Morgunblaðið - 23.05.2008, Side 14

Morgunblaðið - 23.05.2008, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF $%& $%&   !" #"   $%& * '& $%& & #"& #$"$   ()  *  + $&$& $& #"$ #"   ,-". (/& &%$   #" #"   $%& + $%& , %  $' !"& #"   !  " # $  "%&'( )* + -#     & / 0 123 4 ' 00 56 123 4 .7 4 ,8 123 4 1  9 0 4  . 03 :   ;<   123 4 = 23> ' 0 4 8  9 0    4 %  4 "?@$* "  22 '2A B ,CB 9 4 -D 4 E 2 4 . / -  01 &  4 / < 4 /  < /) D /  < ? 2 ?F, .0 ' 0 , 123 4 ,GD ' 0 ;< < 123 4 *H4C 4 "03  4 -D  A 6A 4 I 2 6A 4 & ," &  2 J 2D /2 2 J ' 1  4  3AC 4 ! 1 3&  1 "& &" " &"&  "  $" $" '" $&" '" " " "% '%" "$ &"'$ $'" &%" " "' " "% $" &"&  " %" & " " "%                                          IA 03    -9A K 0   = 23 "       !!  !! !    !       !  !      !! !       !     ! !!  ! !       ! !        !     L L L L L L! !L L !L L L L !L L L! L L L !L L L L L L L L L L L !L L !L L L L !L L L! !L L L L L L L L !L L L ,C6 5A 0                    ! (   5A 0 5A                                                                                        /- /- /- /- /- 0& 4  & FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ (FME) hefur vísað til ríkislögreglustjóra máli vegna meints brots tveggja starfsmanna eins fjármálafyrir- tækis á 117. grein laga um verð- bréfaviðskipti. Sú grein fjallar um markaðsmisnotkun og er um að ræða mál er varðar a-lið 1. töluliðar 1. málsgreinar laganna. Í því segir að með markaðsmisnotkun sé átt við viðskipti eða tilboð sem „gefa eða eru líkleg til að gefa framboð, eftirspurn eða verð fjármálagern- inga ranglega eða misvísandi til kynna.“ Markaðsmisnotkun er sem kunnugt er óheimil. Í tilkynningu frá FME segir í að í tilvikinu sem um ræðir hafi átt sér stað „viðskipti eða tilboð um við- skipti með tiltekinn skuldabréfa- flokk rétt fyrir lokun sex við- skiptadaga sem véku talsvert frá fyrirliggjandi kauptilboðum sömu viðskiptadaga.“ Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins störfuðu mennirnir hjá Kaupþingi og hefur þeim verið sagt upp störfum. Hvort ákæra verður gefin út er embættis ríkislögreglustjóra að ákveða. FME vísar máli til lögreglu Morgunblaðið/Eyþór FME Máli vegna gruns um markaðs- misnotkun var vísað til lögreglu. Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is HLUTABRÉFAVÍSITÖLUR er- lendis sneru við blaðinu í gær eftir lækkanir undanfarna daga þrátt fyr- ir að hækkanir í gær hafi ekki verið miklar. Í upphafi dags leit út fyrir að heimsmarkaðsverð á hráolíu myndi enn hækka og fór verðið yfir 135 dali á fat innan dags, en svo fór að verðið lækkaði frá verði miðvikudagsins og endaði í um 131 dal. Þessi lækkun, þótt lítil væri, auk jákvæðra frétta af bandarískum atvinnumarkaði létti undir með hlutabréfamörkuðum. Í gær var greint frá því að þeim hefði fækkað um 9.000 sem sóttu um at- vinnuleysisbætur í fyrsta sinn í síð- ustu viku og er það í annað sinn á undanförnum þremur vikum sem nýjum umsækjendum fækkar. Hins vegar sýna opinberar tölur að þeir sem fá greiddar bætur í lengri tíma en eina viku eru enn um 750.000 tals- ins og er það talið merki um að það taki atvinnulausa lengri tíma að fá nýja vinnu, að því er segir í frétt Wall Street Journal. Olíufyrirtæki í Evrópu Í Bandaríkjunum voru það fjár- málafyrirtæki sem leiddu hækkan- irnar, en Citigroup hækkaði um 3,1% og J.P. Morgan Chase hækkaði um 1,5%. Þá hækkaði Coca Cola Comp- any um 2,9%. Í Evrópu voru það hins vegar olíu- og orkufyrirtæki sem hækkuðu mest í viðskiptum gærdagsins, þrátt fyrir áðurnefnda lækkun á olíuverði. Austurríska olíufyrirtækið OMV hækkaði um 6,3%, Neste Oil hækk- aði um 2,3% og í Noregi hækkaði gengi bréfa StatoilHydro um 3,8%. Í frétt Financial Times er haft eft- ir starfsmanni greiningarfyrirtækis- ins Standard & Poor’s að þeir fjár- festar sem séu í leit að skjótfengnum gróða sæki nú í fyrirtæki tengd olíu- iðnaðinum. Þessi fyrirtæki muni að sjálfsögðu lækka á ný þegar olíu- verðið lækkar á endanum, en hvenær það gerist geti enginn spáð fyrir um. Hóflegar hækkanir í flestum kauphöllum Olíuverð lækkar á ný eftir hækkanir undanfarna daga Reuters Olía Fjárfestar í Kuala Lumpur fylgjast með hreyfingum á markaði. Olíu- verð náði 135 dölum á fat innan dags í gær, en lækkaði þegar líða tók á. Í HNOTSKURN » Í Bandaríkjunum hækkaðiDow Jones vísitalan um 0,19%, Nasdaq um 0,67% og S&P 500 um 0,26%. » Í Evrópu lækkaði breskaFTSE-vísitalan um 0,27%, en þýska DAX hækkaði um 0,42% og franska CAC hækkaði um 0,02%. » Samnorræna vísitalan hækk-aði um 0,47%, sænska vísital- an um 1,28%, en danska vísitalan lækkaði um 1,3%. GENGI íslensku krónunnar hélt áfram að styrkjast í viðskiptum í gær, en við lokun markaða stóð gengisvísitalan í 146,2 stigum. Hafði vísitalan lækkað um 0,68% og krón- an styrkst sem því nemur. Velta á gjaldeyrismarkaði í gær nam 40 milljörðum króna. Á rúmri viku hefur gengi krón- unnar styrkst um ein 7,8%, en þann fjórtánda maí stóð gengisvísitalan í 158,7 stigum. Á þessu tímabili hefur velta á gjaldeyrismarkaði verið sam- tals um 215 milljarðar króna, sam- kvæmt upplýsingum á vef Lands- bankans. Bæta seljanleika Stærstur hluti styrkingarinnar varð á föstudag í kjölfar þess að til- kynnt var um gjaldeyrisskiptasamn- ing Seðlabankans við Norræna seðlabanka. Strax í byrjun dags á föstudag styrktist krónan um tæp 5% og var greinilegt að fréttunum var vel tekið, en lengi hafði verið beðið eftir aðgerðum sem þessum, eins og það var orðað í Vegvísi grein- ingardeildar Landsbankans. Þann dag nam velta á gjaldeyrismarkaði 49,1 milljarði króna. Í Hálffimm fréttum greiningardeildar Kaup- þings segir að á síðustu vikum virðist hafa tekist að koma á meiri stöðug- leika á gjaldeyrismarkaði. Hafa ber í huga að þrátt fyrir að þróunin hafi verið jákvæð undan- farna daga þá er ekki gefið að henni hafi alfarið verið snúið við og að styrking krónunnar sé varanleg. Krónan að rétta úr kútnum? , #+  +   $            + + L L!   !" #!  ! $   ! !L TAP Atorku, móðurfélags, nam 1.870 milljónum króna á fyrsta fjórðungi, samanborið við þriggja milljarða hagnað á sama tíma í fyrra. Þriggja milljarða tap varð á framvirkum gjaldeyris- og vaxtaskiptasamning- um, en 1,4 milljarða hagnaður var af vaxtatekjum. Hvort tveggja má rekja til gengislækkunar krónunnar. Tekjur af fjárfestingarverkefnum námu 1,9 milljörðum, helmingi minni en í fyrra. Við reikninginn bætist 816 milljóna króna tekjuskattsinneign. Fjárfestingarverkefni í marslok námu 46,9 milljörðum og lausafjár- staða var um 11 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall var 31% en heildar- eignir námu 64,7 milljörðum, 2,4 milljörðum hærri en við árslok. Fjárfestingar Atorku eru m.a. í endurnýtanlegri orku, iðnaði og um- hverfistækni. Magnús Jónsson for- stjóri segir ljóst að með hækkandi ol- íuverði og auknum umhverfiskröfum felist í þeim mikil tækifæri. Áfram er unnið að vexti Geysir Green Energy og Promens. halldorath@mbl.is Atorka tapar 1,9 milljörðum króna Uppgjör Atorka ● EIGENDUR um 99% hlutafjár FL Group tóku afstöðu til tilboðs félags- ins um kaup á bréfum í FL gegn greiðslu með hlutabréfum í Glitni, í tengslum við afskráningu FL úr kaup- höllinni. Alls samþykktu um 2.400 hluthafar, eigendur að um 16% hluta- fjár í FL, tilboðið og fá bréf í Glitni. Eigendur um 84% hlutafjár munu því eiga hluti sína áfram í FL Group, eða um 1.900 hluthafar. Kaupverð hluta í FL Group í tilboði til hluthafa var 6,68 á hlut sem var meðalgengi FL Group í aprílmánuði 2008 og gengi á hlutum í Glitni var 17,05 á hlut. 2.400 hluthafar FL völdu bréf í Glitni ● HÖRÐ lending er ekki yfirvofandi í íslensku efnahagslífi. Reiknað er með hóflegum samdrætti á næsta ári en bata á árinu 2010. Þetta var nið- urstaða Þorsteins Þorgeirssonar, skrifstofustjóra efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, í erindi sem hann flutti á fundi um íslenskt efna- hagslíf sem sendiráð Íslands í Dan- mörku stóð fyrir í fyrradag. Þorgeir fór í erindi sínu yfir helstu niðurstöður í þjóðhagsspá fjármála- ráðuneytisins sem birt var í apríl- mánuði síðastliðnum. Jesper Rang- vid, prófessor við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn og gestaprófessor við Háskólann í Reykjavík, flutti einnig erindi á fundinum þar sem hann lýsti stöðunni í efnahagslífinu. Hörð lending ekki sögð vera yfirvofandi ● DANSKA fjármálaeftirlitið, Fin- anstilsynet, hefur kært þarlendan viðskiptablaðamann til lögreglu vegna gruns um markaðsmisnotkun. Blaðamaðurinn sem starfaði við hlutabréfagreiningu varð uppvís að því að eiga viðskipti með hlutabréf þeirra fyrirtækja sem hann skrifaði um. Slíkt er bannað með dönskum lögum. Blaðamaðurinn mælti með hlutabréfunum og hækkaði gengi þeirra almennt um 10-15% í kjölfar- ið. Hann er talinn hafa hagnast um 3 milljónir danskra króna á markaðs- misnotkun sinni. Refsingin fyrir brot af þessu tagi í Danmörku er almennt um 11⁄2 árs fangelsisvist en getur orðið 4 ár þyki brotið mjög alvarlegt. Blaðamaður mis- notaði markaðinn ● ÚRVALSVÍSITALA kauphallarinnar lækkaði um 0,6% í gær og lauk í 4.871 stigum. Mest vísitölufélaga lækkaði Bakkavör eða um 2,7%, en Nýherji lækkaði um 9,1% og Eik um 3,4%. Alfesca hækkaði um 1,3%. Heildarvelta nam 73 milljörðum, þar af 33,3 milljarðar með hlutabréf, sem rekja má til 14,6 milljarða króna viðskipta FL Group með hlutabréf í Glitni vegna tilboðs FL til hluthafa. 14,6 milljarða sala NOKKRA starfsmenn dótturfyrir- tækja íslenskra banka á erlendri grundu má finna í árlegri úttekt Financial Times og StarMine á bestu greinendum á evrópskum fjármálamarkaði. Þannig lenti Nahum Sanchez de Lamadrid, starfsmaður Lands- banka Kepler, í 10. sæti á lista yfir þá sem spáðu best allra um af- komu fyrirtækja á síðasta ári og Katja Keitaanniemi, greinandi hjá eQ, hinu finnska dótturfélagi Straums-Burðaráss, lenti í öðru sæti í flokki þeirra er greina hluta- bréf fyrirtækja í pappírs- og pökk- unariðnaði. Alls má finna sjö starfsmenn Kepler á listanum yfir bestu grein- endurna. Greinendur standa sig ÞETTA HELST … ● NÝR ritstjóri, Robert Thomson, hefur tekið við taumunum á fjármála- dagblaðinu bandaríska Wall Street Journal, en Thomson er gamall félagi auðjöfursins Ruperts Murdoch, sem á WSJ. Í frétt á vef danska blaðsins Berl- ingske Tidende segir að líta megi á ráðningu Thomsons sem merki um að Murdoch ætli að taka virkan þátt í stjórn blaðsins, en Murdoch á fyrir fjölda dagblaða og sjónvarpsstöðva. Wall Street Journal er mest selda viðskiptablað í heiminum og festi Murdoch kaup á blaðinu fyrir tíu mánuðum og sagði við það tækifæri að hann vildi breyta rekstri þess og breikka umfjöllunarefni. Thomson tekur við af Marcus Brauchli, sem hætti á blaðinu í síð- asta mánuði vegna þess að hann var ósáttur við hversu hratt átti að breyta rekstri þess. Murdoch styrkir tökin á Wall Street Journal ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.