Morgunblaðið - 31.05.2008, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 31.05.2008, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MESSUR Á MORGUN, SJÓMANNADAGINN AKRANESKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta kl. 11. Sjómaður heiðraður. Minningarstund um látna sjó- menn í kirkjugarðinum kl. 10. AKUREYRARKIRKJA | Fermingarmessa í dag, laug- ardag, kl. 10.30. Sr. Svavar Alfreð Jónsson, sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson og sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja, organisti Arnór B. Vilbergsson. Ferming- armessa kl. 12. Fermdur verður Gunnar Þorbjörn Gunnarsson. Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Óskar Hafsteinn Ósk- arsson. Ræðumaður Konráð Alfreðsson formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, Kvennakór Akureyrar syngur, organisti Arnór B. Vilbergsson. Helgistund kl. 20.30. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir, Inga Eydal syngur og leiðir söng. ÁRBÆJARKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Þór Hauks- son þjónar fyrir altari. Krizstina Kalló Szklenár org- anisti. Fermd verður Alexandra Líf Atladóttir. Kirkju- kórinn leiðir almennan safnaðarsöng. Kirkjukaffi á eftir. ÁSKIRKJA | Messa kl. 11 á sjómannadaginn. Sókn- arprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Mar- gréti Svavarsdóttur djákna. Kór Áskirkju syngur, org- anisti Bjartur Logi Guðnason. Kaffisopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir, kór Breiðholtskirkju syngur, organisti Julian Isaacs. Kaffisopi í safnaðarheimili eftir messu. BÚSTAÐAKIRKJA | Sjómannamessa kl. 11. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra prédikar. Þetta verður „léttmessa“ með léttum sumar- og sjó- mannalögum. Félagar úr kór Bústaðakirkju syngja og Karl Olgeirsson verður við flygilinn. Eftir messu er kaffi og Sæmundur á sparifötunum mætir. Sjó- menn, verið velkomnir með fjölskyldum ykkar í sjó- mannamessuna. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Gunnar Sig- urjónsson þjónar fyrir altari og sr. Guðmundur Karl Brynjarsson prédikar. Organisti Bjarni Þ Jón- atansson, kór Digraneskirkju, B hópur. www.digra- neskirkja.is. DÓMKIRKJAN | Hátíðarmessa kl. 11. Biskup Ís- lands prédikar, sr. Hjálmar Jónsson þjónar fyrir alt- ari. Dómkórinn syngur, organisti er Marteinn Frið- riksson. Sjóliðar Landhelgisgæslu lesa ritningartexta. Messunni er útvarpað. EYRARBAKKAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. FELLA- og Hólakirkja | Messa kl. 11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Fermdur verður Einar Kristinn Kristgeirsson. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir almenn- an safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur kantors kirkjunnar. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Hátíðarguðsþjónusta kl. 11 á 100 ára afmæli Hafnarfjarðarbæjar. Hörður Zóphaníasson fyrrv. skólastjóri prédikar, Gunnar Svavarsson þingmaður, Almar Grímsson bæj- arfulltrúi og Hjördís Guðbjörnsdóttir, formaður safn- aðarstjórnar, lesa ritningarorð. Fríkirkjukórinn syng- ur og Örn Arnarson syngur einsöng. FRÍKIRKJAN Kefas | Almenn samkoma kl. 20. Helga R. Ármannsdóttir prédikar, lofgjörð og fyr- irbænir. Kaffi og samvera á eftir. Grillveisla og sam- vera verður 8. júní, skráning í síma 564-1124. www.kefas.is FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingar- og skírn- armessa kl. 14. Fermd verður Rósa Björt Bragadótt- ir, Bauganesi 12, Reykjavík. Barn verður borið til skírnar. Hjörtur Magni Jóhannsson prédikar og þjón- ar fyrir altari og Skapti Ólafsson söngvari syngur sjómannalög. Tónlistarstjórarnir Anna Sigga og Carl Möller leiða tónlistina. GRAFARHOLTSSÓKN | Sjómannakvöldmessa kl. 20 í Þórðarsveig 3. Ath. breyttan messutíma. Prestur sr. Sigríður Guðmarsdóttir, organisti Hrönn Helga- dóttir, kór Grafarholtssóknar syngur. GRAFARVOGSKIRKJA | Hátíðahöld sjómannadags- ins hefjast kl. 10.30 með helgistund við fornt naust, bátalægi sem er fyrir neðan kirkjuna. Fé- lagar úr Björgunarsveitinni Ársæli í Reykjavík taka þátt. Innsetningarguðsþjónusta er kl. 11. Sr. Guð- rún Karlsdóttir, nýkjörinn prestur í Grafarvogssöfn- uði verður sett inn í embætti af sr. Gísla Jónassyni prófasti. Sr. Guðrún prédikar og þjónar fyrir altari ásamt prestum safnaðarins. Kórar kirkjunnar syngja, organisti er Aðalheiður Þorsteinsdóttir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta fyrir alla fjölskylduna á 100 ára afmæli Hafnarfjarð- arbæjar kl. 11. Prestar: sr. Gunnþór Ingason og sr. Þórhallur Heimisson, prédikun Sigurjón Pétursson, formaður sóknarnefndar. Kantor Guðmundur Sig- urðsson. Kórar: Barbörukórinn og Unglingakór undir stjórn Helgu Loftsdóttur við undirleik Önnu Magn- úsdóttur, fiðluleikari Hjörleifur Valsson, hljómsveitin Gleðigjafar leikur. Fulltrúar Kvenfélags og Æskulýðs- félags flytja ritningarorð og kirkjuþjónn er Ingólfur H. Ámundason. Útihátíð og grillveisla verður á Kirkjutorginu. Harmonikkuleikur og leiktæki. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Birgir Ás- geirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Félagar úr Mótettukórnum syngja, organisti er Hörður Áskelsson. Sögustund fyrir börn- in í umsjá Rósu Árnadóttur. Að lokinni guðsþjón- ustu er boðið upp á kaffisopa í safnaðarheimilinu. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. María Ágústsdóttir, organisti Douglas A. Brotchie. HJALLAKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Íris Kristjáns- dóttir þjónar, félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng, organisti Smári Ólason. Bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. hjallakirkja.is HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Fjölskyldu- samkoma kl. 11. HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Samkoma kl. 20 í umsjá Áslaugar K. Haugland. Bænastund á þriðju- dögum kl. 20. Kvöldvaka með happdrætti og veit- ingum fimmtudag kl. 20. Opið hús kl. 16-17.30 þriðjudaga til laugardaga. HRAFNISTA | Biskup Íslands vísiterar Hrafnistu í Reykjavík. Guðsþjónusta kl. 14. Herra Karl Sig- urbjörnsson biskup prédikar, organisti Bjartur Logi Guðnason. Kórfélagar úr Áskirkjukórnum syngja ásamt Hrafnistukórnum, einsöng syngur Sesselja Kristjánsdóttir messósópran. Ritningarlestra lesa Árni Vésteinsson og Grímkell Arnljótsson frá Land- helgisgæslunni. Prestur sr. Svanhildur Blöndal. HRÍSEYJARKIRKJA | Sigling í dag, laugardag, kl. 10 og guðsþjónusta að henni lokinni um kl. 11.15. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Brauðsbrotning kl. 11, ræðumaður Samúel Ingimarsson. Int- ernetional church at 12.30 pm, service in the cafe- teria. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Hafliði Kristinsson, Gospelkór Fíladelfíu leiðir lof- gjörð. ATH. barnakirkjan er í fríi í sumar. INNRA-Hólmskirkja | Guðsþjónusta kl. 14. Kirkjukór Saurbæjarprestakalls, organisti Örn Magnússon, sr. Skírnir Garðarsson prédikar og þjónar fyrir altari. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl. 20 með lof- gjörð og fyrirbænum. Boðunarhópur kirkjunnar segir frá væntanlegri boðunarferð. Friðrik Schram prédik- ar. Einnig verður heilög kvöldmáltíð. www.kristur.is KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sókn- arprestur sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari, félagar úr kór Kópavogskirkju syngja og leiða safnaðarsöng, organisti og kórstjóri Lenka Mátéová. LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta á Landakoti kl. 14 á stigapalli á 2. hæð. Prestur sr. Ingileif Malmberg og organisti er Ingunn Hafdís Hauksdóttir. LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Eitt barn fermt. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson, félagar úr Kamm- erkór Langholtskirkju syngja, organisti Þórður Sig- urðsson. Kaffisopi eftir messu. LAUGARNESKIRKJA | Fermingarmessa kl. 11. Kvöldmessa kl. 20. Fulltrúar 12 spora hópa flytja bænir og greina frá reynslu sinni. Sóknarprestur þjónar ásamt meðhjálpara, organista og kór kirkj- unnar. Messukaffi. Hvern sunnudag fram á mitt sumar verður messað kl. 20 auk þess sem kyrrð- arstundir verða á fimmtudagshádegi. LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjukór Lágafellssóknar, organisti Jónas Þórir og prestur er sr. Jón Þorsteinsson. LEIRÁRKIRKJA Melasveit | Guðsþjónusta kl. 11. Afleysingaprestur þjónar, organisti er Örn Magn- ússon og kirkjukórinn syngur. LINDASÓKN Kópavogi | Guðsþjónusta Linda- og Digranessafnaða í Digraneskirkju kl. 11. Sr. Gunnar Sigurjónsson þjónar fyrir altari og sr. Guðmundur Karl Brynjarsson prédikar. MÖÐRUVALLAKIRKJA | 50 ára fermingarbörn ætla að fagna við messu kl. 14. Átt þú 10 ára, 20 ára, 30 ára, 40 ára eða jafnvel 60 ára ferming- arafmæli? fagnaðu með þeim. Kaffi í Leikhúsinu á eftir. NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr Kór Nes- kirkju leiða safnaðarsöng, organisti Steingrímur Þór- hallsson, sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og spjall eftir messu. SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni | Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 14. Almennur safnaðarsöngur undir stjórn Sigrúnar Steingrímsdóttur organista. Kristinn Ágúst Friðfinnsson. SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17. ,,Stefnur og straumar í bandarísku kirkjulífi.“ Frásögn í um- sjón ferðalanga. Lofgjörð og fyrirbæn. SELFOSSKIRKJA | Sjómannadagsmessa kl. 11. Kristinn Ágúst Friðfinnsson. SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar, kirkjukórinn leiðir söng, Jón Bjarnason spilar á orgelið. Altarisganga. Ath. breytt- an messutíma. SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Sigurvin Jónsson guðfræðingur og um- sjónarmaður í æskulýðsstarfi Neskirkju. Félagar úr Kammerkór kirkjunnar leiða safnaðarsöng, stjórn- andi Friðrik Vignir Stefánsson og mun hann einnig leika sjómannalög á harmónikku. Pavol Cekan syng- ur stólvers. Prestur Sigurður Grétar Helgason. SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir altari og prédikar, organisti er Ester Ólafsdóttir, ritningarlestra les Valgeir F. Back- man. Meðhjálparar eru Eyþór Jóhannsson og Erla Thomsen. Almennur safnaðarsöngur. STOKKSEYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. STRANDARKIRKJA | Messa á sjómannadag kl. 13.30. Helgisagan um kirkjuna rifjuð upp. Organisti Hannes Baldursson, prestur Baldur Kristjánsson. kirkjan.is/strandarkirkja STÆRRA-Ársskógskirkja | Guðsþjónusta kl. 14. VEGURINN kirkja fyrir þig | Bænastund kl. 18.30. Samkoma kl. 19. Högni Valsson prédikar. Lofgjörð, fyrirbæn og samfélag í kaffisal á eftir. www.veg- urinn.is VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Nönnu Guðrúnu Zöega djákna. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar org- anista. Hressing í safnaðarheimilinu að lokinni messu. Sjá www.gardasokn.is VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Minningarstund kl. 10.45 við altari sjómannsins. Blómsveigur lagður að minnismerkinu. Sjómannadagsmessa kl. 11 á 100 ára afmæli Hafnarfjarðar. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur og Sigurður Skagfjörð syngur einsöng. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Lát- inna sjómanna minnst. Fermingarárgangur 1938 í Keflavíkurkirkju færir kirkjunni gjöf til minningar um fermingarsystur þeirra Sigrúnu Einarsdóttur frá Borg sem lést 28. desember 2007. Kór kirkjunnar syng- ur undir stjórn Gunnhildar Höllu Baldursdóttur org- anista. Meðhjálpari er Ástríður Helga Sigurðardóttir. ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14. Organisti Guð- mundur Vilhjálmsson, prestur sr. Kristján Valur Ing- ólfsson. ÞORLÁKSKIRKJA | Sjómannadagsmessa kl. 11. Blómsveigur lagður að minnisvarða um sjómenn að messu lokinni. Organisti Hannes Baldursson, prest- ur Baldur Kristjánsson, kirkjukór Þorlákskirkju .kirkj- an.is/thorlakskirkja Orð dagsins: Hin mikla kvöldmáltíð. (Lúk. 14) Morgunblaðið/Júlíus Víðistaðakirkja. JÓNAS P. ERLINGSSON sem lést þann 18. maí sl. var ekki tíður gestur á skákmótum síðustu árin þó honum brygði stundum fyrir við sér- stök tækifæri og varði stundum heið- ur Taflfélags Garðabæjar á Íslands- móti skákfélaga. Hann var því lítt þekktur meðal yngri skákmanna þjóðarinnar og hafði haslað sér völl á öðrum vettvangi; varð Íslandsmeist- ari í brids og snóker. En á áttunda áratug síðustu aldar átti skákin hug Jónasar allan og hann var tvímæla- laust í hópi bestu ungu skákmanna þjóðarinnar. Hann tryggði sér sæti í landsliðsflokki aðeins 17 ára gamall og tefldi í þeim flokki á Skákþingi Ís- lands 1976. Það sumar dvöldum við Jónas á heimili þeirra ágætu konu Önnu Guðmundsdóttur á Long Isl- and. Hún var dóttir Guðmundar Ágústssonar bakarameistara og skákjöfurs, eftirminnilegs persónu- leika í íslensku skáklífi. Ég hygg að þetta sumar hafi Jónas farið mest fram í skákinni. Við tefldum á ýmsum mótum og Jónas var í verðlaunasæti á World Open á Rosewelt-hótelinu og á sterku hraðskákmóti í Marshall- skákklúbbnum í New York vakti hann mikla athygli er lagði hann sjálf- an Samuel Reshevsky að velli. Jónas var ekki eins mik- ið gefinn fyrir fræðilega þáttinn og ýmsir aðrir en treysti meira á keppnisskapið og óvenjulega hag- sýna afstöðu þeg- ar til leiks var gengið. En þetta sumar var varla annað að sýsla en að bæta sig á fræðilega sviðinu og á nokkrum vikum eftir heimkomuna var Jónas í toppbaráttunni á Haust- móti TR; aftur á Skákþingi Reykja- víkur 1977 og var valinn í landslið Ís- lands fyrir 6 landa keppnina í Glucksburg í Þýskalandi haustið 1977. Hann fékk 60% vinningshlutfall á sínu borði og var ekki síður góður liðsmaður milli umferða. Fundum okkar bar fyrst saman á Skákþingi Ís- lands í Sjómannaskólanum 1971 og á Haustmóti TR 1973 hafði hann þegar markað sér nokkra sérstöðu með hin- um hógværa byrjunarleik, 1. b3, sem kenndur hefur var við danska stór- meistarann Bent Larsen. Í 2. umferð Opna mótsins í Lone Pine 1978 lá fyr- ir að Jónas P. Erlingsson myndi tefla við þann skákmann sem hann dáði mest, Bent Larsen. Danski stórmeist- arinn var kominn til að vinna þetta mót en í 1. umferð hafði hann beðið lægri hlut fyrir lítt þekktum breskum skákmanni, Jonathan Speelman. Jón- as gerði þá jafntefli við Jack Peters og hafði nú svart gegn Larsen. Skákin er undirrituðum minnisstæð fyrir þá miklu baráttu sem þar fór fram. Árið 1978 hafði Larsen þrjá sigra á milli- svæðamóti á ferilskrá sinni og hafði teflt á 1. borði í heimsliðinu gegn Sov- étríkjunum árið 1970. Lengi vel komst hann ekkert áfram gegn þess- um 19 ára gamla keppnismanni. En þegar jafnteflið virtist í höfn tók Jón- as eina vitlausa beygju og varð að játa sig sigraðan eftir magnaða baráttu: Lone Pine 1978; 2. umferð: Bent Larsen – Jónas P. Erlingsson Enskur leikur 1. Rf3 Rf6 2. c4 c5 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e3 Rc7 6. d4 e6 7. Bd3 Rd7 8. O–O Be7 9. Dc2 exd4 10. exd4 h6 11. Bf4 O–O 12. Hac1 Rf6 13. Dd2 Rfd5 14. Bxc7 Mannsfórnin 14. Bxh6 leiðir aðeins til jafnteflis; 14. … gxh6 15. Dxg6 f5 og hvítur verður að taka þráskák. 14. … Rxc7 15. Bc2 Rd5 16. Dd3 g6 17. Rxd5 exd5 18. Re5 Db6 19. Bb3 Bf5 Lakara er 19. … Be6 vegna 20. Rxg6! fxg6 21. Dxg6+ Kh8 22. Dxh6+ Kg8 23. Dg6+ Kh8 24. Hc3 og vinnur. 20. Dd2 Bg5 21. f4 Bf6 22. Hc5 Be7 23. Hxd5 Be6 24. Rd7 Bxd7 25. Hxd7 Bb4 26. De3 Had8 27. Dh3 Bd2 28. Hd1 Bxf4 29. Hf1 Hxd7 30. Dxd7 Vendipunkturinn í skákinni. Leiki svartur nú 31. … Dc7 er ekki nokkur leið fyrir hvítan að tefla til vinnings. 30. … Df6 31. Hf3 Dd6 32. Dxd6 Bxd6 33. Hf6 Be7 34. Hxg6+ Kh7 35. Hg4 f5 36. Hf4 Bg5 Þó svartur eigi enn allgóða jafn- teflismöguleika þá er Larsen nú kom- inn yfir það versta og á svæði sem hann þekkti afar vel: stöður með mis- litum biskupum þurfa ekki að vera sérlega jafnteflislegar sé hrókum til að dreifa. 37. Hf3 Bf6 38. d5 Bxb2 39. Bc2 Bd4+ 40. Kf1 Bc5 41. Bxf5+ Kg7 42. g4 b6 43. Ke2 Kf6 44. Hh3 Hh8 45. Be6 Be7 46. Hf3 Ke5 47. He3+ Kd4 48. Hh3 Ke5 49. Kd3 Bg5 50. Hh5 Kd6 51. h4 Bf6 52. Ke4 b5 53. Kf5 Bc3 54. Kg6 a5 55. Hxh6 Hxh6 56. Kxh6 b4 57. g5 a4 58. Bf5 – og svartur gafst upp. Larsen varð ekki stöðvaður eftir þennan sigur. Hann hlaut 6 ½ vinning í þeim skákum sem hann átti eftir og varð einn í efsta sæti, ½ vinningi fyrir ofan Lev Polugajevskí. Einn situr og sigrar Þegar tefldar hafa verið sex um- ferðir á Bosníu-Sarajevo mótinu er Alexander Morosevits næstum því eini keppandinn sem unnið hefur skák ef undan er skilinn sigur Kúb- verjans Lenier Dominguez á heima- manninum Predojevic í 1. umferð mótsins. Góðkunningjar íslenskrar skákhreyfingar Sergei Movsesian, sem teflt hefur fyrir Helli mörg und- anfarin keppnistímabil, og Ivan Soko- lov, sem var afar virkur þátttakandi á íslenskum skákmótum um langt skeið, hafa enn ekki náð sigri og báðir tapað fyrir hinum kynngimagnaða Morosevits. Ivan Sokolov hefur aftur flutt til Sarajevo þó hann sé enn hol- lenskur ríkisborgari. Hann hefur ávallt staðið sig vel á þessu móti. Sex skákmenn tefla tvöfalda umferð og hefur Morosevits náð forystu sem ósennilegt er að hann láti af hendi: 1. Alexander Morosevits ( Rúss- land ) 5 v. (af 6) 2. Lenier Dominguez (Kúba) 3 ½ v. 3. – 5. Ivan Sokolov (Holland) , Sergei Movsesian (Sló- vakía) og Artyon Timofeev ( Rússland ) 2 ½ v. 6. Borki Predojevic ( Bosnía ) 2 v. Keppnismaðurinn mikli Jónas P. Erlingsson SKÁK Jónas P. Erlingsson 1958 – 2008 Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.