Morgunblaðið - 31.05.2008, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 15
FRÉTTIR
Samningar BSRB og ríkisins
Reykjavík 2. júní kl. 16 BSRB - húsinu, Grettisgötu 89
Blönduós 2. júní kl. 16 Sjálfstæðishúsinu
Selfoss 2. júní kl. 16 Hótel Selfossi
Reykjavík 3. júní kl. 12 BSRB - húsinu, Grettisgötu 89
Akranes 3. júní kl. 16 Sjúkrahúsi Akraness
Ísafjörður 3. júní kl. 16 Sjúkrahúsi Ísafjarðar
Sauðárkrókur 3. júní kl. 16 Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks
Siglufjörður 3. júní kl. 16 Gistiheimilinu Hvanneyri
Vestmannaeyjar 3. júní kl. 16 Akoges-húsinu
Akureyri 4. júní kl. 16 Hótel KEA
Egilsstaðir 4. júní kl. 16 Hótel Héraði
Reykjanesbær 4. júní kl. 16 Bíósal Duushúsa
Kynningarfundir
BSRB verður með fundi um allt land til að kynna nýgerðan
samning bandalagsins við ríkið. Samningurinn gildir fyrir
starfsmenn ríkisins í eftirtöldum félögum:
Félag flugmálastarfsmanna ríkisins, Félag starfsmanna
stjórnarráðsins, Kjölur-stéttarfélag starfsmanna í
almannaþjónustu, Samflot bæjarstarfsmannafélaga,
SFR-stéttarfélag í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélag Íslands,
Starfsmannafélag Garðabæjar, Starfsmannafélag
Kópavogs, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og
Starfsmannafélag Suðurnesja.
NÝTT úti-
listaverk, torg
og fræðslu-
skilti verða
vígð við Þver-
holt í Mos-
fellsbæ kl. 13 í
dag, laug-
ardag.
Boðið verður upp á fjölþætta
dagskrá og fræðslugöngu. Úti-
listaverkið nefnist Hundraðþús-
undmiljón tonn af sjóðheitu vatni
og er eftir Kristin E. Hrafnsson.
Það var valið í samkeppni sem Sam-
orka og Mosfellsbær efndu til. Að
vígslu lokinni verður boðið upp á
fræðslugöngu með leiðsögn sem
ber heitið „Sveitin og heita vatnið“.
Listaverk vígt
í Mosfellsbæ
ÍSLENSKA
landsliðið í opn-
um flokki í brids
spilar æfingaleik
við Dani um
helgina. Æfinga-
leikur þessi er
lokaáfangi
beggja þjóða í
undirbúningi
landsliða sinna fyrir Evrópumótið í
opnum flokki í brids, sem fram fer í
Pau í Frakklandi dagana 14.–29.
júní. Leikurinn verður spilaður á
Grand Hótel og er öllum velkomið
að fylgjast með. Spilaðar verða 6
lotur, 3 á laugardag og 3 á sunnu-
dag. Spilamennskan stendur yfir kl.
11–21 báða dagana.
Íslenska liðið er skipað þeim Þor-
láki Jónssyni, Steinari Jónssyni,
Bjarna Einarssyni, Aðalsteini Jörg-
ensen, Jóni Baldurssyni, Birni Ey-
steinssyni og Sverri Ármannssyni.
Danska liðið er skipað Gregers
Bjarnarson, Jens Auken, Sören
Christiansen, Michael Askgaard,
Niels Kröjgaard og Sören A.
Christansen.
Æfingaleikur
gegn Dönum
ÁRBÆJARSKÓLI fagnar 40 ára
afmæli sínu á þessu skólaári. Af
því tilefni er opið hús í skólanum
í dag, laugardag, frá kl. 10-14.
Margt verður til gamans gert.
Grillað verður úti, sýning verður
á verkum nemenda, uppákomur á
sviði og frumflutningur á nýjum
skólasöng Árbæjarskóla eftir
fyrrverandi nemanda skólans,
Þorvald Bjarna Þorvaldsson, svo
eitthvað sé nefnt.
Gamlir nemendur skólans hafa
einnig lagt sitt af mörkum til að
gera afmælið sem eftirminnileg-
ast og verða upptökur, myndir og
minningarbrot til sýnis á afmæl-
isdaginn.
Afmælishátíð
Árbæjarskóla
KÓPAVOGSBÆR, í samstarfi við
fleiri aðila, efnir í dag kl. 13-17
til fjölskylduskemmtunarinnar
Bryggjudags á
bryggjunni í
Kópavogi.
Meðal þess
sem verður á
dagskrá
Bryggjudags má
nefna hand-
verkssýningu,
myndlistarsýn-
ingu, sigl-
ingaferð í boði
Hjálparsveitar skáta, stutt-
myndasýningu, sýningu Krúser
bílaklúbbsins, listasmiðju fyrir
börn, hjólsprellkeppni og tónlist-
arkaffihús. Á boðstólnum verður
sjómannasúpa, hrefna, shasimi,
indverskur matur ostar og asískt
góðgæti.
Bryggjudagur
í Kópavogi
STUTT
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
„ÞAÐ getur verið erfitt og er ekki
sjálfgefið að fatlaður einstaklingur
með þroskahömlun fái vinnu í dag.
En það skiptir máli að það sé tekið
á móti manni eins og jafningja á
vinnustaðnum, en ekki eins og ein-
hverjum illa gerðum hlut.“
Þetta sagði Magnús Paul Korn-
top, starfsmaður lagerdeildar
BYKO, sem talaði um atvinnumál
á ráðstefnu á vegum þroskahaml-
aðra á Hótel Sögu. Höfðu þroska-
hamlaðir veg og vanda af öllum
undirbúningi ráðstefnunnar og
fluttu allar framsöguræður sem
fjölluðu m.a. um atvinnumál, skóla-
mál og frístundir.
Magnús segir sér hafa verið
mjög vel tekið hjá BYKO en hann
fékk fastráðningu hjá fyrirtækinu
nýverið – en sagði sér hafa liðið
„eins og fleka út á miðju hafi“ á
meðan hann var að bíða svara.
Hann segist hæstánægður í
vinnunni og hann fái þar skýrar
leiðbeiningar um sín verkefni, sem
sé lykilatriði í sínum huga. Yf-
irmennirnir séu mjög góðir og
„það er hægt að gantast í þessum
mönnum,“ fullyrðir Magnús bros-
andi.
Þá segist hann hafa mjög góða
reynslu af því að vinna með út-
lendingum. „Útlendingar eru mjög
skemmtilegir og duglegir,“ segir
Magnús. „Ég sæi nú marga Íslend-
inga jafnduglega og útlendinga!“
Magnús vildi ekki gefa upp laun
sín hjá BYKO en sagði þó að þau
væru um 50 þúsund krónum hærri
á mánuði en örorkubæturnar sem
hann var áður á. „Við þá sem eru á
bótum segi ég: Farðu út á almenn-
an vinnumarkað, þú stórgræðir á
því!“
Ráðstefnan var liður í starfi nor-
rænnar miðstöðvar sem nefnist
„Norrænt tengslanet um nám full-
orðinna“. Þar leituðust fram-
sögumenn m.a. við að svara spurn-
ingum um hvernig draga megi úr
viðhorfum og fordómum hjá fjöl-
miðlum, starfsfólki og stofnunum,
gagnvart einstaklingum með
þroskahömlun og hvernig auka
megi möguleika þessa fólks til
vinnu og menntunar.
Jafningjar á vinnumarkaði
Magnús Paul: „Farðu út á almennan vinnumarkað, þú stórgræðir á því!“
Morgunblaðið/hag
Skiptir máli Magnús Paul Korntop talar um atvinnumál á ráðstefnu á veg-
um þroskahamlaðra.