Morgunblaðið - 31.05.2008, Blaðsíða 4
Morgunblaðið/G.Rúnar
Sumar og sól Fimm og sex ára börn sem eru í dagvistun hjá Ísaksskóla njóta veðurblíðunnar á Miklatúni.
landið suðvestan- og vestanvert
sem og norðanlands, en síður aust-
an- og suðaustantil.
Einar segir að að meira verði
um lægðir við Bretlandseyjar og á
Norðursjó en vant er. Það hafi í
för með sér að hér á landi verði
SA- og A-átt tíðari en venja er og
þá á kostnað SV-áttar og líkast til
einnig hreinnar N-áttar.
Heldur meiri líkur séu á eitt-
hvað minni úrkomu á landinu, sér-
staklega vestantil. Þó sé líklegt að
úrkoma verði nálægt meðaltali
þegar allt er talið.
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
ENGIN hret eru í veðurkortunum
fyrstu vikuna í júní, að sögn Ein-
ars Sveinbjörnssonar veðurfræð-
ings. Nú er að renna upp tími sum-
arleyfanna og segir Einar að
næstu daga verði austanáttir
ríkjandi að mestu. „Líklegast að
það verði viðvarandi lágþrýstingur
fyrir sunnan landið og vestan
Bretlandseyja og yfir þeim og
þessu fylgi væta þar. Þá teygir há-
þrýstingur sig frá Skandinavíu og
vestur yfir Noregshaf og í áttina
að Jan Mayen og Íslandi.“ Þessi
tvö kerfi beini austanátt að Ís-
landi.
„Það er spáð dálítilli vætu á
mánudag en eftir það virðist loftið
frekar koma úr þurru umhverfi.
Það verða því hvorki lægðir né
væta að ráði,“ segir hann.
Síst hlýindi á Austfjörðum
Einar segir að austanáttin sé yf-
irleitt hlý og því megi vænta ágæt-
ishita víðast á landinu. Síst verði
hlýtt á Austfjörðum og á norður-
ströndinni. „Það verður milt og
ljúft veður flesta dagana. Ef við
reiknum með að sumarið byrji 1.
júní ætlar það að fara af stað
þannig,“ segir Einar. Á dögunum
birti Einar á vefsíðu sinni veð-
urlagsspá vegna sumarmánaðanna
þriggja. Þar kemur fram að reikna
megi með að hitinn verði víðast yf-
ir meðallagi og það frekar um
Milt og ljúft veður í sumarbyrjun
4 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VARÐSKIPIÐ Óðinn fær nýtt hlutverk sem lif-
andi sögusafn þorskastríðsáranna. Árni M.
Mathiesen fjármálaráðherra afhenti í gær Holl-
vinasamtökum Óðins varðskipið við hátíðlega
athöfn sem haldin var um borð í skipinu. Björn
Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra, sem
er æðsti yfirmaður Landhelgisgæslunnar, flutti
ávarp við athöfnina. Guðmundur Hallvarðsson,
formaður hollvinasamtakanna og einnig sjó-
mannadagsráðs, tók við skipinu fyrir hönd
samtakanna.
Hollvinasamtök Óðins voru stofnuð haustið
2006 að frumkvæði sjómannadagsráðs. Mark-
mið þeirra er að varðveita þetta sögufræga
skip sem er nánast óbreytt frá því það var
smíðað 1960. Hollvinasamtökin munu afhenda
Víkinni – Sjóminjasafni í Reykjavík skipið til
varðveislu við enduropnun safnsins í dag. Safn-
ið verður opnað almenningi kl. 13 og þá geta
gestir m.a. skoðað Óðin. Um helgina verður
ekki krafist aðgangseyris að safninu í tilefni af
Hátíð hafsins.
Vs. Óðinn af-
hent hollvinum
Morgunblaðið/Valdís Thor
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt karlmann á þrítugsaldri í 12
mánaða fangelsi fyrir manndráp af
gáleysi. Með vítaverðum akstri sín-
um olli maðurinn árekstri sem leiddi
til dauða tveggja og alvarlegra
áverka á tveimur til viðbótar. Ekki
þótti ástæða til að skilorðsbinda refs-
inguna, og var m.a. litið til þess að á
tímabilinu 27. febrúar 2007 til 27. júlí
2007 var maðurinn níu sinnum stað-
inn að því að aka yfir leyfilegum há-
markshraða. Umræddu umferðar-
slysi olli maðurinn hins vegar 2.
desember 2006.
Um miðjan dag, laugardaginn 2.
desember 2006, barst lögreglu til-
kynning um slysið. Það átti sér stað á
Suðurlandsvegi á Sandskeiði. Mað-
urinn sem sakfelldur var í máli þessu
ók bifreið sinni og var í henni einn
farþegi. Hann ætlaði sér að taka
fram úr vörubifreið í Draugahlíðar-
brekkunni. Bílstjóri vörubifreiðar-
innar lýsir atvikinu svo í dómnum:
„Segir [bílstjórinn] að hann hefði séð
strax að það væri ekki séns að mæt-
ast þarna. Þá hefði hann séð að öku-
maður á [bíl ákærða] beygði ákveðið
til vinstri og greinilega ætlað að
stefna út af veginum, sennilega til að
reyna að koma í veg fyrir árekstur.
Hefði vinstra framhorn verið komið
um meter út fyrir veginn er árekstur
varð. Hefði hann séð hægra fram-
horn bílanna skella saman.“
Í bílnum sem kom úr gagnstæðri
átt var faðir með tvö börn sín. Stúlka
fædd árið 2001 lét lífið og drengur
fæddur 1998 hlaut brot á lendhryggj-
arlið og lömun á fótum. Ökumaður-
inn og faðir barnanna rifbrotnaði og
marðist á brjóstkassa, kviðvegg og
hné. Farþegi í bíl með ákærða í mál-
inu lést einnig.
Sá bifreiðina koma á móti
Maðurinn skýrði svo frá fyrir dómi
að hann hefði ekið á eftir vörubifreið,
slabb hefði verið á veginum og gusast
frá vörubifreiðinni og upp á fram-
rúðuna. Hann hafi lítið séð út. Vegna
þessara aðstæðna hafi það skyndi-
lega gerst að bifreiðin hafi ekki látið
að stjórn, hún hafi sveigst til vinstri
og yfir á hina akreinina. Maðurinn
hafi séð bifreið koma á móti en átt
erfitt með að meta fjarlægðina þar
sem aðeins eitt framljós hennar log-
aði. Ekki hafi tekist að koma í veg
fyrir árekstur. Í árekstrinum úlnliðs-
brotnaði hann og skrámaðist í andliti.
Í vettvangsskýrslu lögreglunnar
kemur fram að vegurinn hafi verið
blautur en engin hálka merkjanleg.
Það var skýjað en veður milt og vind-
ur hægur. Við málarekstur kom
einnig fram að bifreið mannsins hafi
verið ekið á í það minnsta 110 km
hraða.
Þorgeir Ingi Njálsson dómstjóri
kvað upp dóminn. Þorsteinn Skúla-
son fulltrúi sótti málið af hálfu
ákæruvaldsins og Christiane Leonor
Bahner hdl. varði manninn.
Eins árs fangelsi fyrir
manndráp af gáleysi
LAGT var fram og samþykkt á fundi
stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur í
gær samkomulag um að Guðmundur
Þóroddsson léti af starfi forstjóra
Orkuveitunnar. Um leið lyki starfs-
skyldum og vinnuskyldu hans sem
forstjóra Orkuveitunnar. Jafnframt
lyki starfsskyldum og vinnuskyldu
hans sem forstjóra Reykjavik
Energy Invest, dótturfélags OR.
Guðmundur var forstjóri Orku-
veitu Reykjavíkur en fékk leyfi frá
störfum á síðasta ári til að veita
Reykjavik Energy Invest forstöðu.
Hjörleifur Kvaran hefur síðan stýrt
Orkuveitunni.
Hættir sem
forstjóri OR
GRÍÐARLEG aðsókn hefur verið að
fréttavef mbl.is í kjölfar jarðskjálft-
anna á Suðurlandi. Þannig tvöfölduð-
ust heimsóknir stakra notenda á
fimmtudaginn, þegar tekið er meðal-
tal síðustu fjögurra vikna fyrir
fimmtudaga. Fyrsta fréttin af jarð-
skjálftunum var lesin 87.568 sinnum
og aðrar fréttir sem fylgdu í kjölfarið
fengu einnig mjög mikinn lestur. Mik-
il aðsókn var einnig að vefnum í gær.
Eins og gefur að skilja var álag á
mbl.is afar mikið á þessu tímabili.
Vefurinn komst þó klakklaust í gegn-
um þá þolraun. Munaði þar mestu að
nýlega var bandvídd vefjarins fimm-
földuð ásamt því að keyptir hafa verið
nýir miðlarar til að ráða betur við
álagið.
Settur hefur verið upp hnappur á
forsíðu mbl.is þar sem hægt er að
fylgjast með öllum fréttum og frétta-
myndskeiðum um jarðskjálftana.
Gífurleg að-
sókn að mbl.is
♦♦♦
ÞINGMENN Vinstri grænna voru
málglaðastir á Alþingi í vetur. Þar
leiddi formaðurinn hjörðina en hann
talaði samtals í ríflega þrjátíu klukku-
stundir. Fast á hæla honum fylgdi
Jón Bjarnason sem var í ræðustóli í
24 klukkustundir eða örlítið meira en
Kristinn H. Gunnarsson, þingflokks-
formaður Frjálslynda flokksins.
Minnst fór fyrir Herdísi Þórðardótt-
ur, þingmanni Sjálfstæðisflokks, en
hún tók aðeins tólf sinnum til máls á
Alþingi í vetur og talaði samtals í 28
mínútur. Næstminnst talaði flokks-
systir Herdísar, Björk Guðjónsdóttir,
en hún kom í pontu átján sinnum og
talaði í það heila í rúma klukkustund.
Steingrímur
talaði mest
♦♦♦