Morgunblaðið - 27.08.2008, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
RUTH Rendell fatast hvergi flugið í nýjustu sakamálasögu
sinni, Not in the Flesh, þar sem Wexford lögregluforingi
glímir við dularfull mál.
Maður á gangi með hund sinn finnur líkamsleifar manns
sem hefur legið grafinn í um tíu ár. Erfitt
er að bera kennsl á líkið. Annað lík finnst
síðan í nágrenninu. Margar spurningar
vakna. Lík hverra eru þetta, hvernig dóu
þeir og hver er morðinginn eða morð-
ingjarnir ef þeir voru myrtir? Og tengd-
ust þessir menn á einhvern hátt?
Þetta er áhugaverð glæpasaga, vel
skrifuð, með góðum persónulýsingum.
Bókin fer hægt af stað og ráðgátan virð-
ist afar flókin. Á tímabili hvarflar að les-
andanum hvort þetta sé ein þeirra sakamálasagna sem nán-
ast vonlaust sé að fá botn í. Smám saman skýrast mál og
lausnin er kannski ekki stórkostlega óvænt en snjöll engu að
síður. Bestu hlutar bókarinnar fjalla um hvarf geðþekks
heimilisföður og harmi eiginkonu hans og dætra er lýst af
mikilli næmi og tilfinningu.
Líkt og mörgum glæpasagnahöfundum er Rendell um-
hugað um að vera þjóðfélagslega meðvituð. Hún setur í þetta
verk sitt hliðarsögu um umskurð innflytjenda í Bretlandi á
stúlkubörnum og vinnur ágætlega úr þeim þætti.
Ruth Rendell nýtur viðurkenningar og vinsælda víða um
heim og þessi nýja bók styrkir hana enn í sessi. Hún er fag-
maður á sínu sviði og bregst ekki í þessari læsilegu saka-
málasögu.
Unnendur Wexford lögregluforingja hljóta að þjóta í
næstu bókabúð og næla sér í fyrsta flokks glæpasögu.
Rendell á flugi
Not in the Flesh eftir Ruth Rendell. 375 bls. Arrow Books gefur út.
Kolbrún Bergþórsdóttir
ERLENDAR BÆKUR»
Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur
sigridurv@mbl.is
ÞEIR áttu að gæta friðar í Írak. Þegar þeir
flugu inn í suðurhluta landsins árið 2004
var hins vegar engan frið að finna. Í stað
friðargæslu enduðu breskir hermennirnir í
borginni Al-Amarah í stríði þar sem barist
var upp á líf og dauða.
Bókin Sniper One gefur lesendum færi á
að fylgjast með. Þeir ganga í lið með bresk-
um leyniskyttum og fá því óvenjulega inn-
sýn í það hvernig stríð sem þetta er háð.
Hvaða vopn eru notuð, hvaða herbrögðum
er beitt, hvernig er líf hermannanna?
Stríðið er ekki einungis barátta við óvin-
veittan Medhi-her Moqtada Al-Sadr, sem
reynir hvað hann getur til að slátra Bret-
unum og ná borginni á sitt vald. Þetta er
sömuleiðis barátta við steikjandi sól og gíf-
urlegan hita – þorsta og örmögnun. Hrika-
legan aðbúnað eftir að óvinurinn hefur með
stanslausum flugskeytaárásum náð að
sprengja aðsetur breska herflokksins nán-
ast í loft upp. Svefnskálarnir eru skelin ein,
salernisaðstaðan farin, eldhúsið ónýtt, virk-
ið vatns- og rafmagnslaust.
Um tíma er útlit fyrir að allir 106 Bret-
arnir í Al-Amarah láti lífið, enda bæði vopn
og vatnsbirgðir á þrotum og þeir innikróað-
ir á stríðssvæði. Þeir ná þó á undraverðan
hátt að verjast umsátri mörg hundruð upp-
reisnarmanna.
Það er ekki ofsögum sagt að Sniper One
sé hetjusaga. Á sama tíma fleygir hún átök-
um sem þessum niður af stallinum. Þetta er
saga af ljótleika stríðs, máluð í mörgum lit-
um – saga af flugskeytaárásum og svefn-
leysi, ringulreið, skipulagsmistökum og æl-
andi hermönnum sem falla í yfirlið inni í
allt að 80 gráða heitum skriðdrekum. Þús-
undum kúlnaskota og óteljandi andvöku-
nóttum síðar spyr lesandinn sig fyrir hvað
sé eiginlega barist.
Höfundurinn er mitt í öllu saman: Leyni-
skyttan Dan Mills hefst við í steikjandi sól
á þaki herstöðvarinnar svo mánuðum
skiptir.
Reynt að koma í veg fyrir útgáfu
Breskur almenningur heyrði lítið sem
ekkert af hinum blóðugu bardögum í Al-
Amarah árið 2004. Það kom sér ekki vel
fyrir breska varnarmálaráðuneytið að láta
ástandið spyrjast út meðan almenningur í
Bretlandi varð æ andsnúnari Íraksstríðinu.
Vinur höfundarins staðhæfir að hann hafi
raunar skrifað bókina vegna þessarar
þöggunar ráðuneytisins. Engir erlendir
blaðamenn voru í Al-Amarah meðan
ástandið var sem verst.
Síðar reyndu varnarmálaráðuneytið og
embættismenn innan hersins að koma í veg
fyrir að bók Mills yrði gefin út – án árang-
urs.
Forvitnilegar bækur: Bókin sem yfirmenn óttuðust
Flugskeyti og æla
Írak Leyniskyttan Dan Mills hefur ritað
sanna sögu frá Írak sem á köflum er
ótrúlegri en nokkur raunveruleiki.
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Háskólabíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í BorgarbíóSími 462 3500
Rocker kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 7 ára
Skrapp út kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
The Dark Knight kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
Mamma Mia kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
Tropic Thunder kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.16ára
Mamma Mia kl. 6 - 8 LEYFÐ
The Rocker kl. 10:10 B.i.7ára
SÝND HÁSKÓLABÍÓI
Sími 551 9000Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - Í ALLT SUMAR
Make it happen kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ
X - Files kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
Mamma Mia kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
The Strangers kl. 6 - 10:20 B.i. 16 ára
650kr.
“Svona á að gera hrollvekjur!”
- Stephen King
„Duchovny og Anderson
sýna gamla takta”
-Þ.Þ. - DV
650k
r.
FULLT AF FLOTTUM LÖGUM Í MYNDINNI
M.A. HIÐ VINSÆLA LAG “JUST DANCE”
-Kvikmyndir.is
“Fínasta skemmtun. Myndin
er skemmtileg og notaleg.”
- Mannlíf
eeee
- Ó.H.T, Rás 2
eee
- L.I.B, Topp5.is/FBL
Stærsta mynd ársins 2008
83.000 manns.
650k
r.
SÝND SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga
VINSÆLASTA MYNDIN Í BANDARÍKJUNUM Í DAG
- 2 VIKUR Á TOPPNUM
FRÁ BEN STILLER KEMUR EIN KLIKKAÐASTA
GRÍNMYND ÁRSINS!
SÝND SMÁRABÍÓI
ÞÓTT LÍFIÐ BREYTIST...
ÞURFA DRAUMARNIR EKKI AÐ BREYTAST
HÖRKU-DANSMYND MEÐ HINNI
SJÓÐHEITU MARY ELIZABETH WINSTEAD
FRÁBÆR MYND Í ANDA SO YOU THINK
YOU CAN DANCE ÞÁTTANNA
FULLT AF FLOTTUM LÖGUM Í MYNDINNI
M.A. HIÐ VINSÆLA LAG “JUST DANCE”
ÞÓTT LÍFIÐ BREYTIST...
ÞURFA DRAUMARNIR
EKKI AÐ BREYTAST
HÖRKU-DANSMYND MEÐ HINNI
SJÓÐHEITU MARY ELIZABETH WINSTEAD
FRÁBÆR MYND Í ANDA SO YOU THINK
YOU CAN DANCE ÞÁTTANNA
650k
r.
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBO
GANUM