Morgunblaðið - 23.05.2008, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
endurgreitt
í SmárabíóSími 564 0000Sími 462 3500
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
TILBOÐ
Í
BÍÓ
Made of Honour kl. 8 - 10:15
Superhero Movie kl. 4 - 6 B.i. 7 ára
Bubbi Byggir m/ísl. tali kl. 4
Horton m/ísl. tali kl. 4
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI, SMÁRABÍÓI
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG SMÁRABÍÓI
Kickin it old school kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 7 ára
Harold og Kumar kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára
Made of Honour kl. 5:50 - 8 - 10:10
21 kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Brúðguminn enskur texti kl. 6 B.i. 7 ára
ÖSKUR BERA
ENGAN ÁRANGUR !!
ÞAÐ ÞARF ALVÖRU KARLMANN
TIL AÐ VERA BRÚÐARMEYJA
BREIKIÐ ER EKKI DAUTT...
ÞAÐ HEFUR BARA LEGIÐ Í DVALA!
SÝND Í REGNBOGANUM
Hinn frábæri grínari
Jamie Kennedy fer á
kostum semeilífðarbreikari
sem vaknar efir
20 ára dásvefn,
Frábær gamanmynd sem
kemur öllum í gott skap.
FÓR BEINT Á TOPPINN
Í BANDARÍKJUNUM
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI, SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Indiana Jones 4 kl. 5:20D - 8D - 10:40D B.i. 12 ára
Indiana Jones 4 kl. 5:20 - 8 - 10:40 LÚXUS
Prom Night kl.6 - 8 - 10 B.i. 14 ára
What happens in Vegas kl. 5:45 - 8 - 10:15
OG REGNBOGANUM
eee
,,Hugljúf
og skemmtileg"
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
Indiana Jones 4 kl. 5 - 7:20 - 9:40 - 12 B.i. 12 ára
Indiana Jones 4 kl. 12 - MIÐNÆTURPOWERSÝNING B.i. 12 ára
Harold og Kumar kl. 6 - 8 B.i. 12 ára
What happens in Vegas kl. 10
Í SMÁRABÍÓI
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
ÞAÐ er óhætt að segja að fólk hafi fengið
ríflega fyrir peninginn á tónleikum Johns
Fogertys. Hátt í 30 lög voru leikin, viðvera á
sviði rúmir tveir tímar – og engin pása eins
og sönnum rokkurum sæmir. Það var at-
hyglisvert að líta yfir salinn og spá aðeins í
lýðfræðina. Á tónleikum Joes Cockers fyrir
u.þ.b. þremur árum var meirihluti gesta fé-
bústið, jeppakeyrandi fólk úr Garðabænum
en þetta kvöld einkenndist af verkalýðslegri
anda. Þarna voru gamalgrónir rokkarar,
reynsluhoknir menn á miðjum aldri með
bjórdósir í hendi. Þeir voru ekki komnir til
að eiga „dásamlega“ kvöldstund, heldur
villta og sveitta. Ungmennafjöld var þá
nokkur, og kunni hún lög og texta upp á hár.
Nokkuð merkilegt.
Og þó … Fogerty var eitt sinn leiðtogi
einnar merkustu rokksveitar allra tíma,
Creedence Clearwater Revival. Að mati þess
sem ritar hefur engin sveit náð að dýrka upp
jafn áreynslulaust og rokkandi grúv og
mörg laga hennar eru greypt í huga ungra
sem aldinna, hvort sem þeim líkar það eða
ekki. Eftir upplausn sveitarinnar hefur
Fogerty keyrt æði skrykkjóttan sólóferil en
er á feiknaflugi nú um stundir og gaf þannig
út prýðilega plötu í fyrrahaust, Revival.
Efnisskrá kvöldsins samanstóð að meg-
inhluta af CCR-efni en einnig fengu lög af
þessari sólóplötu að fljóta með.
Tónleikarnir fóru frábærlega af stað með
nokkurs konar yfirlýsingu. Myrki fenjarokk-
arinn „Born on the Bayou“ silaðist glæsilega
áfram og Fogerty var innblásinn; líkt og
hann væri að leggja út hver hann væri og
hvaðan hann kæmi (andlega fremur en land-
fræðilega). Stemningin léttist ögn við „Bad
Moon Rising“ eitt af fjölmörgum lögum
CCR sem eru hreint ógurlega grípandi en
ná því samt aldrei að verða útjöskuð, þótt
maður sé að heyra þau í milljónasta sinn.
Þarna liggur styrkur CCR, og um leið allra
sígildra sveita.
Fogerty hélt sig við CCR-efni um sinn,
bæði vel þekkt („Who’ll stop the Rain“,
„Suzy Q“) og ekki eins þekkt („Commotion“,
„Bootleg“). „Cotton Fields“ og „My Toot
Toot“ drógu framvinduna niður, illa þokkuð
línudansstemning var allt í einu farin að
taka sér bólfestu. Sem betur fer var það
snögglega brotið upp með frábærri útgáfu af
„Ramble Tamble“. Hápunktur kvöldins og
bandið var virkilega að grúva í millikafl-
anum. Fogerty skaut svo að nýjum lögum
sem eiga ekki séns í CCR-efnið en eru þó
fínasta stöff. Engu að síður fann maður að
fólk beið (merkilega) þolinmótt eftir að þeim
lyki.
Slögurunum var þannig alltaf vel tekið.
„Midnight Special“ og hið magnaða „I heard
it through the Grapevine“ gengu vel en
„Fortunate Son“, eitt allra besta lag CCR og
stingandi áhrifamikill andstríðsáróður, var
hins vegar hespað af á túrbóhraða líkt og
um skyldurækni væri að ræða. Þarna hefði
verið gott færi að kynna lagið af andríki og
flytja það svo almennilega, fjandakornið!
Eftir uppklapp var það svo „Rockin’ All
Over The World“ og „Proud Mary“.
Fogerty stóð sína plikt vel. Ég efast ekki
um að hann flytur þetta efni af ástríðu frek-
ar en hreinni gróðavon. Bandið hans stóð sig
sömuleiðis vel, þó að stíf fagmennska væri
fremur í forgrunni en losaralegt rokk og ról.
Það var kannski helsti gallinn við kvöldið,
það var einhver ameríkaníseruð yfirborðs-
mennska sem lá lúmskt undir, t.a.m. var
spjall Fogertys á milli laga einhvern veginn
klaufskt og ófyndið. Honum fer auðheyran-
lega best að tjá sig með tónlistinni. Þyngra
efni, eins og „Ramble Tamble“ og „Born on
the Bayou“, gekk þá betur upp en léttmetið,
sem var á köflum á nokkurs konar Vegas-
sýningarplani. Allt í allt var kvöldið þó ljúft,
og að sjá höfund nokkurra af ódauðlegum
lagasmíðum rokksögunnar flytja þær í eigin
persónu var eðlilega upplifun.
Fæddur í fenjunum
Morgunblaðið/Golli
Ástríðufullur „Fogerty stóð sína
plikt vel. Ég efast ekki um að hann
er að flytja þetta efni af ástríðu, þá
frekar en hreinni gróðavon.“ Arnar Eggert Thoroddsen
TÓNLIST
Laugardalshöll
John Fogerty ásamt hljómsveit. KK hitaði upp.
Miðvikudaginn 21. maí.
John Fogerty bbbmn