Morgunblaðið - 25.08.2008, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Golli
Mark! Feiknastemning í Smáralind og allir fagna innilega.
RÍKISÚTVARPIÐ sjónvarpaði Frakkaleiknum beint á breiðtjald í Smára-
lind og þar var Páll Magnússon útvarpsstjóri mættur á fremsta bekk til að
hvetja strákana okkar. Eins og sjá má létu viðbrögðin aldrei á sér standa
þegar boltinn dansaði í franska markinu.
Boltinn dansar í markinu
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson í Peking
seth@mbl.is
„ÞEGAR ég fékk blómvöndinn frá
Ólafi Stefánssyni í leikslok þá brut-
ust fleiri tár út en þau streymdu
einnig þegar ég sá íslenska fánann
fara á loft. Spánverjar fögnuðu gríð-
arlega bronsverðlaunum sínum og
við getum því verið afar stolt af
þessum árangri,“ sagði Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra en hún var viðstödd
úrslitaleik Íslendinga og Frakka á
Ólympíuleikunum í Peking í gær.
Þorgerður segir að árangur lands-
liðsins eigi eftir að skipta miklu máli
fyrir íslenskt samfélag. „Ég hef rætt
við vini mína í Þýskalandi og Spáni
og það eru flestir á þeirri skoðun að
Ísland og Frakkland hafi verið með
bestu liðin á þessu móti.“
Strákarnir eiga mikið inni
„Það er ótrúlegt að vera með silfr-
ið og þetta er einstakt afrek. Það
verður aldrei sagt of oft. Við eigum
að vera stolt en kannski er það ekki
nógu stórt orð til þess að lýsa því
hvernig mér líður. Strákarnir eiga
mikið inni hjá okkur sem þjóð. Til
skemmri tíma eru það tilfinningar
og ástríða sem standa upp úr en til
lengri tíma litið eru ofboðsleg verð-
mæti sem felast í þessu silfri. Þá sér-
staklega fyrir unga fólkið og börnin
okkar. Skilaboðin sem liðið sendir til
þeirra inni á vellinum og líka í við-
tölum eftir leikina. Þetta er allt út-
hugsað hjá þeim og það er ekki bara
Ólafur Stefánsson sem er heimspek-
ingur í þessu liði. Það eru fleiri.
Þessi árangur mun skila okkur fleiri
börnum og unglingum í íþróttir al-
mennt á Íslandi. Það verður ekki
bara handboltinn sem nýtur góðs af
þessum árangri. Allar aðrar íþróttir
munu eflast í kjölfarið á þessum ár-
angri.“
„Við höfum á undanförnum árum
lagt áherslu á að styrkja fjárhags-
lega veika bletti í íþróttahreyfing-
unni. Þá nefni ég rekstur sér-
sambandanna sem er mjög þungur
og erfiðari en á árum árum. Tíminn
er dýrmætur í því samfélagi sem við
lifum í núna. Fólk er ekki tilbúið að
leggja á sig sömu sjálfboðaliðastörf-
in og áður. Við í ríkisstjórninni höf-
um aukið fjármagnið sem rennur til
sérsambanda ÍSÍ og í ferðasjóð. Að
mínu mati þarf að taka afrekssjóð-
inn fastari tökum á næstu misserum
og Handknattleikssamband Íslands
þarf að sjálfsögðu að fá styrk í kjöl-
far þessa árangurs. Þessi keppni
kostar HSÍ líklega um 20 milljónir
króna og íslenska þjóðin og ýmis
fyrirtæki hafa stutt myndarlega við
bakið á HSÍ meðan keppnin hefur
staðið yfir. Ríkisstjórnin þarf að
gera það líka. Það var skammur tími
til stefnu fyrir HSÍ að undirbúa
þessa leika. Það var ekki vitað fyrr
en í júní hvort handboltalandsliðið
kæmist í gegnum undankeppnina.
Þetta er sú íþrótt sem nær til þjóð-
arinnar. Tilfinningar og átök sem
höfða til okkar Íslendinga.“
Afar stolt af árangri liðsins
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Klapp Þorgerður Katrín og eiginmaður hennar Kristján Arason, formaður landsliðsnefndar HSÍ, sáu úrslitaleikinn.
Þorgerður Katrín lofar HSÍ fjárstuðningi Árangurinn skilar fleiri börnum og unglingum í íþróttir
Í HNOTSKURN
»Þorgerður Katrín segir ár-angur handboltaliðsins
skipta miklu máli fyrir ís-
lenskt samfélag.
»Árangurinn muni skila þvíað fleiri börn og unglingar
fari í íþróttir. Allar íþrótta-
greinar muni eflast.
»Keppnin hafi kostað HSÍ20 milljónir. Margir hafi
stutt samabndið og ríkis-
stjórnin hyggist gera slíkt hið
sama.
2 MÁNUDAGUR 25. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FRAMMISTAÐA liðsins á Ólymp-
íuleikunum var alveg frábær, en
mér fannst samt síðasti leikurinn
bera keim af því að strákarnir
hefðu ekki trú á því að þeir gætu
sigrað Frakkana. En í heildina
stóðu strákarnir sig virkilega vel,“
segir Geir Hallsteinsson hand-
boltakempa og faðir Loga Geirs-
sonar landsliðsmanns að loknum
ÓL. „Byrjunin var mjög slæm hjá
okkur á móti Frökkum og kannski
hefði mátt athuga þann möguleika
að breyta byrjunarliðinu. Þótt byrj-
unarliðið hafi vissulega staðið sig
vel, þá er dálítið skrítið að stilla
upp sama byrjunarliðinu í hverjum
leiknum á fætur öðrum.“
„Stóðu sig virki-
lega vel í heildina“
Morgunblaðið/Golli
Úrslitaleikur Geir og fjölskylda fylgjast íhugul með Frakkaleiknum í gær.
ÍSLENSKU landsliðsstrákarnir
áttu hvert bein í meirihluta þjóð-
arinnar og vel það þegar viður-
eignin við Frakka stóð sem hæst.
Þeir sem fylgdust með leiknum á
breiðtjöldum víða voru á valdi til-
finninganna frá upphafi leiks til
enda. Þegar íslenska liðið lenti und-
ir voru ófá hugskeytin send og þess
beðið í hljóði að hægt yrði að laga
stöðuna. Morgunblaðið/Golli
Á valdi
tilfinninganna
GRÍÐARLEGA góð stemmning var
í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda
fyrir úrslitaleik Frakka og Íslend-
inga í gær, þar sem hinum sögulega
leik var varpað upp á breiðtjald. Þótt
íslensku strákarnir færu halloka
gegn ofurefli Frakka, ætlaði allt vit-
laust að verða þegar vel gekk og
segja má með sanni að hjarta áhorf-
enda hafi slegið í takt við hjarta leik-
manna. Morgunblaðið/Golli
Hvattir
óspart áfram
Ísland og Frakkland léku til úrslita í handknattleik karla á Ólympíuleikunum í Peking