Morgunblaðið - 27.08.2008, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 31
Miðborg Reykjavíkur tengir
saman minningar margra kyn-
slóða. Sumt af því fólki sem áður
setti svip á borgina en er nú horfið
yfir móðuna miklu kemur skýrt
upp í hugann þegar gengið er þar
um stræti og torg. Einn af þessum
Reykvíkingum liðinnar aldar var
Bjarni Guðmundsson og verk hans
lifa í ýmsum söngtextum hans sem
enn eru sungnir og orðnir að
klassík. Þegar rölt er suður
Lækjargötu blasa við á vinstri
hönd Þjóðleikhúsið, Þjóðmenning-
arhúsið, Stjórnarráðshúsið og
Menntaskólinn og við Tjörnina
Iðnó og húsin í brekkunni vestan
Tjarnarinnar. Öll þessi hús tengj-
ast Bjarna sem var blaðafulltrúi
utanríkisráðuneytisins en jafn-
framt þúsundþjalasmiður í menn-
ingarlífinu.
Ég sé hann enn í anda þar sem
hann gengur út af skrifstofu sinni í
Stjórnarráðshúsinu á leið heim til
sín í Suðurgötu, virðulegur og
smekklega klæddur eins og enskur
lord – heimsborgari í höfuðborg
dvergríkis við ysta haf, en samt
ljúfur og alþýðlegur. Áran í kring-
um hann er svo sterk að aðrir á
leið hans falla í skuggann. Á dóm-
Bjarni Guðmundsson
kirkjuhorninu hittir hann séra
Bjarna en handan Austurvallar
koma þeir Páll Ísólfsson, Helgi
Hjörvar og Þorsteinn Ö. Steph-
ensen út úr Landssímahúsinu þar
sem Ríkisútvarpið er með bæki-
stöð. Viðbúið er að Bjarni eigi er-
indi í anddyri Alþingishússins við
Bjarna Benediktsson, yfirboðara
sinn, en kannski lítur hann líka inn
í Iðnó vegna söngtexta og þýð-
ingar fyrir Leikfélag Reykjavíkur
eða Herranótt Menntaskólans. Að
kvöldi dags má vera að hann komi
við í Sjálfstæðishúsinu til að
möndla við gerð laga og texta,
ásamt Emil Thoroddsen, Tómasi
Guðmundssyni og Sigfúsi Hall-
dórssyni fyrir eina af revíunum
sem þar blómstra sem aldrei fyrr.
Allir eru þessir menn snillingar en
telja sig þó ekki yfir það hafna að
semja gamanþætti og gamanvísur,
enda orðlagðir húmoristar og
hrókar alls fagnaðar.
Af þessum mönnum er mér
Bjarni minnisstæðastur þótt út á
við væri hann ekki þekktastur
þeirra – en því réð vafalaust sú
hógværð og lítillæti sem voru með-
al helstu lyndiseinkunna hans.
Þegar minnst er á menn sem allt
virðist leika í höndunum á, kemur
mér Bjarni Guðmundsson í hug,
enda var hann einhver fluggáf-
aðasti og fjölfróðasti maður sinnar
tíðar – einn af þeim sem mynduðu
kjarnann í mannauði okkar litlu
þjóðar.
Ógleymanlegt er mér hvernig
hann af hjálpfýsi og yfirlætisleysi
snaraði fljótt og vel í hjáverkum
fyrir mig gamanvísum á erlendar
tungur til að flytja fyrir tigna er-
lenda gesti. Smekklegt, óaðfinn-
anlegt og vandað.
Á aldarafmæli Bjarna í dag er
mynd hans skínandi björt í huga
mér þegar ég horfi til himsins til
óravídda heimsins og tilverunnar
og í hugann kemur alþekkt hend-
ing úr einum af söngtextum hans:
„Er stjörnur blika í bláum him-
ingeimi / á bjarma þinna augna
minna þær …“
Ómar Þ. Ragnarsson.
Morgunblaðið/Ól. K. M.
Bjarni Guðmundsson á leið heim til sín í Suðurgötu.
ALDARMINNING
Atvinnuauglýsingar
Vantar yfirvélstjóra
Vantar yfirvélstjóra á Arnarberg ÁR-150 sem
gerir út á línu með beitningarvél frá Þorláks-
höfn. Vélarstærð 478 kW (649 hö).
Upplýsingar í síma 896-1276 (skipstjóri)
eða 898-3285 (útgerð).
Raðauglýsingar 569 1100
Ýmislegt
Drengjakór
Reykjavíkur
Hallgrímskirkju
auglýsir eftir áhugasömum og söngelskum
drengjum á aldrinum 8-10 ára. Inntökupróf fara
fram í Hallgrímskirkju mánudaginn
1. september kl. 17 - 19. Nánari upplýsingar á
drengjakor.is eða í síma 896 4914.
Félagslíf
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Atvinna óskast
Sjókokkur
Vanur kokkur á sjó óskar eftir góðu plássi hjá
góðri útgerð. Meðmæli fyrir hendi ef óskað er.
Uppl. í síma 895 7151.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Íslenskur fjárhundur
Einstaklega skapgóður og fallegur
íslenskur hvolpur til sölu með ættbók
frá HRFÍ og heilbrigðisskoðaður, til-
búinn til afhendingar. Sími 894 1871.
Hljóðfæri
Píanó til sölu
Euterpe píanó til sölu.
Í mjög góðu ástandi.
Upplýsingar í síma 861 3121.
Húsnæði í boði Flat on Geneva Lake
30sqm+balcony, summer & alpinpa-
radise in Thonon, 30km from Geneva.
http://thonon.blogdog.se, price
144.000 Euro. 3.5 hours by train to
Paris or Milano. Tel.+46.8.205156 .
2 íbúðir / herbergi til leigu í 101
Rvk. 125 fm, 5 herbergja íbúð/skrif-
stofa til leigu. Hin íbúðin er 80 fm, 3
herbergja íbúð. Líka með herbergi til
leigu. Húsgögn fylgja. Uppl. í síma
587 2292 / 692 2991.
Til leigu í Bjallavaði 1-3 110 Rvík
Glæsileg 3ja herbergja íbúð til af-
hendingar strax. Sérinngangur, bíl-
geymsla og lyfta í húsinu. Langtíma-
leigusamningur, sjá
www.leigulidar.is eða 517-3440.
Til leigu í Hafnarfirði Ný 105,8 fm 3ja
herbergja íbúð á 2 hæð. Glæsileg
íbúð í alla staði. Þvottahús og
geymsla inn í íbúð, bílastæði í bíla-
kjallara. Sjá www.leigulidar.is -
s: 517-3440
Stór íbúð í skiptum fyrir
minni......? Til sölu glæsileg 5-6 herb
uppgerð 145 m² penthouse + 24m²
bílskýli við blindgötu,frábært
útsýni,er í nágerni við Spöngina.
Skipti óskast á minni eign sem má
þarfnast lagfæringa eða á byggingar-
stigi. Upplýs 893 7124
Atvinnuhúsnæði
Til leigu nýinnréttuð skrifstofu-
herbergi í 104 Rvík. Securitas-
öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð
samnýting. Uppl. í síma 896 9629.
Skrifstofur - vinnustofur: Nokkur
herbergi til leigu í snyrtilegu húsnæði
í Hafnarfirði 20-40 m2. Sameiginleg
kaffistofa og snyrtingar. Laust strax.
Sími 898 7820.
Sumarhús
Glæsilegt sumarhús til leigu
Til leigu 97 fm sumarhús, þar af 25
fm milliloft. Húsið er staðsett í
Brekkuskógi, um 15 mínútna akstur
frá Laugarvatni. Heitur pottur.
Upplýsingar í síma 841 0265.
Rotþrær, heildarlausn (“kit”)
á hagstæðu verði. Sérboruð siturrör,
fráveiturör og tengistykki.
Einangrunarplast og takkamottur.
Borgarplast, Seltjarnarnesi, sími
561 2211. Heimasíða:
www.borgarplast.is
Sumarhús til leigu í Borgarfirði
Nýr 8-10 manna sumarbústaður til
leigu í Borgarfirði, nálægt Húsafelli.
Heitur pottur og gönguleiðir í fallegu
umhverfi. Útsýni frábært. Uppl. í
síma 435-1394 og 864-1394.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Tungumál
Spænka, enska, ítalska. Japanska,
arabíska, kínverska. Franska, þýska,
danska. Icelandic for foreigners,
Islandzki dla polakow. www.lingva.is,
s. 561-0315. Laugavegur 170.
Óska eftir
Óska eftir að kaupa!
Notaða þvottavél og/eða þurrkara og
notað gott rúm. Allt skoðað.
Sími 844 1319.
Viðskipti
Skelltu þér á námskeið í
netviðskiptum!
Notaðu áhugasvið þitt og sérþekk-
ingu til að búa þér til góðar tekjur á
netinu. Við kennum þér nákvæmlega
hvernig! Skoðaðu www.kennsla.com
og kynntu þér málið.
Þjónusta
Móðuhreinsun glerja!
Er komin móða eða raki milli
glerja?
Móðuhreinsun Ó.Þ.
Sími 897 9809.
Ýmislegt
Málningarvinna
Þaulvanur málari ætlar að bæta við
sig verkefnum í sumar. Inni og úti.
Vönduð og öguð vinnubrögð. Sann-
gjarnt verð. Uppl. í síma 897 2318.
Spangarlaus en þétt aðhald í CD
skálum á kr. 2.950,-
Spangarlaug, teygjanlegur og
mjúkur í DE skálum á kr. 2.950,-
Spangarlaus í BCD skálum á kr.
2.950,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán-fös 10-18, lau 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is.
Bílar
Suzuki Vitara JLX-SE, 4x4, 1.6 l,
árg. ´98, ek. 155 þús. km, 30" dekk.
Nýir bremsuklossar, legur og stýris-
endar. V. 295 þús. Sími 857 8613.
Toyota árg. '95 ek. 173 þús. km
Toyota Corolla 5 dyra. Skoðaður '09,
smurður reglulega og gott viðhald.
Skipt um tímareim í 120 þúsund km.
Verð 120.000. Upplýsingar í síma:
822 3539.
Ökukennsla
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
Nýr BMW 116i ´07.
Bifhjólakennsla.
8921451/5574975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Einkamál
Stefnumót.is
Kynntu þér vandaðan stefnumóta- og
samskiptavef fyrir fólk sem gerir
kröfur.
Didda var einstaklega ljúf og
óeigingjörn manneskja. Hún gaf
ætíð af sínu til þeirra sem minna
máttu sín og um árabil vann hún
sjálfboðaliðavinnu fyrir Rauða
krossinn.
Alltaf mundi Didda eftir afmæl-
um, fylgdist með afrekum og áföng-
um og lagði mikið á sig til að gleðja
aðra. Það ríkti ævinlega mikil eft-
irvænting þegar opnaður var pakki
frá þeim í Bauganesinu. Hvort sem
það var afmælispakki eða jólapakki
sem feðgarnir komu til skila með
jólasveinahúfur á höfði. Fyrir litla
stúlku hafði Didda yfir sér einhvern
ævintýraljóma. Hún var glæsileg,
gáfuð og fáguð kona, alltaf vel til
höfð og smekklega klædd, fylgdist
vel með og var óendanlega gjafmild
og áhugasöm um það sem maður var
að gera. Fyrir mér hélt Didda þess-
um ljóma alla tíð.
Það er með söknuði sem ég kveð
Diddu frænku nú en jafnframt
þakklæti fyrir það hvað hún var mér
ætíð góð og fyrir þau góðu áhrif sem
mér finnst hún hafa haft á mig þeg-
ar ég var að vaxa úr grasi. Frænd-
um mínum úr Skerjó þeim Snorra,
Eggert og Gunnari og þeirra fjöl-
skyldum vil ég votta samúð mína og
bið góðan guð að styrkja þau og
vaka yfir þeim alla tíð.
Margrét H. Hauksdóttir
(Maddý).