Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 43
Þjóðleikhúsið Á öllum sviðum lífsins
551 1200 | midasala@leikhusid.is
Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 12:30-18:00, aðra daga vikunnar frá kl. 12:30
til 20, og alltaf klukkustund fyrir sýningu ef um breyttan sýningartíma er að ræða.
Stóra sviðið
Ástin er diskó - lífið er pönk
Fös 23/5 kl. 20:00 U
Lau 24/5 kl. 20:00
Fös 30/5 kl. 20:00 Ö
Lau 31/5 kl. 20:00
Fös 6/6 kl. 20:00
Lau 7/6 kl. 20:00
Lau 14/6 kl. 20:00
Ath. pönkað málfar
Gaukshreiðrið
Mið 4/6 kl. 20:00
Athyglisverðasta áhugasýningin 2007/2008
Kassinn
Sá hrímhærði og draumsjáandinn
Þri 27/5 kl. 20:00
Gestasýning frá Beaivvá˚ leikhúsinu
Kúlan
Skoppa og Skrítla í söngleik
Lau 24/5 kl. 11:00 U
Lau 24/5 kl. 12:15 Ö
Sun 25/5 kl. 12:15 Ö
Sun 25/5 kl. 14:00 Ö
Sun 25/5 kl. 20:11 U
Lau 31/5 kl. 11:00
Lau 31/5 kl. 12:15 Ö
Sun 1/6 kl. 11:00
Sun 1/6 kl. 12:15
Sun 1/6 kl. 14:00
síðasta sýn.
Síðustu sýningar 1. júní
Borgarleikhúsið
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Miðasala Borgarleikhússins er opin alla virka daga frá klukkan 10 og fram að sýningum á sýningardegi,
annars til klukkan 18. Um helgar er opið frá kl. 12-20.
Alveg brilljant skilnaður (Nýja sviðið)
Fös 23/5 kl. 20:00 Ö Sun 25/5 kl. 20:00 Ö
Aðeins sýnt í mai
Dauðasyndirnar-guðdómlegur gleðileikur (Litla sviðið)
Lau 31/5 kl. 20:00 U
Sun 1/6 kl. 20:00 U
Fim 5/6 kl. 20:00 Ö
Fös 6/6 kl. 20:00
Lau 14/6 kl. 20:00
Sun 15/6 kl. 20:00
Aðeins 9 sýningar
Gítarleikararnir (Litla sviðið)
Fös 23/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00
Sýningum lýkur í mai
Kommúnan (Stóra sviðið)
Fim 29/5 kl. 20:00 Lau 31/5 kl. 20:00
Aðeins sýnt í mai
LADDI 6-TUGUR (Stóra svið)
Fös 30/5 kl. 20:00 U Sun 1/6 kl. 20:00 Mið 4/6 kl. 20:00
síðasta sýn.
Síðasta sýning 4.júní.
Sumarnámskeið Sönglistar
Mán 16/6 kl. 10:00
Mán 23/6 kl. 10:00
Mán 30/6 kl. 10:00
Mán 7/7 kl. 10:00
Mán 14/7 kl. 10:00
Mán 21/7 kl. 10:00
Hvert námskeið er ein vika
Leikfélag Akureyrar
460 0200 | midasala@leikfelag.is
Wake me up - LeikhópurinnBRAVÓ
(Samkomuhúsið)
Sun 1/6 aukas kl. 20:00
Killer Joe (Rýmið)
Fös 23/5 2korta kl. 19:00 U
Fös 23/5 aukas kl. 22:00 Ö
Lau 24/5 3korta kl. 19:00 U
Sun 25/5 4korta kl. 20:00 U
Alveg brilljant skilnaður (Samkomuhúsið)
Fim 29/5 1korta kl. 20:00 U
Fös 30/5 2korta kl. 19:00 Ö
Lau 31/5 aukas kl. 19:00 Ö
Lau 31/5 aukas kl. 22:00
Hvers virði er ég? (Samkomuhúsið)
Fös 23/5 gestas kl. 19:00 Ö Lau 24/5 gestas kl. 21:00
Hafnarfjarðarleikhúsið
555 2222 | theater@vortex.is
Mammamamma (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Fös 23/5 kl. 20:00
Sun 25/5 kl. 20:00
Fim 29/5 kl. 20:00
Sun 1/6 kl. 20:00
síðasta sýn.
síðustu sýningar
Möguleikhúsið
5622669 / 8971813 |
moguleikhusid@moguleikhusid.is
Langafi prakkari (Möguleikhúsið/ferðasýning)
Sun 1/6 kl. 14:00 F
þingborg
Lau 7/6 kl. 14:30 F
Íslenska óperan
511 4200 | midasala@opera.is
Dagbók Önnu Frank
Sun 25/5 kl. 20:00
Ferð án fyrirheits
Fim 29/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00
Þorkell Sigurbjörnsson - Afmælistónleikar
Mið 4/6 kl. 20:00
Iðnó
562 9700 | idno@xnet.is
Systur
Fös 23/5 kl. 20:30 Ö
Lau 24/5 kl. 20:30 U
Sun 25/5 aukas. kl. 20:30
Dómur Morgunblaðsins
Hvanndalsbræður Tónleikar
Fös 13/6 kl. 21:00
Kómedíuleikhúsið Ísafirði
8917025 | komedia@komedia.is
Búlúlala - Öldin hans Steins (Tjöruhúsið
Ísafirði/Ferðasýning)
Fös 23/5 kl. 21:00 F
vagninn flateyri
Lau 24/5 kl. 16:00
einarshús bolungarvík
Fim 29/5 kl. 20:00 F
haukadal dýrafirði
Lau 21/6 kl. 20:00 F
snjáfjallasetur
Forleikur (Hótel Ísafjörður/Ferðasýning)
Fös 23/5 kl. 21:00 Fös 6/6 kl. 21:00
einarshús bolungarvík
Íslenski dansflokkurinn
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Ambra (Borgarleikhúsið stóra svið)
Fös 23/5 kl. 20:00
heimsfrums.
Lau 24/5 kl. 17:00
ath breyttur sýn.artími
Sun 25/5 kl. 20:00
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
Saga til næsta bæjar (Á Sögulofti)
Sun 25/5 ýkjusögur kl. 20:00
Sun 1/6 kl. 20:00
draugasögur
Sun 8/6 kl. 20:00
lífsreynslusögur
Sun 15/6 kl. 20:00
gamansögur
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Fös 23/5 kl. 20:00 Ö
Sun 25/5 kl. 16:00 Ö
Mið 28/5 kl. 17:00 Ö
ath breyttan sýn.artíma
Lau 31/5 kl. 15:00 U
Lau 31/5 aukas. kl. 20:00
Fös 6/6 kl. 20:00 U
Lau 7/6 kl. 15:00 U
Lau 14/6 kl. 20:00
Sun 15/6 kl. 16:00
Lau 28/6 kl. 15:00
Lau 28/6 kl. 20:00
Þrjár tilnefningar til Grímunnar
Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson
(Söguloftið)
Lau 24/5 kl. 15:00 Ö
Lau 24/5 kl. 20:00
örfá sæti laus
Fös 30/5 aukas. kl. 20:00 U
Lau 7/6 kl. 20:00 U
Sun 8/6 kl. 16:00 U
Lau 14/6 kl. 15:00
Lau 21/6 kl. 15:00
Lau 21/6 kl. 20:00
ÓVENJUMIKIÐ er um að vera á
skemmtistöðum borgarinnar þessa
helgina. Hér er farið yfir helstu við-
burði:
Friðarsleikur á Organ
Ung vinstri græn blása til tónleika
á Organ í kvöld undir yfirskriftinni
„Kodd’í sleik, ekki stríðsleik“. Þar
koma fram hljómsveitirnar Hraun,
Múgsefjun, Æla og <3 Svanhvít auk
rímnasmiðsins Blaz Roca. Markmiðið
er að rokka í nafni friðar, frelsis og
kærleika. Þórhildur Halla Jónsdóttir
hefur annast skipulagningu tónleik-
anna, en hún situr í stjórn Ungra
vinstri grænna. Hún segir að í maí
1968 hafi róttækir stúdentar í París-
arborg risið upp gegn valdinu og
hefðunum og hrundið af stað hreyf-
ingu sem breiddi úr sér um öll Vest-
urlönd, baráttuhreyfingu ungs fólks
fyrir frelsi, jafnrétti og kærleika sem
sýndi harða andstöðu gegn Víetnam-
stríðinu og vopnakapphlaupi stór-
veldanna. Alþjóðlegt slagorð þess-
arar hreyfingar var „Make love – not
war“ og er yfirskrift tónleikanna ís-
lensk þýðing á því. Ung vinstri græn
hvetji alla, ráðamenn og aðra, til þess
að mæta á Organ föstudaginn 23. maí
klukkan 21:00 og fara í góðan sleik og
nýta þannig orku sína í þágu ástar og
kærleika í stað ófriðar og hervæð-
ingar.
Sex gítarar á Kaffibarnum
Ben Frost flytur verk sitt „Music
for 6 Guitars“ í kvöld klukkan 21:30. Í
kjölfar plötunnar Theory Of Mach-
ines sem kom út á vegum íslensku
plötuútgáfunnar Bedroom Comm-
unity var Ben Frost fenginn til að
skrifa nýtt verk fyrir sex rafmagns-
gítara. Verkið hefur síðan verið flutt í
Hallgrímskirkju, á Iceland Airwaves-
hátíðinni og á tónlistarhátíðum í Eist-
landi og Svíþjóð svo eitthvað sé nefnt.
Verkið tekur meira en 40 mínútur í
flutningi og er eingöngu flutt lifandi á
staðnum.
Hugarástand á
Tunglinu í kvöld
Plötusnúðarnir Frímann og Arnar
eru fyrir löngu orðnir frægir fyrir
hugarástands-kvöld sín en þar fram-
reiða þeir til skiptis hart teknó og
dúnmjúka hús-tónlist. Hugarástand á
rætur að rekja aftur til ársins 1998 og
byrjaði sem útvarpsþáttur á útvarps-
stöðinni Skratz og síðar á X-inu.
Klúbbakvöld á skemmtistöðum
fylgdu í kjölfarið og festu sig fljótt í
sessi. Eitt slíkt fer fram í kvöld á
Tunglinu (gamla Gauki á Stöng),
dyrnar verða opnaðar kl. 23 og 1.000
krónur kostar inn.
Djezus kominn til landsins
Íslenski plötusnúðurinn DJ Baldur
(Djezus), sem var fyrir stuttu valinn
besti plötusnúðurinn í Boston af viku-
tímaritinu Boston Phoenix, er kom-
inn til landsins og spilar á Tunglinu
annað kvöld. Bróðir DJ Baldurs, DJ
Skeletor, verður með í för en hann
hefur vakið nokkra athygli fyrir
fingrafimi sína á skemmtistöðum
borgarinnar. Dyrnar opnaðar kl. 23
og aðgangseyrir 1.000 krónur.
Pendulum á Broadway
Ein af fremstu dans- og
„drum&bass“-hljómsveitum heims,
Pendulum, kemur fram annað kvöld á
Broadway ásamt Exos, Plugg’d og
Sindra BM. Haldnir verða tvennir
tónleikar, fyrir 16 til 20 ára frá 19 til
23 (athugið að það er árið sem gildir
til komast inn og skilríki eru skilyrði)
og fyrir 20 ára og eldri frá eitt. Miða-
verð er kr. 2.500 en 3.000 við dyr.
Miðasalan er nú þegar hafin í Jack &
Jones í Kringlunni.
Dansað meira á Kaffibarnum
Á Kaffibarnum annað kvöld verður
fyrsta „Dansa meira“-kvöld sumars-
ins, en það er röð samkvæma sem
dansþátturinn Party Zone stendur
fyrir þriðja sumarið í röð. Tilgangur
þessara samkvæma er afar einfaldur;
dansa meira á litlu stöðunum. Party
Zone hreiðrar um sig á litlu stöðunum
í sumar og verður Kaffibarinn höfuð-
vígið en einnig munu „Dansa meira“-
partíin færast á Barinn, B5 og til Ak-
ureyrar. Sem fyrr verður partídiskur
sumarsins settur saman af þessu til-
efni; Dansa meira vol. 3, og gefinn
gestum og dansandi á „Dansa
meira“-kvöldunum í sumar. Stuðið
hefst óvenjusnemma eða kl. 22.
Pendulum Kórdrengirnir í „drum and bass“ hljómsveitinni Pendulum
hyggjast trylla lýðinn á Broadway annað kvöld.
Friðelskandi Hljósmveitin Hraun er ekki þekkt fyrir annað en friðsaman
ástarboðskap og breytir væntanlega ekki út af venjunni í kvöld á Organ.
Kuldalegur Ástralinn Ben Frost hefur verið búsettur hér á landi í nokkur
ár og látið mikið að sér kveða.
Sumarið
er tíminn
Friðartónleikar, gítarorgía og dansveisla
er meðal þess sem er í boði um helgina
TÓNLISTARMAÐURINN Sebas-
tien Tellier, sem keppir fyrir hönd
Frakklands í Evróvisjón, segir þjóð
sína skiptast í tvær fylkingar í af-
stöðu til lagsins „Divine“, vegna
þess að það er sungið á ensku. Póli-
tíkusar hafi meira að segja látið í
sér heyra í tungumáladeilunni.
Tellier segir ráðherra menning-
armála og hinnar frönsku tungu
hafa sent sér bréf og greint frá af-
stöðu sinni til málsins. Tellier segir
stóran hluta Frakka afar stoltan yf-
ir frönskum hljómsveitum á borð
við Air og Daft Punk þó svo þær
syngi á ensku. Sömu Frakkar hafi
glaðst yfir því að hann ætti að flytja
Evróvisjónlag þeirra í ár. Íhalds-
samari Frakkar vilji að hann syngi
á frönsku.
„Það eru allir að tala um þetta í
sjónvarpinu. Stundum vill einhver
gömul kona taka mynd af sér með
mér úti á götu, þetta er alveg nýr
hlustendahópur fyrir mig,“ segir
Tellier. Hann er enda þekktur fyrir
allt annað en Evróvisjóntónlist, hef-
ur verið í tilraunakenndari kant-
inum í poppi. Tellier segir Evr-
óvisjón ekki listræna uppákomu.
Lagið „Divine“ hafi hreinlega
hljómað betur á ensku.
Reuters
Svalur Sebastien Tellier á æfingu.
Frakkar
bálreiðir út
af enskunni