Morgunblaðið - 31.05.2008, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
M
annslíkaminn er 80
prósent vatn. Svo var
mér kennt í barna-
skóla.
Ég skildi aldrei al-
mennilega hvernig þetta gat staðist.
Ég meina, holdið og beinin og líffærin
og höfuðið og sjálfið: var ég bara
vökvi?
En ég skrifaði þetta samvisku-
samlega niður og lærði sem barn:
Mannslíkaminn er 80% vatn.
Það er margt annað í heiminum
sem er 80 prósent. Einhvers staðar
las ég til dæmis að kjúklingar í Dan-
mörku séu 80% kjöt og 20% vatn og
að kjöt á ýmsum stöðum öðrum sé
80% hreint og 20% sýkt. Eitthvað svo-
leiðis.
Og gott ef ekki margar umönn-
unarstéttir landsins, kvennastéttir,
sem halda uppi heilbrigðis- og velferð-
arstofnunum landsins, vinni 80% vinnu
á slítandi vöktum.
Umönnunarstéttum var einmitt lof-
að langtum betri kjörum fyrir síðustu
kosningar. Það var meira að segja eitt
fárra loforða sem skilaði sér inn í út-
vatnaðan stjórnarsáttmála ríkisstjórn-
arinnar: Laun umönnunarstétta
skyldu leiðrétt.
Nú veit ég ekki hvernig allt þetta
hefur verið reiknað inn í formúluna,
en í kringum eins árs afmælið sitt á
dögunum lét ríkisstjórnin þau boð út
ganga að það hefði ekki tekið hana
nema eitt ár að uppfylla eða svo gott
sem 80% af stjórnarsáttmálanum.
Svona yfirlýsing hljómar vissulega
eins og einhver eins árs standi á bak-
við hana.
Finnið þið, lesendur góðir, fyrir
þessum 80% efndum? Eða eruð þið
kannski í 20% hópnum, rétt eins og
umönnunarstéttirnar, ungt fólk á hús-
næðismarkaði, ellilífeyrisþegar, Þjórsá
– og allir hinir?
Ég hef verið að reyna að finna út
hvernig ríkisstjórnin komst að þessari
niðurstöðu í reikningum efndanna. Ég
hef þrengt niðurstöðuna niður í
nokkra valmöguleika:
a) Leikskólakrökkunum sem boðið
var að borða súkkulaðiköku í Ráð-
herrabústaðnum á eins árs afmælinu
var fengið það verkefni að reikna
þetta út fyrir ríkisstjórnina. Þau eru
ekki komin lengra í prósentureikningi.
b) Ef ríkisstjórnin sjálf reiknaði
þetta út þá kann hún ekki að reikna.
Eitt ár er þá feikinóg á valdastólum
og kominn tími á öldungadeildina.
c) Ríkisstjórnin veit að þetta stenst
ekki en finnst smart að gefa svona yf-
irlýsingu út á afmælinu og veit að
enginn flettir raunveruleikanum upp.
d) Stjórnarsáttmálinn var einhver
sá útvatnaðasti í sögunni (80% vatn)
og því hefur það takmarkaða þýðingu
að lýsa því yfir að 80% sáttmálans hafi
verið efnd, í yfirlýsingu sem er 80%
útþynnt.
Eitt af því sem ég hafði persónu-
lega gaman af í stjórnarsáttmálanum
var að ríkisstjórnin boðaði að Askja
og Hveravellir skyldu friðuð. Askja
var friðuð árið 1978 og Hveravellir ár-
ið 1960. Þau stórvirki fyrri ára hljóta
að koma sterk inn í yfirstandandi út-
reikningi 80 prósentanna og vega upp
á móti hinu.
Þegar stjórnarsáttmálanum var
hespað af á óvanalega stuttum tíma
voru fáir sem nenntu að fara í saum-
ana á honum. Það var einfaldlega öll-
um svo létt að sjá ný andlit við stjórn-
völinn. Meira að segja þeirri sem hér
skrifar var létt. Núna hlyti nýr með-
reiðarsveinn Sjálfstæðisflokksins að
vilja koma inn af stökum metnaði,
ferskleika og festu – og eitthvað hlyti
þó að breytast til muna.
Loforðin og auglýsingarnar dundu á
landsmönnum vikum saman fyrir
kosningar – og tútnuðu alveg sér-
staklega út hjá Samfylkingunni. Lof-
orðin voru svo meira eða minna horfin
þegar stjórnarsáttmálinn leit dagsins
ljós, þremur vikum síðar.
Eitt stærsta málið í kosningabarátt-
unni var ábyrg efnahagsstjórn. Lofað
var alvöru aðgerðum til að koma á
efnahagslegum stöðugleika og bæta
hagstjórnina í landinu.
Mesta verðbólga sem mælst hefur í
nær 20 ár, hæstu vextir í heimi, lam-
andi viðskiptahalli, skuldasöfnun og
óstöðugleiki og fullkomið aðgerðaleysi
PISTILL » Þegar stjórnarsáttmál-
anum var hespað af á
óvanalega stuttum tíma
voru fáir sem nenntu að
fara í saumana á honum.
Það var einfaldlega öllum
svo létt að sjá ný andlit …
Guðfríður
Lilja Grét-
arsdóttir
Ert þú líka 80 prósent?
ríkisstjórnarinnar allt síðasta ár:
Hvernig reiknast þetta inn í prósentur
framkvæmdanna?
Útvötnuðum prósentum fylgja hins
vegar líka góðar hliðar, eins og Árni
Þór Sigurðsson benti á í þinginu í vik-
unni. Á einu ári er ríkisstjórnin að
eigin sögn búin með 80% starfa síns.
Samkvæmt þessu getur hún þá farið
frá eftir 3 mánuði, stolt og hreykin,
búin að skila sínu.
Þá getur hún boðið í 100% afmæli
og farið á eftirlaun.
Það er vissulega dýrt að setja þessa
ríkisstjórn á eftirlaun, eins og einnig
var bent á í vikunni, en það er samt
eitt af því sem þjóðin þarf á að halda.
Hljóðpistlar Morgunblaðsins, Guðfríður
Lilja Gréttarsdóttir les pist-
ilinn
HLJÓÐVARP mbl.is
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ÞEGAR við tölum við bandamenn
okkar fjöllum við ekki eingöngu um
auðlindirnar [á norðurslóðum] held-
ur einnig ýmsar aðgerðir Rússa þar.
Okkur er kunnugt um þessar aðgerð-
ir, ræðum um þær við Rússa og höf-
um bent þeim á að þær bæti ekki
ástandið,“ sagði Condoleezza Rice,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á
blaðamannafundi með Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráð-
herra í Reykjavík í gær.
Rice kom við á Íslandi í gærmorg-
un á leið sinni frá Svíþjóð þar sem
hún sótti fund um málefni Íraks.
Ráðherrann átti viðræður við Ingi-
björgu Sólrúnu í Höfða eftir að Ólaf-
ur F. Magnússon borgarstjóri hafði
boðið hana velkomna og sýnt henni
húsið. Síðan snæddi Rice hádegis-
verð með Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra í Ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu áður en hún hélt för
sinni áfram vestur um haf síðdegis.
Að sögn Ingibjargar Sólrúnar áttu
ráðherrarnir viðræður um margvís-
leg alþjóðamál á borð við Afganistan
og Miðausturlönd, einnig valdeflingu
kvenna í heiminum, efni sem væri
þeim báðum hugleikið. Íslendingar
myndu leggja fram fé til að koma á
fót vefsíðu sem yrði notuð til að efla
samskipti Hóps leiðtoga úr röðum
kvenna, samtaka sem Rice stofnaði
fyrir nokkrum árum.
Rice sagði að samskipti Bandaríkj-
anna og Íslands byggðust á sameig-
inlegum gildum. Varnarsamstarfið
hefði verið nútímavætt með því að Ís-
lendingar hefðu sjálfir tekið yfir eigin
varnir en Bandaríkin hefðu ítrekað
með ótvíræðum hætti að þau myndu
áfram efna skuldbindingar sínar um
að tryggja öryggi landsins. NATO-
ríki hefðu tekið að sér eftirlit með
loftrými Íslands, Frakkar væru nú
með flugvélar hér og Bandaríkja-
menn myndu senda sína flugsveit í
haust.
„Við höfum rætt um Afganistan og
mikilvægt framlag Íslendinga þar.
Ég met mikils þá ákvörðun ykkar að
endurskoða stöðugt framlag ykkar
þar í landi. Atlantshafsbandalagið
hefur gert átakið í Afganistan einn af
helstu þáttunum í þeirri stefnu sinni
að víkka út varnarsvæði sitt. Ákveðið
var á fundi NATO í Búkarest að
sinna málefnum Afganistans til langs
tíma. Afgönsku þjóðinni var heitið að
þar yrði byggt upp traust og gott lýð-
ræðisríki. Ríki sem aldrei framar
yrði bækistöð hryðjuverkamanna.“
Valdefling kvenna lykilatriði
Hún ræddi valdeflingu kvenna í
heiminum, hún væri grundvallarat-
riði, ekkert samfélag gæti virkað sem
skyldi ef helmingur þess væri á ein-
hvern hátt sviptur hlutdeild í ákvörð-
unum þess. En þannig væri ástandið
því miður í stórum hluta heimsins.
Morgunblaðið minnti Rice á mikl-
ar umræður um olíu á hafsbotni á
norðurslóðum og árásargjörn um-
mæli og hátterni Rússa á svæðinu að
undanförnu. Hún var spurð hvort
vænta mætti aukins áhuga meðal
ráðamanna í Washington á öryggis-
málum á norðurslóðum.
„Bandaríkin hafa áhyggjur að því
sem er að gerast á norðurslóðum,“
svaraði ráðherrann. „Ég ræddi þessi
mál ítarlega við norska ráðherra þeg-
ar ég var nýlega í Ósló og fyrir
nokkrum dögum var fundur á Græn-
landi í Heimskautaráðinu í boði
Dana. Þar var aðstoðarutanríkisráð-
herra okkar, John Negroponte, með-
al fulltrúa.
Það er ákveðin spenna vegna auð-
lindanna á norðurslóðum. Við Banda-
ríkjamenn leggjum þunga áherslu á
að virða beri alþjóðalög á svæðinu og
þarna ætti alls ekki að vera svæði
sem menn deildu hart um. Norður-
slóðir gætu reyndar orðið svæði sam-
starfs. Við hugum vandlega að þess-
um málum og ég hlakka til að sjá
skýrslu Negroponte um fund Heim-
skautaráðsins,“ sagði Condoleezza
Rice.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Gaman að sjá þig! Geir H. Haarde forsætisráðherra heilsar Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
með virktum við Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu í Reykjavík áður en sest var að snæðingi í gær.
Bandaríkjamenn hafa áhyggjur
af stefnu Rússa á norðurslóðum
Condoleezza Rice
segir skuldbind-
ingar um varnir
Íslands í fullu gildi
Sögufrægt hús Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Condoleezza Rice í Höfða.
Ljósmynd/Gunnar Vigfússon
„ÉG kynnti fyrir Rice ályktun Al-
þingis frá því í gær, sem samþykkt
var einróma, um Guantanamo-
búðirnar,“ sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir í gær á blaðamanna-
fundinum í Höfða með bandaríska
utanríkisráðherranum. Í þings-
ályktuninni eru Bandaríkjamenn
hvattir til að loka þegar í stað búð-
unum. „Alþingi fordæmir ómann-
úðlega meðferð á föngum í búðum
Bandaríkjamanna í Guantanamo-
flóa á Kúbu og felur ríkisstjórninni
að koma þeirri afstöðu á framfæri
við bandarísk stjórnvöld,“ segir í
tillögunni.
„Við ræddum þetta mál og utan-
ríkisráðherrann afhenti mér álykt-
unina,“ sagði Rice aðspurð á blaða-
mannafundinum. „Ég andmæli því
kröftuglega að verið sé að brjóta
mannréttindi í Guantanamo, eins
og gefið er í skyn í ályktuninni.
Forsetinn [George W. Bush] kysi
sjálfur að geta lokað þessum búðum
en vandinn er hvað gera skuli við
hættulega menn á staðnum.
Bandaríkin hafa reynt að senda
mennina aftur til landanna sem
þeir koma frá og það hefur oft tek-
ist. Því miður eru dæmi um að þess-
ir sömu menn hafi aftur staðið and-
spænis okkur á vígvellinum. Nýlegt
dæmi er maður sem látinn var laus
en tók síðar þátt í sprengjuárás í
Írak þar sem saklausir Írakar létu
lífið. Okkur ber líka skylda til að sjá
til þess að mönnum, sem eru í Gu-
antanamo vegna hryðjuverka sem
þeir hafa framið, sé ekki sleppt
lausum á almenning.
Ég mæli eindregið með því að áð-
ur en fólk kveði upp dóma um Gu-
antanamo kynni það sér skýrslu
sem þingmannanefnd Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE,
gerði. Það yrði athyglisverð lesning
fyrir þingmenn ykkar og ég mun
afhenda ykkur hana,“ sagði Condo-
leezza Rice.
Segir mann-
réttindi
ekki brotin