Morgunblaðið - 05.09.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2008 9
Laugavegi 47, sími 552 9122 Laugavegi 47, sími 551 7575
Allir stakir jakkar á kr.10.900
Föstudag og langan laugardag
Jakkasprengja
19.900 - 24.900
Allir stakir jakkar á kr. 12.900
Föstudag og langan laugardag
Laugavegi 47, sími 552 9122 Laugavegi 47, sími 551 7575
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Ný sending frá
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mánud.-föstud. 10-18
Opið í Bæjarlind laugard. 10-16
Opið í Eddufelli laugard. 10-14
Lokaútkall
Allra síðustu dagar útsölunnar í Eddufelli
NÝJAR HAUSTVÖRUR Í BÆJARLIND
Útsölulok
Hæðasmára 4 · Kópavogur · 555 7355
Síðumúla 3 · Reykjavík · 553 7355
Opið kl. 11-18 virka daga
og 11-15 laugardaga.
EFNT verður til hverfahátíðar Mið-
borgar og Hlíða á morgun laugar-
dag kl. 14 á Miklatúni. Það er sam-
ráðshópurinn Samtaka í Miðborg
og Hlíðum sem stendur bak við há-
tíðina. Markmið samtakanna er að
vekja máls á stöðu barna og ung-
linga í hverfinu og hvetja alla sem
annast uppeldi og umönnum barna
og unglinga til virkrar ábyrgðar.
Fjölmargt verður á dagskrá; söng-
ur, dans, leikir og kynning af ýms-
um toga og frítt verður í Sundhöll-
ina milli kl. 16 og 18.
Hátíð á Miklatúni
UNDAFARIN tvö ár hafa staðið yfir lagfæringar á Hákonarstaðabrú aust-
ur á Jökuldal en 100 ár eru liðin frá því að brúin var tekin í notkun. Nú sér
fyrir endann á endurbótunum.
Af því tilefni ætlarVegagerðin að standa fyrir samkomu í dag, föstudag.
Vegagerðarmenn á Austurlandi ætla að koma saman við brúna kl. 17.00 og
síðan er boðið í kaffi á Skjöldólfsstöðum kl.18.00. Allir eru velkomnir til að
fagna þessum tímamótum.
Búið eða laga Hákonar-
staðabrú á Jökuldal
MIKIÐ verður um dýrðir í Viðey á
sunnudaginn að sögn forsvars-
manna Viðeyingafélagsins. Félagið
heldur þar aðalfund sinn og í kjöl-
far hans verður tekið á móti gestum
eins og Viðeyingum einum er lagið.
Þar mun Örlygur Hálfdánarson
leiða göngu frá Viðeyjarstofu kl. 12
og segir hann gestum frá öllu því
markverða sem fyrir augu ber á
leiðinni austur í þorp. Viðeyinga-
félagið verður með kaffisölu og
meðlæti á boðstólum í félagsheimili
Viðeyingafélagsins frá kl.13 og síð-
an mun sr. Anna Sigríður Páls-
dóttir dómkirkjuprestur halda
helgistund í skólanum í þorpinu.
Fjölmargt fleira verður í boði.
Börnum verður boðið að smíða sína
eigin flugdreka og börn á öllum
aldri geta leigt sér veiðistöng og
keppt í strandveiði.
„Allir gestir sem koma til Við-
eyjar á sunnudaginn verða leystir
út með gjöfum, nýuppteknum eðal
Viðeyjarkartöflum og rabbarbara,“
segir í fréttatilkynningu.
Morgunblaðið/Golli
Töðugjöld Viðeyjarstofa verður op-
in og kaffisala í félagsheimilinu.
Fá kartöflur
og rabbarbara
BÆJARRÁÐ Akureyrarbæjar samþykkti í gær sam-
hljóða bókun um framtíðarstaðsetningu Reykjavíkur-
flugvallar þar sem minnt er á þá ábyrgð og skyldur sem
höfuðborg landsins beri gagnvart landsmönnum öllum.
„Að mati bæjarráðs eru greiðar flugsamgöngur lands-
byggðarinnar til Reykjavíkur forsenda þess að borgin
geti gegnt hlutverki sínu sem höfuðborg landsins alls. Í
höfuðborginni eru höfuðstöðvar stjórnsýslu Íslands auk
fjölda opinberra viðskipta-, mennta-, menningar- og
heilbrigðisstofnana sem eiga þar einnig sínar höfuð-
stöðvar. Bæjarráð hvetur borgarstjórn Reykjavíkur til
að hafa framangreind atriði í huga við umfjöllun sína um
framtíðarstaðsetningu innanlandsflugvallarins,“ segir í bókuninni.
Þá er ítrekuð fyrri afstaða vegna málsins og bent á að ef innanlands-
flugvöllur verði fluttur úr miðborginni sé verið að takmarka aðgengi
landsbyggðarfólks að miðstöð stjórnsýslu, þjónustu og viðskipta.
Minna á skyldur borgarinnar
Flug eða byggð?
Umdeildur völlur.
Verður áfram grátt
Í blaðinu í gær var sagt að Óskar
Bjarnason væri yfirsmiður Bryggju-
hússins í Reykjanesbæ. Hið rétta er
að Þórður Guðmundsson er yfir-
smiður og verktakar TSA ehf.
Húsið er koksgrátt, sem er upp-
runalegur litur þess og verður litur
þess í framtíðinni.
Klausturhólaréttir
Rangar upplýsingar voru birtar í
Morgunblaðinu um dagsetningu á
Klausturhólaréttum í Grímsnesi.
Rétt dagsetning er miðvikudaginn
17. september , kl. 10.
Nafnaruglingur
Rangar upplýsingar bárust blaðinu
um nefndarmenn í nýrri úrskurð-
arnefnd frístundahúsamála. For-
maður nefndarinnar er Sverrir
Kristinsson, löggiltur fasteignasali,
en í frétt í blaðinu í gær var sagt að
nafni hans Sverrir Kristjánsson
fasteignasali væri í nefndinni.
LEIÐRÉTT
STUTT
Afmælisþakkir
Kærar þakkir til allra þeirra sem tóku þátt í að
gera mér daginn ógleymanlegan 23. ágúst.
Guð veri með ykkur.
Guðrún Ormsdóttir.
,magnar upp daginn
@mbl.is