Morgunblaðið - 31.05.2008, Page 37

Morgunblaðið - 31.05.2008, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 37 ✝ Jón Rósant Þor-steinsson fædd- ist í Hafnarfirði 25. apríl 1926. Hann lést á Grund að kvöldi föstudagsins 23. maí síðastliðins. Foreldrar hans voru hjónin Þor- steinn Brandsson sjómaður í Hafnar- firði, f. 9. ágúst 1883, d. 28. júní 1958, og Þóra Jóns- dóttir húsfreyja, f. 1. ágúst 1889, d. 3. desember 1979. Jón var yngstur í hópi níu systkina sem öll eru lát- in, en þau voru: Marta Steinþóra, f. 31. ágúst 1909, d. 21. júní 1984, Ólafía Dagbjört, f. 18. nóvember 1910, d. 30. nóvember 1986, Brandur, f. 21. janúar 1913, d. 7. febrúar 1933, Sólveig Bergþóra, f. 31. júlí 1915, d. 15. maí 1998, Jóna Margrét, f. 26. nóvember dóttir húsmóðir, f. 28. janúar 1894, d. 4. október 1976. Benedikt er í sambúð með Guðnýju Árna- dóttur, f. 18. janúar 1955, þau eru búsett í Hafnarfirði. Börn Bene- dikts og Hildar Eggertsdóttur, f. 30. nóvember 1954, eru Guðjón, f. 23. apríl 1980, og Ingibjörg, f. 18. október 1983. Dóttir Benedikts og Guðrúnar Sigríðar Guðlaugs- dóttur, f. 20. júlí 1944, er Sigríður Elísabet, f. 26. apríl 1986, gift Hrafni Helgasyni, f. 13. mars 1983. Börn þeirra eru Helgi, f. 27. mars 2004, og Nanna Katrín, f. 19. mars 2007. Jón Rósant ólst upp í Hafnar- firði. Hann hóf störf sem strætis- vagnabílstjóri hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli árið 1953 og vann þar alla tíð þar til hann fór á eftirlaun sjötugur að aldri, eða í 43 ár. Útför Jóns Rósants fer fram frá Útskálakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. 1917, d. 25. janúar 2003, Karl Viggó, f. 2. júlí 1919, d. 27. ágúst 1997, Guð- mundur Egill, f. 1. ágúst 1921, d. 15. júlí 1964, og Guð- bergur, f. 24. ágúst 1922, d. 11. septem- ber 1988. Sambýliskona Jóns Rósants í hart- nær hálfa öld var Magnea Svanhildur Magnúsdóttir, f. 21. nóvember 1914, d. 23. júní 2002. Sonur Jóns Rósants og Elísa- betar Benediktsdóttur, f. 31. jan- úar 1927, d. 19. apríl 2002, er Benedikt, f. 1. júlí 1951. For- eldrar Elísabetar voru hjónin Benedikt Jónasson, bóndi á Hömrum í Haukadal í Dalasýslu, f. 18. febrúar 1888, d. 14. sept- ember 1948, og Guðrún Guðjóns- Móðurbróðir minn Jón Rósant, eða Nonsi eins og hann var oftast kallaður í fjölskyldunni er látinn. Með honum hverfur í hadd jarðar síðasta barn hjónanna Þóru Jóns- dóttur og Þorsteins Brandssonar sem hófu búskap á Hóli í Garða- hverfi við upphaf síðustu aldar, við lítil efni og lélegan húsakost. Þó tókst þeim að komu til manns, öllum sínum níu börnum. Nú á skilnaðarstund stendur Nonsi í skýru ljósi, mér fyrir hug- skotssjónum. Þegar hann á bernsku- árum mínum kom að heimsækja okkur í sveitina, fannst mér hann stórkostlegur, herramaður kominn úr kaupstað greiddur og snyrtur í flottum fötum með hatt eftir nýjustu tísku, maður sem við krakkarnir bárum takmarkalausa virðingu fyr- ir. Hann var rúmum tíu árum eldri en ég og á þeim aldri er aldursmun- urinn mikill, Nonsi sautján en ég sjö. Þá átti ég bara eina ósk að geta orðið eins og Nonsi. En þrátt fyrir að ald- ursmunurinn væri mikill var Nonsi afskaplega góður við okkur krakk- ana sagði okkur sögur frá þessum merkilega stað Hafnarfirði, sem varð okkur sem dularheimur. Hann lék við okkur söng og spilaði á gít- arinn og við sátum dáleidd af hrifn- ingu. Ég minnist líka fyrstu ferðar minnar til Hafnarfjarðar til afa og ömmu á Garðavegi 7, þar ríkti mikil gleði bræðurnir sungu og spiluðu á harmonikku, gítar og mandólín en systkinin voru öll mikið músík-fólk. Nonsi söng fallegan og tæran tenór og hann minnti mig alltaf á hinn fræga ameríska stórsöngvara Mario Lanza. En tíminn leið hratt og fyrr en varði var Nonsi horfinn okkur krökkunum farinn að vinna fyrir „sunnan“ en þó vissi ég alltaf af frænda og hugsaði til hans með söknuði. Seinna á ævinni hittumst við þó annað slagið þegar ég vann um tíma hjá Ameríska varnarliðinu á Kefla- víkurflugvelli, en þeir bræður Kalli og hann unnu þar þá líka. Þá fann ég strax sömu gömlu notalegu tilfinn- inguna, hann var enn sami séntil- maðurinn og forðum. Nonsi var hlédrægur maður og hógvær sem lifði sínu lífi í kyrrð og friðsæld. Öll framkoma hans ein- kenndist af kærleika og nærgætni og aldrei hef ég séð son sýna móður sinni meiri ástúð og blíðu en hann, en þau mæðginin héldu lengi heimili saman eftir að afi dó 1958 en amma dó 1979. Nonsi eignaðist eitt barn, soninn Benedikt, 1951 með Elísabetu Bene- diktsdóttur. Benedikt var alinn upp hjá ömmu sinni á Hömrum í Hauka- dal í Dölum vestur og samskipti þeirra lítil sem engin á uppvaxtarár- um hans. En eftir að Benedikt fluttist suður leitaði hann föður sinn uppi og hefur verið honum styrk stoð og gleðigjafi í ellinni. Um miðbik ævi sinnar eign- aðist Nonsi traustan og skilningsrík- an lífsförunaut, Magnesu Svanhildi Magnúsdóttur sem hann unni og virti og held ég að þau hafi átt saman góða daga meðan entist, en hún and- aðist 2002. Jesú Kristur sagði ég lifi og þér munuð lifa. Ég hygg að hann hafi haft eitthvað fyrir sér hvað biði, handan líkamsdauðans. Ég trúi, að þó að kistan hverfi með Nonsa frænda ofan í moldina, þá standi hann akkúrat núna brosandi á sól- björtum vormorgni með foreldrum og vinum og veifi til okkar í nýjum líkama uppábúinn með Battersby- hatt. Syni og ættingjum votta ég sam- úð. Árni Valdimarsson. Hve stutt var sem treginn að sál þinni svarf og saknaðar kenndir þú unda. Já, síst hefði oss grunað er svanni þinn hvarf, að svona yrði skammt milli funda. (E. H. Kvaran.) Elskulegur frændi hefur kvatt. Nonni, yngsti bróðir pabba okkar. Að alast upp í sveit við gróðurang- an, fjósalykt og öllu því sem fylgir er yndislegt fyrir alla og áttum við systkinin því láni að fagna, þó að for- eldrar okkar væru aldrei með búfén- að. En stutt var leiðin fyrir litla fæt- ur að hlaupa frá Gerðakoti niður í Gesthús og upplifa þetta allt. Fá svo að taka egg undan hænum og blanda lýsi í kornið sem þær fengu. Eftir klapp á koll, koss á munn eða vanga var haldið heim í Gerðakot með mik- ið stolt í hjartanu að hafa gert þetta alveg einn. Þannig liðu dagar. En á sunnudögum kvað við annan tón. Hvað var að gerast í kotinu heima? Jú, Nonni frændi var kom- inn. Við þekktum bílinn hans á hlaðinu og vissum að við myndum finna öðruvísi lykt, svona „úr borg- inni“. Í stofunni sat hann, þessi sént- ilmaður í bláum jakkafötum, hvítri skyrtu, með glansandi hálstau og rauðan hring á fingri sem hélt um vindil og angaði af Old Spice. Hann settist yfirleitt í besta stólinn og naut sín. Gott að koma í sveitina til Kalla bróður og Finnu, sjá krakkana og drekka heimsins besta og sval- asta vatn. Magnea hans var alltaf með, líka svona ilmandi borgar- dama, falleg og góð. Já, alveg sér- lega falleg. Elsku Nonni frændi. Við eigum bara allt að þakka. Og farðu svo vel að hennar hlið sem hjartað þitt trygga þráði. Guðs andi veiti ykkur ennþá lið á ókunnu himinsins láði. (E. H. Kvaran.) Guð blessi Benna þinn og afkom- endur alla. Ástarkveðja, f.h. systk- inanna frá Gerðakoti. Ólöf Björg Karlsdóttir. Jón Rósant Þorsteinsson Þessi grein er rituð í minningu Heiðar Baldursdóttur sér- kennara og rithöfund- ar. Heiður hefði orðið fimmtug í dag, 31. maí. Hún lést eftir erfið veikindi 28. maí 1993 aðeins tæpra 35 ára gömul. Á skammri ævi kom hún ótrúlega miklu í verk. 18 ára lauk hún stúdentsprófi, hún lauk kenn- aranámi og BA-prófi í sérkennslu- fræðum. Við Safamýrarskóla kenndi Heiður í fimm ár. Hún hóf framhaldsnám í sérkennslufræðum í Bandaríkjunum en vannst ekki Heiður Baldursdóttir ✝ Heiður Baldurs-dóttir, kennari og rithöfundur, fæddist 31. maí 1958. Hún lést hinn 28. maí 1993. aldur til að ljúka því námi. Heiður var hug- sjóna- og fram- kvæmdakona af lífi og sál. Á unglingsárum vann hún að umönn- unarstörfum, meðal annars á Kópavogs- hæli. Hún tók virkan þátt í félagsstörfum og sat um skeið í stjórn Verkakvenna- félagsins Sóknar. Sem sérkennari sökkti hún sér niður í nám og vinnu í öllu því sem að fötl- un lýtur eins og glöggt kemur fram í skrifum hennar um þau efni. Heiður gat sér einnig gott orð sem rithöfundur, samdi sex barna- og unglingabækur og hlaut Ís- lensku barnabókaverðlaunin fyrir sögu sína Álagadalurinn 1989. Fráfall Heiðar í blóma lífsins frá eiginmanni og tveim dætrum og miklum væntingum hvatti til þess að stofnaður var Minningarsjóður Heiðar Baldursdóttur. Markmið sjóðsins er að styrkja rannsóknir sem varða sérkennslu, blöndun fatl- aðra og ófatlaðra barna og boð- skipti. Þau efni voru henni afar hugleikin. Vakin er sérstök athygli á minn- ingarsjóðnum. Sjóðurinn veitir styrki til verkefna sem varða mark- mið sjóðsins. Alls hefur sex sinnum verið veittur styrkur úr Minning- arsjóði Heiðar Baldursdóttur. Stjórn sjóðsins skipa fulltrúar frá Kennarasambandi Íslands, Kennaraháskólanum og Þroska- hjálp. Í tilefni af 50 ára afmæli Heiðar verður veittur veglegur styrkur úr sjóðnum nú í sumarbyrj- un. Heiði varð ekki langra lífdaga auðið. Megi hugsjónir hennar lifa í verkum styrkþega sjóðsins sem stofnað var til í minningu hennar. Baldur Ragnarsson. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýju og vinarhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, dóttur og tengda- dóttur, AUÐAR EGGERTSDÓTTUR deildarstjóra, Flúðaseli 18, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við læknum, hjúkrunarfólki og öllum þeim sem önnuðust hana af mikilli alúð í veikindum hennar. Gunnar Jóhannsson, Jóhann Gunnarsson, Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, Kári Gunnarsson, Oddur Ævar Gunnarsson, Eggert Oddur Össurarson, Guðrún Sigurðardóttir, Sólveig Gunnarsdóttir, systkini og aðrir vandamenn. ✝ Elskuleg móðir okkar, INGIBJÖRG HALLDÓRA JÓELSDÓTTIR, lést á Sóltúni hjúkrunarheimili að kvöldi fimmtudagsins 29. maí. Valgeir Ástráðsson, Sigurður Ástráðsson, Herdís Ástráðdóttir. ✝ Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalang- ömmu, ARNBJARGAR HERMANNSDÓTTUR, Ólafsbraut 30, Ólafsvík, sem andaðist miðvikudaginn 16. apríl. Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Jaðars í Ólafsvík fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Gylfi K. Magnússon, Guðrún Blöndal, Elísabet Magnúsdóttir Björg Magnúsdóttir, Einar Kristjánsson, Hermann Magnússon, Svanhildur Pálsdóttir, Trausti Magnússon, Jóhanna K. Gunnarsdóttir, Steinþór Magnússon, Sigrún Harðardóttir, Ágústa Magnúsdóttir, Jón Guðmundsson, Svanur Magnússon, María S. Pétursdóttir, Kristín Magnúsdóttir, Jón Axelsson, ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS INGVARSSONAR bónda, Skipum, Stokkseyrarhreppi, Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Kumbara- vogs. Ingigerður Eiríksdóttir, Gísli Vilhjálmur Jónsson, Herdís Hermannsdóttir, Móeiður Jónsdóttir, Ólafur Benediktsson, Ragnheiður Jónsdóttir, Vilhjálmur Vilmundarson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR frá Hofstöðum Garðabæ, fyrrum hjúkrunarforstjóri heilsugæslustöðinni Ísafirði, sem lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ miðvikudaginn 28. maí, verður jarðsungin frá Vídalínskirkju föstudaginn 6. júní kl. 15.00. Egill Þórólfsson, Petrea Hallmannsdóttir, Þórgunnur Þórólfsdóttir, Halldór Þórólfsson, Þórný M. Heiðarsdóttir, Sigrún Þórólfsdóttir, Björgvin Árnason, Gísli Örn Þórólfsson, Jeannette Castioni, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.