Morgunblaðið - 31.05.2008, Síða 46

Morgunblaðið - 31.05.2008, Síða 46
46 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FJÖLBRAUTASKÓLA Vesturlands var slitið laugardaginn 24. maí síðastliðinn. Brautskráðir voru 65 nemendur við hátíðlega athöfn. Hörður Ó. Helgason skólameistari ávarpaði samkomugesti og afhenti útskriftarnemum skír- teini sín. Atli Harðarson aðstoðarskólameistari flutti annál vorannar 2008. Lára Hólm Heim- isdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd út- skriftarnema. Ársæll Arnarsson flutti kveðjuorð frá 10 og 20 ára afmælisárgöngum. Andri Gunnarsson hlaut verðlaun fyrir ágæt- an árangur í eðlis- og efnafræði, íslensku og í sérgreinum á námsbraut í húsasmíði. Einnig fékk hann viðurkenningu skólans fyrir bestan námsárangur nýstúdenta á vorönn 2008. Auður Jónsdóttir fyrir ágætan árangur í dönsku. Árni Valgeirsson fyrir ágætan árangur í sérgreinum á námsbraut í húsasmíði. Áslaug Katrín Hálfdán- ardóttir fyrir ágætan árangur í efnafræði. Eva Eiríksdóttir fyrir ágætan árangur í ensku og fyrir störf að félagsmálum. Freysteinn B. Bark- arson fyrir ágætan árangur í félagsfræði og við- skiptagreinum. Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir fyrir störf að félags- og menningarmálum. Ingi- björg Sigríður Karlsdóttir fyrir ágætan árangur í sérgreinum á sjúkraliðabraut. Kristín Sigurð- ardóttir fyrir ágætan árangur í sérgreinum á sjúkraliðabraut. Lára Hólm Heimisdóttir fyrir ágætan árangur í félagsfræði og uppeldisfræði. Sigríður Guðbjartsdóttir fyrir ágætan árangur í efnafræði, líffræði, náttúrufræðigreinum og stærðfræði. Tryggvi Þorvaldsson fyrir ágætan árangur í sérgreinum á námsbraut í húsasmíði. Einnig fékk Tryggvi Kötluverðlaun fyrir bestan námsárangur iðnnema sem luku námi á vorönn 2008. Þuríður Elín Geirsdóttir fyrir ágætan ár- angur í sérgreinum á sjúkraliðabraut. Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri á Akranesi, af- henti námsstyrk Akraneskaupstaðar og Borg- arbyggðar. Hann skiptist jafnt milli tveggja um- sækjenda, þeirra Almars Gunnarssonar, sem lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut með eðlisfræðikjörsviði í desember 2007, og Andra Gunnarssonar, sem lauk burtfararprófi af náms- braut í húsasmíði og stúdentsprófi eftir nám í húsasmíði nú í maí 2008. Þess má geta að þeir Andri og Almar eru tvíburabræður. Elín Björns- dóttir, sem lauk stúdentsprófi af náttúrufræði- braut í desember 2007 fékk verðlaun fyrir góðan námsárangur úr sjóði Guðmundar P. Bjarnason- ar á Sýruparti. Viskuklúbbur nemendafélagsins fékk styrk úr minningarsjóði Karls Kristins Kristjánssonar. 65 brautskráðir á Akranesi ÁRLEGUR blómadagur er haldinn hátíðlegur í dag, laugardaginn 31. maí, á Skólavörðustígnum í tilefni sumarkomu, um leið og hann undir- strikar sérstöðu fyrirtækjanna við Stíginn, sem mörg hver byggja við- skipti sín á handverki, nytjalist og hvers konar hönnun og listaverkum, segir í tilkynningu. Frá kl. 13 munu börn og unglingar á vegum Kramhússins dreifa blóm- um, grænmeti og ávöxtum til gesta og gangandi. Ávextir, grænmeti og blóm eru í boði Blómabænda, Garð- yrkjubænda og Banana h.f. Lifandi tónlist, dans og önnur skemmtiatriði verða fram eftir degi. Að þessu sinni munu skóla- hljómsveitir úr Austurbæjarsskóla, s.s. Retro Stefson spila á sviðinu við Hegningarhúsið. Þar munu einnig koma fram leynigestir og skemmti- kraftar á vegum 12 Tóna. Kram- húsið verður með danssýningu. Gít- artónleikar verða við Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg 7. Tónleikar verða við Kaffihús Baba lú og búast má við ýmsum fleiri uppákomum á Skóla- vörðustígnum á Blómadaginn. Blómadagur á Skólavörðustíg EINAR K. Guðfinnsson, sjáv- arútvegsráðherra, prédikar í léttri sjómanna- og sumarmessu í Bú- staðakirkju á sjómannadaginn kl. 11. Þetta verður léttmessa með léttum og sumar- og sjómannalögum. Fé- lagar úr kór Bústaðakirkju syngja og Karl Olgeirsson verður við flyg- ilinn. Eftir messu er heitt á könn- unni og Sæmundur á sparifötunum mætir. Á undanförnum árum hafa sjó- menn og aðrir í störfum tengdum sjómennsku og útgerð flutt stólræðu dagsins. Að þessu sinni verður sjáv- arútvegsráðherra í prédikunarstól. Bústaðakirkja og söfnuður hennar árna íslenskum sjómönnum og fjöl- skyldum þeirra heilla og blessunar Guðs og bjóða þau velkomin til sjó- mannamessunnar, segirí tilkynn- ingu. Sjávarút- vegsráðherra predikar ÚTSKRIFTARATHÖFN og skólaslit Flensborgarskólans á vorönn voru 24. maí sl. og voru útskrifaðir 68 nemendur með samtals 71 próf. Með próf í fjölmiðlatækni útskrifuðust átta nemendur, af starfsbraut útskrif- uðust sex nemendur og sem stúdentar útskrifuðust 57 nemendur. Tveir nemendur útskrifuðust bæði með próf í fjölmiðlatækni og stúdentspróf og einn nemandi útskrifaðist með próf í fjölmiðlatækni og fjögurra ára próf af starfsbraut. Tinna Pálmadóttir hlaut viðurkenningu frá Rótarýklúbbi Hafn- arfjarðar fyrir bestan árangur allra á stúdentsprófi. Þorsteinn Krist- insson semidúx fékk viðurkenningu fyrir eðlisfræði, efna- og jarðfræði, félagsfræði, sögu og stærðfræði. Þorsteinn útskrifaðist af tveimur braut- um, félagsfræða- og náttúrufræðibraut. Þorsteinn Kristinsson flutti ræðu fyrir hönd nýstúdenta og afhenti skólanum málverk að gjöf frá útskrift- arnemendum. Aðrir nemendur sem hlutu viðurkenningu voru Andrea Helga Sigurð- ardóttir fyrir störf í þágu nemenda og skólans, Ágústa Ýr Sveinsdóttir fyrir fjölmiðlagreinar, Edda Dögg Ingibergsdóttir fyrir tölvugreinar, Ester Eir Guðmundsdóttir fyrir námsástundun og stundvísi, Guðný Helga Haraldsdóttir fyrir framfarir í fjölmiðlagreinum, Kristján Ernir Rún- arsson fyrir framfarir í námi, Nexhip Sillova fyrir tölvugreinar, Saga Jó- hanna Inger Mellbin fyrir efnafræði og Vignir Jónsson fyrir tölvugreinar. Hrefna Geirsdóttir aðstoðarskólameistari stýrði athöfninni og flutti annál skólaársins. Í ræðu sinni fjallaði Einar Birgir Steinþórsson skóla- meistari um lok framkvæmda sem staðið hafa við skólann nær samfellt í 10 ár, en á þessu ári hillir undir lok þessa framkvæmdatímabils. Hann ræddi einnig um þróunarstarf sem hefur verið unnið innan skólans á und- anförnum árum, ásamt nýbreytni í námsframboði skólans. Í lokaorðum sínum til útskriftarnemenda fjallaði Einar Birgir um mikilvægi mennt- unar og hvatti nemendur til áframhaldandi náms, segir í fréttatilkynn- ingu. Útskrift frá Flensborgarskóla HÁTÍÐARHÖLD sjómannadagsins í Grafarvogi hefjast kl. 10.30 með helgistund við fornt naust, bátalægi sem er fyrir neðan kirkjuna, þá kirkju sem stendur einna næst sjó af kirkjum landsins. Félagar úr Björg- unarsveitinni Ársæli í Reykjavík taka þátt í helgistundinni. Flutt verða ritningarorð og sunginn sálm- ur. Innsetningarguðsþjónusta hefst kl. 11 í Grafarvogskirkju. Sr. Guð- rún Karlsdóttir, nýkjörin prestur í Grafarvogssöfnuði verður sett inn í embætti af séra Gísla Jónassyni pró- fasti. Sr. Guðrún prédikar og þjónar fyrir altari ásamt prestum safnaðar- ins. Kórar kirkjunnar syngja. Stjórnendur eru Aðalheiður Þor- steinsdóttir og Svava Kristín Ing- ólfsdóttir. Eftir messu verður boðið upp á léttan hádegisverð, segir í fréttatilkynningu Morgunblaðið/Sverrir Hátíðarhöld í Grafar- vogskirkju EINS og undanfarin ár mun Sjó- mannafélag Ólafsfjarðar halda veg- lega upp á sjómannadaginn. Dagskráin hófst í gær og stendur fram á sunnudagskvöld. Í dag, laug- ardag, verður svokallaður sjó- mannaslagur á golfvelli Ólafsfirð- inga, dorgveiðikeppni og hinn hefðbundni kappróður í höfninni. Í sundlauginni verður koddaslagur, björgunarsundkeppni o.fl. Þá verður boðið upp á siglingu með Sig- urbjörginni ÓF 1 og grillveislu á eft- ir. Um kvöldið verða tónleikar með Roðlaust og beinlaust, Sniglaband- inu og fleirum. Á sjálfan sjómannadaginn byrjar dagskrá með skrúðgöngu og sjó- mannamessu, knattspyrnuleikur verður milli sjómanna og landmanna og fjölskylduskemmtun þar sem fram koma m.a. Björgvin Frans, fé- lagar í Söngvaborg, Masi og félagar, Sigga Beinteins og tónlistarfólk frá Ólafsfirði. Leiktæki verða í gangi fyrir unga fólkið og Slysavarn- arfélagskonur selja kaffi í Sandhóli. Hátíðinni lýkur með árshátíð sjó- manna í Tjarnarborg með hátíð- arkvöldverði og fjölbreyttri skemmtidagskrá sem endar með dansleik og fjöri fram á nótt. Sjómannadagur í Ólafsfirði HAGFRÆÐIDEILD Háskóla Ís- lands stendur fyrir fyrirlestri 2. júní undir yfirskriftinni: Ræður Seðlabank- inn við verðbólguna? Fyrirlesturinn fer fram á Háskólatorgi, HÍ, stofu HT 101 og stendur frá kl. 12 til 13.30. Arnór Sighvatsson aðalhagfræð- ingur Seðlabankans mun flytja stuttan fyrirlestur um peningamálstefnu Seðlabankans og síðan sitja fyrir svörum. Markmið fundarins er að gefa áhugafólki færi á að ræða ákvarðanir og aðgerðir Seðlabankans við aðalhagfræðinginn og spyrja hann spurninga, segir í fréttatilkynn- ingu. Fyrirlestur um verðbólguna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.