Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ IRON MAN kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára DRILLBIT TAYLOR kl. 3 - 5:30 B.i.10 ára IN THE VALLEY OF ELAH kl. 8 B.i.16 ára THE HUNTING PARTY kl. 10:40 B.i.12 ára SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA,KRINGLUNNI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK SÝND Í KRINGLUNNI eeee BBC eeee Ebert eeee L.I.B. Fréttablaðið SÝND Í ÁLFABAKKA eeee S.V. - MBL SÝND Í ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA FRÁBÆR RÓMANTÍSK ÖRLAGASAGA TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA ÁLFABAKKI Rowald Harewood Mike Newell fyrir „The Pianist“ í leikstjórn „Four weddings and a funeral“ „Donnie Brasco“ „Harry Potter“ eftir Stórvirki óskarsverðlaumahafans Gabriel Garcia Marquez „ ÁSTIN Á TÍMUM KÓLERUNNAR“ INDIANA JONES 4 kl. 3D - 5:30D - 8D - 10:40D B.i. 12 ára DIGITAL INDIANA JONES 4 kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:40 LÚXUS VIP LOVE IN THE TIME OF CHOLERA kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:40 B.i. 7 ára NEVER BACK DOWN kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 14 ára NIM'S ISLAND kl. 3 LEYFÐ INDIANA JONES 4 kl. 4D - 6:30D - 9D - 10D B.i. 12 ára DIGITAL NEVER BACK DOWN kl. 11:30 B.i. 14 ára NIM'S ISLAND kl. 4 - 6 - 8 LEYFÐ U2 3D kl. 11:403D LEYFÐ 3D DIGITAL IRON MAN kl. 4 - 6:30 - 9 B.i. 12 ára SPARBÍÓ 550kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMB ÞAR er fyrst til að taka að fjórða kapítulanum í litríkri sögu Indiana Jones lukkast það sem honum er ætlað: Að skemmta áhorfendum í tvo tíma með hasar, brellum og góðu gríni þar sem handritshöfundinum, David Koepp, tekst einkar vel að gera grín að aldrinum sem færst hefur yfir Ford og þar af leiðandi söguhetjunni með höttinn og svip- una, sem hann notar reyndar spar- lega að þessu sinni. Ég spái því að IJ IV eigi eftir að verða með best lukk- uðu og vinsælustu sumarmyndum ársins og á að skilja við gestina al- mennt hressa og uppveðraða. IJ IV er nokkuð frábrugðin fyrri mynd- unum þremur, hún er dálítið í stíl gömlu Tarzan-myndanna, menn sveifla sér af mikilli kúnst í tágum myrkviðarins, fornleifadulúðin er á sínum stað en bragðbætt með geim- vísindaskáldskap að hætti Close Encounters of the Third Kind. Ekki má gleyma harðsvíruðum höf- uðfjanda okkar manns, hún er kven- kyns, heitir Irina Spalko (Blanchett) og er frá Úkraínu eins og fegurðar- og poppdrottningar hinnar nýju Evrópu. Reyndar gerist myndin á tímum þeirrar gömlu, nánar tiltekið á sjötta áratugnum og kalda stríðið í algleymingi. Irina er erindreki Stal- íns. Hún fremur vel heppnað rán í miðjum Bandaríkjum þar sem hún kemst yfir leynardómsfullan grip, kristallshauskúpu sem tengist forn- leifafundi í Amazon. Þar kemur til sögunnar Marion Ravenwood (Al- len), hin gamla vinkona Jones úr upphafsmynd bálksins, og sonur hennar fulltíða (LeBeouf), hver skyldi vera faðirinn? Áhorfendur fá því rómantískt fjölskyldudrama í bland við litskrúðugar aðal- og auka- persónurnar, linnulausa eltingaleiki, geigvænleg glæfraatriði, geimverur, fornminjar, frumbyggja, hrikalega náttúrufegurð og óspart notaðar stafrænar brellur. Þessi margbrotni pakki tekur því talsverðan tíma í sýningu og þar liggur helsti galli IJ IV, hún er ekki til leiðinda lang- dregin en lopinn er teygður óþarf- lega í seinni hálfleiknum – líkt og hjá liði sem er búið að vinna leikinn í þeim fyrri og tefur síðan tímann. Þetta er þekkt bóla hjá Spielberg, sem leikstýrir af öryggi frekar en innblæstri og hefur með sér pott- þétta fastamenn á borð við töku- stjórann snjalla Janusz Kaminski og tónskáldið John Williams, sem hefur reyndar ekki miklu við gamla stefið að bæta. Ford, módel 1942, er greinilega lífseig árgerð, Harrison stendur sig með sóma og slær ekki feilpúst og kemur vel undan ára- fjöldanum sem liðinn er síðan hann lék hlutverkið síðast. Hann ber myndina léttilega uppi með góðri að- stoð Blanchett í hlutverki kven- skrattans frá Úkraínu og hennar ill- mannlegu kommablóka sem hafa innræti útlitinu verra eins og allir safaríkir illingjar hasarmyndanna. Þrír breskir gæðaleikarar, Broad- bent,Winstone og Hurt, koma með auka vikt og það er gaman fyrir aðdáendur bálksins að fá að sjá Kar- en Allen blómstra í ný (í ómerkilegu hlutverki reyndar). En ég veðja ekki á að dægurflugan LeBeouf komi til með að viðhalda heiðri Jones-ættar- innar til langframa. Ef inni er þröngt, tak písk þinn og hött KVIKMYND Sambíóin, Smárabíó, Laug- arásbíó, Borgarbíó Akureyri Leikstjóri: Steven Spielberg. Aðalleik- arar: Harrison Ford, Cate Blanchett, Kar- en Allen, Shia LeBeouf, Ray Winstone, John Hurt, Jim Broadbent. 125 mín. Bandaríkin 2008. Indiana Jones and the Kingdom of the Crystal Skull bbbmn Sómamaður „Harrison stendur sig með sóma [...] og kemur vel undan árafjöldanum sem liðinn er síðan hann mann- aði hlutverkið síðast,“ segir Sæbjörn Valdimarsson um frammistöðu aðalleikarans í myndunum um Indiana Jones. Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.