Morgunblaðið - 31.05.2008, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Hvers konar er þetta þjónn, er bara öllu svínaríinu dælt beint út í verðlagið?
VEÐUR
Reiði forystumanna Evrópusam-bandsins vegna hárra launa
stjórnenda fyrirtækja innan ESB er
forvitnileg.
Christine Lagarde, hinn merkifjármálaráðherra Frakklands,
segir að laun stjórnenda eigi að
tengjast afkomu fyrirtækjanna og
segir það „fullkomið hneyksli“, að
laun stjórnenda hækki hjá fyrir-
tækjum, sem standi sig illa.
Mælingarsýna, að
laun stjórnenda
40 stórra fyrir-
tækja hækkuðu
um 58% á síðasta
ári.
Frakkar, sem verða í forsæti ESBfrá júlíbyrjun, ætla að þrýsta á
um að reglur verði settar um launa-
kjör æðstu stjórnenda fyrirtækja.
Ríkisstjórn Hollands er að undir-búa viðbótarskatta á bónusa og
skatt á fyrirtæki, sem greiða út há-
ar upphæðir við starfslok.
Jean-Claude Juncker, forsætisráð-herra Lúxemborgar, segir að
ofurlaun séu þjóðfélagsleg plága og
að Evrópusambandið íhugi hærri
skatta á gullslegna kveðjusamn-
inga.
Sarkozy sjálfur leggst gegn ofur-launum og vill siðvæða kapítal-
ismann(!).
Deutsche Bank íhugar að miðabónusgreiðslur við margra ára
tímabil. Jósef Ackermann, aðalfor-
stjóri bankans, segir þetta til skoð-
unar.
Ofurlaunamenn Íslands, sem viljaólmir komast inn í Evrópusam-
bandið, hljóta að vera fullir eftir-
væntingar!
STAKSTEINAR
Fullir eftirvæntingar?
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
*$BC
!"
"#
" $" %"" ! &"" ' " (' " #
" "
*!
$$B *!
! "
"#
$
%"
&%
<2
<! <2
<! <2
$"!
'( )
'*
+,(%'-
D
E8
)" *"
!"
" " " +
,
! - "
"
B
E"2
)" *"
!"
" " " +
,
! - "
"
*
.* // 0 !"
! (1 (2
"
!" -
!
% &"" (1 " 31 # ./((%00
'(%"1# %
%)
'*
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Friðrik Þór Guðmundsson | 30. maí
Söguleg þingsályktun
Því miður hefur hún
drukknað í skjálftafrétt-
unum ein sögulegasta
þingsályktunartillaga
síðari tíma og ég raunar
fann ekki fréttina á
mbl.is. En Alþingi hefur
sem sagt samþykkt einróma, með at-
kvæðum þingmanna allra flokka, að
fordæma bandaríska fangelsið í
Guantanamo og krefjast þess að því
verði lokað. Ingibjörg Sólrún utanríkis-
ráðherra hefur væntanlega gert Condi
Rice nákvæma grein fyrir þessu og
Condi tekið því karlmannlega, hún
enda á útleið úr sínu ráðuneyti ...
Meira: lillo.blog.is
Dofri Hermannsson | 30. maí
Er að hugsa um
að færa mig
Stofnaði minn fyrsta
reikning hjá Spron þeg-
ar ég var 15 ára. Þá var
Baldvin Tryggvason
sparisjóðsstjóri og sjóð-
urinn lagði sig fram um
að styðja við listamenn
og námsmenn sem ekki þótti sjálf-
sagt. Lengi vel var upplifunin sú að
þarna fengi maður verulega góða og
persónulega þjónustu. Á síðustu ár-
um hefur þetta verið að breytast. Það
vantar ekki að maður fær tilboð um
að ganga í alls konar áskriftir en þeg-
ar kemur að því að semja um betri ...
Meira: dofri.blog.is
Marinó G. Njálsson | 30. maí
Þetta er stórfurðulegt
og út í hött
Heimsmarkaðsverð á
olíu hefur lækkað um
nærri því 10 USD á
tunnuna frá því að það
náði hæsta gildi fyrir
rúmri viku. Bara í dag
(samkvæmt BBC Mar-
ket Data kl. 15:05 GMT) hefur West
Texas Intermediate Crude Oil lækkað
um USD 4,57 á tunnuna niður í USD
125,59 og Brent Crude Oil (Norður-
sjávarolía) lækkað um USD 3,82 á
tunnuna í USD 126,16. Verðið á tunn-
unni er núna nálægt því sem var á
tímabilinu 10. til 20. maí. ...
Meira: marinogn.blog.is
Arnar Pálsson | 30. maí
Api stýrir stálhendi
með hugarafli
Vísindamenn við Pitts-
burg háskóla í Penn-
sylvaníu hafa gert apa
(Rhesus macaque)
kleift að hreyfa vélarm
með hugsunum sínum
eingöngu. Þetta var gert
með því að koma fyrir örflögu undir
hauskúpu apanna, örflagan var tengd
við 100 raftaugar. Raftaugarnar
tengdust síðan inn í tölvu sem túlk-
aði boðin og hreyfði stálhöndina. Á
þennan hátt gátu aparnir hreyft arm-
inn og fært banana að andliti sínu til
neyslu. Athugið, apinn hefði getað
verið lamaður fyrir neðan háls og
samt verið fær um hreyfa arminn.
(sjá myndskeið á myndir af vefsíðu
NYTimes eða the Guardian, myndin
hér að neðan er af síðu NYTimes).
Reyndar þurfti apinn að æfa sig
heilmikið til að ná valdi á arminum.
Hann fékk að horfa á arminn og
stjórna honum með gleðipinna (e.
„joystick“). Þessu er líkt við þjálfun
íþróttamanna, sem fara t.d. í gegnum
stangarstökkið í huganum áður en af
stað er hlaupið (auðvitað er slík þjálf-
un ekki bundin við íþróttamenn, allir
geta æft sig í huganum en bara við
það að hjóla eða hamfletta kjúk-
linga).
Grein sem lýsir tilraununum er birt
í tímaritinu Nature, og rætt er um
hana m.a. í New York Times og the
Guardian.
Ég verð að játa að fyrirsögn pistils-
ins er ónákvæm. Vísvitandi notaði ég
orðið hugarafl sem hefur þá merk-
ingu að fólk geti látið eitthvað gerast
án þess að hreyfa legg eða lið (og
auðvitað ekki tala!). Ekkert slíkt er á
ferðinni hér, tilraunin sannar ekki til-
vist yfirskilvitlegra krafta eins og Mul-
der og Scully eltust við á skjánum hér
um árið. Margir hérlendis trúa á ein-
hverskonar yfirskilvitleg fyrirbæri og
e.t.v. fylltust viðkomandi hlýlegri eft-
irvæntingu yfir fyrirsögninni hér að of-
an. Á hinn bóginn er viðbúið að sum-
um finnist þessi tilraun verulega
brjáluð og að nú muni vísindamenn
næst búa til blending af manni og
vél.
Sérkennilegt hvernig sumir eru til-
búnir að trúa eða jafnvel búast við
einhverju fjarstæðukenndu, en þegar
raunverulegar framfarir verða fara
aðrir (eða þeir sömu) í baklás og
kyrja „bönnum símann“.
Meira: apalsson.blog.is
BLOG.IS
FRÉTTIR
„ÞAÐ eru töl-
urnar og áhugi
fyrir þessu
starfi, endur-
skoðun og upp-
gjörum, sem
kallaði á mig á
sínum tíma,“
segir Sveinn
Arason nýráðinn
ríkisendurskoð-
andi. Sturla Böðvarsson, forseti
Alþingis, greindi frá því undir lok
síðasta þingfundar vorþingsins í
fyrrinótt að forsætisnefnd þingsins
hefði samþykkt einróma að ráða
Svein í starfið. Tekur hann við
stöðunni 1. júlí af Sigurði Þórðar-
syni sem verið hefur ríkisendur-
skoðandi í allmörg ár.
Sveinn Arason er sextugur og
hefur lengi starfað hjá Ríkisend-
urskoðun sem skrifstofustjóri og
endurskoðandi.
Hann er fæddur á Húsavík, son-
ur hjónanna Ara Kristinssonar
sýslumanns á Patreksfirði og Þor-
bjargar Þórhallsdóttur íþrótta-
kennara og húsfreyju. Eiginkona
hans er Jóna Möller aðstoðar-
skólastjóri og eiga þau tvær dæt-
ur.
Sveinn hóf störf hjá Ríkisendur-
skoðun á árinu 1972, að loknu við-
skiptafræðiprófi frá Háskóla Ís-
lands. „Ég var að vinna við
bókhald og uppgjör með námi og
hafði hug á að gera það áfram. Var
á útkikki eftir stöðum og á þeim
tíma sem ég taldi mig hafa til um-
ráða bauð þessi stofnun mér starf
sem ég þáði,“ segir Sveinn. Hann
hóf strax nám í endurskoðun og
lauk því 1976 og hefur því starfað
hjá Ríkisendurskoðun alla sína
starfsævi.
Minna á milli tannana á fólki
Það gustar oft um ríkisendur-
skoðanda og gerir Sveinn sér
grein fyrir því að starfið er erfitt.
Sjálfur hefur hann verið í fjár-
hagsendurskoðun sem minna fer
fyrir en stjórnsýsluendurskoðun.
„Eðli málsins samkvæmt eru verk-
efni stjórnsýsluendurskoðunar
meira á milli tannanna á fólki. Þau
verk sem ég hef unnið við, endur-
skoðun og endurskoðunarskýrslur
um fjármál, fjárhagsstöðu og
rekstur stofnana, eru meira á milli
okkar og viðkomandi stofnunar og
ráðuneytis. Síðan endurspeglast
okkar niðurstaða í skýrslu okkar
um endurskoðun ríkisreiknings og
þær stofnanir þá nefndar til sög-
unnar sem ástæða er til,“ segir
Sveinn.
Tölurnar drógu
mig í starfið
Sveinn Arason