Morgunblaðið - 27.05.2008, Page 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
FARA ÞAU
ALLTAF MEÐ
KÝRNAR INN
Í FJÓS Á
NÓTTUNNI
ÉG VISSI ÞAÐ EKKI... ÉG YRÐI EKKI MJÖG
GÓÐUR BÓNDI
AUÐVITAÐ, KJÁNINN ÞINN!
EF ÞAU SKILJA ÞÆR EFTIR
ÚTI ÞÁ FRJÓSA ÞÆR Í HEL
ER ÞAÐ SATT AÐ STÓR
KATTARDÝR MALI EKKI?
JÁ, VIÐ ERUM
ALLT OF GRIMM
TIL AÐ MALA
HVAÐ KALLARÐU ÞÁ
HLJÓÐIÐ SEM ÞÚ GEFUR
FRÁ ÞÉR ÞEGAR ÉG KLÓRA
ÞÉR Á MAGANUM?
AÐ URRA
FALLEGA
ÉG VEIT AÐ ÉG HEF EKKI VERIÐ MIKIÐ
HEIMA UNDANFARIÐ... EN FYRST ÉG ER
KOMINN HEIM, HVAÐ VILTU AÐ ÉG GERI?
RAKIR
LAUFIN Í
GARÐINUM
ÞÚ VERÐUR AÐ SÆTTA ÞIG
VIÐ ÞAÐ AÐ ÞÚ BÝRÐ MEÐ
HUNDINUM SEM ÞÚ ÁTT, EN
EKKI HUNDINUM SEM ÞÚ
VILDIR AÐ ÞÚ ÆTTIR
VIÐ GERÐUM
SÉRSTAKA
JÓLAGJÖF Í ÁR
HVER ER
HÚN?
HEIMA-
LAGAÐUR
BJÓR
BRUGGAÐIR
ÞÚ HANN
SJÁLFUR? TÖFF!
ÉG VILDI
BARA AÐ VIÐ
ÆTTUM MEIRA
ERTU VISS
UM AÐ ÞETTA
SÉ BJÓR?
NÚNA NÁÐI ÉG ÞÉR...
FRÁ ÖLLUM HLIÐUM
ÞÚ ERT EKKI BÚINN AÐ
NÁ NEINUM...
NEMA SJÁLFUM ÞÉR!
HVAÐ?!?
dagbók|velvakandi
Kettlingurinn Franz
ÞESSI 8 vikna kettlingur hlaut
nafnið Frans eftir Franz Josef Aust-
urríkiskeisara af því að þeir þóttu
hafa svipað yfirskegg. Frans reynd-
ist að vísu vera læða, svo nú vantar
kisuna nýtt nafn og nýtt heimili í of-
análag. Frans er mun gáfaðri en
aumingja Franz Josef var, en sam-
eiginlegt með þeim er afar mikil
snyrtimennska og ljúft skap. Þeir
sem vildu taka Frans að sér og gefa
honum nýtt nafn ættu að hringja í
síma 821-7516 og tala við Illuga Jök-
ulsson.
Rónar Reykjavíkur
ÞAÐ var á árunum þegar rónar
Reykjavíkur áttu í fá hús að vernda
fremur en reykingafólk nú um
stundir. Þeir kunnu utan að ljóð góð-
skáldanna milli þess sem þeir höll-
uðu sér upp að bárujárnsgirðingunni
á Arnarhóli þar sem nú er Seðla-
banki Íslands. Keyptu þeir sér
flösku í ríkinu og dreyptu á henni á
almannafæri, var þeim umsvifalaust
stungið í kjallara lögreglustöðv-
arinnar sem þá var í Pósthússtræti
2. Um þessar mundir er miðborgin
eins og ruslahaugur, matarumbúðir,
flöskubrot, sígarettustubbar eins og
hráviði um allt og engin hirtur eða
stungið inn. Umgengi marga um
borgina okkar er hræðileg. Lægsta
stigið af mannfólkinu er þeir sem
míga eins og hundar utan í húsveggi.
Illa er komið fyrir Austurstræti
Reykjavíkurskáldsins Tómasar Guð-
mundssonar. Geng ég með hatt tæki
ég ofan fyrir matvörubúðinni 10-11
fyrir að halda starfsfólki með þenn-
an lýð yfirvofandi allan sólarhring-
inn.
Guðrún Jacobsen.
Hundaræktun eða
hundaframleiðsla
UM þessar mundir er stórt mál í
gangi vegna ákveðinnar hundarækt-
unar hér á landi, eða hundafram-
leiðslu eins og margir kalla það. Mig
langar að segja frá slæmri reynslu af
þessari ræktun.
Margar sögur fara af þessari
„ræktun“ og eflaust eru margar
rangar, eins og aðrar réttar. Per-
sónulega þekki ég fólk sem hefur
lent í því að fá slæma hunda frá
þessari ræktun, hunda sem hafa
gengið í gegnum kvalir og síðar
drepist. Einnig hefur fólk farið
þangað aðeins til að fá sögusagn-
irnar staðfestar með því að þykjast
vera að kaupa hund. Eigandinn seg-
ist vera með nokkra hunda í einu, en
6-12 got er of mikið fyrir aðeins 4
manneskjur að sjá um, það er vitað
mál. Ein manneskja á erfitt með að
fylgjast aðeins með einu goti svo það
vantar verulega upp á starfskrafta í
þessari hundaræktun.
Ef þetta reynist rétt þá verður að
skoða þetta.
María Dögg Arnarsdóttir.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
ÞEIR Logi og Heiðar Snær voru kampakátir með aflann sinn þegar ljós-
myndari hitti þá við lækinn í Hafnafirði. Þeir þurftu nú ekki fínar flugu-
veiðigræjur eins og mennirnir sem stóðu á bakkanum að baki þeim heldur
bara veiðistöng, öngul og brauðmola sem beitu.
Morgunblaðið/hag
Brauðmoli í beitu
FRÉTTIR
PRÓFESSOR Patrick Geary við Kaliforníuháskóla í Los Angeles flytur op-
inberan fyrirlestur í boði hugvísindadeildar Háskóla Íslands í dag, þriðju-
daginn 27. maí. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku í stofu 301 í Árna-
garði og hefst kl. 16.
Enskt heiti fyrirlestrarins er „The Middle Ages and Modern Nation-
alism“ og fjallar um að eftir fall Sovétríkjanna hafa þjóðernislegar hug-
myndir skotið upp kollinum að nýju og í mörgum löndum sem töldust til
Varsjárbandalagsins. Þær hafa valdið upplausn í fyrrverandi Júgóslavíu
og Tékkóslóvakíu og hleypt vaxandi spennu í samskipti þjóða og þjóð-
arbrota í öðrum löndum. Í fyrirlestrinum verður fjallað um það hvernig
ófáar af þessum hreyfingum endurvekja upprunasagnir miðalda og jafn-
framt þjóðernisumræðu sem byggist á söguskilningi frá 19. öld og sam-
þætta þetta kröfum sínum og baráttu í samtímanum o.fl.
Fyrirlestur um miðaldir og
þjóðernishyggju nútímans
Á UNDANFÖRNUM árum hefur ellimálaráð Reykjavíkurprófastsdæma og
kirkjurnar í prófastsdæmunum staðið fyrir sameiginlegri sumarguðsþjón-
ustu sem er sérstaklega ætluð eldri borgurum.
Að þessu sinni verður guðsþjónustan í Grafarvogskirkju miðvikudaginn
28. júní kl. 14. Prestur er sr. Guðrún Karlsdóttir og Litli kór Neskirkju
syngur og leiðir almennan söng undir stjórn Ingu J. Backman sem einnig
syngur einsöng. Organisti er Reynir Jónasson. Eftir guðsþjónustuna eru
kaffiveitingar í boði Grafarvogssóknar. Guðsþjónustan er samstarfsverk-
efni ellimálaráðs Reykjavíkurprófastsdæma og Grafarvogsóknar. Allir vel-
komnir og eru eldri borgarar sérstaklega hvattir til að taka þátt í guðs-
þjónustunni, segir í fréttatilkynningu.
Sumarguðsþjónusta
í Grafarvogskirkju