Morgunblaðið - 27.05.2008, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2008 37
Þjóðleikhúsið Á öllum sviðum lífsins
551 1200 | midasala@leikhusid.is
Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 12:30-18:00, aðra daga vikunnar frá kl. 12:30
til 20, og alltaf klukkustund fyrir sýningu ef um breyttan sýningartíma er að ræða.
Stóra sviðið
Ástin er diskó - lífið er pönk
Fös 30/5 kl. 20:00 Ö
Lau 31/5 kl. 20:00
Fös 6/6 kl. 20:00
Lau 7/6 kl. 20:00
Lau 14/6 kl. 20:00
Ath. pönkað málfar
Gaukshreiðrið
Mið 4/6 kl. 20:00
Athyglisverðasta áhugasýningin 2007/2008
Kassinn
Sá hrímhærði og draumsjáandinn
Þri 27/5 kl. 20:00
Gestasýning frá Beaivvá˚ leikhúsinu
Kúlan
Skoppa og Skrítla í söngleik
Lau 31/5 kl. 11:00
Lau 31/5 kl. 12:15 Ö
Sun 1/6 kl. 11:00
Sun 1/6 kl. 12:15
Sun 1/6 kl. 14:00
síðasta sýn.
Síðustu sýningar 1. júní
Borgarleikhúsið
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Miðasala Borgarleikhússins er opin alla virka daga frá klukkan 10 og fram að sýningum á sýningardegi,
annars til klukkan 18. Um helgar er opið frá kl. 12-20.
Dauðasyndirnar-guðdómlegur gleðileikur (Litla sviðið)
Lau 31/5 kl. 20:00 U
Sun 1/6 kl. 20:00 U
Fim 5/6 kl. 20:00 U
Fös 6/6 kl. 20:00
Lau 14/6 kl. 20:00
Sun 15/6 kl. 20:00
Aðeins 9 sýningar
Gítarleikararnir (Litla sviðið)
Fös 30/5 kl. 20:00 Ö
Sýningum lýkur í mai
Kommúnan (Stóra sviðið)
Fim 29/5 kl. 20:00 Lau 31/5 kl. 20:00
Aðeins sýnt í mai
LADDI 6-TUGUR (Stóra svið)
Fös 30/5 kl. 20:00 U Sun 1/6 kl. 20:00 Mið 4/6 kl. 20:00
síðasta sýn.
Síðasta sýning 4.júní.
Sumarnámskeið Sönglistar
Mán 16/6 kl. 10:00
Mán 23/6 kl. 10:00
Mán 30/6 kl. 10:00
Mán 7/7 kl. 10:00
Mán 14/7 kl. 10:00
Mán 21/7 kl. 10:00
Hvert námskeið er ein vika
Leikfélag Akureyrar
460 0200 | midasala@leikfelag.is
Wake me up - LeikhópurinnBRAVÓ
(Samkomuhúsið)
Sun 1/6 aukas kl. 20:00
Alveg brilljant skilnaður (Samkomuhúsið)
Fim 29/5 1korta kl. 20:00 U
Fös 30/5 2korta kl. 19:00 Ö
Lau 31/5 aukas kl. 19:00 Ö
Lau 31/5 aukas kl. 22:00
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
Saga til næsta bæjar (Á Sögulofti)
Sun 1/6 kl. 20:00
draugasögur
Sun 8/6 kl. 20:00
lífsreynslusögur
Sun 15/6 kl. 20:00
gamansögur
Sun 22/6 kl. 20:00
úrslitakvöld
Landskeppni sagnamann
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Mið 28/5 kl. 17:00 Ö
ath breyttan sýn.artíma
Lau 31/5 kl. 15:00 U
Lau 31/5 aukas. kl. 20:00
Fim 5/6 aukas. kl. 20:00
Fös 6/6 kl. 20:00 U
Lau 7/6 kl. 15:00 U
Lau 14/6 kl. 20:00
Sun 15/6 kl. 16:00
Lau 28/6 kl. 15:00
Lau 28/6 kl. 20:00
Þrjár tilnefningar til Grímunnar
Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson
(Söguloftið)
Fös 30/5 aukas. kl. 20:00 U
Lau 7/6 kl. 20:00 U
Sun 8/6 kl. 16:00 U
Lau 14/6 kl. 15:00 Ö
Lau 21/6 kl. 15:00
Lau 21/6 kl. 20:00
Íslenska óperan
511 4200 | midasala@opera.is
Ferð án fyrirheits
Fim 29/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00
Þorkell Sigurbjörnsson - Afmælistónleikar
Mið 4/6 kl. 20:00
Iðnó
562 9700 | idno@xnet.is
Hvanndalsbræður Tónleikar
Fös 13/6 kl. 21:00
Hafnarfjarðarleikhúsið
555 2222 | theater@vortex.is
Mammamamma (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Fim 29/5 kl. 20:00 Sun 1/6 kl. 20:00
síðasta sýn.
síðustu sýningar
Möguleikhúsið
5622669 / 8971813 |
moguleikhusid@moguleikhusid.is
Langafi prakkari (Möguleikhúsið/ferðasýning)
Sun 1/6 kl. 14:00 F
þingborg
Lau 7/6 kl. 14:30 F
Kómedíuleikhúsið Ísafirði
8917025 | komedia@komedia.is
Act alone á Ísafirði (Hamrar/Edinborgarhúsið)
Mið 2/7 kl. 20:00
steinn steinarr/búlúlala - öldin hans
steins
Fim 3/7 kl. 12:00
örvænting, það kostar ekkert að tala í
gsm hjá guði, álfar, tröll og ósköpin öll,
kínki skemmtikraftur að sunnan, lífið
hans leifs, englar í snjónum
Fös 4/7 kl. 12:00
munir og minjar, súsan baðar sig, ég
bið að heilsa, sinfóníuhljómsveit sex
strengja, fragile, aðventa
Lau 5/7 kl. 13:00
eldfærin, jói, langbrók, blúskonan
einleikinn blúsverkur, völuspá,
superhero
Sun 6/7 kl. 14:00
chick with a trick, vestfirskir einfarar,
aðrir sálmar
Leiklistarhátíð
Búlúlala - Öldin hans Steins (Tjöruhúsið
Ísafirði/Ferðasýning)
Fim 29/5 kl. 20:00 F
haukadal dýrafirði
Lau 21/6 kl. 20:00 F
snjáfjallasetur
Forleikur (Hótel Ísafjörður/Ferðasýning)
Fös 6/6 kl. 21:00
einarshús bolungarvík
Lau 7/6 kl. 21:00
vagninn flateyri
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
STUTTU eftir að úrslit Evró-
visjónkeppninnar urðu ljós fór af
stað sú kjaftasaga að rússneskir
fjárfestar hefðu með ótilgreindum
hætti hagrætt úrslitunum eða
keypt atkvæði með hjálp austur-
evrópskra símafyrirtækja. Sama
gamla samsæriskenningin um
óeðlilega samvinnu Austur-Evrópu
fékk reynda Evróvisjónspekinga
til að hrista höfuðið en sauðsvartur
almúginn, sem trúði því í fyllstu al-
vöru að Eurobandið myndi vinna
keppnina, greip kenninguna á lofti
og bölvaði rússagullinu. En það er
e.t.v. ekki óeðlilegt að Íslendingar
skuli hafa orðið hissa á því að þessi
sykursæti strípalingur með
ómerkilega lagið skyldi vinna. Hér
er hann svo gott sem óþekktur.
Hið sama er hins vegar ekki upp á
teningnum annars staðar í Evrópu
eins og kortið hér til hliðar gefur
til kynna, og segja má að Bilan sé
eins konar Justin Timberlake
Rússlands og þeirra ríkja sem enn
sækja menningarlega afþreyingu
til stórveldisins í austri. En hver
er þessi drengur eiginlega?
Viktor Belan
Dima Bilan fæddist árið 1981 og
var skírður Viktor Belan. Hann
ólst upp til tveggja ára aldurs í
smáríkinu Karachay-Cherkessia
sem þá var hluti af Sovétríkjunum
en fluttist þá til borgarinnar Nabe-
rezhnye Chely í Tatarstan sem er
nokkru austar. Þegar hann var sex
ára fluttist fjölskylda hans aftur til
Kabardini-Balkarin og þar gekk
Belan í skóla. Mun tónlistaráhugi
drengsins hafa vaknað þar enda
mikil áhersla lögð á ljóðlist og
söng í barnaskólanum. Stuttu eftir
að Viktor útskrifaðist úr tónlist-
arháskóla í Moskvu sem klassískur
söngvari tók hann þátt í einni virt-
ustu tónlistarkeppni Austur-
Evrópu, „Jurmala“, og hafnaði í
fjórða sæti. Árangur hans í keppn-
inni fleytti honum inn í tónlistar-
iðnaðinn í Rússlandi þar sem hann
kynntist m.a. tónlistarmógúlnum
Yury Aizenshpis sem tók hann upp
á sína arma. Ári síðar hafði hann
gefið út plötuna Nochnoy Huligan
(Næturbullur) sem seldist í meira
en 500 þúsund eintökum. Svipaða
sögu er að segja um næstu tvær
plötur kappans sem báðar seldust
gríðarlega vel og árið 2005, þegar
hann var búinn að festa sig í sessi
sem einn vinsælasti skemmtikraft-
ur Rússlands, tók hann þátt í und-
ankeppni Evróvisjónkeppninnar í
Rússlandi. Þrátt fyrir að mynd-
bandið sem Bilan gerði við lagið sé
það dýrasta sem framleitt hefur
verið í Rússlandi dugði það ekki til
og Bilan hafnaði í öðru sæti. Ári
síðar var hann hins vegar kominn
til Aþenu þar sem hann keppti fyr-
ir hönd Rússlands og ef það væri
ekki fyrir finnsku skrímslin í Lordi
hefði okkar maður unnið Evr-
óvisjónkeppnina með glans.
Rússneskt áhlaup
Það er í raun alltof mikið verk
að telja upp öll afrek Bilans á tón-
listarsviðinu en í dag er hann án
efa vinsælasti skemmtikraftur
Rússlands og hefur hlotið meira en
30 verðlaun á því sviði – þar með
talin tvenn verðlaun fyrir klæða-
burð. Í Austur-Evrópu er hann
einnig gríðarlega vinsæll og plötur
hans seljast vel í þeim ríkjum sem
eitt sinn áttu í stjórnmála-
sambandi við Sovétveldið. Þar fyr-
ir utan hefur hann náð töluverðum
vinsældum í Grikklandi og Kýpur.
Í febrúar á þessu ári lauk Bilan við
gerð sinnar fyrstu plötu sem ætluð
er til alþjóðlegrar dreifingar. Plat-
an var tekin upp í Bandaríkjunum
og að henni kom m.a. upp-
tökustjórinn Timbaland. Bilan hef-
ur þegar lagt Austur-Evrópu að
fótum sér en nú er það að fylgja
sigrinum eftir í Vestur-Evrópu.
Takist honum það mun hann ef-
laust reyna við stórveldið í vestri.
En þá þarf nú meira en sixpakk og
víðáttufælinn skautadansara, and-
skotinn hafi það!
Stjarnan í austri
Reuters
Skytturnar þrjár Dima Bilan heillaði Evrópu upp úr skónum með tilfinn-
ingaþrungnum flutningi á laginu Believe. Þessir álfar þarna í kringum hann
skemmdu ekki heldur fyrir.
Vinsælasti söngvari Rússlands undirbýr heimsyfirráð
Lokaorustan fer fram á bandarískri grundu
!
!
"!
## !!
$! %&'
(
)
*
!
!!
!+
,-.!
/
# .
$0-
.
1 -
/
2.
-!
/
3 0 .
.
2
/
SÖGUR hafa gengið síðustu vikur
um að leik- og söngkonan Lindsay
Lohan eigi í ástarsambandi við
plötusnúðinn Samönthu Ronson.
Þær kyntu undir þessum orðrómi
um helgina þegar þær sáust láta
vel hvor að annarri í samkvæmi
um borð í snekkju í Cannes og leið-
ast frá borði þegar því lauk. Eins
sást Lohan bera demantshring á
fingri, sem sumir vilja túlka sem
svo að þær séu nú trúlofaðar.
Lohan hefur sjálf ekki gefið
neitt upp um samband sitt við Ron-
son, en móðir hennar hefur svarað
spurningum um málið frekar
óljóst. „Samantha er yndisleg. Hún
er einn besti plötusnúðurinn í
bransanum og ég og mamma henn-
ar erum vinkonur,“ sagði hún við
blaðamenn, en vildi ekki tjá sig
frekar.
Þögul Lindsay Lohan hefur ekkert
gefið upp um ástarmál sín.
Lindsay
Lohan
komin með
kærustu?