Morgunblaðið - 23.05.2008, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
VINSTRI grænir á Akureyri eru
vonsviknir vegna þess að hvorki var
tekin afstaða í bæjarstjórn né bæj-
arráði í vikunni til tillögu þeirra þess
efnis að bæjaryfirvöld skori á ríkis-
stjórnina að fresta afgreiðslu frum-
varps sem m.a. felur í sér að taka
upp matvælalöggjöf Evrópusam-
bandsins. Formaður bæjarráðs segir
að í bókuninni og greinargerð með
henni hafi verið villur og fullyrðingar
sem orkuðu tvímælis og því ekki
hægt að samþykkja hana óbreytta.
Ekki ágreiningur
Bæjarfulltrúar VG lögðu fram
bókun sína í bæjarstjórn á þriðjudag
en þar var henni vísað til bæjarráðs.
Hún var ekki tekin fyrir á fundi ráðs-
ins í gær og lýsti fulltrúi VG von-
brigðum með það. Formaður bæjar-
ráðs og oddviti Samfylkingarinnar,
Hermann Jón Tómasson, segir að
fundurinn hafi verið boðaður með
dagskrá áður en málinu var vísað
þangað og verði til umfjöllunar að
viku liðinni.
Sigrún Björk Jakobsdóttir, odd-
viti sjálfstæðismanna og bæjarstjóri,
hvatti á dögunum til þess að af-
greiðslu frumvarps um matvælalög-
gjöfina yrði frestað en aðspurður
segir Hermann Jón engan ágreining
í meirihluta bæjarstjórnar um málið.
„Við erum öll sammála um að
gæta þurfi hagsmuna atvinnufyrir-
tækja og íbúa bæjarins í þessu máli
eins og öllum öðrum. Í þessu máli er
það Alþingis að sjá til þess að þessir
hagsmunir verði ekki fyrir borð
bornir og ég treysti þinginu ágæt-
lega til þess,“ segir Hermann Jón.
Hann segir bæjarstjórn að sjálf-
sögðu geta haft skoðun á málum eins
og þessu og öðru hvoru hafi verið
tekin upp mál sem eru á valdsviði Al-
þingis og ályktað um þau. Í slíkum
málum hafi það verið stefnan að tala
einum rómi; ná samstöðu um bók-
anir og ályktanir sem sendar eru frá
bæjaryfirvöldum. „Bæjarfulltrúar
VG virðast ekki tilbúnir til þess að
vinna að hagsmunamálum bæjarbúa
með þessum hætti og gerðu enga til-
raun til þess að skapa samstöðu um
þessa bókun. Í bókuninni og grein-
argerð með henni voru villur og full-
yrðingar sem orkuðu tvímælis þann-
ig að ekki var hægt að samþykkja
hana óbreytta. Þess vegna tók meiri-
hluti bæjarstjórnar þá afstöðu að
vísa málinu til bæjarráðs þar sem
það verður á dagskrá næstkomandi
fimmtudag.“
Vandræðagangur
Stjórn VG á Akureyri lýsti í gær
miklum vonbrigðum í yfirlýsingu.
Þeir segja frestunina lýsa „stórkost-
legum vandræðagangi meirihlutans í
þessu máli og ber vott um pólitískt
kjarkleysi“. VG segir að tillagan hafi
kveðið á um að það væri algjört lág-
mark að fresta málinu um sinn til að
gefa hagsmunaaðilum í greininni og
ríkisstjórninni meiri tími til að gera
ráðstafanir svo að hægt væri að
standa vörð um íslenska matvæla-
framleiðslu og landbúnað.
„Vart verður því trúað að ástæðan
sé að bæjarfulltrúar Samfylkingar
og Sjálfstæðisflokks telji sig hafa
frekari skyldum að gegna við sam-
flokksmenn sína í ríkisstjórn frekar
en íbúa Akureyrar og Eyjafjarðar-
svæðisins, hagsmuni landbúnaðar-
og matvælavinnslu í landinu og mat-
væla- og fæðuöryggi þjóðarinnar.
Fullyrðingar
orkuðu tvímælis
ÞESSI unga dama beið róleg í innkaupakörfunni á
meðan móðir hennar valdi sér ávexti í Nettó á Gler-
ártorgi í gærmorgun, en verslunin var þá opnuð á ný
eftir miklar endurbætur og breytingar. Þetta er
stærsta verslun Samkaupa, sem rekur rúmlega 40
verslanir víða um land. Miklar framkvæmdir hafa stað-
ið yfir við stækkun Glerártorgs í vetur en þeim lýkur á
næstu dögum. Í Nettó eru nú nýir grænmetis- og
ávaxtakælar sem sprauta gufu yfir vöruna með reglu-
legu millibili til þess að bæta útlit, gæði og ending-
artíma vörunnar, að sögn Atla Ragnarssonar, versl-
unstjóra. Hann segir Nettó á Akureyri fyrstu
verslunina hér á landi sem tekur þennan búnað í notk-
un en svona nokkuð sé t.d. orðið algengt í Danmörku.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Nammi, nammi, namm...
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
SKÓLANEFND Akureyrar sam-
þykkti samhljóða í vikunni að breyta
reglum um niðurgreiðslu bæjarins
vegna daggæslu í heimahúsum. Upp-
hæð niðurgreiðslunnar verður sú
sama og áður en breytingin felur í sér
að gjald vegna fæðiskostnaðar er
ekki lengur niðurgreitt af Akureyr-
arbæ. Að öllu óbreyttu hefur þetta
engin áhrif á þann kostnað sem for-
eldrar bera, skv. upplýsingum frá
bænum.
Foreldrar í hjónabandi eða sam-
búð greiða eftir breytinguna 18.320
kr. fyrir átta stunda vistun á mánuði
og dagforeldrar innheimta 11.000 kr.
fyrir fæði. Samtals gera það 29.320
sem er sama upphæð og foreldrar
greiddu áður.
Fæði eða nesti?
Dagforeldrar hafa hingað til miðað
við að fæðisgjald á mánuði sé 11.000
kr. fyrir hvert barn miðað við átta
klukkustunda dvöl á dag. Sambæri-
leg upphæð er 5.127 kr. á mánuði ef
barn er í leikskóla. Skólanefnd lítur
þannig á að foreldrar eigi að greiða
raunverð fyrir fæði á hverjum tíma
hvort sem það er hjá dagforeldri, í
leikskóla eða í grunnskóla og verður
verðlagning að taka mið af því. Þá er
það álit skólanefndar að það hljóti
ávallt að vera samningsatriði milli
foreldra og dagforeldra hvot keypt er
fæði handa barninu eða það nestað.
Reglum um niðurgreiðslu breytt
AKUREYRI
SAMATJALD á Ægisíðunni þar sem
iðkuð var dulræn speki var meðal
viðburða á íþrótta- og leikjadegi
Hagaskóla í gær í tilefni 50 ára af-
mælis skólans. Meðal annarra atriða
voru jógaiðkun, pönnuköku-
baksturskeppni, pílukast, fótbolti,
körfubolti, ljósmyndamaraþon, flug-
drekagerð og fleira. Afmælishátíð
verður síðan haldin á morgun, laug-
ardag, í skólanum og vonast að-
standendur afmælisbarnsins til þess
að sem flestir láti sjá sig þá.
564 nemendur eru í Hagaskóla
sem stofnsettur var 1. október 1958.
Morgunblaðið/Frikki
Dulræn speki á Ægisíðu
GENGIÐ hefur verið frá samkomu-
lagi um kaup borgarinnar á húseign-
inni Lækjargötu 2 sem er húsið á
horni Lækjargötu og Austurstrætis
sem brann fyrir rúmu ári síðan.
Kaupverðið er 321 milljón króna og
fylgja tryggingabætur með í kaup-
unum, en ekki hefur verið gengið frá
samkomulagi við tryggingafélagið
um bætur vegna brunans. Voru
kaupin samþykkt með fjórum sam-
hljóða atkvæðum.
Síðastliðið haust eignaðist Reykja-
víkurborg einnig fasteignina Austur-
stræti 22, sem líka varð eldinum að
bráð í brunanum í fyrravor. Í grein-
argerð framkvæmda- og eignaráðs
Reykjavíkur segir að með kaupunum
sé Reykjavíkurborg orðin eigandi að
tveimur lykilbyggingum á reitnum
sem ætti að auðvelda uppbyggingu.
Kaupin afar mikilvæg
Í bókun borgarstjóra og borgar-
ráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins er
því fagnað að niðurstaða sé loks
fengin í þessum efnum. Kaupin séu
afar mikilvæg og í raun nauðsynleg
til þess að tryggja uppbyggingu á
þessum reit. Lækjargata 2 sé lykil-
hús á svæðinu og nú sé tryggt að
hægt sé að hefja endurbætur á hús-
inu fljótt og örugglega. „Markmið
deiliskipulagsins er að sýna bygging-
ararfinum þann sóma sem honum
ber en aðlaga húsin jafnframt að nú-
tímaþörfum eins og hægt er. Miðað
er við að gömlu húsin verði færð til
eldra horfs eða lagfærð. Miklar kröf-
ur eru gerðar til hönnunar og um frá-
gang. Einnig er gert ráð fyrir því að
Nýja Bíó verði endurreist á svipuð-
um stað og það áður stóð,“ segir síð-
an.
Í bókun minnihlutans í borgarráði,
fulltrúa Samfylkingar, VG og Fram-
sóknar, segir að það verð sem nú sé
greitt fyrir byggingarrétt á Lækjar-
götu 2 sé hærra en verðið sem greitt
hafi verið fyrir Austurstræti 22 sem
keypt hafi verið fyrir örfáum mán-
uðum.
„Miðað við það verð sem greitt er
fyrir byggingarétt nú á Lækjargötu
2 og við Austurstræti 22 er ljóst að
fyrir Laugaveg 4–6 var greitt mjög
hátt verð. Kaupin þá voru ein for-
senda myndunar meirihluta Sjálf-
stæðisflokks og Ólafs F. Magnús-
sonar. Eindregnar yfirlýsingar um
að húsin skyldi kaupa áður en sam-
komulag náðist við seljendur höfðu
án efa áhrif á verðið. Leiða má að því
líkur að þessi framganga hafi veru-
lega skert samningsstöðu borgarinn-
ar sem kristallast í því háa verði sem
þá var greitt. Nú virðist jafnframt
orðið ljóst að framgangan í Lauga-
vegsmálinu hafi haft víðtækari áhrif
til hækkunar ef marka má það verð
sem nú er greitt fyrir Lækjargötu
2,“ segir síðan.
321 milljón króna
fyrir Lækjargötu 2
Kaupverðið á Laugavegi 4–6 hafði áhrif
Morgunblaðið/Júlíus
Bruni Byggingareiturinn séður of-
an frá eftir brunann í fyrravor.
FERÐAKOASTNAÐUR borgar-
fulltrúa á undanförnum fjórum árum
nemur samtals tæpum 27 milljónum
króna. Mestur var kostnaðurinn á
árinu 2007, tæpar 12,2 milljónir kr.
sem er um það bil tvöfalt hærra en
tvö árin þar á undan.
Þetta kemur fram í samantekt
sem Ólafur F. Magnússon borgar-
stjóri óskaði eftir. Eingöngu er um
að ræða ferðakostnað á vegum borg-
arinnar sjálfrar en ekki fyrirtækja í
eigu borgarinnar.
Dagur hæstur
Ferðakostnaður Dags B. Eggerts-
sonar er hæstur á umræddu tímabili
eða samanlagt tæpar 3,3 milljónir
króna. Næstur þar á eftir er Gísli
Marteinn Baldursson og síðan Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson með tæpar
tvær milljónir. Aðrir borgarfulltrúar
sem ferðast hafa fyrir meira en eina
milljón króna á ofangreindu tímabili
eru Kjartan Magnússon og Björk
Vilhelmsdóttir með tæplega 1,2
millj., Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
með rúmar 1,4 millj. og Jórunn Frí-
mannsdóttir og Marsibil Sæmunds-
dóttir með rúma eina milljón króna í
ferðakostnað. Ólafur F. Magnússon
borgarstjóri hefur hins vegar ekkert
ferðast á ofangreindu tímabili.
27 millj. í ferðir borgarfulltrúa