Morgunblaðið - 31.05.2008, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 49
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
■ Fim 5. júní kl. 19.30
Lady and Bird - Barði Jóhannsson
og Keren Ann Zeidel
Hljómsveitarstjóri: Daniel Kawka
Barði Jóhansson er ekki einhamur maður í tónsköpun sinni. Ein
birtingarmyndin er Lady and Bird, samstarfsverkefni hans og frönsku
tónlistarkonunnar Keren Ann Zeidel. Á tónleikunum flytja þau tónlist
Lady and Bird auk tónlistar sem þau semja hvort um sig, í hljóm-
sveitarbúningi Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar.
Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík með
stuðningi Franska sendiráðsins.
■ Fös. 20. júní kl. 19.30
20 horn - og einn sólisti
Sinfóníuhljómsveitin lýkur starfsárinu með stæl og flytur hina
risavöxnu Alpasinfóníu Richard Stauss, og fleiri verk þessa meistara
litbrigðanna.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Búdapest
8. júní
frá kr. 29.990
Vikuferð á einstökum tíma!
Ein fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara þangað í þúsunda-
tali á hverju ári með Heimsferðum. Sumarið er frábær tími til að heimsækja
borgina. Fararstjórar Heimsferða gjörþekkja borgina og kynna þér sögu
hennar og heillandi menningu. Fjölbreytt gisting í boði. Búdapest býður ein-
stakt mannlíf, menningu og skemmtun að ógleymdri getrisni Ungverja auk
frábærra veitinga- og skemmtistaða.
Verð kr. 29.990
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með
sköttum.
Verð kr. 59.990
- **** gisting
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í 7
nætur á Hotel Golden Park **** með
morgunmat.
M
bl
9
89
89
5
Þegar Björk Guðmundsdóttirheldur tónleika reynir húnað hafa hljóðprufu sama
dag til að kynnast salnum sem hún
er að fara að syngja í.
Á tónleikaferð hennar um heim-
inn er ekki alltaf sami lagalistinn,
hún er með um 40 lög sem hljóm-
sveitin kann, og af þeim velur hún
tæpan helming rétt fyrir tón-
leikana.
Björk byggir lagavalið á hljóm-
burðinum hverju sinni, sum lög
koma illa út í miklu bergmáli, önn-
ur mun betur. Sum lög virka prýði-
lega á útitónleikum á meðan önnur
hljóma betur inni. Og þar fram eft-
ir götunum.
Mér flaug þetta í hug á tón-leikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í Háskólabíói sem ég skrif-
aði nýlega um hér í blaðinu. Tón-
leikarnir voru hinir skemmtileg-
ustu, bæði vegna þess að hluti
dagskrárinnar var áhugaverður,
en einnig vegna þess að tónlistin
barst ágætlega um salinn.
Básúnuleikari var í aðalhlutverki
og málmblásarar hljómsveit-
arinnar voru sömuleiðis áberandi.
Básúnukonsert er í eðli sínu há-
vaðasamur og rómantískar sinfóní-
ur á borð við þá fyrstu eftir Tsjaj-
kovski eru kraftmiklar tónsmíðar
sem heyrist vel í, líka á öftustu
bekkjum.
Þrátt fyrir þetta hefur margoftverið bent á að þurr hljóm-
burðurinn í Háskólabíói er ekki
sérlega heppilegur fyrir sinfón-
íuhljómsveit. Og það er alveg rétt.
Samt hljóma sum verk þar skár
en önnur. Þó er eins og for-
ráðamenn Sinfóníunnar átti sig
ekki á því og hafi hljómburðinn
ekki í huga þegar þeir ákveða vetr-
ardagskrána. Af hverju eru oft
leiknar tónsmíðar sem henta sér-
lega illa, eins og tónaljóðið um Don
Kíkóta eftir Richard Strauss?
Tónaljóðið var á dagskránni fyrr í
vetur, en þar var selló í einleiks-
hlutverki. Það kom ekki vel út.
Selló er í eðli sínu veikróma hljóð-
færi og það heyrðist bókstaflega
ekkert í því aftarlega í Háskólabíói.
Ekki er betra að ráða söngvara,
sem vitað er að hefur ekki sterka
rödd, til að halda uppi heilli dag-
skrá. Samt gerist það alltof oft.
Sum tónlist er bara þannig aðhún þarf mikla endurómun –
jafnvel þótt hún innihaldi ekki söng
eða sellóleik. Gott dæmi er tónlistin
eftir Jón Leifs. Hún hljómar yf-
irleitt ekki vel í Háskólabíói. Hall-
grímskirkja er mun heppilegri fyr-
ir hana, endurómunin þar er mjög
mikil og þótt stór sinfónísk verk
komi ekki vel í kirkjunni er tónlist-
in eftir Jón margfalt áhrifameiri
þar en í Háskólabíói.
Sinfónían er búin að vera svolengi í Háskólabíói að menn
ættu að vera búnir að átta sig á því
hvað hentar þar og hvað ekki. Er
það ekki annars?
Ég hef enn ekki séð vetrardag-skrána næsta vetur. En von-
andi verður eitthvert vit í henni.
Vonandi verða engir sellókon-
sertar og raddlitlir söngvarar þar.
Já, vonandi verða þeir lagðir í salt
þar til Sinfónían flytur í nýja tón-
listarhúsið við höfnina!
Sellókonserta í salt, takk!
AF LISTUM
Jónas Sen
» Björk Guðmundsdóttir velur lagalistann eftirhljómburðinum hverju sinni. En hvað gerir
Sinfónían? Er dagskrá hennar sniðin að hljóm-
burðinum í Háskólabíói?
Reuters
senjonas@gmail.com
SÁ óvænti en rómantíski atburður
átti sér stað í Laugarásbíói á
fimmtudag að borið var upp bónorð á
hvíta tjaldinu fyrir forsýningu kvik-
myndarinnar Sex & the City (Beð-
mál í borginni). Arnbjörn Elíasson
bað unnustu sinnar Marijönu Cumba
sem er ættuð frá Króatíu með því að
varpa bónorðinu „Marijana viltu
giftast mér“ á sýningartjald bíósins.
Því næst kraup hann á kné og dró
trúlofunarhring á fingur Marijönu.
Uppátækið vakti mikla hrifningu
boðsgesta sem margir voru við-
skiptavinir Baðhússins og var turtil-
dúfunum klappað lof í lófa.
Bónorð í bíói
Morgunblaðið/Eggert
Marijana viltu giftast mér? Bónorðið kom ekki síst gestum Laugarásbíós skemmtilega á óvart.
Morgunblaðið/Eggert
Hin verðandi hjón Arnbjörn Elíasson og Marijana Cumba.