Morgunblaðið - 27.08.2008, Qupperneq 20
ferðalög
20 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Lilju Þorsteinsdóttur
liljath@mbl.is
F
imm konur, starfs-
félagar hjá Icelandair
group, eiga svo sann-
arlega heiður skilinn
fyrir að safna fé til
styrktar góðu málefni. Fyrir tæpu
ári gengu þær 62 kílómetra saman í
Avon-göngunni í New York og söfn-
uðu tæpum 800.000 krónum sem
runnu til Avon og Krabbameins-
félagsins, til styrktar baráttunni
gegn brjóstakrabbameini. Skörung-
arnir, sem kalla sig „Golden wings“
eða „Gylltir vængir“ eftir vængj-
unum í merki fyrirtækisins, ákváðu í
kjölfarið að halda áfram að ganga til
góðs og fóru í sumar yfir Fimm-
vörðuháls ásamt fleiri vöskum
göngugörpum frá Icelandair group.
Lena Magnúsdóttir, ein göngu-
garpanna, segir hugmyndina hafa
fæðst á fyrirlestri hjá Icelandair, en
þar sögðu hjúkrunarfræðingar frá
Avon-göngunni í New York. „Okkur
datt í hug að gera það sama, svo vild-
um við láta gott af okkur leiða hérna
heima og ætlum að gera þetta að ár-
legum viðburði. Við vorum 70 manns
sem gengum yfir Fimmvörðuháls,
blandaður hópur úr fyrirtækjum
Icelandair group. Ástæðan fyrir því
að við viljum styrkja baráttuna gegn
brjóstakrabbameini er sú að við
þekkjum öll einhvern sem hefur
greinst með eða dáið úr krabba-
meini. Þetta er eitthvað sem snertir
okkur öll.“
Brosað hringinn
Hópurinn sem gekk á Fimm-
vörðuháls skemmti sér konunglega
og fékk veðurguðina í lið með sér.
„Við lögðum af stað frá Skógum um
klukkan 10 og gengum í sjö til átta
tíma í frábæru veðri. Þetta var alveg
yndislegt og gaman að segja frá því
að í vinnunni á mánudeginum brostu
allir hringinn. Það var mikil og góð
stemning í hópnum. Allir fengu
bleikar derhúfur og svo útbjuggum
við líka bleikan borða og tókum
með,“ segir Lena.
Gylltu vængirnir létu fjallgöngu í
rúmlega 900 metra hæð yfir sjávar-
máli ekki hindra sig í að fylgjast með
handboltaleik Íslendinga og Dana.
„Einn úr hópnum tók með sér iPod
og við fylgdumst með handbolt-
anum. Þegar leikurinn endaði með
jafntefli brutust út fagnaðarlæti og
okkur þótti mjög gaman að geta
hlustað á leikinn uppi á hálsinum,“
segir Lena, og bætir því við að far-
arstjórarnir hafi verið mjög góðir og
leitt þau áfallalaust alla gönguna.
„Þetta var alveg ótrúlega gaman og
við söfnuðum hálfri milljón króna.
Peningarnir fóru óskiptir til
Krabbameinsfélagsins og fara í sjóð
til kaupa á stafrænum röntgenbún-
aði sem fengið hefur nafnið Björg,“
segir Lena.
Það er alveg ljóst að Gylltu væng-
irnir eru komnir til að vera. „Við eig-
um eftir að finna út hvar við göngum
á næsta ári, en það verður pottþétt
ganga á hverju ári héðan í frá,“ segir
Lena Magnúsdóttir göngugarpur.
Gylltir vængir ganga til góðs
Halarófa Veðurguðirnir slógust í för með Gylltu vængjunum og sáu til þess að sólin skini á hraust andlit.
Garpar Hópurinn safnaði hálfri milljón og gaf Krabbameinsfélaginu.
„Einn úr hópnum tók með
sér iPod og við fylgdumst
með handboltanum.“
Nú er sá tími ársins þegarnemendur á öllum aldrimæta til starfa í skólum
landsins eftir sumarfrí. Að ýmsu er
að hyggja í undirbúningnum og þá
er meðal annars gott að huga að
ferðamáta til og frá skóla.
Hressandi morgunleikfimi
Líkt og kemur fram í ráðlegg-
ingum Lýðheilsustöðvar um hreyf-
ingu er ganga og hjólreiðar ein ein-
faldasta leiðin til að flétta hreyfingu
inn í sitt daglega líf. Kostir þess eru
fjölmargir: hressandi útiveran auð-
veldar nemendum að vakna og
halda einbeitingu í byrjun dags og
hreinsa hugann og slaka á í lok
dags. Regluleg hreyfing, líkt og
ganga eða hjólreiðar, getur þannig
ekki aðeins minnkað líkurnar á fjöl-
mörgum sjúkdómum heldur veitir
umfram allt bæði líkamlegan og
andlegan styrk til að takast á við
dagleg verkefni og hvílast betur.
Séu vegalengdir miklar eru almenn-
ingsvagnar betri kostur en einka-
bíllinn til að auka hreyfingu, draga
úr umferðarþunga og stuðla að heil-
næmara lofti.
Öryggið í fyrirrúmi
Eðli málsins samkvæmt vilja for-
eldrar að börnin séu eins örugg í
umferðinni og mögulegt er. Yngstu
nemendurnir fá umferðarfræðslu í
skólanum en auk þess er mikilvægt
að foreldrarnir fylgi þeim fyrstu
skrefin, finni öruggustu gönguleið-
ina milli heimilis og skóla og minni á
umferðarreglurnar. Þar sem það er
mögulegt geta foreldrar tekið sig
saman og skipst á að sjá um
,,göngustrætó“ til og frá skóla. Allir
gangandi og hjólandi vegfarendur
ættu að nota endurskinsmerki og
þeir síðarnefndu reiðhjólahjálm og
ljós. Með því að velja annan ferða-
máta en einkabílinn má draga úr
umferðarþunga í kringum skóla á
álagstímum og auka öryggi þeirra
barna sem koma gangandi eða hjól-
andi í skólann. Þannig er einnig
lagður grunnur að heilsusamlegum
ferðavenjum ungs fólks til fram-
tíðar.
Klæðnaður og skólataska
Reynslan hefur kennt mörgum að
veðrið virðist oft verra þegar litið er
út um glugga en það er í raun og
veru. Með því að klæða sig í sam-
ræmi við veður er hægt að ganga
eða hjóla í skólann flesta daga árs-
ins. Unga fólkið er þá einnig betur í
stakk búið að njóta þess að stunda
ýmiss konar útileiki og aðra hreyf-
ingu í frímínútum. Auk þess sem
skór og annar fatnaður á að veita
skjól og leyfa eðlilegar hreyfingar
er gott að huga að skólatöskunni.
Þannig má stuðla að betri líkams-
beitingu við gönguna og koma í veg
fyrir óþarfa stoðkerfisvandamál við
töskuburðinn. Árlega stendur Iðju-
þjálfafélag Íslands fyrir Skólatösku-
dögunum þar sem nemendur, for-
eldar og kennarar fá fræðslu um
hvernig er best að stilla, raða í og
velja nýja skólatösku. Einnig er
meðal annars bent á að þyngd
skólatöskunnar á ekki að vera meiri
en 10% af þyngd barnsins.
Göngum í skólann-mánuðurinn
Ísland tekur nú þátt í alþjóðlega
Göngum í skólann-verkefninu annað
árið í röð. Það mun hefjast 10. sept-
ember og lýkur formlega með al-
þjóðlega ,,göngum í skólann“ deg-
inum 8. október. Verkefninu er m.a.
ætlað að hvetja til meiri hreyfingar,
auka færni barna til að ganga í skól-
ann og bæta aðstæður þeirra við
gönguferðina í skólann. Nánari upp-
lýsingar um Göngum í skólann og
fræðslu Iðjuþjálfafélags Íslands um
skólatöskur er að finna á
www.gongumiskolann.is.
Göngum í skólann
Morgunblaðið/Kristinn
Gengið í skóla Kostir göngunnar eru margir. Útiveran auðveldar nemendum
að vakna og halda einbeitingu í byrjun dags og hreinsa hugann í lok dags.
Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri
hreyfingar Lýðheilsustöð.
hollráð um heilsuna | lýðheilsustöð
Í veislu sem haldin var á heimiliHönnu Birnu Kristjánsdóttur,
er hún tók við sem borgarstjóri,
kvaddi Jakob Frímann Magnússon
sér hljóðs. Og hann fór með bundið
mál undir yfirskriftinni: „Líkt og
kellingin sagði“:
Tímabært þótti að skima og skanna,
skoða kosti framsóknarmanna
Óskar Bergsson sig kaus að sanna
og sömuleiðis Birna Hanna.
Óskar er pottþétt prýðisdrengur
og prúðari eflaust en gerist og gengur
Hönnu vonandi happafengur
í Hrifluflokki vart einmana lengur.
„Afsakið þetta var örstutt hlé“
aftur nú faðmast Dé og Bé
eftir að læknirinn staðfastur sté
úr stólnum og lét’ann Hönnu í té.
Borgar í púlti (Ó)Skarinn skarpur
við skiptin leiftrandi ræðugarpur.
Fyrir róða henti þar heiglum,
henti þá gaman að baksýnisspeglum.
Og skarinn á pöllum
með skrílnum öllum
skellihló, síðan hlýddi og þagði
og þar með nýju línuna lagði,
„líkt og kellingin sagði“:
Upp, upp mín sál og allt mitt geð!
og allir Reykvíkingar með!
Anna Ólafsdóttir Björnsson lýsir
í bloggi sínu eftir 3ju línu í frægri
veðurvísu. Hvorki Anna né
tengdamóðir hennar muna vísuna
rétt en hún er eftir Jónas
Hallgrímsson, heitir Molla og
hljóðar svona í eiginhandarskrift
sem lesa má á Jónasarvefnum:
Veðrið er hvurki vont né gott,
varla kalt og ekki heitt,
það er hvurki þurrt né vott,
það er svo sem ekki neitt.
Lesa má fleiri veðurvísur
Jónasar á vefnum en slóðin er
http://jonashallgrimsson.is/-
page/ljod_vedurvisur
VÍSNAHORN
pebl@mbl.is
Líkt og
kellingin
sagði
Göngum eða hjólum í
skólann.
Hjálpum börnunum að velja
öruggustu leiðina.
Fylgjum yngstu börnunum.
Notum endurskinsmerki og
annan öryggisbúnað.
Veljum þægilegan klæðnað í
samræmi við veður.
Vörumst of þungar
skólatöskur.
Göngum í skólann hefst
10. september.