Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 51
Reuters Dýnamískt dúó Allt gekk samkvæmt áætlun á sviðun í Belgrad í gærkvöldi og Eurobandið vann sér sæti í úrslitum. Íslendingar komust áfram uppúr forkeppnalimbóinu og verð-skulda að dvelja lengur í Evr- óvisjónlandi. Hér í herbúðum Ís- lendinga í Belgrad ríkir að sjálfsögðu gríðarleg hamingja með þennan áfanga og nokkrir kampa- vínstappar hafa án efa flogið úr flöskuhálsum í gærkvöldi en nú tek- ur alvaran við og sjálf aðalkeppnin framundan á morgun með enn meira álagi. Eurobandið hefur staðið sig gíf- urlega vel og komið fram af stakri prýði og ekki látið á sig fá þó að blaðasnápar eins og ég hafi andað ofan í hálsmálið á þeim við hvert fótmál, með smellandi myndavélar og suðandi upptökutæki og spurn- ingaflaum.    Stór hluti af Evróvisjón gengur útá samskipti við fjölmiðla og það tvíeggjaða sverð sem fjölmiðlaum- fjöllun er. Sá sem þetta ritar er svo mikið kjánaprik að hafa ekki áttað sig á því hvað Evróvisjón er í raun stór iðnaður og mikið vörumerki. Ég vissi vel að þetta væri stór sýn- ing og meira en bara nokkur bönd í léttri karaókíkeppni í beinni út- sendingu en eigi að síður kom um- fangið á óvart. Hér eru þrjár stórar íþróttahallir undirlagðar. Ein höll er fyrir keppnina sjálfa, önnur er miðstöð fyrir blaðamennina og sú þriðja er eins konar næturklúbbur eða félagsheimili þar sem haldin eru böll og stöðugur gleðskapur þar sem keppendur troða upp fyrir áhangendur og blaðamenn til að kynna sig og létta öllum lund. Þetta er heilmikið batterí og lítill her sjálfboðaliða þjónustar blaðamenn- ina með daglegum upplýsingum um gang keppninnar og snúningi í kringum blaðamannafundi og svo framvegis.    Það kom mér líka á óvart hvaðþað eru margir harðir aðdá- endur sem elta keppnina ár eftir ár. Ég rakst á fjórar írskar vinkonur sem voru mjög svekktar sökum þess að Dustin komst ekki áfram, en þær höfðu skilið menn og börn eftir heima og farið saman í sumarfrí hingað í Evróvisjónland. Þær byrj- uðu á að ganga á nokkur falleg fjöll í Serbíu með ballkjóla í bakpok- anum, tilbúnar til að kasta sér síðan í evróvisjónfjörið hér í Belgrad. Annar aðdáandi sem ég hitti er hann Roy Van Der Merwe frá Jó- hannesarborg í Suður-Afríku. Hann er útvarpsmaður með brennandi áhuga á Evróvisjón og lætur sér ekki duga að elta allar keppnir út um þær trissur sem þær kunna að fara heldur gefur hann einnig út geisladiska í sínu heimalandi með úrvali af evróvisjónlögum með þar- lendum listamönnum sem syngja á afrikaans-tungumálinu. Roy sagði mér frá þessari útgáfustarfsemi í aðeins of miklum smáatriðum og treysti mér síðan sem fulltrúa Ís- lands fyrir einu eintaki af geisla- diskinum þar sem íslenska evr- óvisjónlagið vinsæla, Nina, er sungið af söngvaranum Bles Brid- ges. Diskurinn mun hafa selst vel í Suður-Afríku á sínum tíma eða í um 100 þúsund eintökum og hlaut því tvöfalda platínum-plötu fyrir. Bles heitinn Bridges lést í bílslysi árið 2000 og samkvæmt Van Der Merwe bankaði ólukkan upp á er Bles var á heimleið frá hljóðverinu þar sem hann hafði einmitt verið að taka upp lagið Núna sem Bo Halldórsson söng í keppninni 1995. Ekki veit ég hvort Bo ber ábyrgð á dauða Bles með einum eða öðrum hætti en mik- il synd er að þeir skyldu ekki ná að leiða hesta sína saman á tónlist- arsviðinu því ég get vottað það að Bles söng Nínu af mikilli innlifun. Húrra fyrir Eurobandinu! » Sá sem þetta ritar ersvo mikið kjánaprik að hafa ekki áttað sig á því hvað Evróvisjón er í raun stór iðnaður dagur@mbl.is DAGUR Í EVRÓVISJÓN Dagur Gunnarsson MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 51 Úr fyrri undankeppni:  Armenía  Aserbaídsjan  Bosnía-Hersegóvína  Finnland  Grikkland  Ísrael  Noregur  Pólland  Rúmenía  Rússland Úr seinni undankeppni:  Albanía  Danmörk  Ísland  Króatía  Lettland  Portúgal  Svíþjóð  Tyrkland  Úkraína Komust sjálfkrafa í úrslit:  England  Frakkland  Serbía  Spánn  Þýskaland Löndin í loka- keppninni Eftir Dag Gunnarsson og Gunnhildi Finnsdóttur „ÞAÐ er ólýsanlegt hvernig það er að standa á svona litlu sviði miðað við hvað það eru margir að horfa og fylgj- ast með,“ sagði Friðrik Óm- ar Hjörleifsson í gærkvöldi. „Maður gerir sér kannski ekki grein fyrir því fyrr en heim er komið og maður sér þetta í sjónvarpinu eftir á.“ Hann og Regína Ósk Ósk- arsdóttir náðu að vinna sér inn sæti í lokakeppni Evró- visjón, en það hefur íslensk- um keppendum ekki tekist síðan undankeppnirnar voru teknar upp árið 2004. Friðrik Ómar var staddur í fögnuði á hóteli Euro- bandsins í Belgrad þegar blaðamaður náði af honum tali. Hverju þakkar hann að hafa náð þessum áfanga, að vera kominn í aðalkeppni Evróvisjón á laugardaginn? „Við notuðum sömu til- finningu og við fengum þeg- ar við unnum heima, við fór- um með hana upp á svið þó svo við vissum ekki hvernig færi. Ég held að það hafi verið sú sigurstund sem geislaði af okkur. Það er Ís- lendingum að þakka að við erum komin þetta langt. Það er þeirra vegna og okkar sjálfra sem við höfum náð þessum árangri,“ sagði Frið- rik Ómar. Hvernig metur hann sig- urlíkurnar í keppninni? „Þetta er hægt, Íslendingar geta náð árangri. Ísland get- ur alveg unnið Evróvisjón. Við stefnum á ekkert annað en sigur á laugardaginn. Það er ekkert annað sem kemur til greina,“ sagði Friðrik Ómar. „Við erum ekki með neinar yfirlýsingar en við hugsum eins og sigurveg- arar, maður verður að gera það til þess að komast áfram,“ sagði hann að lok- um. Nýjar reglur höfðu áhrif „Það eru allir í svaka stuði og rosalega ánægðir með þetta“ sagði Örlygur Smári, höfundur íslenska framlags- ins, í gærkvöldi þegar úrslit- in voru ljós. Hann er ekki viss hvað það var sem réð úrslitum um árangur ís- lensku keppendanna. „Mað- ur veit svo sem ekki hvað Evrópa vill, en þetta er gott lag og flytjendurnir svaka- lega góðir.“ Allar Norðurlandaþjóð- irnar keppa til úrslita og þakkar Örlygur það að nokkru leyti breyttu fyr- irkomulagi í undankeppni. „Ég held að þessar nýju reglur hafi haft sitt að segja. Að skipta þessu upp og að- skilja þær þjóðir sem hafa verið að skiptast mikið á at- kvæðum.“ Örlygur segist hafa haft það á tilfinningunni að lagið kæmist áfram. „Ég held að þetta sé rétta músíkin í ár. Það hefur sýnt sig að þau lög sem voru með góðu tempói, þau komust áfram.“ Úrslitin ráðast annað kvöld, en þangað til verða Friðrik Ómar, Regína Ósk og allt þeirra fylgdarlið á stífum æfingum. Alls munu 25 þjóðir taka þátt á laug- ardag. „Mér líst ágætlega á úr- slitakeppnina. Ég held að þetta hafi verið sterkari rið- ill en sá á þriðjudaginn. Það að við komumst áfram finnst mér benda til þess að við eigum möguleika á því að raða okkur einhvers staðar fyrir ofan miðju. En það var markmiðið að komast í úr- slitin, svo allt annað er bara bónus,“ sagði Örlygur. Ísland komst loks í úrslit Morgunblaðið/Dagur Út að eyrum Friðrik Ómar og Regína Ósk réðu sér ekki fyrir kæti á blaðamannafundi í gærkvöldi. Skál Ármann Skæringsson fagnaði með kærastanum. Friðrik Ómar segir þau hafa farið með sigurstundina að heiman upp á svið og það hafi skilað þeim áfram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.