Morgunblaðið - 31.05.2008, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 31
Ti l sölu K aupendur Sel jendur Leigjendur Fjár festar
03.02.01.
16:00 - 17:00
Opið hús í dag
Nýtt heimili \\ Hamraborg 10 \\ Reynir Erlingsson löggildur fasteignasali \\ www.nyttheimili.is \\ 414 6600
Við bjóðum ykkur að koma
og skoða vandaðar íbúðir
rétt við Klambratúnið í dag
milli klukkan fjögur og fimm.
Komdu við og skoðaðu
glæsilegar íbúðir með útsýni
yfir miðborgina.
414 6600
HÁTEIGSVEGUR 3
105 REYK JAVÍK
Stórfalleg lóð
laus í landi Vatnsenda í Skorradal.
Lækur, tré, 2. lóð frá vatni. Vegur kominn að.
Leigusamn. til 20 ára. Má byggja 100 fm.
Uppl. í síma 820-0782
Frístundalóð
á góðum stað
Til sölu um 11 hektara frístundalóð í austanverðu
Grímsnesi. Tilvalin fyrir hús og hross.
Upplýsingar veitir Einar Sigurjónsson hdl. Kollektu
ehf. Suðurlandabraut 30, s. 515-7900.
VÖRUÞRÓUN og nýsköpun í ís-
lenskri ferðaþjónustu hefur ef til vill
ekki verið næglega hröð undanfarin
ár miðað við hina miklu fjölgun er-
lendra ferðamanna. Ákveðin svæði
virðast þó hafa staðið
sig en önnur dregist
nokkuð aftur úr. Haldi
þetta áfram næstu árin
mun það leiða til
minnkandi markaðs-
hlutdeildar á erlendum
mörkuðum og minni
aukningar ferðamanna.
Finna má ýmsar orsak-
ir fyrir þessari þróun.
Helst mætti nefna van-
mátt frumkvöðlanna til
vöruþróunar, skort á
faglegri stefnumótun á
svæðum og litlar kröfur
þeirra, sem selja landið á erlendri
grundu.
Fram kemur í könnunum, að tæp-
lega 70% erlendra ferðamanna koma
til landsins og ferðast hér á eigin veg-
um og um 10% til viðbótar koma á
eigin vegum en nýta sér síðan
ákveðna pakka, þegar til landsins er
komið. Þetta þýðir að um 20% ferða-
manna koma í venjulegum hópferð-
um til landsins. Ferðaskrifstofur,
sem flytja inn þessa erlendu ferða-
menn, hafa í of miklum mæli boðið til
„hraðferða“ hringinn á landinu.
Breytingin undanfarin ár hefur eink-
um orðið sú, að hraðferðin tekur nú
styttri tíma en áður. Þáttur afþrey-
ingar- og/eða ævintýraferða hefur
aukist, en varan í heild
sinni er að mestu upp-
byggð á sama hátt og
verið hefur lengi. Dauð-
þreyttur ferðamaðurinn
er mataður á hlaupum,
bæði hvað varðar
fræðslu, skoðun náttúru
og ekki síður þegar af-
þreyingar er notið.
Þessi tegund ferðar
kallast á ensku fast to-
urism, andstæða slow
tourism, rétt eins og
fast food og slow food.
Spyrja má, hvort
framleiðendur ferða einbeiti sér
nægilega að beinum óskum og hags-
munum ferðamannsins sjálfs. Eigum
við ekki að skoða óskir hans betur áð-
ur en hann kemur og auka vöruúr-
valið til að koma til móts við þann
stækkandi hóp sem vill „slow tour-
ism“? Vill hann ekki frekar skoða
hluta landsins og hafa tóm til að njóta
íslenskrar náttúru, kyrrðarinnar í
náttúrunni, menningar svæðisins og
þjóðarinnar, kynnast þjóðinni sjálfri
og síðast en ekki síst mismunandi af-
þreyingar á afmörkuðu svæði?
Aukið öryggi, meiri gæði
Það má hugsa sér að ævintýraland-
inu Íslandi sé skipt upp í „slaufur“,
þar sem nokkrar slaufur tilheyra
hverjum landshluta. Landið í heild
gæti verið um 30-40 slaufur. Ferða-
maðurinn velur sér t.d. slaufu sem
tekur eina viku. Þessar slaufur væru
boðnar erlendis af ferðaskrifstofum,
flugfélögum og öðrum, sem bjóða Ís-
land til sölu fyrir ferðamenn. Ferða-
þjónustuaðilar í landshlutunum gætu
einnig markaðssett sínar slaufur í
gegnum sameiginlega markaðs-
skrifstofu svæðisins. Með því móti
trúi ég, að afþreying, gisting og veit-
ingaaðstaða nýtist mun betur á
hverju svæði. Og það sem mikilvæg-
ast er: ferðamanninum mun líða bet-
ur og starfsfólk ferðaþjónustunnar
verða betur samstillt, öryggið muni
aukast og gæði vinnunnar komast á
hærra stig. Að vikuheimsókn lokinni
hefur ferðamaðurinn aðeins séð hluta
af landinu, en kynnst þeim mun betur
vöru viðkomandi svæðis. Þessi sami
ferðamaður nýtur þjónustunnar bet-
ur, les sér til um önnur svæði og land-
ið í heild. Hann hefur þegar tekið þátt
í ævintýri, einni til tveimur slaufum á
hluta landsins, en á allt hitt eftir.
Þessir ferðamenn eru líklegri til að
koma aftur til Íslands til að upplifa
frekari ævintýri. Þess vegna verður
að vera stöðugt vakandi yfir því, sem
við bjóðum og hafa áræði til að bjóða
nýja eða endurbætta vöru og fræða
erlenda tengiliði og sölufólk svo þeir
eigi auðveldara með að selja nýjar
tegundir ferða.
Ísland á sjö dögum
Það getur ekki verið rétt stefna að
skipuleggja að meiginhluta til „hrað-
ferðir“ á hringveginum um Ísland.
Ferðir með erlenda ferðamenn, þar
sem ferðamaðurinn hefur það á til-
finningunni að hann hafi skoðað allt
Ísland á sjö dögum. Enn síður getur
það talist rétt, að íslenskir ferðamenn
skipuleggi sjálfir sínar ferðir í sínu
eigin landi á þennan hátt. Allt of
margir Íslendingar þjóta framhjá
stórkostlegum náttúruperlum og frá-
bærri afþreyingu til þess eins að
komast hringinn á sem skemmstum
tíma. Hraðferðir með erlenda ferða-
menn hljóta einnig að skapa miklar
hættur á þjóðvegum landsins, þær
þreyta viðkomandi, draga úr gæðum
vinnunnar vegna hraða og álags á
óeðlilegum tímum sólarhringsins og
síðast en ekki síst er líklegast að þær
muni draga úr arðsemi ferðaþjónust-
unnar, þegar til lengri tíma er litið.
Einblínum á markmiðið að auka
gæðin, bæta öryggið, vernda um-
hverfið og auka til muna fjölbreyti-
leika ferðaþjónustunnar og með því
aukum við viðskiptin og áhuga ferða-
manna á því að koma í heimsókn og
ekki síður löngun þeirra til að koma
aftur og kynnast landinu enn betur.
Því þarf vöruþróun og nýsköpun sí-
fellt að vera til staðar og í takt við
samtímann hverju sinni. Með meiri
breidd getum við aukið hlut okkar í
ferðaþjónustu framtíðarinnar, þar
sem samkeppni mun vaxa og nýir
ferðamöguleikar koma fram á al-
þjóðavettvangi. Stöldrum nú við, end-
urskoðum okkar eigin vinnu og höf-
um kjark til að breyta.
Ferðamenn eiga að koma aftur
Pétur Rafnsson skrifar um
þjónustu við ferðamenn » Spyrja má, hvort
framleiðendur ferða
einbeiti sér nægilega að
beinum óskum og hags-
munum ferðamannsins
sjálfs.
Pétur Rafnsson
Höfundur er formaður Ferðamála-
samtaka Íslands og situr í Ferða-
málaráði.
Í FYRIRSPURN til samgöngu-
ráðherra spurði ég að því hversu
mikið meira vöruflutn-
ingabílar slitu gatna-
kerfinu í samanburði
við fólksbíla. Í svari
hans kom fram að slík-
ir bílar yllu 9-12.000
sinnum meira nið-
urbroti á burðarlagi
vega miðað við
ákveðnar forsendur.
Svarið sýnir að óum-
deilt er að kostnaður
við þungaflutninga er
mjög mikill og langt
umfram þau gjöld sem
greidd eru af þunga-
flutningabílum. Það má því færa fyr-
ir því rök að þungaflutningar í land-
inu séu niðurgreiddir af
fólksbílaeigendum og öðrum skatt-
greiðendum. Niðurgreiðslan veldur
því að samkeppnisstaða strandflutn-
inga er skekkt og því hefur stórum
vöruflutningabílum fjölgað eins
hratt og raun ber vitni á þjóðvegum
landsins.
Eftir að þessi fyrirspurn kom
fram hafa margir haft samband við
mig og deilt þeirri skoðun með mér
að það væri mikils virði ef hægt væri
að minnka umferð vöruflutningabíla
á þjóðvegunum. Sumir telja eðlilegt
að skattur á þunga bíla
sé í samræmi við slitið
sem þeir valda á meðan
aðrir hafa talið að rétt
væri að létta undir með
strandsiglingum fyrst á
annað borð sé verið er
að niðurgreiða vöru-
flutninga með bílum.
Að skjóta
sendiboðann
Eitthvað hefur um-
ræðan í kjölfar fyr-
irspurnarinnar farið
fyrir brjóstið á SVÞ. Í
grein Signýjar Sigurðardóttur, for-
stöðumanns flutningasviðs samtak-
anna, hér í Morgunblaðinu mátti
helst skilja að svarið sem ég fékk frá
samgönguráðherra hefði verið samið
af mér sjálfum. Ennþá síður var hún
sátt við þær hugmyndir að gera átak
í því að minnka vöruflutninga á veg-
um úti með því að horfa til strand-
flutninga.
Almennt séð er ég á móti nið-
urgreiðslum en ég er ekki síður á
móti mismunum. Í ljósi þess að ekki
er raunhæft að innheimta veggjöld
af vöruflutningabílum í samræmi við
kostnað, er rétt að skoða kosti
strandflutninga. Niðurgreiðsla á
þeim gæti jafnað samkeppnisstöð-
una, núverandi kerfi niðurgreiddra
landflutninga og þar með dregið úr
þungaflutningum á þjóðvegunum.
Einkaaðilar myndu engu að síður sjá
um flutningana. Auknir strandflutn-
ingar myndu fækka slysum, auka
gæði þjóvegakerfisins, draga úr
sjón- og hávaðamengun. Eðlilegt
næsta skref væri að gera hag-
fræðilega úttekt á mismunandi
kostnaði þjóðfélagsins við ólíka teg-
und flutninga. Í slíkri úttekt yrðu all-
ir þættir teknir með í útreikninginn
eins og t.d. slys og umhverfisþættir.
Í kjölfar úttektarinnar yrði svo hægt
að taka ákvörðun um framhaldið.
Landflutningar hafa ýmsa ókosti
Ármann Kr. Ólafsson skrifar
um veggjöld og landflutninga » Almennt séð er ég á
móti niðurgreiðslum
en ég er ekki síður á
móti mismunum.
Ármann Kr. Ólafsson
Höfundur er þingmaður.
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Á SAMA tíma og ég er að berjast við
og fjalla um erfiðleika við fá vega-
bréfsáritun fyrir væntanlega eig-
inkonu hingað til lands kemur þessi
fína grein í Fréttablaðinu undir fyr-
irsögninni „Íslenskir karlar flytja inn
konur til kynlífsþrælkunar“ .Það er
varla hægt að vera óheppnari. Mér
varð starsýnt á þessa grein og trúði
vart mínum eigin augum. Reyndar er
það svo að reglulega koma upp skrif
af þessu tagi þar sem reynt er að
sverta konur utan EES með ein-
hverjum hætti. Þetta er bara angi af
því og þessar kynlífsdylgjur eru enda
ættaðar frá konum. Fyrirsögnin ein
er hrein alhæfing um „innflutning“ á
konum til kynmaka með góðu eða illu.
Ekkert kemur fram í dylgjum
kvennanna sem greinin er byggð á
hve margar íslenskar konur hafi leit-
að til athvarfa á sama tíma né hve
stór hluti íslenskra kvenna þurfi að
lúta „beinlínis kynlífsþrælkun“ af
hendi eiginmanns síns né hve margar
þessar „óvenju mörgu“ erlendu kon-
ur eru. Það er sorglegt að farið sé
fram með Fullyrðingar af þessu tagi,
fullar af fordómum og alhæfingu. Ís-
lenskir karlmenn eru ekkert upp til
hópa óþokkar af þeirri tegund sem
hér er lýst en það má þó segja að
hugsanlega efist einhver í ljósi op-
inberunar á misnotkun og nauðg-
unum að undanförnu. Óþokkar eru
auðvitað út um allt en það er fullmikið
að stimpla íslenska karlmenn yfir
höfuð þrælahaldara og erlendar kon-
ur varnarlausa þræla með bulli af
þessu tagi. Hins vegar frábið ég mér
að sitja undir aðdróttunum og for-
dómum eins og koma fram í þessari
grein og lýsi undrun minni á að þær
konur sem vitnað er til og nafn-
greindar eru í greininni opinberi and-
úð sína, fordóma og fáfræði með jafn
augljósum hætti.
ÞÓRHALLUR EINARSSON,
Engjaseli 86 Reykjavík.
Kynlífsþrælahaldarar
Frá Þórhalli Einarssyni