Morgunblaðið - 05.09.2008, Page 36
... vinir mínir trúðu á
mig því ég get sett
tungu mína upp á nef ... 40
»
reykjavíkreykjavík
„HANN var hér staddur ásamt leik-
stjóranum Jeremy Gilley sem er
hugmyndafræðingurinn að frið-
ardeginum svokallaða sem Samein-
uðu þjóðirnar standa að hinn 21.
september,“ segir Börkur Gunn-
arsson, rithöfundur, leikstjóri og að-
stoðartalsmaður NATO í Afganist-
an, en Börkur var fyrr í vikunni
viðstaddur fund sem Law og Gilley
áttu með sendiherra NATO í land-
inu. „Hugmynd þeirra er að gera
heimildarmynd um nokkur stríðs-
hrjáð lönd, þar á meðal Afganistan,
og þessi fundur verður væntanlega
sýndur í myndinni.“ Að sögn Barkar
lögðu þeir Gilley og Law hart að
sendiherranum að NATO legði nið-
ur vopn þennan dag en samkvæmt
Berki er það hægara sagt en gert
eins og ástandið hefur verið í sumar.
„Þetta sumar hefur verið eitt það
versta síðan talibanarnir voru
hraktir frá völdum. En nú fer að
kólna og þá snúa herskáar fylkingar
sér að öðrum hlutum en að berja á
samlöndum sínum og okkur,“ segir
Börkur sem tekur það þó fram að
sjálfur sé hann ekki í mikilli hættu.
„Í þá sex mánuði sem ég hef verið í
Kabúl hef ég í þrígang heyrt
sprengju springa en aldrei verið í
bráðri hættu sjálfur.“
Börkur virkar ekki sérlega upp
með sér yfir að hafa hitt Jude Law
og sá sér meira að segja ekki fært að
mæta í veislu sem leikarinn hélt um
kvöldið fyrir valda gesti.
Ef til vill ekki svo skrítið þegar
maður er staddur í landi sem hefur
logað í átökum síðustu þrjátíu ár.
hoskuldur@mbl.is
Með Jude Law í Kabúl
Í Kabúl Fernando Gentelini, sendiherra NATO í Afganistan, Börkur Gunn-
arsson, leikstjórinn Jeremy Gilley og breski leikarinn Jude Law.
Börkur Gunnarsson sat fund með leikaranum í Afganistan
Viðbrögð Jak-
obs Frímanns
Magnússonar við
yfirlýsingu Egils
Ólafssonar um að
samstarfi Stuð-
manna sé „nánast
lokið“ í Morgunblaðinu í gær, komu
í gang margháttuðum vangaveltum
og spurningum. Jakob gefur Agli
kost á að gerast „Tyllidaga-
Stuðmaður“ kjósi hann svo en ber-
sýnilega hafa jöfrarnir tveir ekkert
rætt það sérstaklega sín á milli,
frekar en annað sem snýr að þess-
um yfirlýsingum Egils. Söngvarinn
er þá greinilega ekki tilbúinn til að
taka skrefið til fulls, líkt og Valgeir
Guðjónsson, Þórður Árnason og
Ragnhildur Gísladóttir gerðu á sín-
um tíma, og Jakob vill greinilega
ekki sleppa Agli alveg heldur.
Taugin er því sterk en hitt ber á að
líta að Jakob er óumdeildur stýri-
maður sveitarinnar og hefur siglt
með hana milli skers og báru í tugi
ára, og það meira að segja áður en
Egill kom til sögunnar.
Stóra spurningin er hins vegar:
Getur nokkur maður hugsað sér
Stuðmenn án Egils Ólafssonar? Og
á fólk kannski auðveldara með að
ímynda sér Stuðmenn án Jakobs
Frímanns?
Komið gjörsamleg’ í
hnút. „Hann sagði! …“
Ljóst má vera að lokun tónleika-
staðarins Organ muni koma niður á
tónleikahaldi í borginni og öruggt
má telja að lokunin hafi komið flatt
upp á skipuleggjendur Airwaves
sem reiknað höfðu með Organ sem
einum af tónleikastöðum hátíð-
arinnar. Það var hins vegar hljóm-
sveitin Retro Stefson sem fyrst
fékk að kenna á lokuninni því þegar
sveitin mætti til hljóðprufu fyrir
tónleika sem halda átti á miðviku-
daginn blöstu við henni harðlæstar
dyr með hengilás og keðjum. Sveit-
in dó þó ekki ráðalaus og flutti tón-
leikana í snarhasti yfir á Hressó þar
sem forsmekkurinn var gefinn fyrir
væntanlega plötu sveitarinnar.
Hressó til bjargar
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞAÐ er búið að loka, því miður. Þetta er end-
anlegt því þetta gengur bara ekki upp, rekstr-
arlega séð er þetta bara algjörlega glatað,“ seg-
ir Inga Sólveig Friðjónsdóttir, eigandi skemmti-
og tónleikastaðarins Organs sem hefur nú lagt
upp laupana. „Það var allt of mikið lagt í þetta
og húsaleigan var allt of há. Tónlistarlífið hérna
ber þetta bara ekki, það er ekki flóknara en
það,“ segir Inga.
Organ var opnaður fyrir rúmu ári og síðan
hafa tónleikar verið haldnir á staðnum þrjú eða
fjögur kvöld í viku. Einnig hefur verið opið önn-
ur kvöld en að sögn Ingu hefur það gengið illa.
„Það virðist bara vera þannig að fólki finnist
það vera að fara upp í Breiðholt þegar það fer
niður fyrir Lækjargötuna, það sé svo erfitt að
komast þangað. Þetta er ekki í röltfæri þegar
fólk er á djamminu.“
Aðspurð segir Inga það vissulega leiðinlegt
fyrir íslenska tónlistarmenn að Organ hafi nú
verið lokað enda einn af fáum tónleikastöðum í
Reykjavík. „En ég er ekkert allt of hress með
alla tónlistarmenn. Það er vinna að vera tónlist-
armaður og menn verða að gera eitthvað til þess
að láta taka eftir sér. Það er ekki hægt að labba
bara inn og stinga í samband, þetta er ekki
þannig í dag. Það er rosalega misjafnt hvað fólk
leggur á sig fyrir svona hluti og sumir eru ekki
með sitt á hreinu. En auðvitað er búið að vera
fullt af frábærum kvöldum hjá okkur líka.“
Alltof stuttur tími
En telur Inga möguleika á því að einhver
annar taki við rekstri staðarins? „Ég hef ekki
hugmynd um það, en ég efast um að staðurinn
verði aftur rekinn á þessum nótum. Ef einhver
ætlar að vera með tónleikastað þá gengur það
bara ekki upp rekstrarlega.“
En hvað með Nasa? Hefur sá staður ekki
gengið ágætlega? „Ég veit ekki hvaða samning
þeir eru með, en ég er með alveg geðveika leigu.
Þetta var algjört rugl, þetta var svo dýrt. En
það er bara opið á Nasa þegar það er uppselt,
það er bara þannig. Og þegar það er uppselt hjá
þeim hafa þeir leyfi fyrir 700, en eru yfirleitt
með 1.200,“ útskýrir Inga.
Hún segist sérlega leið yfir þessu öllu saman
og ekki bæti úr skák að hún þurfi að taka skell-
inn á sig. „Þetta er alveg fáránlega stuttur tími,
og það er þannig í viðskiptum á Íslandi að lítil
fyrirtæki eiga sér ekki viðreisnar von. Ef þú átt
ekki fyrir öllu þegar þú ferð af stað ertu bara í
djúpum skít. Og það er enginn að styðja við
bakið á þér. Og eitt ár er alltof lítill tími, það
þarf meiri tíma til að láta hlutina ganga.“
Vitað hver braust inn
Eins og fram kom í fjölmiðlum fyrir skömmu
var brotist inn á Organ, og hljóðkerfi staðarins
stolið. Síðar kom í ljós að einhver með lyklavöld
hafði verið að verki. Inga segir það mál vissu-
lega tengjast því að staðnum hafi nú verið lokað.
„Það setti mann svolítið út af laginu, en við
redduðum því reyndar. En það er ýmislegt
fleira í gangi sem er ekki samkvæmt lögum, en
ég get ekki tjáð mig um það að svo stöddu,“
segir Inga sem var tryggð fyrir innbrotum.
„Það er verið að skoða þau mál, en ég veit ekki
hvernig það er þegar fólk gengur inn með lykli
og gerir þetta.“
En er vitað hver tók hljóðkerfið?
„Já það vita allir hver gerði það,“ segir Inga
en vill þó ekki segja hver átti í hlut. „Lögreglan
er bara að rannsaka þetta.“
Ings segist ekki búin að ákveða hvað taki nú
við. „Ætli það sé ekki bara best að snúa sér að
því að vera blankur listamaður, ég held það
bara.“
Organ hljóðnar
Eigandinn telur að of mikið hafi verið lagt í staðinn í upphafi, auk þess sem
húsaleiga hafi verið of há Segir nýlegt innbrot tengjast endalokum staðarins
Morgunblaðið/G.Rúnar
Í upphafi Inga Sólveig á Organ þegar vinna við staðinn stóð sem hæst í apríl í fyrra.
„Þetta er algjör skelfing,“
segir útvarps- og tónlist-
armaðurinn Ágúst Boga-
son um þær fréttir að Org-
an hafi verið lokað. „Ég hef
verið þarna bæði sem tón-
listarmaður, plötusnúður
og áhorfandi, og líka sem
spyrill í pop-quiz, þannig
að það eru margar gersemar sem hverfa með
þessum stað. Þetta var líka í rauninni orðið síð-
asta vígi lifandi tónlistar í Reykjavík.“
Ágúst segist þó viss um að tónlistarmenn
finni sér nýjar leiðir til tónleikahalds. „Þetta
gerir það samt að verkum að það verður minna
um tónleika í bili. Svo vonar maður bara að ein-
hver taki sig til og opni nýjan stað þar sem
hægt er að bjóða upp á lifandi tónlist. Það má
líka velta því fyrir sér hvort hið opinbera geti
ekki komið að því að hafa einhvern stað fyrir
unga tónlistarmenn til að koma fram á. Þannig
er það hjá nágrannalöndunum.“
Algjör skelfing