Morgunblaðið - 31.05.2008, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 29
ftir skjálftann
ga heimili sín og hreinsa upp það sem eyðilagðist í Suðurlandsskjálftanum. Margir sluppu
sgeir Ingvarsson blaðamaður og Kjartan Þorbjörnsson ljósmyndari ferðuðust um svæðið.
SIGFÚS Guðmundsson gröfumaður var uppi á Ingólfsjalli þegar skjálftinn reið yfir. Þar notar
hann stærðarinnar jarðýtu til að færa möl ofan í námuna á suðurhlíð fjallsins. Sigfús segir að ein-
hver undirmeðvitund hafi verið að verki þegar hann hringdi í konu sína vegna frétta fyrr um daginn
um skjálftavirkni, en hún var þá að gæta tveggja barnabarna á heimili þeirra á Selfossi: „Ég bað
hana að taka úr hillum það sem væri þungt og gæti kannski fallið á börnin.“
Mikill rykmökkur gaus upp úr malarnámunni eftir skjálftann, og hafði Sigfús helst áhyggjur af
öryggi vinnufélaga sinna sem voru að störfum undir hlíðum fjallsins: „En það slapp allt, þetta gerð-
ist í kaffitíma og enginn var hér undir,“ segir hann.
Tókst að vara konuna við í tíma
BJÖRGVIN Sigurðsson við-
skiptaráðherra sótti íbúa-
fund Rauða krossins á Sel-
fossi í gær. Hann á heimili
í bænum en segist hafa
sloppið furðuvel úr skjálft-
anum. Björgvin segir íbúa
á staðnum takast á við að-
stæður af mikilli yfirvegun
og stillingu. „Mannlífið er
úr skorðum, og fólk er að
sinna heimilum sínum og
hjálpa öðrum,“ segir hann.
Björgvin segir erfitt að meta að svo stöddu
hversu mikið fjárhagslegt tjón hafi orðið af
jarðskjálftanum: „Í skálftanum fyrir átta ár-
um voru tjónabætur 2,6 milljarðar. Má
reikna með að skemmdir nú hafi verið mun
meiri enda 10-15 sinnum þéttbýlla svæði sem
verður fyrir áhrifum skjálftans.“
Ríkisstjórnin ræddi það meðal annars á
fundi sínum í gærmorgun að ætla mætti að
um 10-20% íbúa á svæðinu væru ekki með
viðlagatryggingu á innbúi: „Við munum að
sjálfsögðu meta það, þegar betri upplýsingar
verða komnar fram, hvaða þörf er á að mæta
því fólki sem er í þeim sporum,“ segir Björg-
vin.
Miklu meira
tjón en í skjálft-
anum árið 2000
Björgvin
Sigurðsson
RAGNHEIÐUR Hergeirs-
dóttir, bæjarstjóri Árborg-
ar, tók þátt í fundi með
íbúum á Selfossi í gær,
þar sem fjallað var um
þróun næstu daga og
fundargestir einnig frædd-
ir um viðbrögð við áfalla-
streitu. Túlkur þýddi yfir
á pólsku og bæklingum á
íslensku, ensku, rússnesku
og pólsku var dreift.
Ragnheiður sagði mjög sérstakan anda í
bænum í kjölfar hamfaranna. „Margir eiga
um sárt að binda, og eru í uppnámi eftir
þetta, en andinn er samt ótrúlega léttur og
fólk er afskaplega þakklátt fyrir að ekki
skyldu verða alvarleg slys á fólki,“ segir
hún.
Skemmdir urðu m.a. á ráðhúsinu á Sel-
fossi og á innbúi. „Slæmar sprungur eru á
húsinu en ekki talið hættulegt að vera í því.
Það kemur svo betur í ljós á næstu dögum
hvernig hús eru farin eftir skjálftann.“
„Þakklát fyrir
að ekki skyldu
verða alvarleg
slys á fólki“
Ragnheiður
Hergeirsdóttir
HJÓNIN Guðmundur Ingvarsson og Anna Höskuldsdóttir á bænum Akurgerði II byrjuðu í gær að
hreinsa upp og ljósmynda skemmdirnar á húsum sínum og innbúi.
„Hundarnir stukku út úr bílskúrnum um hálfri mínútu áður en þetta gerðist,“ segir Guðmundur um
tvo boxerhunda á heimilinu sem sluppu naumlega. „Fletið þeirra þar lenti undir hillum sem féllu niður í
skjálftanum.“
„Við fórum ekki að sofa fyrr en klukkan þrjú um nóttina. Það var ekki hægt að sofna fyrr fyrir titr-
ingi,“ segir Anna, en þau hjónin skildu glugga eftir opinn á svefnherbergi sínu til að geta örugglega
komist hratt út úr húsi ef annar skjálfti myndi ríða yfir.
Hundarnir rétt sluppu
JÓN Guðbjartsson var að fá sér kaffisopa inni í eldhúsi á heimili sínu á Reynivöllum á Selfossi þegar skjálftinn færði bæði eldhúsborðið, eldhússtólana og
Jón úr stað, yfir í hinn enda herbergisins, og var eins gott því um leið féll skápur niður þar sem Jón hafði áður setið.
„Í skjálftanum árið 2000 brotnaði ekkert nema eitt rauðvínsglas – nú brotnuðu öll rauðvínsglösin,“ segir eiginkona Jóns, Þórunn Einarsdóttir, þegar
hún lýsir áhrifum skjálftans. „Þetta var eins og húsið væri á sjó,“ segir Jón um hvernig húsið gekk til og frá.
Börn og barnabörn þeirra hjóna voru í gær að hjálpa til við tiltektina og var í nógu að snúast. Hjónin sjá eftir gömlum ættargripum sem skemmdust í
skjálftanum, og bóndinn ætlar að reyna að líma aftur vasa sem þeim er kær og brotnaði í marga mola á fimmtudag. „En við erum þakklát fyrir að við
sluppum heil úr þessu. Hitt eru veraldlegir hlutir sem skipta engu máli,“ segir hann.
Morgunblaðið/Golli
Veraldlegir hlutir skipta ekki máli