Morgunblaðið - 27.05.2008, Side 36
ÞEIR sem kynntu sér vel dagskrá
Tilraunamaraþonsins í Hafnarhúsi
og fylgdust grannt með því hafa ef-
laust tekið eftir því að eina tilraun
vantaði (þ.e. fyrir utan þá sem dr.
Ruth og Abramovic áttu að gera
saman en varð að tveimur þess í
stað). Myndlistarmaðurinn Roger
Hiorns varð að hætta við að um-
breyta bílvél, eins og til stóð, þar
sem þess til gerður vökvi kom ekki
til landsins í tæka tíð. Þess í stað
urðu gestir að gera sér að góðu að
sjá kristallaðan segul sem Hiorns
hóf að umbreyta á tilraunamaraþoni
í Serpentine-galleríinu í Lundúnum í
fyrra. Segullinn prýðir bækling
Listahátíðar í Reykjavík og engu lík-
ara en þar sé á ferðinni sápa með
reipi eins og Bandaríkjamenn eru
margir svo hrifnir af. Vissulega ekki
eins áhrifamikið og bílvél sem um-
breytist í beinni. Blá, nánar tiltekið.
Tindrandi, blár salli
„Bláa bílvélin bíður þess að vera
sett ofan í karið en meiningin er að
gera það við gott tækifæri einhvern
tímann á næstu dögum. Við munum
gera fólki viðvart og senda út til-
kynningu þess efnis.
Bílvélin hangir nú uppi í A-sal
þakin koparsúlfati sem er blátt á lit-
inn. Á næstu dögum verður henni
stungið á kaf í upplausn sem gerð er
úr vatni og koparsúlfati. Upplausnin
mun síðan vinna á vélinni í hálfan
mánuð en þá verður hún dregin upp
að viðstöddum gestum. Ef allt fer á
besta veg verður vélin þakin tindr-
andi bláum salla og hengd þannig
upp sem hluti af innsetningum Til-
raunamaraþonsins. Það er mál
manna að um sé að ræða eina glæsi-
legasta bílvél allra tíma,“ segir
Soffía Karlsdóttir, deildarstjóri
markaðs- og kynningarmála hjá
Listasafni Reykjavíkur. Soffía segir
upplausnina algjört eitur og menn
þurfi að vera vel varðir með fatnaði,
grímum og hönskum þegar upp-
lausnin er blönduð og vélinni dýft of-
an í hana. Á myndinni hér til hliðar
má sjá hluta af bílvélinni sem er þak-
in koparsúlfati og bíður þess að vera
lögð í upplausnina góðu og fá á sig
undurfagra mynd.
Blá bílvél bíður upplausnar
Hiorns gat ekki gert tilraun sína þar sem vökvann vantaði
Hann sagði að nóg
væri að hafa einn
stríðsljósmyndara í hverri
fjölskyldu … 40
»
reykjavíkreykjavík
Vefsíða lífsstíls-
tímaritsins Moni-
tor segir frá því
að eiginkona
Johns Fogertys
hafi gerst fingra-
löng eftir tónleika
kappans í Höllinni. Mun hún hafa
tekið „ófrjálsri“ hendi veitingar og
annað sem skipuleggjendur höfðu
lagt hljómsveitinni til, þ.á m. DVD-
myndir sem fengnar höfðu verið að
láni frá Senu. Hefðin er að vísu sú
að allt það sem listamanninum er
fært baksviðs sé hans, enda um það
samið í samningum og líklega geta
skipuleggjendur sjálfum sér um
kennt að hafa ekki passað upp á
sína hluti betur. Á hinn bóginn urðu
tónleikahaldarar þess vísir mjög
snemma að eiginkona Fogertys yrði
ekki sú auðveldasta í umgengni og
tók það til að mynda mjög langan
tíma og töluvert stapp að finna hót-
el sem var henni samboðið. Sjálf
stjarnan mun hins vegar hafa verið
einkar þægileg í umgengni. Bæði
nægjusöm og þolinmóð.
Áttu fullt í fangi með
eiginkonu Fogertys
Sagt var frá því í 24 stundum í
síðustu viku að hljómsveitin Sigur
Rós væri með opnar æfingar fyrir
blaðamenn þar sem þeim gæfist
kostur á að fylgjast með sveitinni
fínpússa samspilið áður en haldið
er í heimstónleikaferðalag í byrjun
næsta mánaðar. Þetta mun ekki
vera alls kostar rétt. Að vísu hefur
tónlistartímaritið Q fylgt þeim
drengjum eftir á upptökuferlinu og
mun með einhverjum hætti fylgjast
með æfingum en umfram það hefur
sveitin aðeins veitt viðtal við tíma-
ritið Mojo, enn sem komið er. Búast
má þó við að fjölmiðlaherferðin
hefjist innan tíðar enda fátt nauð-
synlegra fyrir hljómsveitir í dag en
að vinna þá orustu.
Lokaðar æfingar
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
… endar á A. Þannig kvað Sesar A á fyrstu rapp-
plötunni sem var eingöngu á íslensku, Storm-
urinn á eftir logninu (2001). Með henni umbylti
Sesar A íslensku rappi, ásamt XXX Rottweiler,
og sýndi fram á að það væri ekki bara svalt að
rappa á íslensku, það væri í raun réttri eina vitið.
„Þegar rappið var allt í einu komið á íslensku
fór almenningur að taka afstöðu til tónlistar-
innar,“ segir Sesar. „Nú skildu miklu fleiri hvað
var verið að tala um, og textarnir töluðu afdrátt-
arlaust til Íslendinga. Þetta opnaði hlutina, færði
rappið upp á yfirborðið og olli því að fleiri fóru
að kljást við það.“
Eftir að hafa gefið út aðra plötu, Gerðuþað-
sjálfur (2002) hélt Sesar utan til Barcelona til að
nema kvikmyndaleikstjórn og matreiðslu. Með-
fram námi púslaði hann saman nýrri plötu sem
kom út nú fyrir helgi. Platan var klár rétt fyrir
síðasta aðfangadag en vegna yfirstandandi út-
gáfuflóðs afréð Sesar viturlega að fresta útgáfu
fram á þetta vor.
Í Barcelona starfaði Sesar með fjölþjóðlegu
sveitinni IFS, en hún kemur fram á plötunni
ásamt miklu stórskotaliði úr íslenskum hipp
hopp heimi. Þeir eru m.a. Lúlli Rottweiler, Gísli
Galdur, Earmax, Dóri DNA, Blazroca og Diva de
la Rósa.
Melódíur í hausnum
„Þetta byrjaði sem stuttskífa árið 2004,“ lýsir
Sesar. „Þegar ég kom út til Barcelona breyti ég
um tækjakost , keypti mér lítið hljómborð og fór
að semja tónlist á allt annan hátt en ég hafði gert
fram að því. Ég hóf að koma melódíunum í
hausnum á mér inn á tölvu og hætti að mestu leiti
að nota glefsur eða „sömpl“.“
Það gerðist svo vorið 2004 úti í Barcelona að
Sesar kynntist meðlimum IFS á svokölluðum
„freestyle sessions“ eða spunakvöldum.
„Rappið er mjög neðanjarðar þarna úti. Og ég
verð að segja að það er afskaplega mikið um það
að fólk sé að mæna til erlendra áhrifavalda, þá
sérstaklega frá Bandaríkjunum. Það vantar
nokkuð upp á að fólk þarna úti umfaðmi arfinn.
Þannig kom fyrsta platan þar sem eingöngu er
rappað á katalónsku út í fyrra.“
Sesar segist samt alls ekki hafa verið að pre-
dika yfir mannskapnum um gildi þess að styðjast
við móðurmálið en afstaða hans hafi eðlilega
komið í ljós þegar hann fór að vinna tónlist með
innlendum – og erlendum – röppurum.
„Bakgrunnur fólksins í IFS er mjög breiður,
meðlimir koma frá átta löndum. Það skilaði sér
inn í tónlistina en við gáfum út stuttskífuna
Worldwide í fyrra.“
Pólitík
Of gott fer þannig víða, latin-áhrifum í tónlist-
inni bregður fyrir, salsa og slíku, og einnig eru
áhrif frá „dancehall“-tónlist Jamaíkubúa. En
Sesar, eins og virkum listamanni sæmir, er þeg-
ar kominn fram úr sér og er byrjaður að leggja
drög að næsta skammti.
„Ég er að fara aftur til baka mætti segja. Ég er
núna að vinna tónlist eins og maður gerði ’93, á
hráan hátt og með „retro“ hljóðfærum. Þetta er
svipað og hjá Bloodgroup og Sometime, tónlistin
er einföld, hrá og styðst gjarnan við gamla hljóð-
gervla. Þetta yfirbragð er einnig á „crunk“ hipp
hoppinu í Suðurríkjum Bandaríkjanna eins og
heyra má hjá Lil John, Three6 Mafia og fleir-
um.“
Sesar segir kvikmyndanámið sannarlega hafa
nýst í þessu ferli, en þó óbeint.
„Það hefur aðallega þroskað mig sem lista-
mann en hefur ábyggilega ýtt undir tónlistina
ómeðvitað.“
Of gott er á margan hátt pólitísk, Sesar segir
að titillinn vísi til ástandsins á Íslandi, en hann
sjái marga hluti öðrum augum eftir að hafa upp-
lifað ýmislegt á Spáni.
„Þar rak fólk t.d. upp stór augu þegar það
komst að því að ég væri á einhverju sem héti
námslán. Ég skýt einnig á tómhyggjuna sem mér
finnst vera vaxandi hérlendis.“
Sesar A hyggst fylgja plötunni eftir með tón-
leikum og slíku á næstunni. Þá er mynddiskur
væntanlegur í haust. Lagið „Hosur grænar“ er
þá væntanlegt í spilun og Sesar hyggst auk þessa
leita eftir dreifingu erlendis að plötunni en hér á
landi er það Smekkleysa sem dreifir.
Byrjar á S …
Sesar A, „afi“ hins íslenska rapps, gefur út þriðju plötu sína, Of gott
Umslagið er á fjórum tungumálum, enda sannkölluð heimsþorpsstemning á plötunni
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Afinn Eyjólfur B. Eyvindarson, sem kallar sig Sesar A, dvaldi í fimm ár í Barcelona þar sem hann nam
m.a. kvikmyndaleikstjórn. Meðfram náminu lagði hann drög að nýrri plötu sinni, Of gott.