Morgunblaðið - 23.05.2008, Qupperneq 24
matur
24 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrir rúmlega einu og hálfu ári ákváðuvinkonurnar Inga Lóa Birgisdóttirog Gréta Kristjánsdóttir að opnaveitingahúsið Staðurinn – nátt-
úrulega. „Við vorum búnar að fara á námskeið
og viða að okkur alls konar fróðleik um græn-
metisfæði og það var bara að stökkva út í djúpu
laugina og prófa,“ segir Inga Lóa sem nú rekur
staðinn ein.
Hún hafði ekki komið nálægt veitingahúsa-
rekstri áður en hafði rekið hársnyrtistofu og
sólbaðsstofu. Hún hafði hins vegar áhugann og
var sjálf farin að borða mikið til grænmetisfæði.
„Það var í kjölfar þess að ég varð lasin. Þá þurfti
ég að taka út eitthvað sem ég var að borða svo
mér liði betur. Til að finna út hvað það væri sem
var slæmt og gott þá fikraði ég mig áfram, hélt
matardagbók og fylgdist með líðan minni. Nið-
urstaðan var að ég þoldi illa mjólkurvörur og
kjöt var of þungt fyrir mig svo ég fór að prófa
mig áfram með grænmetisréttina.“
Hún nennti ekki að elda alltaf fyrir sig eina
slíkt fæði því sambýlismaðurinn og sonurinn
sem enn býr heima eru miklir kjötkarlar. „Þess
vegna lét ég mig dreyma um að það væri hérna
á Akureyri staður sem seldi grænmetisrétti á
hagstæðu verði. Það er auðvelt að nálgast alls
konar óhollan skyndibita en ekkert val fyrir
svona sérvitringa eins og mig til að panta eitt-
hvað heilsusamlegt og taka með heim eða fara
út að borða. Þegar við vorum orðnar úrkula
vonar um að einhver góður ætlaði að taka af
skarið í þessum málum þá drifum við í þessu.“
Brjálað að gera
Inga Lóa segir að fyrstu dagana hafi verið
brjálað að gera, reyndar fyrstu mánuðina. Síðan
hafi þetta færst í eðlilegt horf. „Reyndar er það
svo skrítið að ég get aldrei reiknað út hversu
margir koma yfir daginn.
Stundum er brjálað að gera eins og allir hafi
ákveðið að borða á staðnum þann daginn en
stundum er rólegt. Ég finn fyrir miklum með-
byr og ekki síst hjá ungu fólki. Unga kynslóðin
er farin að hugsa mikið um hvað hún setur ofan
í sig og þá ekki síður strákar en stelpur.“
Hún bendir á að á sumrin sé alltaf hægt að
sitja úti í porti bakvið veitingastaðinn og borða
og það sé mjög vinsælt af því þar er logn þegar
annars staðar á Akureyri er vindur.
Inga Lóa segir að vinsælasti rétturinn á mat-
seðlinum sé lasagna og þá alls konar lasagna, en
að sjálfsögðu kjötlaust. Reyndar hefur tan-
doori-tófú líka verið mjög vinsælt og það er ein-
mitt rétturinn sem var í boði á opnunardaginn.
Vikulega er svo skipt um matseðla.
En hún selur meira en heita grænmetisrétti.
„Já við erum alla daga með heita súpu og ný-
bakað brauð, hveitigrasskot, „boost“ í öllum
regnbogans litum, nýkreistan safa og svo alls
konar eftirrétti eins og hnetuköku, eplaköku,
kókosköku og súkkulaðiköku. Allar kökurnar
eru auðvitað, eins og maturinn, búnar til á
staðnum og glútenlausar. Það á reyndar líka við
um brauðbaksturinn minn.“
Hollt morgunverðarhlaðborð
Í sumar ætlar Inga Lóa svo að brydda upp á
þeirri nýbreytni að bjóða morgunverðarhlað-
borð með hollu ívafi þar sem glútenlaust brauð
og speltbrauð verður á borðum og hummus svo
dæmi séu tekin í bland við sígildan hafragraut-
inn. Hún er þegar farin að leggja grunn að þess-
ari nýbreytni, enda hafa gistiheimili í nágrenn-
inu ákveðið að vera með sína gesti í áskrift.
En er ekki mál að ákveða einn daginn að
skipta yfir í grænmetisfæði?
„Nei fyrir mig var það ekkert mál. Ég hef
alltaf verið hrifin af grænmetisfæði og hef gam-
an af því að elda það. Það er líka svo mikil fjöl-
breytni í svona fæðu. Úrvalið af fersku græn-
meti er orðið mjög gott hér á landi og svo er
ekkert mál að skipta út kjöti og fiski fyrir tófú,
baunir og fleira sem er tilvalið í matargerðina.“
Hún segist lesa töluvert af matreiðslubókum
og uppskriftum á netinu en á erfitt með að fara
alveg eftir uppskriftum. „Þetta er karakter-
einkenni að þurfa alltaf að gera uppskriftirnar
að mínum eigin með því að prófa annað hráefni.
Ég nota oft uppskriftir sem upphaflega inni-
héldu kjöt eða fisk og set þá tófú eða baunir í
staðinn. Þá nota ég nær eingöngu krydd frá
Pottagöldrum því ég er alfarið á móti msg, asp-
artam eða öðrum aukaefnum í mat. Enda inni-
heldur maturinn frá mér ekkert svoleiðis ógeð.“
Inga Lóa gefur lesendum uppskrift að spí-
natklöttum með gulrótarrifrildi og graslauks-
sósu og súkkulaði-lárperueftirrétti sem og
ómótstæðilegri kókostertu. „Kakan er hollari
utgáfa af gamalli uppskrift frá mömmu sem hef-
ur verið mjög vinsæl í öllum fjölskylduboðum og
núna á Staðnum.“
Spínatklattar með
gulrótarrifrildi og graslaukssósu
200 g soðin hýðishrísgrjón
100 g soðnar kartöflur með hýðinu
50 g jurtaostur eða rifinn annar ostur
300 g (1 poki) ferskt spínat, gufusoðið
2 tsk. múskat
1-2 tsk. karrí
1 tsk. kóríander
1 tsk. grænmetiskraftur
salt og pipar
Hakkið hýðishrísgrjónin, kartöflurnar og spí-
natið. Blandið öllu vel saman. Smakkið til með
kryddinu. Búið til klatta með ísskeið og fletjið
þá aðeins út með fingrunum. Raðið á bökunar-
plötu og bakið í ofni við 180° í 15-20 mín eða
steikið á pönnu.
Gulrótarrifrildi
500 g gulrætur
1 grænt epli, skorið í tvennt og steinhreinsað
½ sítróna (safinn)
½ dl hlynsýróp eða agave-síróp
Rífið gulræturnar og eplið fínt niður með rif-
járni og blandið saman. Blandið saman sí-
trónusafa og sírópi, hellið yfir og hrærið í.
Graslaukssósa
1 dós sýrður rjómi 10%
(það má líka nota mjúkt tófú)
½ búnt ferskur graslaukur, saxaður
½ tsk herbamare (fæst t.d. í heilsubúðum)
Öllu blandað saman og látið standa í ísskáp í
2-4 tíma
Súkkulaði-lárperudesert
2 lárperur (avocado)
500 g „silken“-tófú eða rjómaostur sem hafður
var við stofuhita
2 tsk. vanilludropar
2 msk. hlynsíróp
2 msk. raspað 70% súkkulaði
(má líka nota kakó)
2 bollar muldar súkkulaðihafrakökur
Helmingið lárperuna og flysjið. Setjið í
blandara ásamt tófúinu/rjómaostinum, van-
illudropunum og sírópinu. Blandið muldu hafra-
kexinu og súkkulaðinu saman við með sleif.
Setjið í lítil form eða skálar og toppið með
rjóma/jurtarjóma og jarðarberi/kirsuberi.
Kókoskakan
4 eggjahvítur
150 g hrásykur
150 g kókos
Stífþeytið saman eggjahvítur og hrásykur.
Blandið kókosinum saman við með sleikju. Setj-
ið í hringlaga form og bakið við 180°C í 25-30
mín.
Krem
3 eggjarauður
45 g hráflórsykur (ég geri hann með því að
mala hrásykur í matvinnsluvél þar til hann er
orðinn mjög fínn)
35 g brædd kókosolía
75 g 70% súkkulaði, brætt í vatnsbaði
Eggjarauður og hráflórsykur þeytt saman.
Súkkulaðinu bætt út í kókosolíuna og svo hrært
saman við eggjahræruna. Smyrjið á kökuna og
skreytið með kókos.
Inga Lóa mælir með að nota helst lífrænt
hráefni, því það sé ekki bara hollara heldur líka
bragðbetra.
gudbjorg@mbl.is
Fjölbreytt fæða Inga Lóa segir lítið mál að skipta yfir í grænmetisfæði. F.v. spínatklattar með gulrótarrifrildi, súkkulaði-lárperudesert og kókoskakan.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Grænt og gott Inga Lóa Birgisdóttir segir unga fólkið kunna að meta grænmetisfæðið.
Hollari útgáfa af klassísku
kókoskökunni hennar mömmu
Hún hafði lengi vonast til að
einn daginn myndi einhver
opna veitingastað á Akureyri
sem seldi bara grænmetis-
fæði. Svo kom að því að Inga
Lóa Birgisdóttir ákvað að
drífa bara sjálf í að opna slík-
an stað. Guðbjörg R. Guð-
mundsdóttir bragðaði him-
neska kókosköku og ræddi við
Ingu Lóu um eldamennskuna.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Staðurinn – náttúrulega
Skipagötu 2
sími: 464 1420
stadurinn@stadurinn.is
www.stadurinn.is