Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt karlmann á fertugsaldri,
Þórarin Gíslason, í 16 ára fangelsi
fyrir að ráða nágranna sínum bana í
íbúð hans að Hringbraut í fyrra.
Hinn látni hét Borgþór Gústafsson
og var banamaður hans dæmdur til
að greiða fjölskyldu hans hálfa millj-
ón króna í skaðabætur auk sakar-
kostnaðar og málsvarnarlauna að
fjárhæð samtals 2,3 milljónir króna.
Ákærði neitaði sök en að mati
dómsins þótti sannað að hann hefði
ráðið Borgþóri bana. Í aðdraganda
verknaðarins höfðu mennirnir tveir
komið inn í blokkina um hádegisbil
hinn 7. október 2007. Sannað þótti að
ákærði hefði þar slegið Borgþór
a.m.k. þremur þungum höggum í
höfuðið með slökkvitæki. Hvert og
eitt högganna hefði getað valdið
dauða og átti ákærði að vita það að
mati dómsins. Ekki var upplýst
hvers vegna hann sló Borgþór. Taldi
dómurinn skýringa helst að leita í
annarlegu ástandi ákærða, þótt því
yrði samt ekki slegið föstu. Átti
ákærði sér engar málsbætur að mati
dómsins.
Þegar lögreglumenn komu á vett-
vang eftir verknaðinn tók ákærði á
móti þeim og sagðist hafa komið að
Borgþóri liggjandi í blóði sínu. Sagð-
ist hann ekki vita hver hefði veitt
honum áverkana en hafði grunsemd-
ir um annan íbúa í húsinu. Talaði lög-
reglan við þann aðila auk fleiri íbúa í
húsinu en ekkert var grunsamlegt
við þá. Á fingri ákærða var hins veg-
ar nýtt sár og duft á handarbaki og
töldu lögreglumenn það hafa komið
úr slökkvitækinu sem talið var líklegt
árásarvopn. Þá fannst blóð úr hinum
látna á ákærða. Var hann handtekinn
og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan.
Þegar myndir úr eftirlitsmynda-
vélum við Nóatúnsverslun á Hring-
braut voru skoðaðar sáust ákærði og
Borgþór á þeim í verslunarferð og
mátti ráða af myndunum að eitthvert
ósætti hefði verið með mönnunum.
Myndir í eftirlitsvélum við Hring-
braut 121 sýndu mennina þá koma
inn í blokkina og þar sást ákærði eins
og hann fórnaði höndum. Kannaðist
hann þó ekki við neitt ósætti milli sín
og Borgþórs. Sagðist hann hafa hald-
ið áfram að drekka með honum eftir
að inn var komið þangað til Borgþór
sofnaði. Sagðist ákærði þá hafa farið
heim til sín en komið aftur nokkru
síðar til að athuga hvort nágranni
sinn væri vaknaður svo þeir gætu
haldið áfram að drekka. Hefði hann
þá komið að honum liggjandi í rúmi
sínu með kodda fyrir andliti og hefði
hann frussað á sig blóði. Upplýst var
að ákærði hafði drukkið nokkra daga
fyrir verknaðinn og tekið mikið af
lyfjum. Sagðist hann því ekki muna
vel eftir atvikum.
Ákærði á að baki sakaferil frá
árinu 1998 vegna auðgunarbrota og
hefur hann hlotið sex refsidóma.
Málið dæmdu héraðsdómararnir
Guðjón St. Marteinsson, Helgi I.
Jónsson og Jón Finnbjörnsson. Verj-
andi var Hilmar Ingimundarson hrl.
og sækjandi Ragnheiður Harðar-
dóttir vararíkissaksóknari.
Hlaut 16 ára fangelsi fyrir
manndráp við Hringbraut
Sló nágranna sinn þremur þungum höggum með slökkvitæki en neitaði ákærunni
HÆSTIRÉTTUR hefur mildað
refsingu karlmanns á fimmtugsaldri
vegna kynferðisbrots gegn konu
með því að skilorðsbinda að mestu þá
fangelsisrefsingu sem héraðsdómur
hafði áður dæmt. Var maðurinn
dæmdur fyrir að hafa nýtt sér
svefndrunga og ölvunarástand kon-
unnar og reynt að hafa við hana kyn-
ferðismök. Hann var dæmdur til að
greiða henni 500 þúsund krónur í
bætur.
Á báðum dómstigum var niður-
staðan 12 mánaða fangelsi. Í héraði
var refsingin óskilorðsbundin en í
Hæstarétti voru 9 mánuðir skilorðs-
bundnir. Litið var til þess að brot
mannsins beindist gegn persónu- og
kynfrelsi konu sem hann vissi að
hafði átt við erfiðan geðsjúkdóm að
stríða og þess að brotið hefði haft
verulegar, andlegar afleiðingar fyrir
hana. Ákvörðun um að skilorðsbinda
hluta dómsins var tekin vegna þess
að verulegur dráttur varð á rann-
sókn málsins og maðurinn hafði ekki
áður gerst sekur um refsiverða hátt-
semi.
Upphafleg ákæra var í tvennu lagi
og var maðurinn ákærður fyrir kyn-
ferðisbrot gegn konunni síðla árs
2003 og einnig 2005. Héraðsdómur
sýknaði manninn af fyrra hluta
ákærunnar en fann hann sekan um
síðara hlutann.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Árni Kolbeinsson, Garðar
Gíslason, Gunnlaugur Claessen,
Ingibjörg Benediktsdóttir og Mark-
ús Sigurbjörnsson. Verjendur voru
Sveinn Andri Sveinsson hrl. og
Einar Þór Sverrisson. Sækjandi
var Ragnheiður Harðardóttir vara-
ríkissaksóknari.
Mildað í
kynferðis-
brotamáli
ALLIR Reykvíkingar og Fram-
sóknarflokkurinn eiga heimtingu á
því að sjálfstæðismenn geri grein
fyrir viðsnúningi sínum hvað varðar
afstöðu til þess að REI sé útrás-
arfyrirtæki í eigu Orkuveitu
Reykjavíkur, segir m.a. í yfirlýs-
ingu Óskars Bergssonar, borgar-
fulltrúa Framsóknar.
„Það er ekki hægt að bjóða við-
semjendum fyrirtækisins og al-
menningi í landinu upp á algjöra
hentistefnu í málefnum Orkuveitu
Reykjavíkur,“ segir Óskar. Fagna
beri niðurstöðu sem sé til heilla fyr-
ir borgarbúa en sjálfstæðismenn
hefðu betur séð ljósið í málinu fyrr.
Geri grein
fyrir við-
snúningi
FREKARI fundum í samningavið-
ræðum BSRB og ríkisins var frest-
að í gær til kl. 14 í dag. „Það er al-
veg greinilegt að báðir aðilar þurfa
að skoða málin betur í sínu bak-
landi. Ég er vongóður um að nið-
urstaða fáist í málinu fyrir helgi eða
í síðasta lagi um helgina,“ sagði Ög-
mundur Jónasson, formaður BSRB,
eftir fundinn í gær.
Hann sagði ekkert hægt að segja
um hverjar líkurnar væru á sam-
komulagi. „Það er útilokað að segja
til um það á þessari stundu en ég
hef alltaf verið bjartsýnn á að já-
kvæð niðurstaða náist. Við vinnum
heilshugar að því að svo verði. Við
munum vinna að því að leiða málin
að farsælli niðurstöðu,“ segir Ög-
mundur.
Fulltrúar BSRB áttu fund með
ráðherrum í ríkisstjórninni um miðj-
an þennan mánuð og hófust mark-
vissar kjaraviðræður í framhaldi af
því. Gert hefur verið ráð fyrir að
efnt verði til fundar með ráðherrum
á nýjan leik eftir að samninganefnd-
irnar hafa komist að niðurstöðu en
Ögmundur sagði í gær að málin
væru ekki komin á það stig.
Niðurstaða
fyrir
helgina?
BSRB og ríkið ræð-
ast áfram við í dag
ÞAÐ er oft mikið fjör þegar kúnum er hleypt út á vorin
eftir langa inniveru. Þessi kýr á bænum Helluvaði við
Hellu tók heldur betur fagnandi á móti sumrinu þegar
hún fékk að fara út úr fjósinu.
Reyndar segja sumir bændur að fögnuður kúnna sé
heldur hófsamari í seinni tíð, en meirihluti kúa á Ís-
landi er núna í lausagöngufjósum sem þýðir að þær eru
ekki bundnar á bás allan veturinn.
Tekur fagnandi á móti sumrinu
♦♦♦
ÁRANGUR íslensku þjóðarinnar í
nýtingu hreinnar orku og það sem
við getum lagt af mörkum í þeim
efnum er líklega brýnasta erindi Ís-
lendinga við heimsbyggðina á kom-
andi árum, að mati forseta Íslands,
Ólafs Ragnar Grímssonar. Hann
tók þátt í umræðuþætti á vegum
sjónvarpsstöðvarinnar CNN og
tímaritanna Time og Fortune í
Doha, höfuðborg Katar, sl. mið-
vikudag. Þátturinn var liður í
þáttaröðinni Principal Voices. For-
seti Íslands er fyrsti þjóðhöfðinginn
sem tekur þátt í umræðum í þætt-
inum en meðal þátttakenda hafa
verið vísindamenn, sérfræðingar
og forystumenn í viðskiptalífinu.
Ólafur Ragnar sagði í samtali við
Morgunblaðið að
umræðuþátt-
urinn hefði verið
liður í víðtækri
alþjóðlegri um-
ræðu sem þessir
öflugu fjölmiðlar
beiti sér nú fyrir
um framtíð orku-
mála, hagvöxt og
loftslagsbreyt-
ingar.
„Mér fannst það vera mikill heið-
ur fyrir mig og Ísland að vera boðið
að vera með í þessum hópi,“ sagði
Ólafur Ragnar. Boðið kom í fram-
haldi af sérstökum viðræðuþætti
sem CNN tók upp á Íslandi fyrir
nokkrum vikum þar sem rætt var
við forsetann og fjallað um árangur
Íslendinga á sviði orkumála.
„Það er alltaf gaman að sjá hve
mikla athygli það vekur í veröld-
inni hvað Íslendingum hefur tekist
vel í þessum efnum. Það er mikill
vitnisburður um íslenska vísinda-
samfélagið, sérfræðinga, verkfræð-
inga, jarðfræðinga sem og þá sveit-
arstjórnarmenn og aðra
forystumenn sem hafa staðið fyrir
þessum málum á undanförnum ára-
tugum,“ sagði Ólafur Ragnar. Hann
kvaðst hafa fengið mjög sterk við-
brögð við frásögn sinni af árangri
Íslendinga, bæði af hálfu þátta-
stjórnenda og annarra þátttak-
enda. Michael Holmes frá CNN lýsti
m.a. áhuga á að koma til Íslands og
kynna sér málin enn frekar og rit-
stjóri Fortune lýsti áhuga á að
bjóða Ólafi Ragnari að taka þátt í
alþjóðlegum ráðstefnum sem tíma-
ritið efnir til með ýmsum for-
ystumönnum stórfyrirtækja og
þjóðarleiðtogum.
„Það er ótrúleg reynsla að finna
hér hvað Ísland er komið í mikinn
brennidepil þessarar umræðu um
hreina orku á komandi áratugum.
Viðfangsefni sem allir telja að verði
brýnasta verkefni 21. aldarinnar,“
sagði Ólafur Ragnar. Hann sagði að
í umræðum hefði komið fram að
nýta þurfi allar hreinar orkulindir
og tvinna nýtingu þeirra saman svo
byggja megi heildstæð orkukerfi á
grundvelli hreinnar orku af ólíkum
uppruna, þótt uppruni hennar sé
ólíkur. Þannig hafi menn í Mið-
Austurlöndum mikinn áhuga á að
tengja saman sólarorku, jarðhita
og vatnsafl.
Einnig töldu menn að leggja
þyrfti vaxandi áherslu á hagkvæm-
ari orkunýtingu með því að breyta
reglugerðum um byggingar og eins
skipulagi borga. Reisa þurfi stór-
byggingar með það í huga að draga
úr þörf á loftkælingu og eins betri
nýtingu dagsbirtu. Talið er að með
breyttu byggingarlagi megi ná 40-
60% orkusparnaði í stórbygg-
ingum. Þegar er verið að reisa svo-
nefndar orkuborgir (energy cities)
víða um heim, m.a. í Katar, þar sem
góð orkunýting er höfð í hávegum.
Orkumál brýnasta erindi Íslendinga
Árangur Íslands í nýtingu hreinnar orku vakti mikla athygli í umræðuþætti á vegum CNN, Time
og Fortune, að sögn forseta Íslands. Hann er fyrsti þjóðhöfðinginn sem kemur fram í þættinum
Forseti Ólafur
Ragnar Grímsson