Morgunblaðið - 27.05.2008, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NÝGERÐIR kjarasamningar ríkis-
ins við tíu stór aðildarfélög BSRB
annars vegar og Starfsgreinasam-
bandið hins vegar vegna starfs-
manna SGS hjá ríkinu eru ekki mjög
frábrugðnir samningum sem gerðir
hafa verið á almenna vinnumarkað-
inum. Stór munur er þó á samnings-
tímanum þar sem samningar ríkis-
ins gilda aðeins til 11 mánaða eða til
marsloka 2009.
Signý Jóhannesdóttir, formaður
sviðs starfsmanna ríkis og sveitarfé-
laga hjá SGS, segist telja að í ljósi
þess að samningurinn er til 11 mán-
aða megi menn una þokkalega við
þessa niðurstöðu. Spurð um ástæður
þess að samningurinn er til svo
skamms tíma bendir Signý á að
gengið hafi verið frá samingunum á
sama tíma og BSRB en þar hafi
menn ekki viljað gera lengri samn-
ing. „Við hefðum gjarnan viljað
skrifa undir lengri samning en erum
með fólk sem er í sambærilegum
störfum [og starfsmenn innan
BSRB] og maður þarf að taka mið af
því.“
Samningur SGS og ríkisins nær
til fimm þúsund félagsmanna
Það eru tæplega fimm þúsund fé-
lagar í SGS sem starfa eftir samn-
ingi eða samningum sem taka mið af
þessum samningi, að sögn Signýjar.
„Hjúkrunarheimilin sem eru rekin
af fyrirtækjum í heilbrigðisþjónustu
og ýmsum sjálfseignarstofnunum
eru ekki aðilar að þessum samningi
en undantekningarlaust taka samn-
ingar þeirra við einstök stéttarfélög
mið af honum.“
Signý segir að það hafi valdið von-
brigðum að ekki tókst að semja um
sérstakar kjarabætur til umönnun-
arstétta og lagfæringar á vakta-
vinnuumhverfinu. Á það beri að líta
að samningurinn gildir aðeins til 11
mánaða og það sé töluvert flókið að
koma til móts við kröfur og hug-
myndir sem uppi eru um kjarabætur
umönnunarstétta. Þar sé ekki ein-
göngu litið til launa heldur líka á
vinnutímann, slíkt verði ekki leiðrétt
í einu vetfangi.
Hærri launakostnaður en á
almenna vinnumarkaðinum
Árni M. Mathiesen fjármálaráð-
herra segir kjarasamninga ríkisins
sl. sunnudag vera í takt við þá samn-
inga sem gerðir hafa verið að und-
anförnu. Ríkið hefði þó gjarnan vilj-
að semja til lengri tíma. Árni bendir
á að samningum sé ekki lokið við alla
ríkisstarfsmenn og því sé of snemmt
að segja til um hversu miklar kostn-
aðarhækkanir fylgja samningunum
fyrir ríkissjóð. Það sé þó ljóst að
svona krónutölusamningar feli í sér
hlutfallslega hærri kostnað fyrir rík-
ið en á almenna vinnumarkaðinum,
vegna þess að samsetning starfs-
manna ríkisins er önnur og stærra
hlutfall starfsmanna hjá ríkinu er á
launatöxtum en á almenna markað-
inum. „Þar af leiðandi verður kostn-
aðurinn meiri hjá
okkur en á al-
menna markaðin-
um.“
Forsvarsmenn
launþega hafa
lýst vonbrigðum
með að ekki er
gert ráð fyrir sér-
stökum fjárfram-
lögum til að bæta
kjör umönnunar-
stétta og draga úr launamun
kynjanna. „Við vorum reyndar með
tilboð þar sem var gert ráð fyrir
ákveðnum atriðum varðandi óút-
skýrðan launamun kynjanna og
umönnunarstéttirnar en því tilboði
var hafnað,“ segir Árni en bætir við
að í því tilboði hafi verið gert ráð
fyrir að samið yrði til lengri tíma.
„Við breytum ekki þessum hlutum í
einum kjarasamningi og raunar tel
ég að við breytum ekki nema hluta
þessara mála í kjarasamningum. Við
töldum ekki eðlilegt að við værum að
semja um slíka hluti í svona stuttum
samningi,“ segir Árni. Hann segir að
stefna ríkisstjórnarinnar um þessi
mál sé óháð samningunum sem slík-
um. „Við munum því vinna áfram að
þessum málum. Tvær nefndir eru að
störfum og samráðsvettvangur
varðandi óútskýrðan launamun
kynjanna og þessar nefndir munu
skila okkur áfangaálitum í haust. Við
skildum það sjónarmið viðsemjenda
okkar þannig að ef ætti að fara að
semja til lengri tíma, þá þyrftu þeir
að vita eitthvað um það sem við vær-
um að hugsa í þessum efnum og þess
vegna lögðum við fram tilboð þar
sem þessir þættir voru inni þrátt
fyrir að nefndirnar hefðu ekki lokið
störfum. En þegar um svona stuttan
samningstíma er að ræða hefur það
að sjálfsögðu ekki sama vægi og
eðlilegt er að við höldum þessari
vinnu áfram við að leysa þessi
vandamál sem við höfum sett okkur
markmið um að gera á kjörtíma-
bilinu.“
Segjast ekki hafa hafnað til-
boði um framlag til umönnunar
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, segir það misvísandi fram-
setningu hjá fjármálaráðherra, sem
fram kom í fréttum í gær, að BSRB
hafi hafnað tilboði um að bæta kjör
umönnunarstétta sérstaklega. „Því
fer fjarri að við höfum hafnað því að
það kæmi sérstakt framlag til
umönnunarstétta. Það er til komið
vegna kröfu og óska af okkar hálfu
og við höfum hamrað á því mánuðum
saman. Það er rétt að þegar þessi
hugmynd kom inn á samningsborð-
ið, þá var það í samhengi við að sam-
ið yrði til lengri tíma en nú var gert.
Við hömruðum á þessu fram á síð-
ustu stundu og hefðum þess vegna
viljað sjá einhver skref stigin þótt
þau væru ekki endilega innan samn-
ingstímans. Þetta var ekki rætt neitt
sérstaklega en það var ekki orðið við
óskum okkar um að taka þetta til
greina. Af hálfu samninganefndar
ríkisins var þetta ekki tilboð og það
var aldrei fast í hendi,“ segir Ög-
mundur.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, segir ekki unnt að meta kostn-
aðaráhrif samninga ríkisins við
BSRB og SGS og áhrif þeirra á
launaþróunina í landinu fyrr en séð
verður hvernig launavísitölur þróast
á næstu mánuðum. „Mér sýnist
þetta vera frekar dýrir samningar
fyrir ríkið og að það sé að taka á sig
heldur meiri launakostnað en at-
vinnulífið gerði,“ segir Vilhjálmur.
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ,
bendir á að þessir samningar gildi til
marsloka á næsta ári en í um-
ræðunni hafi verið að semja til
haustsins 2009. Segist hann líta svo
á að þetta sé kostur ef litið er til þess
hvernig mál eru að þróast um þessar
mundir. Því verði samningsaðilar á
svipuðu róli þegar kemur að endur-
skoðun samninga í byrjun næsta
árs.
Töldu skynsamlegt að semja til
skamms tíma vegna óvissunnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samningar Fulltrúar BSRB áttu fyrr í þessum mánuði fund með fjórum ráð-
herrum ríkisstjórnarinnar. Í framhaldi af því fóru kjaraviðræður á skrið.
Signý
Jóhannesdóttir
Vilhjálmur
Egilsson
Ögmundur
Jónasson
Grétar
Þorsteinsson
Í HNOTSKURN
»Launataxtar hækka um20.300 kr. 1. maí sl. og álags-
og yfirvinnugreiðslur hækka
hlutfallslega í samræmi við
taxtahækkanir. Samið var um
44.100 kr. desemberuppbót.
»Réttur foreldra til fjarveruvegna veikinda barna fer úr
10 dögum í 12.
»Samið var um 17 þúsund kr.jöfnunargreiðslu fyrir ræsti-
tækna í tímamældri ákvæð-
isvinnu.
Unnið áfram að
bættum kjörum
umönnunarstétta
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
KJARAVIÐRÆÐUR ríkisins og
BSRB tóku nokkra snúninga áður
en endanleg lending náðist um
helgina með samkomulagi um
skammtímasamning. Þegar viðræð-
urnar fóru í gang lögðu forysta og
samninganefndir BSRB áherslu á
að samið yrði til mjög skamms tíma,
helst ekki lengur en til eins árs. Skv.
heimildum var forysta BSRB með
svipaðar áherslur í kjaramálum og
samið var um á almenna vinnu-
markaðinum í vetur, þ.e. að samið
yrði um krónutöluhækkun launa.
Samninganefnd ríkisins lagði aftur
á móti fram tilboð um gerð kjara-
samnings sem gilti til ársins 2011,
þ.e. um lengri samningstíma en á al-
menna markaðinum, sem gilda að
óbreyttu til 2010. Á þetta féllst
BSRB ekki nema tryggt yrði að í
þeim samningum yrði „eitthvað
miklu meira á beinunum“, eins og
einn heimildarmaður orðaði það.
Tekist var á um þær áherslur sem
hafa verið áberandi um að bæta sér-
staklega kjör fólks í umönn-
unarstörfum. BSRB hélt stjórn-
arsáttmálanum á lofti og
markmiðum hans um að eyða óút-
skýrðum launamun og bæta stöðu
umönnunarstétta. Skv. upplýs-
ingum blaðsins voru af hálfu rík-
isstjórnarinnar settar fram hug-
myndir eða tilboð um 300 milljóna
kr. framlag til umönnunarstétt-
anna. Þótti fulltrúum BSRB það allt
of lítið í lagt og var horfið frá því.
Að því kom að BSRB féllst á að
leggja þessi mál til hliðar og vinna
að gerð skammtímasamnings vegna
þeirrar stöðu sem uppi er í efna-
hagsmálunum og sameiginlega
gegn verðbólgunni.
Urðu viðsemjendur ásáttir um að
mætast á miðri leið og vinna að gerð
samnings sem gilda átti fram á
haustið 2009. Bauð ríkið upp á
19.500 kr. grunnkaupshækkun og
að nokkru síðar á árinu 2009 kæmi
önnur áfangahækkun upp á 6.200
kr. Til samanburðar er í ASÍ/SA
samningunum kveðið á um 13.500
kr. hækkun almennra launataxta
árið 2009 og kr. 6.500 árið 2010 og
að launataxtar iðnaðarmanna og
skrifstofufólks hækki um 17.500 ár-
ið 2009 og 10.500 kr. árið 2010.
Samningamenn BSRB gátu ekki
fallist á þetta.
Niðurstaðan varð eins og fram
hefur komið gerð skammtímasamn-
ings til 11 mánaða, sem báðir aðilar
eru sammála um að sé skynsamlegt
miðað við þær aðstæður sem uppi
eru. Innan ASÍ eru menn sáttari við
þessa niðurstöðu en ef samið hefði
verið til lengri tíma. Þar hafi stefnt í
gerð samninga sem hefðu haft í för
með sér misgengi launaþróunar á
milli almenna markaðarins og rík-
isstarfsmanna. Með þessari lend-
ingu aukist líkur á samstöðu milli
launþegasamtakanna við endur-
skoðun samninga 2009.
Ríkið bauð 300
milljónir í umönnun
ÞÓTT nú liggi fyrir kjarasamningar
á almenna vinnumarkaðinum og tek-
ist hafi samningar fyrir stóran hluta
starfsmanna hjá ríkinu, auk nýgerðs
samnings grunnskólakennara og
sveitarfélaganna, er enn eftir að
semja við mikinn fjölda launþega í
sumar og haust. Um seinustu áramót
voru tæplega 80 kjarasamningar
lausir og hátt í 200 samningar losna á
árinu. Skv. yfirliti ríkissáttasemjara
er búið að gera 19 samninga á árinu
en þeir ná til mikils meirihluta launa-
fólks á Íslandi.
Enn er ósamið í kjaraviðræðum
aðildarfélaga BHM og ríkisins en
þau eru á þriðja tug talsins og gera
samninga hvert fyrir sig. Kjara-
samningur félagsmanna Kennara-
sambands Íslands í framhaldsskól-
um rann út 30. apríl.
Starfsgreinasambandið á eftir að
semja fyrir tæplega sex þúsund fé-
lagsmenn hjá sveitarfélögunum en
samningar þeirra renna út í nóvem-
ber. Nýgerðir samningar ríkisins við
BSRB ná til tíu aðildarfélaga eða
flestra starfsmanna hjá ríkinu. Enn
er þó ósamið við nokkur aðildarfélög.
Í haust renna út samningar Lands-
sambands lögreglumanna og Toll-
varðafélags Íslands og í nóvember
rennur út samningur Landssam-
band slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
manna. Þá renna samningar BSRB
og launanefndar sveitarfélaganna út
í lok október. Meiri harka er að fær-
ast í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga
og viðsemjenda þeirra eftir að Fíh
hafnaði tilboði ríkisins í gær. Næsta
laugardag renna svo út kjarasamn-
ingar sjómanna og LÍÚ.
Lotunni er hvergi nærri lokið
og ósamið við fjölmörg félög
Árni M.
Mathiesen
Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is
S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T
N‡r sjúkrafljálfari
Sandra Dögg Árnadóttir sjúkrafljálfari Bc
er komin aftur til okkar.