Morgunblaðið - 05.09.2008, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
TILRAUNABORANIR á
Þeistareykjum geta farið fram
samhliða heildarumhverfis-
mati álversins á Bakka og
tengdra framkvæmda. Að
minnsta kosti er að mati emb-
ættismanna ekkert í úrskurði
umhverfisráðherra um að hið
sameiginlega mat banni það.
Skipulagsstofnun fer nú yfir hvort þetta sé hægt.
Úrskurðurinn var krafa um að heildaráhrifum
framkvæmdanna fjögurra yrði lýst áður en leyfi
fengist fyrir hverri einstakri framkvæmd. „Að
okkar mati er ekkert í þessum úrskurði um hið
sameiginlega mat, sem útilokar að frekari rann-
sóknir vegna framkvæmdanna fari fram áður en
gengið er frá sameiginlegu mati á umhverfis-
áhrifum,“ segir Magnús Jó-
hannesson, ráðuneytisstjóri í
umhverfisráðuneytinu. Þar á
bæ er því ekki gerður ágrein-
ingur um orð Össurar Skarp-
héðinssonar iðnaðarráðherra á
þingi í fyrradag, þar sem hann
kvað engin lög mæla gegn því
að tilraunaboranir hefðu sinn
eðlilega gang þrátt fyrir heild-
armatið.
Í gær skoraði stjórn Sam-
orku, samtaka orku- og veitufyrirtækja, á stjórn-
völd að endurskoða úrskurðinn til að lágmarka
skaðann sem af honum gæti hlotist. „Náist ekki
ásættanleg niðurstaða í þeim efnum telur stjórn
Samorku nauðsynlegt, með hliðsjón af alvarleika
málsins, að dómstólar verði látnir skera úr um
lögmæti úrskurðar ráðherra, vegna framtíðar-
hagsmuna orkuiðnaðarins,“ sagði í ályktuninni.
Hagsmunir Þeistareykja ehf. og Landsvirkj-
unar eru þeir að rannsóknum megi halda áfram
næsta sumar svo ferlið tefjist ekki um heilt ár.
Því skiptir máli hvort rannsóknarboranir falli
undir úrskurðinn eða ekki. Samkvæmt fyrr-
greindum ummælum úr iðnaðar- og umhverf-
isráðuneytinu falla þær ekki undir hann.
„Fögnum orðum Össurar“
„Við fögnum orðum Össurar og gerum ekki ráð
fyrir öðru en að þau standi,“ segir Franz Árna-
son, stjórnarformaður Þeistareykja ehf. og Sam-
orku. Frestist tilraunaboranir fram yfir næsta
sumar tefst verkefnið um heilt ár. „Það er búið að
leggja í þetta eitthvað sem nálgast 4 til 5 millj-
arða. Í dag borga menn 22% vexti, svo þá geta
menn alveg séð hvað þessir árstöf myndi kosta.“
Verði niðurstaða Skipulagsstofnunar jákvæð geta
boranir haldið áfram um miðjan júní á næsta ári,
ef veður leyfir.
Mega bora meira á Þeistareykjum
Magnús
Jóhannesson
Franz
Árnason
FYRSTA sprengjuhleðslan í Bolungarvíkur-
göngum var sprengd í gær. Hvellurinn reið af
Bolungarvíkurmegin, en það var Kristján Möller
samgönguráðherra sem fékk þann heiður að
sprengja munnann.
Að því loknu var haldin stutt athöfn í Nátt-
úrugripasafni Bolungarvíkur í boði ÍAV og
Marti Contractors Ltd., sem framkvæma verkið.
Göngin verða 8,7 m breið og 5,1 km löng. Sam-
hliða gangagerðinni verða byggðir um 270
metra langir vegskálar, vegur lagður á 3,7 km
kafla og tvær brýr smíðaðar.
Samkvæmt útboði skal verkinu vera að fullu
lokið 15. júlí 2010. Jarðvinna hófst við ganga-
munnana beggja vegna í júlí. onundur@mbl.is
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Byrjað að sprengja Bolungarvíkurgöng
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
FORSÆTISRÁÐUNEYTIÐ sendi í
gær frá sér yfirlýsingu í kjölfar um-
fjöllunar fjölmiðla um hugsanlegar
bætur til fyrrverandi vistmanna á
Breiðavík. Þar segir m.a. að ráðu-
neytið harmi þá ákvörðun Breiðavík-
ursamtakanna (BRV) að tjá sig op-
inberlega án samráðs um drög að
frumvarpi um bætur sem þeim hafi
verið kynnt í trúnaði og séu aðeins
vinnuskjal.
Leitast sé við það að setja fram
reglur sem tryggi að bætur sem þess-
ar verði í samræmi við bótafjárhæðir
á öðrum skyldum sviðum íslensks
réttar. Ljóst sé að hugmyndir BRV
um bótafjárhæðir séu fjarri því sem
frumvarpið geri ráð fyrir en verið sé
að fara yfir athugasemdir þeirra.
BRV sendu í kjölfarið frá sér yf-
irlýsingu þar sem segir að þau harmi
framgöngu forsætisráðuneytisins.
Þar segir að yfirlýsing ráðuneytisins
sé í andstöðu við orð lögmanns þess
sem hafi sagt að drögin hafi verið
kynnt ríkisstjórninni og samþykkt
þar. Á sama fundi, 11. ágúst, hafi
samtökin verið beðin um trúnað í
tvær vikur sem þau hafi virt. Síðan
hafi engu verið hnikað til þrátt fyrir
ítrekaðar athugsasemdir um bóta-
fjárhæðir. BRV hafi ekki áhuga á að
munnhöggvast við ráðuneytið um at-
riði sem ekki lúta að kjarna málsins.
Harma umfjöllun
Breiðavíkursamtök áttu ekki að tjá sig
um bætur að mati forsætisráðuneytis
Í HNOTSKURN
»Frumvarpsdrögin vorukynnt BRV 11. ágúst en
þau biðu með fund til 3.sept.
»Gert er ráð fyrir að bóta-fjárhæðir verði á bilinu
375-2.085 þúsund krónur.
FRÁ og með 1. október munu fjórir
félagsliðar í Kópavogi hefja störf
við heimahjúkrun. Samningur þess
efnis var undirritaður í gær en
hann er gerður milli Kópavogs-
bæjar og Heilsugæslu höfuðborg-
arsvæðisins.
Fjármunir betur nýttir
Félagsliðarnir munu starfa undir
heilsugæslunni Hamraborg en um
er að ræða lið í því átaki að sam-
þætta þjónustu ríkis og sveitarfé-
laga á þessu sviði. Félagsliðarnir
munu sinna félagslegum þætti
heimahjúkrunarinnar, sem rekin er
af ríkinu, en félagsleg heimaþjón-
usta fellur undir sveitarfélagið.
Að sögn Þórs Jónssonar, upplýs-
ingafulltrúa Kópavogsbæjar, unnu
menn áður hver á sínum stað, sveit-
arfélögin annars vegar og heilsu-
gæslan hins vegar. „Nú taka þeir
aðilar höndum saman í því skyni að
bæta þjónustuna við fólkið til að
nýta fjármunina í þessa þjónustu
betur en gert var.“
Aðalsteinn Sigfússon, félags-
málastjóri í Kópavogi, segir ekki
vanþörf á aðstoð við heimahjúkrun.
Að meðaltali sé tvö hundruð ein-
staklingum sinnt í hverjum mánuði.
Sumir fái aðstoð hálfsmánaðarlega
en aðrir allt upp í þrisvar til fjórum
sinnum á dag. ylfa@mbl.is
Félagsliðar
létta undir
með heima-
hjúkrun
HANNA Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri lagði á borgarráðs-
fundi í gær fram tillögu um að
sviðsstjórum
ÍTR og
menntasviðs
yrði falið að
leiða vinnu
við gerð til-
lagna um
hvernig leysa
megi mann-
eklu og að-
stöðuvanda
frístundaheimila í borginni. Mark-
miðið er að tryggja sem flestum
börnum á aldrinum 6-9 ára fjöl-
breytt frístundastarf eftir að skóla-
starfi lýkur á daginn. Tillagan
verður tekin til afgreiðslu á næsta
fundi borgarráðs að viku liðinni.
Leitað verður leiða til að efla og
samþætta störf sviðanna auk skóla
og frístundaheimila í þessu skyni.
Jafnframt verða kannaðar fjöl-
breyttar lausnir varðandi rekstur
frístundaheimilanna svo sem með
samstarfi við félagasamtök,
íþróttafélög og aðra.
Vandi frí-
stundaheimil-
anna ræddur
FORGANGSREIN strætisvagna á
Miklubraut milli Skeiðarvogs og
Kringlunnar var malbikuð rauð í
gær. Áður hafa verið gerðar til-
raunir með rauðar akreinar en lit-
urinn farið af þeim. Í þetta skipti er
hins vegar vandað til verks því rautt
granít frá Skotlandi var sérstaklega
flutt inn til verksins. Samkvæmt til-
kynningu frá Reykjavíkurborg er
malbikið blandað járnoxíði, svo yf-
irborð vegarins verði enn rauðara.
Aukakostnaður vegna þessa er um
átta milljónir. Með þessu er verið að
tryggja að rauði liturinn haldist þeg-
ar malbikið slitnar.
Morgunblaðið/Golli
Forgangur Ökumenn sjá nú rautt fari þeir inn á akreinar strætisvagna.
Rautt, skoskt granít notað
í forgangsreinar Strætó