þetta. Þá leggur nefndin til að miðað verði við fjölda íbúa á dreifiveitu- svæði fremur en tekjur þegar kem- ur að því að greina á milli stórra og smárra orkufyrirtækja. Miðað við 10 MW en ekki 7 RÁÐHERRARNIR tólf sem nú mynda ríkisstjórn hafa ferðast til útlanda fyrir u.þ.b. 94 milljónir króna frá því að þeir tóku við völd- um fyrir ári síðan. Þetta kemur fram í skriflegu svari forsætisráð- herra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur, þingmanns Vinstri grænna. Utanríkisráðherra hefur verið hvað mest á faraldsfæti og 21 ferð hennar og fylgdarliðs kostað tæpar 22 milljónir króna. Næstmestur er kostnaður við ferðir forsætisráð- herra en hann hefur farið 11 ferðir fyrir rúmar nítján milljónir króna. Félagsmálaráðherra og sam- gönguráðherra eru minnst á ferð- inni og hafa farið þrisvar til út- landa hvor undanfarið ár. Ferðast fyrir 94 milljónir DÆMDIR kynferðisofbeldismenn munu ekki geta starfað við leik-, grunn- eða framhaldsskóla þegar ný lög um skólastigin taka gildi. Önnur umræða um lagafrumvörpin fór fram á Alþingi í gær en menntamála- nefnd Alþingis leggur til að sömu reglur gildi um kennara og starfs- menn á öllum skólastigunum. Upp- haflega var ekki gert ráð fyrir banni við ráðningu kynferðisofbeldis- manna til starfa í framhaldsskólum en nefndin leggur til að því verði breytt, enda verði einstaklingar ekki lögráða fyrr en við 18 ára aldur. Umsækjendum um störf í skólum verður skylt að framvísa sakavott- orði eða gefa stjórnanda leyfi til að afla upplýsinga úr sakaskrá. Hafi viðkomandi gerst brotlegur við kyn- ferðisbrotakafla hegningarlaga eða orðið uppvís að vörslu barnakláms er ekki leyfilegt að ráða hann til starfa. Nær ekki til fíkniefnabrota Í nefndarálitinu er bent á mis- ræmi í lögum um þá sem vinna með börnum. Þannig er gengið skemmra í barnaverndarlögum og aðeins bannað að ráða til starfa þá sem hafa brotið gegn börnum en í æskulýðs- lögum er ráðningarbannið víðtækara og nær líka til fólks sem hefur gerst brotlegt við fíkniefnalög. Í skólafrumvörpunum má segja að farinn sé millivegur. Ekki er gerður greinarmunur á hvort viðkomandi hafi brotið gegn barni eða fullorðinni manneskju og ráðningarbannið nær ekki til fíkniefnabrota en skóla- stjórnendum þess í stað falið að leggja mat á það út frá sakavottorði. Ofbeldismenn ekki í skólum Umsækjendur framvísi sakavottorði ALÞINGI ÞETTA HELST ... FRÁBÆR RÓMANTÍSK ÖRLAGASAGA TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA ÁLFABAKKI Florentino Ariza (Bardem) eyðir lunganum úr lífi sínu í að bíða eftir hinni fögru Ferminu Daza (Mezzogiorno). Florentino fer frá konu til konu í örvæntingafullri tilraun til að lækna sitt brotna hjarta á meðan Fermina situr hamingjusöm í hjónasæng. Hversu lengi myndir þú bíða eftir ástinni? einnig til á kilju Rowald Harewood Mike Newell fyrir „The Pianist“ í leikstjórn „Four weddings and a funeral“ „Donnie Brasco“ „Harry Potter“ eftir „ÁSTIN Á TÍMUM KÓLERUNNAR“ VIÐ VILJUM ekki fórna gæðum ís- lenskra matvæla á altari Evrópusam- bandsins, sagði Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri grænna, á Alþingi í gær en krafa hefur komið fram um að afgreiðslu frumvarps, sem felur í sér innleiðingu matvælalöggjafar Evrópusambandsins (ESB), verði frestað. Bjarni Harðarson, þingmað- ur Framsóknar, vakti máls á þessu í gær og vísaði til álits Margrétar Guðnadóttur veirufræðings, en hún telur löggjöfina geta verið hættulega heilbrigði manna og dýra. „Í rauninni eru fjölmargir váboðar í þessu,“ sagði Bjarni og bætti við að þeirri hættu gæti verið boðið heim að áður óþekktir dýra- og mannasjúk- dómar kæmu inn í landið. Ásta Möller, formaður heilbrigðis- nefndar Alþingis, sagði kröfu vera frá ESB að Ísland tæki matvælalöggjöf- ina upp. Sagði hún yfirdýralækni ekki telja miklar líkur á að lýðheilsu væri stefnt í voða. „Hægt er að fara fram á ákveðnar tryggingar varðandi þenn- an innflutning hvað varðar salmonellu en hins vegar hafa verið ákveðnar áhyggjur hvað varðar kamfýlóbak- ter,“ sagði Ásta en bætti við að það væri til skoðunar hjá ESB. Þegar hefðu verið gerðar ráðstafanir til að koma í veg fyrir innflutning á sýktu fóðurmjöli. Gæðum matvæla sé ekki fórnað á altari ESB

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.