Morgunblaðið - 31.05.2008, Síða 28

Morgunblaðið - 31.05.2008, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. UPPREISN FISKIMANNA Evrópa logar í uppreisn fiski-manna vegna hækkunar á ol-íuverði. Allur fiskiskipafloti Portúgala var í höfn í gær og 7.000 fiskimenn héldu mótmælafund fyrir framan landbúnaðar- og sjávarút- vegsráðuneyti Spánar. Fiskimenn í Frakklandi hafa hald- ið uppi mótmælum vikum saman, að sögn BBC, og starfsbræður þeirra í Belgíu og á Ítalíu hafa einnig komið við sögu. Forystumenn fiskimanna í mörg- um Evrópusambandslöndum hafa fundað að undanförnu og mótað kröf- ur um úrbætur af hálfu stjórnvalda í þessum ríkjum. Mótmæli sjómannanna eru af sama toga og mótmæli flutningabílstjóra hér. Raunar eru flutningabílstjórar í Evrópuríkjunum líka á ferð. Sjómennirnir segja, að fiskverð hafi verið óbreytt í 20 ár en olíuverð- ið hafi margfaldazt. Bílstjórarnir segja, að verð á dísilolíu í Evrópu hafi hækkað um 300% á fimm árum. Á Spáni gripu fiskimennirnir til þess ráðs að dreifa 20 tonnum af fiski til almennings til þess að ná athygli hins almenna borgara og fá samúð hans. Bændur eru líka byrjaðir að mót- mæla háu olíuverði í Frakklandi. Þessi mótmæli í Evrópu eru af sama toga og mótmæli flutningabíl- stjóranna hér og sjálfsagt er það bara spurning um tíma hvenær út- gerðarmenn og sjómenn láta til sín heyra hér. Kannski gerist það á morgun, á sjómannadaginn. Auðvitað er eldsneytisverðið orðið svo hátt, að fiskiskipafloti okkar get- ur ekki búið við það til lengdar. Flutningaskipin ekki heldur, flug- félögin ekki heldur og almenningur hlýtur að finna fyrir hinu háa elds- neytisverði í sinni buddu. Mótmælaaldan, sem nú gengur yfir Evrópu, á áreiðanlega eftir að sjást hér. Þess vegna er spurning, hvort ríkisstjórnin á ekki að verða fyrri til og grípa til þeirra ráðstafana, sem hún hugsanlega getur gripið til. Að vísu er hægt að færa rök fyrir því, að þjóðfélagið verði að axla þess- ar nýju byrðar. Þær koma frá útlönd- um og ekkert, sem við getum gert á þessu stigi til þess að lækka olíuverð. En ef hátt olíuverð yrði t.d. til þess að fiskiskipafloti okkar yrði bundinn við bryggju gegndi öðru máli. Eða ef samgöngur milli Íslands og útlanda yrðu mjög takmarkaðar. Fyrr eða síðar mun ríkisstjórn Íslands standa frammi fyrir sama vanda og nú steðj- ar að ríkisstjórnum ESB-landa vegna hins háa olíuverðs, sem margir spá, að muni halda áfram að hækka. Hvað getur útgerðin sjálf gert? Er hugsanlegt að færri skip geti veitt þann afla, sem nú stendur til boða, og þar með minni notkun á eldsneyti? Er hugsanlegt að ríkisstjórnin verði að endurskoða verðmyndun á elds- neyti? Það þarf ekki alltaf að bíða þangað til vandamálið gýs upp. Það er líka hægt að sjá það fyrir og grípa til fyr- irbyggjandi aðgerða og það á ríkis- stjórnin að gera nú. GLÆPASTJÓRNIN Í BÚRMA Vanhæfi herforingjastjórnarinnarí Búrma hefur komið rækilega fram frá því að fellibylurinn Nargis reið yfir landið 2. maí. Fórnarlömb óveðursins hafa fengið mjög tak- markaða aðstoð og aðgerðaleysi her- foringjanna er glæpsamlegt. Nú hafa þeir bitið höfuðið af skömminni með því að byrja að reka heim fólk úr búð- um, sem settar voru upp þar sem eyðileggingin var mest. Hermt er að fólkið hafi verið sent burt með bamb- usstaf og tjalddúk til að hefja nýtt líf. Nú þegar er talið að 78 þúsund manns hafi látið lífið vegna hamfar- anna. 56 þúsund manns er enn sakn- að. 2,4 milljónir manna eru heimilis- lausar og án matar. Haldi herforingjastjórnin áfram glórulaus- um aðgerðum sínum mun harmleik- urinn halda áfram og fórnarlömbun- um halda áfram að fjölga. Herforinginn Than Shwe hét því í liðinni viku við Ban Ki Moon, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, að hann myndi hleypa öllum erlend- um hjálparstarfsmönnum inn í land- ið. Minna hefur verið um efndir og hafa Sameinuðu þjóðirnar gagnrýnt yfirvöld í Búrma fyrir að draga lapp- irnar með afgreiðslu vegabréfsárit- ana. Þegar alþjóðasamfélagið hét því í síðustu viku að leggja fram 155 millj- ónir dollara til hjálparstarfs í Búrma mætti framlagið heiftarlegri gagn- rýni í fjölmiðlum í Búrma og sögðu þeir að herforingjastjórnin þyrfti 11 milljarða til að byggja upp eftir eyði- legginguna. Eitt dagblaðið sagði að þeir, sem lifðu af, myndu þrauka án þess að fá súkkulaðibita frá alþjóða- samfélaginu. Yfirvöld í landinu hafa sett upp vegatálma til að hefta ferðir útlend- inga. Einnig eru tálmar á ám til að út- lendingar komist ekki á flóðasvæðin á bátum. Íbúum í landinu er hins vegar engin launung á því sem er að gerast. Þeir vita að undan ströndum landsins hafa verið skip full af vistum, sem ekki var tekið við. Á götum höfuð- borgarinnar er hægt að kaupa geisla- diska frá svæðunum, sem hafa orðið verst úti. Á þeim eru myndir sem sýna dauðann og eyðilegginguna. Vísbendingar eru komnar fram um að reiði í garð herforingjastjórnarinnar fari vaxandi. Framferði herforingjastjórnarinn- ar er yfirgengilegt. Hún er fullkom- lega vanhæf til að vera við völd og sú spurning verður stöðugt áleitnari hvort það sé ekki skylda alþjóðasam- félagsins að grípa í taumana. Vissu- lega er ekki borgarastyrjöld í Búrma. Þar er ekki verið að fremja þjóðar- morð með vopnavaldi. En það er engu minni glæpur að koma fólki í lífs- hættu ekki til hjálpar. Það er engu minni glæpur að senda varnarlaust fólk nánast út í opinn dauðann. Hversu lengi ætlar alþjóðasamfélag- ið að standa hjá? Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Daginn eft Íbúar í Hveragerði, á Selfossi og nágrenni byrjuðu í gær að lag naumlega, og allir virðast taka hörmungunum af yfirvegun. Ás HURÐ skall bókstaflega nærri hælum Sævars Jónssonar sölumanns í varahlutaverslun Still- ingar á Selfossi. „Hillurekki fullur af bremsudiskum fór af stað og ýtti öllu á undan sér,“ segir Sævar sem komst með naumindum út um dyr á vörulager verslunarinnar áður en hillu- samstæður féllu eins og dómínókubbar á hurðina. „Ég var ansi feginn að komast út,“ segir Sævar um reynslu sína af skjálftanum, en hann vann í gær hörðum höndum við tiltekt á lagernum ásamt kollega sínum, og göntuðust fé- lagarnir með það að halda lagerútsölu meðan þeir bisuðu við að umstafla kössum með vara- hlutum. Varahlutir fóru á fleygiferð BIRGIR Freyr Birgisson, fjöldahjálparstjóri Rauða krossins á Selfossi, segir töluverðan straum hafa verið af fólki í hjálparstöðina til að sækja drykkjarvatn. Einnig hafi nokkur fjöldi lagt leið sína í mið- stöðina til að fá sálrænan stuðning og þá hafa sjálfboðaliðar aðstoðað aldraða og aðra sem þurft hafa hjálp við að þrífa heimili sín eftir ósköp fimmtudagsins. Um 20 manns sváfu í hjálparstöðinni í Vallaskóla og sváfu allir innanhúss. Tveir gistu í stöðinni í Hveragerði og sváfu í hjólhýsi Rauða krossins sem komið var fyrir á staðnum. Margir þurfa á stuðningi að halda ALLUR gangur er á því hversu illa heimili urðu fyrir barðinu á jarðskjálftanum. Í einni götu höfðu öll húsgögn farið á flug, en í næstu götu varla nema rétt að myndir skekktust á veggjum. Heimili Björns Sigurðssonar við Laufhaga á Selfossi kom sérstaklega illa út úr jarð- skjálftanum og má segja að innbúið hafi meira eða minna allt fallið á gólfið. Mikil mildi var að skápur og sjónvarp féllu ekki ofan á átta ára snáða sem svaf í rúmi í einu herberginu. Þá sluppu líka sjö litlir kett- lingar óhultir úr öllu brakinu. Kettlingarnir hjúfruðu sig hver upp að öðrum í hjónarúminu á heimilinu í gær, um- kringdir allskyns lausamunum sem höfðu fallið á rúmið í skjálftanum. Stór skáphurð í eldhúsinu liggur úti á miðju gólfi. Krafturinn í skjálftanum var svo mikill að hurðin fór af hjörunum. Í bíl- skúrnum er eins og sópað hafi verið af borði sem fyrir jarðskjálftann var þakið verkfær- um. „Það er viðbjóður að lenda í þessu helvíti,“ segir Björn, en tekur atburðum fimmtudags- ins af stakri yfirvegun. „Það er best að það urðu engin slys. Allt sem skemmdist eru bara hlutir sem hægt er að kaupa aftur.“ Átta ára snáði og sjö kettlingar sluppu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.