Morgunblaðið - 31.05.2008, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 31.05.2008, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF                                                  ! "#         !"#$ %& !"#$ '("#$ ) !"#$ *( (+ ("#$ ,#$(-(!#.*/0*  12 * ( !"#$ 3 !4( / "#$ ) + (0* "#$  *"#$ 56  - 7 89 :9#$+$"#$ ;-("#$ < "#$       =>"#$ *# 2"#$ * (2( ; * (25  * -5? ( ( */ !"#$ @ ;  12 * (2 !"#$ A" :("#$ (!("#$ ;//( /-(8&8( "#$ B( * &8( "#$      ! C  ;* -( - , ("#$ ,-!(8: "#$ "  # $ % &                                                                                   B(8(!( /(  (*+ 8D*  /E 3 !* $F$ =$>G$H =$G=$>GF $F$G $==>$=F$F> =$FF$=G $=$=I GH$FI$=F >>$F>$ >$I=$> $F=$= I$>H$II= F>$ $$G= $FI$  F$>H$IIF H$HHF I$HG 7 I$GG$HI= 7 7 7 7 7 >$GH$ 7 7 >JHF =FJ> J 7 IJ= FJ> FJ IIFJ FJ HJ J> J= =JFG HGJ JFI >JGH F>J GJ =J 7 GJ 7 7 7 7 7 =IJ 7 J >JH> ==J JH 7 IJ= FFJH FJ> IIIJ FJF HJI J>H J=I =J=F HHJ JFH >JH FHJ HGJ =J J >FJ JG FJ IJ 7 7 J 7 >J :&* ( %(8(! =    H = I >  =  G   F 7 >   7  7 7 7 7 7  7 7 /  ( / %(8$% 8 =$$FG =$$FG =$$FG =$$FG =$$FG =$$FG =$$FG =$$FG =$$FG =$$FG =$$FG =$$FG =$$FG =$$FG =$$FG FH$$FG =$$FG =$$FG =$$FG F$$FG =$$FG $=$FG G$$FG >$$FG >$F$FI FF$G$FI =$$FG F>$$FG I$=$FG      '%  HAGAR hf. skiluðu 527 milljóna króna hagnaði fyrir uppgjörsárið 2007/08, samanborið við 551 millj- óna króna hagnað árið áður. Rekstrartekjur jukust um 12,2% frá fyrra ári og námu 52,2 milljörðum og framlegð jókst um 15,6% og nam nú 13,7 milljörðum. EBIDTA nam 2,9 milljörðum, samanborið við 2,1 árið áður. Tap vegna fjármagnsliða jókst frá fyrra ári úr 477 milljónum í 1,3 milljarða. Eignir félagsins í febrúarlok námu tæpum 28 milljörðum króna en voru 23,6 milljarðar ári fyrr. Eigið fé jókst úr 6,5 milljörðum í 8,8 milljarða og var eiginfjárhlutfall félagsins 31,5% í lok reikningsárs- ins, þann 29.febrúar. Stjórn Haga hefur lagt til að ekki verði greiddur út arður til hluthafa af þessu rekstrarári. Í tilkynningu félagsins eru rekstrarhorfur sagð- ar góðar. Meðal fyrirtækja Haga eru ýmsar verslanir, en stöðugildi í lok febrúar voru 1.627 talsins. Hagnast um 527 milljónir Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is ÓINNLEYST tap viðskiptabank- anna af gjaldeyrisjöfnuði þeirra það sem af er öðrum ársfjórðungi nemur um 22,4 milljörðum króna. Krónan hefur styrkst um 2,9% það sem af er fjórðungnum. Hinn jákvæði gjaldeyr- isjöfnuður bankanna veldur því að það sem af er fjórðungnum hafa bankarnir tapað fé þar sem þeir færa bækur sínar í íslenskum krónum. Gengisfall krónunnar á fyrsta árs- fjórðungi reyndist bönkunum vel vegna eiginfjárvarna þeirra en það sem af er yfirstandandi ársfjórðungi hefur krónan styrkst. Árétta ber að hér er um óinnleyst tap að ræða og jafnframt að verðmæti eignanna í er- lendum gjaldmiðlum hefur ekki breyst. Þá ber að taka fram að út- reikningar þessir miða við gjald- eyrisjöfnuð bankanna í lok mars og að gengisútreikningar miðast við loka- gengi á markaði í gær og 31. mars sl. Mest áhrif á Kaupþing Eins og sjá má af meðfylgjandi töflu höfðu bankarnir allir jákvæðan gjaldeyrisjöfnuð í lok fyrsta ársfjórð- ungs og líkt og um áramótin var staða Kaupþings langstærst. Fyrir vikið mun bankinn finna mest fyrir styrk- ingu krónunnar en áhrifin koma að mestu leyti fram í efnahagsreikningi bankans. Í því tilviki er ekki hægt að tala um tap, eingöngu þau áhrif sem verða á rekstrarreikningi er hægt að kalla tap. Hið sama gildir um Glitni, þ.e. áhrifin koma að mestu leyti fram í efnahagsreikningi. Landsbankinn hefur boðað breytingar á bókhalds- legri meðferð hagnaðar eða taps af gjaldeyri. Hluti þessa verður frá og með öðrum fjórðungi færður beint yf- ir eigið fé líkt og hjá Kaupþingi og Glitni en ekki hefur komið fram hversu stór hluti og því er erfitt að segja til um hver áhrifin á afkomu bankans verða. Eins og áður sýnir taflan hver gjaldeyrisjöfnuður bankanna var við lok marsmánaðar en samkvæmt upp- lýsingum frá Seðlabankanum hafði gjaldeyrisstaða bankakerfisins aukist um 22,1 milljarð króna í lok apríl. Af því má ætla að tapið sé jafnvel aðeins meira en sú tala sem nefnd var hér að framan. Tap af styrkingu krónu 22,4 milljarðar Eiginfjárvarnir virka öfugt þegar krónan styrkist $ % &   !   '( ( ( ( 0* K   K   K  L K  %  5  ** %( $#  8(/:* -$ ()*     ! '  "# MK / /( / / K 7IJ= H=J F=J> JG FJ IJG +,-./ 7=J 7JG 7FJH 7=J FJ 7JH 7>J> 7IJF 7FJH 01 !2  3 $% 4  7FGJG I=J >J =HJ 567.7 * ! %  # 7>JH J JG GJG IJ= =J> JF JH IJF 5,8.9 0   :$$;   2 1 2 7>J 7J= 7JGH 7JG 7FJ %5+.59 3 $% 4  7FJ 7J= 7J= %/.96 * ! %  # 7JH 7JG 7JHI 7J 7J> 7J 7JF 7JF %+.67 0   $ ( ( "   "# Í HNOTSKURN » Gjaldeyrisjöfnuður kallastjákvæður þegar fyrirtæki eiga meiri eignir í erlendum gjaldmiðlum en í krónum. » Fram til þessa hefur Lands-bankinn að mestu fært áhrif af gjaldeyrisjöfnuði þar sem er- lend dótturfélög bankans safna ekki eignum. SAMÞYKKT hefur verið að Línu- hönnun, Verkfræðistofa Suðurlands, RTS Verkfræðistofa og Afl gangi í eina sæng. Sameinað fyrirtæki mun veita ráðgjöf á öllum helstu sviðum verkfræði og velta nær þremur millj- örðum. Markmiðið er m.a. að styrkja samstarf við viðskiptavini og skapa framúrskarandi starfsvettvang fyrir starfsmenn, sem verða 220 talsins. Í fréttatilkynningu kemur fram að megnið af starfseminni sé og verði á Íslandi, en fyrirtækið stundi umtals- verða alþjóðlega starfsemi og vinni að verkefnum fyrir erlenda aðila. Þannig á það hlut í verkfræði- og þróunarfyrirtækjum í Rússlandi, Póllandi, Frakklandi, Slóveníu og Tyrklandi og er að stofna útibú í Dubai, tengt verkefnum í áliðnaði. Sameinað fyrirtæki mun reista nýjar höfuðstöðvar á lóð Vísinda- garða Háskóla Íslands í Vatnsmýri, og er stefnt að flutningi fyrir árslok 2010. Stefnt er að eflingu samstarfs við Háskóla Íslands á sviði vísinda og tækni. Á næstu dögum verður geng- ið frá samstarfssamningi við verk- fræðideild skólans um þátttöku í að efla rannsóknir og kennslu við deild- ina í mannvirkjaverkfræði. Fjórar saman í eina sæng Verkfræðistofur sameinast og reisa hús í Vatnsmýrinni Sameining Nýjar höfuðstöðvar verða reistar á lóð Vísindagarða HÍ. STRAUMUR-Burðarás fjárfesting- arbanki hefur bætt við hlut sinn í Glitni banka og er nú á meðal tutt- ugu stærstu hluthafa bankans með 0,9% af heildarhlutafé. Þetta kemur í ljós þegar nýr hluthafalisti í Glitni er borinn saman við samskonar lista frá því í byrjun apríl. Fjárfestingarfélagið Sund hefur einnig aukið hlut sinn, sem áður var 0,9%. Félagið eignaðist bréf í Glitni í skiptum fyrir hlut sinn í FL Group og á nú um 1,8% í bankanum. Aukn- ingin er flöggunarskyld þar sem Sund og fjárhagslega tengdir aðilar eiga samtals meira en 5% í Glitni. Þá kemur einnig í ljós að breski bankinn Barclays hefur minnkað hlut sinn verulega, ef ekki selt hann alfarið, því í byrjun apríl átti bankinn 1,2% hlut í Glitni en í byrjun maí er ljóst að hluturinn er minni en 0,87%. Loks hefur BK-44 ehf. sem lengi hefur verið á meðal stærstu hluthafa Glitnis með 1% hlut dottið af listan- um yfir tuttugu stærstu hluthafa. FL Group hérlendis og í Hollandi eru eftir sem áður stærstu hluthafar í Glitni, samanlagður eignarhlutur þeirra er 24,7%. Hluthafar bæta við sig í Glitni Sund og Straumur færast ofar á listann ● VÍSITALA efnahagslegra viðhorfa fyrir evrusvæðið, ESI, stóð í stað í nýjustu mælingu. Munar þar nokkru um að talan hækkaði verulega í Þýskalandi, en lækkaði hins vegar í löndum eins og Frakklandi. Undirvísitölur ESI eins og vænting- arvísitalan lækkaði umtalsvert milli mánaða og hefur ekki verið lægri síð- an í september 2005. Frá þessu er greint í Hálffimmfréttum Kaupþings og bent á að svartsýni neytenda sé víða að aukast, eins og hér á landi og þá hefur væntingarvísitalan í Bandaríkjunum ekki verið lægri í rúm 15 ár. Aukin svartsýni víðar en meðal Íslendinga ● VÖRUSKIPTI við útlönd voru óhag- stæð um 7,3 milljarða króna í apr- ílmánuði, samkvæmt tölum Hagstof- unnar. Fluttar voru út vörur fyrir 33,4 milljarða en inn fyrir 40,7 milljarða. Þetta er öllu minni vöruskiptahalli en í sama mánuði árið 2007, er hann nam um 14 milljörðum króna á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn fyrstu þrjá mánuði ársins er enn sem komið er óhagstæðari en eftir sama tímabil í fyrra, eða 32 milljarðar í mínus borið saman við 25,4 millj- arða í fyrra. Vöruskiptahallinn 7,3 milljarðar kr. í apríl ● NÝJAR tölur frá Gallup í Dan- mörku sýna að uppsafnaður lest- ur áskriftarblaða hefur aukist síð- ustu sex mánuði. Þannig lesa 7% fleiri Berlingske Tidende og 3% fleiri Politiken. Hins vegar lesa 2% færri Jyllands-Posten. Talsvert meiri vöxtur er þó í lestri tveggja frí- blaða af fjórum, þriðjungsaukning á lestri 24timer og 114% aukning á lestri Nyhedsavisen, sem taka þar með um fimmtung lesenda Urban og MetroXpress. Skv. tölunum hefur fjöldi lesenda aukist um 274.000. Dagblaðalestur í Danmörku eykst Fjöldi lesenda eykst á landsvísu ● ÚRVALSVÍSITALA kauphallarinnar stendur nú í 4.747 stigum eftir 1,1% lækkun í gær. Mest hlutabréfa lækk- uðu bréf Bakkavarar, um 2,8%. Af vísitölufélögum hækkaði Eimskip mest um 1,5%, Föroya banki hækk- aði um 2,9%. Mestu viðskiptin voru með bréf Glitnis, fyrir um 1,3 milljarða króna. Í heild námu hlutabréfaviðskipti 3,4 milljörðum króna en skuldabréfa- viðskipti 24,8 milljörðum króna. Krónan styrktist um 0,4%. Lækkun um 1,1% FJÓRAR vikur eru síðan sagt var frá viðræðum milli Kaupþings og SPRON um hugsanlega sameiningu. Í gær var tilkynnt að samningavið- ræður yrðu framlengdar, en þær gengju vel og greint yrði frá niður- stöðum eins skjótt og kostur væri. Engar frekari upplýsingar fengust frá aðilunum þegar þeirra var leitað. Sameiningin er háð samþykki hlut- hafafundar SPRON, stjórnar Kaup- þings, FME, Samkeppniseftirlitsins og lánveitenda félaganna. Viðræður halda áfram GUÐBRANDUR Sigurðsson lætur af störfum sem forstjóri Auð- humlu nú um mánaðamótin. Auðhumla er sam- vinnufélag í eigu um 700 mjólkur- framleiðenda og rekur gegnum dótturfélag sitt, Mjólkursamsöluna, flest mjólkursam- lög í landinu. Guðbrandur tekur við starfi framkvæmdastjóra Nýlands, sem er í meirihlutaeigu hans, en það félag mun taka að sér sölu og mark- aðsfærslu mjólkurafurða erlendis fyr- ir Mjólkursamsöluna. Magnús Ólafs- son, forstjóri MS, mun tímabundið taka að sér stöðu forstjóra Auðhumlu. Hættir hjá Auðhumlu Guðbrandur Sigurðsson ♦♦♦ ♦♦♦ BAKKABRÆÐUR Holding, stærsti hluthafi Exista, hefur keypt af Kaupþingi nær alla nýja hluti í Ex- ista sem bankinn átti að fá fyrir hlut sinn í Skiptum. Verðið miðast við lokagengi Exista á fimmtudag, 10,12 krónur á hlut, í heild 12,9 ma.kr. Kaupþing átti rétt á 9,18% af hlutafé Exista, en tók kauptilboði Bakkabræðra um 8,97%. Hlutur þeirra í Exista helst nú óbreyttur í 45,2%. Exista á 23,7% í Kaupþingi. Kaupa nýju bréf Existu ÞETTA HELST … ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.