Morgunblaðið - 31.05.2008, Síða 43

Morgunblaðið - 31.05.2008, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 43 Félagsstarf Aflagrandi 40 | Kaffi og dagblaðalestur í Króknum 11. Há- degismatur. Félag eldri borgara í Kópavogi | Félagsvist fellur niður í Gjábakka til 6. júní vegna breytinga en verður haldin í Gull- smára eftirfarandi daga: 2. júní kl. 20.30, 4. júní kl. 13 og 6. júní kl. 20.30. Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10. Gerðuberg, félagsstarf | Alla virka daga kl. 9-16.30 er op- ið m.a vinnustofur, spilasalur o.fl. Miðvikud. 4. júní er Kvennahlaup ÍSÍ. Mæting í Gerðubergi kl. 12.30, Þorvaldur Jónsson leikur á harmonikku o.fl. Ólöf Guðný Valdimars- dóttir aðstoðarmaður borgarstjóra ræsir hlaupið kl. 13. Skráning á staðnum og sími 575-7720. Hæðargarður 31 | Opið kl. 9-16 virka daga. Fastir liðir eins og venjulega. Mogginn og kaffi, hádegisverður og kaffi. Fé- lagsvist alla mánudaga í sumar kl. kl. 13.30. Uppl. í síma 568-3132, asdis.skuladottir@reykjavik.is Seljahlíð | Sýning á handverki heimilismanna verður á morgun, sunnudaginn1. og 2. júní kl. 13.30-17. Einnig verð- ur kaffihlaðborð, verð 1.000 kr. Vitatorg, félagsmiðstöð | Landnámssetrið í Borganesi verður skoðað fimmtudaginn 5. júní kl. 13. Ekið um Hval- fjörð í Borgarnes. Kaffiveitingar. Ekið til baka um göngin. uppl. og skráning í síma 411-9450. Kirkjustarf Seljakirkja | Frá og með 1. júní til og með 31. ágúst n.k. breytist guðsþjónustutími Seljakirkju. Þá verða kvöld- messur hvert sunnudagskvöld kl. 20. Orð Guðs í bland við tónlist og uppbyggilegt samfélag kirkjunnar. dagbók Í dag er laugardagur 31. maí, 152. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Og hann mun senda út englana og safna sínum útvöldu úr áttunum fjórum, frá skautum jarðar til him- inskauta. (Mk 13, 27.) Námsstefna um Aspergers-heilkenni og kynheil-brigði verður haldin áGrand hóteli dagana 3. og 4. júní. Að námstefnunni standa Umsjónarfélag einhverfra og Grein- ingar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Laufey I. Gunnarsdóttir er einn skipuleggjenda námsstefnunnar. „Aspergersheilkenni er fötlun á ein- hverfurófi, og birtist einkum í erfið- leikum í félagslegum samskiptum og óvenjulegri – og oft áráttukenndri – hegðun eða yfirþyrmandi áhuga á af- mörkuðum hugðarefnum,“ útskýrir hún. „Einkennin geta verið mismikil hjá einstaklingum. Sumir hafa væg einkenni og geta lifað á nokkuð eðli- legan hátt með fötluninni, en aðrir hafa hamlandi einkenni og geta ekki stundað vinnu né séð um sig sjálfir.“ Laufey segir einstaklinga með Aspergersheilkenni geta átt erfitt með kynferðisleg samskipti eins og önnur félagsleg samskipti. Sumir eru einnig óöruggir með kynhneigð sína. „Kynferðislegar þarfir þeirra eru ekki öðruvísi en hjá öðru fólki, en einstaklingar með Aspergersheil- kenni þurfa uppskriftir að viðeigandi hegðun í ákveðnum aðstæðum, því annars er hætt við að þeir bæði mis- skilji skilaboð frá umhverfinu, og að annað fólk misskilji gjörðir þeirra,“ segir hún. „Margir með Aspergers- heilkenni fá sína kynfræðslu í al- menna skólakerfinu, en sú fræðsla sem þar er veitt skilar sér ekki til þeirra með sama hætti og hún skilar sér til annarra unglinga.“ Að sögn Laufeyjar er um tölu- verðan vanda að ræða: „Aftur og aft- ur koma upp mál þar sem kærur eru jafnvel að fara af stað, vegna þess að einstaklingur með Aspergersheil- kenni skilur ekki hvaða hegðun er óviðeigandi.“ Leiðbeinandi á námsstefnunni er dr. Isabelle Heanault frá Háskólan- um í Montreal: „Hún hefur sérhæft sig í starfi og rannsóknum á kynheil- brigði og kynfræðslu einstaklinga með Aspergersheilkenni. Hún segir okkur bæði frá ýmsum mikilvægum atriðum er snúa að kynheilbrigði ein- staklinga með Aspergersheilkenni og kennir jafnframt til hvaða að- gerða þarf að grípa til og íhlutunar til að efla færni í félagslegum sam- skiptum sem liggja til grundvallar því að vera kynvera.“ Nánari upplýsingar og skráning eru á slóðinni ww.greining.is Heilsa | Fjallað um kynheilbrigði einstaklinga með Aspergersheilkenni Skilja ekki skilaboðin  Laufey I. Gunnarsdóttir fæddist í Reykja- vík 1954. Hún lauk prófi frá Þroskaþjálfa- skóla Íslands 1979, dipl.ed. í uppeldis- og menntunar- fræðum frá KHÍ 2003 og stundar nú meistaranám við HÍ. Laufey starf- aði í Svíþjóð 1995 til 2000, hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur 2002- 2005 og hefur frá 2004 starfað á Greiningar- og ráðgjafarstöð rík- isins. Eiginmaður Laufeyjar er Guðmundur Karl Snæbjörnsson heimilislæknir og eiga þau fjögur börn og þrjú barnabörn. Tónlist Breiðholtskirkja | Sönghópurinn Norður- ljós heldur vortónleika kl. 17. Á efnisskrá verða: Svíf þú blær, Brimströndin heima, Við eigum samleið, Á Sprengisandi, Krum- mavísa og Radetzky March. Einsöngvarar Unnur Carlsdóttir, Jón G. Davíðsson. Stjórnandi Julian E. Isaacs. Undirleikari Tómas Guðni Eggertsson. Aðgangseyrir er 1.000 kr. Kirkjukór Seljakirkju | Kórinn mun syngja fyrir hönd Íslands á Íslendingahátíðinni í Kanada í ágúst í sumar. Þar mun kórinn flytja blandaða dagskrá af íslendskum sönglögum og lögum eftir Vestur- Íslendinga. Kórinn mun flytja Kanadadags- krána í Seljakirkju í dag kl 17. Stjórnandi er Jón Bjarnason. Mannfagnaður Hrafnista í Reykjavík og Hafnarfirði | Sjó- mannadagurinn verður haldinn hátíðlegur á morgun, 1. júní á Hrafnistu. Í tilefni dagsins er sýning og sala á handverki heim- ilismanna. Einnig fer fram kaffisala á heim- ilunum. Hvetjum við ættingja, aðstand- endur og vini heimilismanna að líta inn. Myndlist Eyjafjörður | Sýningin Staðfugl-Farfugl er útisýning sem opnuð var í maí og stendur til 15. september. Um 30 einstaklingar, ís- lenskir og erlendir, sýna 40 verk víðsvegar við Eyjafjarðarbraut eystri og vestri. Hug- myndin er byggð á þeim breytingum sem verða meðfram þjóðvegum landsins á vor- in. Grafíksafn Íslands | Einkasýning á verkum Bjarna Hinrikssonar var opnuð í gær. Sýn- ingin nefnist Atlantik Diving og sam- anstendur annars vegar af myndum unnum í silkiþrykk og djúpþrykk og hins vegar af stafrænt prentuðum myndum. Sýningin stendur til 15. júní og er opin fimmtudaga til sunnudaga kl. 14-18. Safnaðarheimili Háteigskirkju | Faðir Jo- vica, serbneskur listamaður sem einnig er prestur í serbnesku rétttrúnaðarkirkjunni, verður með íkonasýningu í þremur kirkjum í júní, safnaðarheimili Háteigskirkju, Skál- holtskirkju og Glerárkirkju á Akureyri. Í upphafi verður flutt í kirkjunni sjálfri stutt lofgjörð á kirkjuslafnesku, ensku og ís- lensku sem nefnist akaþist. Sýningin í Há- teigskirkju opnar í dag kl. 12 og stendur til 8. júní. Opið verður kl. 12-16 um helgar og til kl. 18 á virkum dögum. Kaffifélagið Skólavörðustíg 10. | Hanna Margrét Einarsdóttir (f. 1973) opnar sýn- Þjótandi | Skoðunar- og fræðsluferð í landi Þjótanda að fornminjauppgreftri á bakka Þjórsár. Stutt ganga, mæting kl. 18 á gömlu brúnni yfir Þjórsá. Söfn Minjasafnið á Akureyri | Sumarsýningin „Hvað er í matinn?“ opnar í dag kl. 14. Hvernig geymdi fólk mat? Hvað var hægt að kaupa í matinn og hvað gat fólkið búið til sjálft? Tínir maður jarðepli af trjánum? Svörin við þessum spurningum og mörgum öðrum finnur þú á sýningunni. Fyrirlestrar og fundir Hjálpræðisherinn í Reykjavík | Ársfundur Félags múslima á Íslandi verður haldinn í húsnæði Hjálpræðishersins í Reykjavík sunnudaginn 1. júní kl. 13. Frístundir og námskeið www.ljosmyndari.is | Tveggja daga ljós- myndanámskeið, (2 x 4 klst.) þar sem farið er í helstu stillingar á stafrænu myndavél- inni, gefin ráð varðandi almennar mynda- tökur og tölvumál. Leiðbeinandi er Pálmi Guðmundsson. Námskeiðsgjald er 14.900 kr. Skráning og uppl. á www.ljosmyndari.is ingu á kaffigræjum úr postulíni í dag kl. 16, í tilefni af eins árs afmælis staðarins. Hanna stundar nám í „Mótun“ í Myndlistarskól- anum í Reykjavík. Uppákomur Ljósmyndaskólinn | Útskriftarsýning 1. árs nemenda Ljósmyndaskólans opnar í dag kl. 15. Ljósmyndaskólinn sem áður hét Ljós- myndaskóli Sissu hefur verið starfræktur síðan 1997 og er staðsettur að Hólmaslóð 6, Örfirisey, Reykjavík. Sýningin stendur til 8. júní og er opin kl. 16-20 virka daga en 14- 20 um helgar. Nánari uppl. www.ljosmynda- skolinn.is Fréttir og tilkynningar GA-fundir (Gamblers Anonymous) | Ef spilafíkn er að hrjá þig eða þína aðstand- endur er hægt að fá hjálp með því að hringja í síma 698-3888. Kaffifélagið | Ár verður liðið frá opnun Kaffifélagsins á Skólavörðustíg 1. júní og af því tilefni er vinum og velunnurum góðs kaffis boðið til fagnaðar í dag, laugardag á kl. 16-18. Hanna Margrét Einarsdóttir opnar sýningu á kaffigræjum úr postulíni og boðn- ar verða léttar veitingar. FYRR á þessu ári átti Kvenfélag Garðabæjar 55 ára afmæli. Félagið vildi minnast þessara merku tímamóta á veglegan hátt og var ákveðið að gefa tvö sjúkrarúm til kvenlækningadeildar 21A á LSH. Rúmin eru með þeim bestu sem völ er á í dag. Afhendingin fór fram 20. maí sl. Á myndinni eru stjórnarkonur félagsins og starfsfólk sjúkrahússins. Gáfu LSH sjúkrarúm FÉLAG lífeindafræðinga (FL) og Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ) hafa gert með sér samstarfs- samning um símenntun lífeinda- fræðinga. Samkvæmt samningnum verða til- lögur um efni og efnistök námskeiða unnar í sameiningu sem og þróun en allt utanumhald er í höndum EHÍ. Leitast verður við að bjóða sem flest námskeið í fjarkennslu til að líf- eindafræðingar á landsbyggðinni geti tekið þátt.Verðlagning er í lág- marki og félagsmenn FL fá einnig valin námskeið úr framboði EHÍ á sérstökum afsláttarkjörum, segir í fréttatilkynningu. Samningurinn var undirritaður nýverið og undirrituðu hann fyrir hönd samstarfsaðila þær Kristín Hafsteinsdóttir, formaður Félags líf- eindafræðing,og Kristín Jónsdóttir, forstöðumaður Endurmenntunar HÍ. Samstarf Kristín Hafsteinsdóttir, formaður FL, Erna Guðrún Agnarsdóttir, námsstjóri EHÍ, Kristín Jónsdóttir, forstöðumaður EHÍ, Martha Á. Hjálm- arsdóttir, lektor við HÍ og fræðslustjóri á sýklafræðideild LSH, og Hólm- fríður Hilmarsdóttir, formaður Endurmenntunarnefndar FL. FL og EHÍ í samstarf FRÉTTIR TÓNLISTARHÁTÍÐINNI Björtum sumarnóttum sem halda átti í Hveragerðiskirkju nú um helgina hefur verið aflýst vegna jarðskjálft- anna sem riðu yfir Suðurland á föstudag. Menningarmálanefnd Hveragerðis tók ákvörðun um að blása hátíðina af að höfðu samráði við almannavarnanefnd Hvera- gerðis og sýslumann Árnessýslu. Tónlistarhátíð aflýst í Hveragerði ERIC W. Rothenbuhler, prófessor við fjölmiðla- og boðskiptadeild Texas A&M University, heldur opinberan fyrirlestur í boði fé- lagsvísindadeildar Háskóla Ís- lands í stofu 101 í Odda mánu- daginn 2. júní næstkomandi kl. 12. Heiti fyrirlestursins, sem verð- ur fluttur á ensku, er: Merki um veraldleg trúarbrögð: Táknræn óreiða og úrbætur í kjölfar 11. september („Signs of Secular Fa- ith: Symbolic Disorder and Repa- ir after Witnessing 9/11“). Fyrirlesturinn er byggður á ljósmyndum, sem teknar voru í New York 11. september 2001 og á næstu vikum og mánuðum. Með hjálp þessara ljósmynda leitast Eric Rothenbuhler við að greina hrun ríkjandi táknheims og sköp- un annars táknheims í hans stað. Myndirnar tók Jane Martin. Eric Rothenbuhler hefur kennt við virta háskóla, skrifað fræði- bækur, einn og með öðrum, og fjölda tímaritsgreina um fjöl- miðlakenningar og félagsfræði og mannfræði fjölmiðla og boð- skipta. Meðal sérsviða hans er fjölmiðlaiðnaðurinn og dæg- urmenning. Hann er staddur hér á landi í tilefni af norrænu mál- þingi um fjölmiðla og trúarbrögð, sem haldið er í samstarfi kennara við félagsvísindadeild og guð- fræðideild Háskóla Íslands, segir í fréttatilkynningu. Fyrirlestur um eftirköst 11. september MORGUNBLAÐINU hefur boristeftirfarandi tilkynning frá Lands- sambandi kvenna í Frjálslynda flokknum: „Landsamband kvenna í Frjáls- lynda flokknum boðar til mótmæla á sjómannadaginn gegn mannrétt- indabrotum stjórnvalda í fiskveiði- stjórnunarkerfinu. Safnast verður saman við Stjórnarráðið kl. 13.30 sunnudaginn 1. júní og gengið að hafnarbakkanum þar sem hátíða- höld sjómannadagsins fara fram. Hvetjum félaga til þess að sýna samstöðu og taka þátt í friðsam- legum mótmælum. Þó það sé Landssamband kvenna sem boðar til mótmælanna eru allir velkomnir, konur jafnt sem karlar.“ Kvótamótmæli á sjómannadaginn JCI Esja heldur námskeið til að kenna þeim sem þurfa að halda brúðkaupsræður hvernig sé best að standa að slíku. Á námskeiðinu verður farið í helstu atriði sem snúa að því að halda brúðkaups- og tæki- færisræður. Kennt verður hvernig er best að standa að undirbúningi, hvernig á flytja ræðurnar og hvern- ig hægt sé að komast hjá kvíða. Námskeiðið verður tvö kvöld og hefst 12. júní næstkomandi. Skrán- ing er á netfangið tomasha@gmail- .com eða á heimasíðu JCI Esju, www.jciesja.org. Námskeiðsgjald er 12.000 kr. með námskeiðs- gögnum. Námskeiðið er öllum opið, segir í fréttatilkynningu. Brúðkaups- ræðunámskeið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.