Morgunblaðið - 25.08.2008, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 25. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VESTURHEIMI
STARFSEMI Þjóðræknis-
félags Íslendinga hefur blómstr-
að undanfarin misseri og segir
Almar Grímsson, formaður ÞFÍ,
að staða félagsins sé mjög góð
og framtíðin björt.
Á undanförnum árum hefur
vaxtarbroddurinn verið í
Snorraverkefninu. „Ég fullyrði
að verkefnið hefur skipt sköpum
í endurnýjun á samskiptum milli
Íslands og afkomenda landnem-
anna í Vesturheimi,“ segir Al-
mar. „Unga fólkið, sem lokið
hefur verkefninu, hefur komið
sem ferskur blær inn í starf
þjóðræknisfélaga vestra og hér
heima.“
Almar segir að félagið hafi
lagt metnað í að bjóða upp á
ferðir á slóðir íslensku innflytj-
endanna í Vesturheimi til að al-
menningur geti séð þær með
eigin augum og hitt fólk af ís-
lenskum ættum. „Þá viljum við
einnig auka skipulagðar ferðir
að vestan hingað heim í sam-
vinnu við Vesturfarasetrið á
Hofsósi.“
Menningarsamskipti
ÞFÍ hefur lagt áherslu á
menningarsamskipti og fylgt
þannig eftir öflugu starfi að-
alræðismannsskrifstofunnar í
Winnipeg. Í því sambandi bend-
ir Almar á að Óperukór Hafn-
arfjarðar leggi upp í mikla ferð
til Ontario í byrjun október og
mikill áhugi sé á því að fá Björg-
vin Halldórsson til að koma
fram á árlegri tónlistarhátíð í
Minot, Norður-Dakóta og víðar.
steinthor@mbl.is
Blómleg starfsemi og brú byggð
Almar Grímsson, formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga, segir að Snorraverkefnið hafi skipt sköp-
um í endurnýjun á samskiptum milli Íslands og afkomenda landnemanna í Vesturheimi
Í HNOTSKURN
» Ársþing Þjóðræknis-félags Íslendinga, ÞFÍ,
verður haldið í tengslum við
Akureyrarvöku 2008. Það
verður í safnaðarheimili Ak-
ureyrarkirkju og hefst
klukkan 13 laugardaginn 30.
ágúst.
» Þingið er haldið á Ak-ureyri til þess að heiðra
minningu forgöngumanna
eins og Árna Bjarnarsonar.
» ÞFÍ var endurvakið fyrir11 árum og síðan hefur
ársþingið alltaf verið í
Reykjavík.
Morgunblaðið/Steinþór
Gjöf Almar Grímsson færði fyrir skömmu Safni íslenskrar menningar-
arfleifðar á Nýja-Íslandi söfnunarfé frá Íslandi til minningar um Stefan J.
Stefanson og tók Tammy Axelsson, forstöðumaður safnsins, við því.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„ÞESSI hópur var frábær og sum-
arið æðislegt,“ segir Wanda And-
erson, verkefnisstjóri Snorra vestur
um verkefnið í Manitoba sumar. Í
átta ár hefur hún staðið í stafni og
skipulagt verkefnið og í átta sumur
hafa viðbrögðin alltaf verið á sama
veg: Æðislegt, frábært.
Vinátta í þrjá áratugi
Það er í þessu eins og öðru að ekk-
ert gerist af sjálfu sér. Wanda hefur
helgað sig þessu verkefni og það fer
ekki á milli mála að það skiptir hana
mjög miklu máli. „Vináttan sem
skapast milli krakkanna og milli okk-
ar og þeirra er aðalatriðið,“ segir hún
og leggur mikla áherslu á orðið vin-
átta. Í því sambandi rifjar hún upp að
hún hafi kynnst Helgu Guðmunds-
dóttur frá Íslandi í skóla á Gimli vet-
urinn 1975 til 1976. Þær hafi strax
orðið mjög góðar vinkonur og sú vin-
átta hafi haldist alla tíð síðan. Hún
hafi fyrst farið til Íslands 1979 til
þess að heimsækja Helgu og þær
hafi tekið hús hvor á annarri í þrjá
áratugi. „Þessi vinátta er ástæða
þess hvað Snorraverkefnið er mér
kært.“
Snorra vestur verkefnið byrjaði
sumarið 2001 með þátttöku tveggja
stúlkna. Sumarið eftir tóku fjórar
stúlkur þátt í verkefninu og fimm
sumarið 2003. 2004 voru krakkarnir
átta og fyrsti strákurinn var í hópn-
um. Næstu sumur var þátttakan
áfram takmörkuð við átta manns en
auk þess fóru tvær stúlkur á sam-
bærilegt námskeið í Ontario í fyrra. Í
sumar voru strákar í meirihluta í
fyrsta sinn, þrír á móti einni stúlku.
„Íbúar á Nýja Íslandi hafa tekið
verkefninu opnum örmum,“ segir
Wanda og vísar til þess að auðvelt
hafi verið að finna fjölskyldur til þess
að taka á móti krökkunum og „ætt-
leiða“ þá í nokkrar vikur eða til þess
að vinna við þetta sex vikna verkefni
á annan hátt. „Við erum almennt
mjög hreykin af íslenska uppruna
okkar og okkur finnst mjög gefandi
að taka þátt í þessu verkefni,“ segir
hún.
Tímanum vel varið
Wanda segir að það standi upp á
sína kynslóð að taka við keflinu, við-
halda og styrkja tengslin milli Kan-
ada og Íslands. „Ég hef varið miklum
tíma í Snorraverkefnið en þeim tíma
hefur verið vel varið og hann hefur
gefið mér mikið. Ég hef verið verk-
efnisstjóri í átta ár og á þessum tíma
hef ég kynnst ótrúlega góðum ís-
lenskum ungmennum. Þessir ungu
krakkar hafa náð að mynda sterk
tengsl við íbúa í Nýja Íslandi og hald-
ið áfram að styrkja þau að námskeið-
inu loknu. Það besta við starfið er að
vera hluti af þessari miklu vináttu.“
Morgunblaðið/Steinþór
Góður hópur Þátttakendur í verkefninu í sumar tóku þátt í Íslendingadagshátíðinni á Gimli. Frá vinstri: Gunnar Örn Arnarson frá Hellissandi, Sindri Snær
Þorsteinsson frá Höfn, Karlotta Helgadóttir frá Reykjavík, Snorri Elís Halldórsson frá Laugarvatni og Wanda Anderson.
Vináttan skiptir mestu
Wanda Anderson í Riverton hefur verið í góðu sambandi við íslenska skólasystur í
rúma þrjá áratugi og hefur verið verkefnisstjóri Snorra vestur frá byrjun
FJÖLMARGIR gestir frá Vestur-
heimi verða á Þjóðræknisþinginu á
Akureyri 30. ágúst.
Sérstakir gestir að vestan eru
Janis Johnson, öldungadeildar-
þingmaður í Kanada, Peter Bjorn-
son, menntamálaráðherra Manitoba,
Gerald Farthing ráðuneytisstjóri,
Tammy Axelsson, bæjarstjóri Gimli,
aðalræðismannshjónin í Winnipeg,
Þrúður Helgadóttir og Atli Ás-
mundsson, dr. Jon Blondal Johnson,
fjárfestir frá Vancouver, Wanda
Anderson, verkefnisstjóri Snorra
vestur, Ernest Stefanson lyfjafræð-
ingur og kona hans Claire Gillis frá
Gimli auk Magnusar Olafson, bónda
í Norður-Dakóta. Þá verða 15 kan-
adískir og bandarískir þátttakendur
af íslenskum ættum í verkefninu
Snorra plús á meðal gesta og Anna
Blauveldt, sendiherra Kanada á Ís-
landi, auk þess sem sveitarstjórn-
armönnum og þingmönnum kjör-
dæmisins hefur verið boðið.
Á dagskrá þingsins verða meðal
annars ávörp ráðherra, Sigrúnar
Bjarkar Jakobsdóttur, bæjarstjóra á
Akureyri, og Atla Ásmundssonar.
Flutt verður minni Árna Bjarnar-
sonar, sagt frá starfsemi Vestur-
farasetursins á Hofsósi og greint frá
10 ára starfi Snorraverkefnisins.
Listamenn á vegum núnanow
Hljómlistarmennirnir Jaxon Hald-
ane og Chris Saywell úr hljómsveit-
inni DRangers (www.drangers.ca)
eru báðir af íslenskum ættum í Mani-
toba og koma til landsins í tengslum
við þingið. Þeir spila á Hressó í
Reykjavík og tvisvar á Akureyri.
Freya Bjorg Olafson, dansari og
myndlistarmaður frá Winnipeg,
kemur líka fram á Akureyri og í
Reykjavík, en þetta listafólk hefur
m.a. tekið þátt í núnanow, listahátíð
ungs fólks í Winnipeg, og kemur á
hennar vegum að frumkvæði ræð-
ismannsskrifstofunnar í Winnipeg.
steinthor@mbl.is
Ráðamenn
og listamenn
að vestan
Morgunblaðið/Steinþór
Þingkonur Janis Johnson og Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir utanrík-
isráðherra hittust á Íslendinga-
dagshátíðinni á Gimli.
„Þetta hefur verið stórt og mikið
ævintýri,“ segir Gunnar Örn Arn-
arson frá Hellissandi um Snorra
vestur verkefnið í sumar.
Að þessu sinni tóku fjögur
ungmenni þátt í verkefninu í
Manitoba; Gunnar, Sindri Snær
Þorsteinsson frá Höfn í Horna-
firði, Karlotta Helgadóttir frá
Reykjavík og Snorri Elís Hall-
dórsson.
Gunnar Örn segir að föð-
ursystir sín hafi bent sér á verk-
efnið og hann sjái ekki eftir því
að hafa sótt um. Verkefnið hafi
samanstaðið af mjög fjölbreyttri
dagskrá og því sé erfitt að draga
eitthvað út úr. Fyrstu tvær vik-
urnar hafi einkennst af stífri dag-
skrá og miklum ferðalögum og
það hafi verið mikil upplifun að
heimsækja þinghúsið í Winnipeg.
„Þetta er svakalega mikil lífs-
reynsla,“ segir Gunnar Örn. Hann
hafi bætt enskuna, kynnst frá-
bæru fólki og eignast nýja fjöl-
skyldu, en síðustu fjórar vikurnar
bjó hann hjá Marie og Sveini Arn-
björnssyni á Gimli. „Þetta er í
einu orði sagt frábært.“
Stórt og mikið ævintýri