Morgunblaðið - 27.05.2008, Síða 43
Reuters
Kátur Lampard fagnaði þegar
hann skoraði í úrslitaleiknum, en
hefur enga ástæðu til þess lengur.
FÓTBOLTAKAPPINN Frank
Lampard sem leikur með enska liðinu
Chelsea hefur tapað fleiru en úrslita-
leiknum í Meistaradeild Evrópu.
Nokkrum dögum eftir hinn æsispenn-
andi leik þar sem Lampard og félagar
töpuðu í bráðabana á móti Manchest-
er United, náðist hann á mynd þar
sem hann var að leita huggunar hjá
ljóshærðri konu á bar í London.
Næsta dag þegar myndirnar höfðu
birst opinberlega sást unnusta Lamp-
ards, hin spænska Elen Rives, hlaða
föggum sínum út í bíl fyrir utan heim-
ili þeirra og sjónarvottar veittu því at-
hygli að hún bar ekki lengur trúlof-
unarhring á fingri.
Þau hjónaleysin eiga tvö börn, eins
og þriggja ára gömul.
Tapaði
leiknum og
kærustunni
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2008 43
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram laugardaginn 7. júní.
HVERT ER SAMBAND
ÞYNGDAR OG HEILSU?
MÁLÞING 29. MAÍ KL. 13:00 – 16:00 Í HÁSKÓLANUM Í
REYKJAVÍK Í SAMVINNU VIÐ KVENNAHLAUPSNEFND ÍSÍ
• Offita tengist færri dauðsföllum en áður var talið
• Ofþyngd tengist lægri dánartíðni en kjörþyngd
• Þyngdartap ekki nauðsynlegt til þess að bæta heilsu
Á málþinginu fjalla tveir erlendir fræðimenn um rannsóknir sínar á sambandi þyngdar og
heilsu. Þessar rannsóknir sýna að offita (BMI ≥30) tengist mun færri dauðsföllum en áður
var talið og ofþyngd (BMI 25-<30) tengist lægri dánartíðni en kjörþyngd. Auk þess virðast
meiri líkur á að jákvæðar breytingar á lífsvenjum viðhaldist ef fólk setur sér ekki markmið
um að grennast. Þetta eru athyglisverðar niðurstöður í ljósi þess að þær ganga gegn mörgu
af því sem talin hafa verið sjálfsögð sannindi á þessu sviði. Að erindum loknum verða opnar
umræður.
Dr. Katherine Flegal er sérfræðingur hjá Centers for Disease Control and Prevention
(CDC) í Bandaríkjunum og kennir við lýðheilsudeild University of North Carolina. Helsta
áhugasvið hennar er faraldursfræði offitu og tengdra vandamála og hefur hún birt fjölda
rannsókna á því sviði.
Dr. Linda Bacon er prófessor í næringarfræði við City College of San Fransisco og
rannsakandi við University of California í Davis. Rannsóknir hennar snúa að því hvernig
hægt er að stuðla að lífsstílsbreytingum og bæta heilsufar án áherslu á líkamsþynd.
Staður: Háskólinn í Reykjavík, Ofanleiti 2, stofu 231 (2. hæð).
Málþingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis.
EINS og aðdáendur Beðmála í borg-
inni vita verður kvikmynd um kokkt-
eildrykkjupíurnar brátt frumsýnd
hér á landi og bíða menn og konur í
ofvæni eftir svarinu við aðalspurn-
ingunni: Gengur sá stóri (Big) að
eiga dálkahöfundinn skósjúka, Car-
rie Bradshaw?
Fjögur ár eru liðin frá því seinasta
þáttaröðin rann sitt skeið og Beð-
máls-fólk væntanlega þyrst í meira.
Sarah Jessica Parker, leikkonan
sem túlkar Bradshaw, segir von á
meiri dramatík og sorg í myndinni
en þáttunum.
Myndin ku hefjast þar sem þátt-
unum sleppti, Bradshaw og sá stóri
eru par á ný og Samantha að dandal-
ast með leikfangastráknum sínum í
Los Angeles, Charlotte og eig-
inmaður hennar á fullu í barnaupp-
eldi og Miranda sömuleiðis með
barn í Brooklyn.
Gagnrýnendur hafa tekið mynd-
inni misjafnlega og sannfæra þurfti
framleiðendur um ágæti þess að
gera kvikmynd um fjölskyldumál og
ástarævintýri fjögurra kvenna á
fimmtugsaldri. Þeir munu þó hafa
slegið til í ljósi stórs hóps aðdáenda
víða um lönd.
Spurningunni um þann stóra
verður svarað hér á landi 30. maí
n.k, en þá verður myndin frumsýnd.
Hvað gerir
sá stóri?
Stóri Chris North leikur þann stóra.
ÚTVARPSÞÁTTURINN Hlaup-
anótan og 12 Tónar sameinast í því
að bjóða borgarbúum á tónleika
klukkan nákvæmlega 16:13 í dag í
verslun þeirra síðarnefndu á Skóla-
vörðustíg. Það er hljómsveitin
Rökkurró sem leikur fyrir gesti og
gangandi og þá hlustendur sem
eiga ekki heimangengt, en njóta
tónleikanna í beinni útsendingu á
Rás 1.
Rökkurró er að leggja af stað í
tónleikaferðalag til Evrópu til þess
að fylgja eftir nýrri plötu sinni Það
kólnar í kvöld. Fimmmenningar Hljómsveitin Rökkurró leikur í síðasta sinn fyrir tónleikaferðina í 12 Tónum í dag.
Rökkurró
á leið til
Evrópu