Morgunblaðið - 31.05.2008, Side 33

Morgunblaðið - 31.05.2008, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 33 MINNINGAR Gréta frænka er farin til skapara síns, yfir móðuna miklu, þar veit ég að henni líður vel. Elsku Gréta frænka (eins og við systkinin frá Hafursá kölluð- um þig alltaf), ég átti þeirri gæfu að fagna að fá að dveljast hjá ykkur Vil- hjálmi og ykkar stórfjölskyldu á Brekku í Mjóafirði einn vetur og gekk þá í skóla hjá Vilhjálmi sem er mér ógleymanlegur og kær vetur. Einnig dvaldist ég hjá ykkur haustið eftir og vann þá í sláturhúsinu ásamt því að eiga mín verkefni í húsinu á Brekku og er það mér einnig ógleymanlegur tími. Ég minnist fiskibollanna þinna sem ég á fullorð- insárum margreyndi að leika eftir en tókst aldrei. Þú bjóst til heimsins bestu fiskibollur, þú sauðst þær og barst þær fram með kartöflum og bræddu smjöri, ummm. Ég kom til Mjóafjaðar í fyrsta skipti fimm ára gömul, þá lagði mamma land undir fót eða sjó undir fót og fór með mig með sér með Heklunni (frekar en með Herðubeið) til Mjóafjarðar, það var auðvitað æv- intýri líkast fyrir litla sveitastelpu sem aldrei hafði komið út fyrir sveit- ina sína. Þú varst mér ævinlega góð elsku Gréta frænka en þó kom fyrir að tækjust á stálin stinn og ég fór í fýlu aldarinnar. Þannig var að þið Fúsi ætluðuð upp í Egilsstaði í versl- unarferð með meiru haustið sem ég vann í sláturhúsinu og mig langaði óskaplega mikið til að fara með ykk- ur (ég var þá 14 ára gömul) en við það var ekki komandi hjá þér, það var alger óþarfi að þínu áliti, þú vannst og ég fór í fýlu aldarinnar. Ógleymanlegt er annað atvik þér viðkomandi þegar ég, gift kona og fimm barna móðir, var búsett á Eg- ilsstöðum. Vilhjálmur kom með þig Anna Margrét Þorkelsdóttir ✝ Anna MargrétÞorkelsdóttir fæddist í Bót á Fljótsdalshéraði 15. febrúar 1914. Hún andaðist á Sjúkra- húsinu á Seyðisfirði 21. apríl síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Mjóafjarð- arkirkju 3. maí. heim til mín, heilsaði, kvaddi, fór og skildi þig eftir hjá mér, sem mér þótti afskaplega vænt um því þá vissi ég að þú ætlaðir að stoppa svolitla stund hjá mér. Um leið og Vilhjálmur kveður læðist fjögurra ára dóttir mín, hún Árný, upp að mér og spyr: „Hvert fór pabbenn- ar?“ Ég gleymi því aldrei hvað þú hlóst dátt og bláu augun þín tindruðu þegar ég, löngu seinna, sagði ykkur hjónunum frá þessu. Elsku Gréta frænka, ég kveð þig með söknuði og þakka þér fyrir að hafa fengið að þekkja þig, umgang- ast þig og eiga þig að. Alltaf þótti mér svo vænt um þegar þið systurn- ar, þú og mamma, heimsóttuð mig eða þegar við mamma heimsóttum þig og Vilhjálm á Ásvallagötuna meðan þið bjugguð þar. Ég kveð þig með söknuði og tek þátt í sorg Vil- hjálms, frændsystkina minna og allra ykkar niðja, því þú lætur eftir þig margmenni. Bergþóra Sigurbjörnsdóttir. Gréta frænka, margar minningar leita á hugann við þessi tímamót í huga okkar Hafursársystkina. Gréta er ekki bara nafn á frænku, það inniheldur væntumþykju, virð- ingu og var fastur punktur í okkar æsku. Það voru gleðidagar á Haf- ursá þegar þau hjón Grétu og Vil- hjálm bar að garði, auk þess sem þau tóku á afgerandi hátt þátt í uppeldi okkar. Hjá þeim á Brekku dvöldum við sex af átta systkinum mislengi og nutum skólagöngu að vetri eða dval- ar að sumri. Gréta frænka var að létta undir með henni Stínu systur, sjálf átti hún fimm börn. Þarna eignuðumst við að okkur fannst nýja foreldra og fleiri systkini og komum aftur heim svo forfrömuð og sprenglærð að einn bróðirinn komst þannig að orði eftir aðeins hálfs vetrar dvöl: „Mér fannst ég vera orðinn stúdent í ýmsum fræðum.“ Okkar fyrsta stóra ferðalag var ferðin til Mjóafjarðar sem í þá daga var með öðrum hætti en í dag því ekki var kominn vegur yfir Mjóa- fjarðarheiði. Dvölin á Mjóafirði hjá Grétu frænku og hennar fólki bæði sumar og vetur er sveipuð dýrðar- ljóma. Í minningunni finnst okkur að alltaf hafi verið gott veður á Mjóa- firði en þegar betur er að gáð getur verið að veðráttan hafi kannski ekki verið svona óskeikul heldur hafi heimilisbragurinn og atlætið valdið þessari tilfinningu. Það er ótrúlegt að börn finni ekki fyrir heimþrá við svona langa frá- veru frá sínum nánustu en stað- reyndin var sú að okkur leiddist aldrei, Gréta var líka sérlega lagin við að láta okkur hjálpa til og láta okkur finnast að við værum að gera gagn og jafnvel létta af henni verk- um. Auðvitað skildi maður það seinna að vinnudagur frænku var langur, heimilið fjölmennt og mörg handtök- in sem vinna þurfti, en ekki var hamagangurinn, allt virtist ganga rólega og yfirvegað fyrir sig. Öll finnum við ennþá bragðið af fiskibollunum hennar frænku, þær eru þær allra bestu sem við höfum bragðað og svo má segja um allt sem hún bar á borð, hvort sem var fyrir gesti eða heimafólk. Á seinni árum dapraðist sjónin verulega en ekki kvartaði hún yfir því frekar en öðru, sagði bara: „Maður verður að bjarga sér.“ Einhverju sinni stóð yfir saum- ur á upphlut á Önnu Guðrúnu. Kom Gréta þá reglulega til að taka verkið út, strauk yfir efnið og gaf góð ráð um hitt og annað, hvort nógu vel færi, var með ólíkindum hvernig hún virtist sjá með höndunum, ekki hægt að merkja að þar færi sjóndöpur kona. Gréta frænka var afar prúð og settleg kona en gat alveg brugðið á leik. Eitt sinn var hún gestkomandi á Hafursá og við krakkar höfðum ver- ið send eftir hestum. Frænka kemur út, sér hestana, labbar að Litlu Rauðku, klappar henni og fleygir sér svo á bak, berbakt, slær í og ríður flengreið upp Lindarhól og hverfur. Móðir okkar kom út í því að Gréta slær í og hrópar hástöfum: „Ertu galin manneskja, merin er vitlaus í fjöri.“ En frænka kemur á fljúgandi skeiði til baka, stekkur af baki og segir: „Hafi maður einhvern tíma lært að sitja hest gleymist það ekki svo glatt.“ Svona var hún Gréta frænka okk- ar. Fari hún í friði. Systkinin frá Hafursá. Sumarið eftir að við Dóróthea giftum okk- ur og vorum stödd í gamla sumarbústaðn- um við Hreðavatn, tók Björn mig í alllanga gönguferð þvert yfir Grábrókarhraunið og nið- ur að Laxárbökkum. Hann var þá nýorðinn stúdent, hafði mörg sum- ur verið liðléttingur sem krakki hjá Jóni bónda að bænum Laxá og kunni umhverfið utan að. Hann benti mér á túnbleðla sem skárust inn í hraunið meðfram ánni og með hest og kerru flutti hann stráin heim til bæjar til vetrarfóðurs. Man ég að mér, borgarbarninu, fannst þetta með ólíkindum enda um lang- an veg að fara. Ýmislegt fleira sagði mér yngri maðurinn um forna bú- skaparhætti. Sumt með kímnisög- um og annað í fullri alvöru. Heim- kominn var ég margt fróðari um forna búskaparhætti – fannst mér. Svo var það eitthvert sumarið skömmu síðar að Björn vann sem sumarstarfsmaður við hlið mér hjá Flugfélagi Íslands. Þetta var á þeim árum sem fargjald til Kaupmanna- Björn Björnsson ✝ Björn Björnssonfæddist í Reykjavík 9. apríl 1937. Hann lést á Landspítala, Landa- koti, 9. maí síðast- liðinn og var útför hans gerð frá Dóm- kirkjunni í Reykja- vík 22. maí. hafnar og til að kom- ast heim aftur var jafnvirði mánaðar- launa venjulegs manns og ýmislegt annað torveldaði ferðalög Íslendinga um þær mundir. Síðar á ævibrautinni þótti okkur Birni gaman að rifja ýmislegt upp frá þessum fáu mánuðum er við unnum saman á löngu liðnu sumri. Við vorum það ungir og hressir og sáum víst oft og einatt margt spaugilegt við tilveruna. Svo má líka segja að mið- að við nútíma hafi vinnubrögðum í flugstarfsemi í þá daga um margt svipað til „fornra búskaparhátta“. Aldrei fór á milli mála að hugur Björns stefndi til hámennta og fræða. Eftir nám með erlendum þjóðum var hann undra ungur skip- aður prófessor í sínu fagi. Er hann dvaldi í Chicago minnir mig að fá- einar smánótur færu á milli. Þá voru stórveldin að þrátta um Kúbu og mannkyninu talin trú um að at- ómbombur dyttu í hausinn á því þá og þegar. Eiginlega hálfvorkenndi ég stráknum að vera að þvælast þarna á þessum líka „voðatímum“. Ekki veit skrifarinn mikið um guð- fræði. Þó bar við í góðu tómi að hann laumaði spurningu og spurn- ingu að Birni um þessi efni. Vart var þó að búast við stórri rökræðu frá minni hendi. Eins gott að taka upp léttara hjal hið bráðasta. Björn var öfgalaus maður og frjálslyndur í skoðunum. Laus við ítroðslu hverju nafni sem nefnist. Hvíldu nú í friði. Þetta var góð samfylgd. Birgir Ólafsson. ✝ Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, FANNEY BENEDIKTSDÓTTIR frá Kringlu, Dalabyggð, lést að dvalarheimilinu Seljahlíð, Reykjavík, miðvikudaginn 28. maí. Skarphéðinn Jónsson, Guðrún Skarphéðinsdóttir, Kjartan Sigurðsson, Sigríður Skarphéðinsdóttir, Jóel Þorbjarnarson, Jón Skarphéðinsson, Margrét Skarphéðinsdóttir, Thor B. Eggertsson, Svanhildur Skarphéðinsdóttir, Magnús Sigurðsson, Jónas Rútsson, Kristín Viðarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar og tengdamóðir, UNNUR ÞORSTEINSDÓTTIR, Tjarnarbóli 14, lést á hjartadeild Landspítalans föstudaginn 23. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd barnabarna og barnabarnabarna, Þorsteinn Jónsson, Hildur Jónsdóttir, Gunnlaugur Baldvinsson. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EIRÍKUR SIGFÚSSON, Sóltúni 2, Reykjavík, andaðist fimmtudaginn 29. maí. Útförin verður auglýst síðar. Jens Magnússon, Anna Hannesdóttir, Kristbjörn Eiríksson, Aldís Óskarsdóttir, Sigfús Eiríksson, Hanna Garðarsdóttir, Finnur Eiríksson, Gunnhildur Hrólfsdóttir, Halla Eiríksdóttir, Fróði Jónsson, Sigríður Eiríksdóttir, Guðmundur Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR GUÐNI JÓNSSON fv. lyfsali, Flókagötu 33, Reykjavík, lést á heimili sínu aðfaranótt fimmtudagsins 29. maí. Fjóla Guðleifsdóttir, Leifur Sigurðsson, Katsuko Sigurðsson, Anna Sigurðardóttir, Hannes Leifsson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSA ESTER SKAFTADÓTTIR, Hrafnhólum 4, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut 28. maí, verður jarðsungin frá Háteigskirkju miðvikudaginn 4. júní kl. 13.00. Sigrún Davíðsdóttir, Jón V. Aðalsteinsson, Valgeir Jóhann Davíðsson, Ólöf María Samúelsdóttir, Sigurður Skafti Davíðsson, Kristín Inga Atladóttir, Bjarni Davíðsson, Þórdís Eva Sigurðardóttir, ömmubörn og langömmubarn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, BRYNHILDUR JENSDÓTTIR, Lækjasmára 6, Kópavogi, lést á Landspítalanum Landakoti fimmtudaginn 29. maí. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 5. júní kl. 13.00. Anna Gísladóttir, Eiríkur Þór Einarsson, Jens Gíslason, Hafdís Jónsdóttir, Brynhildur Jóna Gísladóttir, Guðjón Arngrímsson, barnabörn, barnabarnabörn, Jensína Jensdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.