Morgunblaðið - 25.09.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.09.2008, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is STULDUR á vörum í versl- unum hefur vaxið stórlega á síð- ustu mánuðum og gagnrýnir framkvæmdastjóri Samtaka versl- unar og þjónustu lögregluna fyrir úrræðaleysi. Hann segir vandann snúa að erlendum glæpagengjum sem steli úr verslunum á skipu- lagðan hátt. Hér sé ekki um að ræða erlenda farandverkamenn eða Íslendinga, þó alltaf sé tals- vert um að almenningur komi við sögu og þekkt sé, að þegar kreppi að þá aukist hnupl. „Þessi erlendu gengi sem koma hingað með reglubundnum hætti gagngert til þess að stela valda versluninni sífellt meiri búsifjum,“ segir Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri SVÞ. „Úrræðaleysi lögreglunnar er sérstakt áhyggju- efni og í raun er myljandi óánægja innan verslunarinnar með þjónustu lögreglunnar. Eins og þessu er lýst fyrir mér þá stefnir í algeran voða.“ Myndir ekki nægjan- legar fyrir lögreglu Hann nefnir sem dæmi að grip- deildir á bensíni og olíu hafi færst mjög í aukana. Menn komi á bens- ínstöð, dæli á bíla og stingi svo af. „Lögreglan sinnir þessu ekki og segir einfaldlega að þeir geti ekki átt við þetta. Jafnvel þó mynd af númeraplötu og viðkomandi ökumanni hafi náðst í örygg- ismyndavél. Þetta gerist trekk í trekk, en lögreglan segist ekkert geta gert,“ seg- ir Andrés. Hann er spurður um orð Ómars Smára Ár- mannssonar aðstoðaryfirlög- regluþjóns sem kallaði í Morg- unblaðinu á þriðjudag eftir því að verslunin vaknaði og sagði ljóst að menn hefðu verið sofandi á verð- inum. Besta forvörnin væri gott öryggi í verslunum og tryggja þyrfti að öryggismyndavélar væru til staðar og af þeim gæðum að hægt væri að þekkja viðkomandi á upptökum. „Það er fráleitt að halda því fram að verslunin hafi sofið á verðinum. Allar stærri verslanir og þjónustufyrirtæki hafa örygg- ismyndavélar og annan slíkan búnað, enda er stórt og mikið hagsmunamál fyrir verslunina að berjast gegn þessum ófögnuði. Það er léttvægt fyrir lögregluna að kasta ábyrgðinni yfir á versl- unina, en þau mörgu dæmi sem við höfum um að lögreglan hafi ekki staðið sig í stykkinu sýna að þar á bæ þurfa menn virkilega að taka sig á,“ segir Andrés. Tuttugu eins pakkar sendir til Litháen á skömmum tíma Smávara eins og snyrtivara hef- ur verið eftirsótt af þessum gengj- um og apótek og snyrtivöruversl- anir finna fyrir þessu í auknum mæli. „Það kemur kannski fjög- urra manna hópur í verslunina. Varan er tekin úr pakkningunni, þannig að strikamerkið fer ekki í gegnum skanna við útganginn og pakkningarnar eru skildar eftir tómar í hillunum. Þetta er út- spekúlerað lið sem beitir alls kon- ar aðferðum og kann sitt fag til hins ýtrasta og veit hvernig á að dreifa athygli starfsmanna,“ segir Andrés. „Það vill svo til að ég er ræð- ismaður fyrir Litháen og þekki málið því frá fleiri hliðum,“ segir Andrés. „Í fyrra kom hingað gengi frá Litháen og ég þurfti að eiga samskipti við lögreglu hér til að upplýsa sendiráðið í Kaup- mannahöfn. Þá kom í ljós að á mjög stuttum tíma höfðu farið tuttugu 20 kílóa sendingar í gegn- um póstinn hér á sama heim- ilisfang í Litháen. Í ljós kom að í pökkunum var fyrst og fremst snyrtivara, sportfatnaður og tískuvara. Þarna var greinilega um skipulagða brotastarfsemi að ræða,“ segir Andrés. Frjáls för fólks frá Búlgaríu og Rúmeníu Hann segist hafa sérstakar áhyggjur af því að um áramót rennur út undanþáguákvæði um frjálsa för fólks frá Búlgaríu og Rúmeníu inn á Evrópska efna- hagssvæðið. Þá muni aukast hér komur fólksfrá þessum löndum sem hafi misjafnt orð á sér. „Við erum í startholunum með að herja meira á lögreglu og dómsmálayfirvöld um að sinna versluninni betur hvað þjófnaði varðar. Mörg mál, stór og smá, eigum við í mestu vandræðum með að fá fylgt eftir,“ segir Andr- és Magnússon. Morgunblaðið/Kristinn Valda verslun búsifjum  Erlend glæpagengi stela úr verslunum á skipulagðan hátt  Myljandi óánægja innan verslunarinnar með þjónustu lögreglu, segir framkvæmdastjóri SVÞ „VIÐ sáum fyrri hluta sumars að þjófnaður á bensíni var vaxandi vandamál. Við brugð- umst hart við, örygg- isbúnaður var aukinn, málin voru kærð og stuldurinn var settur í innheimtu enda ekki sanngirni í öðru gagn- vart viðskiptavinum fyrirtækisins,“ segir Hermann Guðmundsson forstjóri N1. Hann segir að eitthvað hafi dregið úr þessum þjófnaði án þess að hann viti hver ástæðan sé. „Það er þó ljóst að þegar verð- ið á eldsneyti er eins svívirðilega hátt og verið hefur síðustu mánuði þá skiptir tankur af bensíni eða olíu fólk máli, en við líðum ekki að fólk stundi þessa iðju.“ Aðspurður um þjófnað í öðrum versl- unum fyrirtækisins segir Hermann að N1 sé með um 90 þúsund vörunúmer á boð- stólum og alltaf sé eitthvað um þjófnað. Undanfarna mánuði höfum við til dæmis orðið varir við nokkuð af þjófnuðum í bíla- búðum fyrirtækisins. Þá er algengt að 4-5 einstaklingar komi inn í verslunina og hluti hópsins truflar starfsfólk meðan aðr- ir hlaða á sig vörum. Við höfum staðið svona gengi að verki og í öllum þessum til- vikum hefur verið um útlendinga að ræða,“ segir Hermann. Heldur hefur dregið úr bensínþjófnaði Hermann Guðmundsson STOLIÐ er úr íslenskum verslunum fyrir um 2.500 milljónir króna á ári og kostn- aður sem verslanir verða fyrir vegna þjófnaða, mistaka og öryggisviðbúnaðar er yfir 3.000 milljónir króna árlega, eða um 10 þúsund kr. á hvern Íslending, sam- kvæmt alþjóðlegri könnun frá síðasta ári. Búðaþjófnaður hafði minnkað um 5,7% á milli ára hér á landi en það er meiri minnkun en í öðrum ríkjum Evrópu. Það sem gerst hefur á undanförnum mánuðum með tilkomu erlendra gengja sem koma hingað í þeim tilgangi að stunda skipulega glæpastarfsemi breytir örugglega þessari mynd, segja forystumenn SVG. Stolið úr verslunum fyrir 2,5 milljarða „ÞETTA hefur alltaf verið vandamál og þjófn- aður í verslunum alltaf verið til staðar en hann óneitanlega eykst með versnandi efnahags- ástandi,“ segir Svava Johansen, forstjóri NTC. Fyrirtækið rekur 19 tískuvöruverslanir í Kringlunni, Smáralind og á Laugaveginum og segir Svava að ekki sé marktækur munur hvað þjófnað varðar eftir svæðum. „Við höfum farið í gegnum nokkrar svona efnahagssveiflur og þekkjum þennan rytma,“ segir Svava. Hún segir að öryggisbúnaður hafi verið aukinn í verslunum fyrirtækisins og sér- stakur öryggisstjóri hefur verið ráðinn. „Við erum komin með mjög öflugt örygg- iskerfi sem beint er að ákveðnu svæði í versl- unum okkar ef eitthvað sérstakt fer í gang, bæði á kassa og inni í versluninni,“ segir Svava. Hún nefnir sem dæmi að öryggismyndavélar séu fyrir framan mátunarklefa og fylgst sé með því hversu mikið fólk fer með inn í klefann og með hvað það kemur út úr honum. Öryggi aukið að gefnu tilefni „Við teljum að við höfum varið okkur ágæt- lega og höfum lagt mikla áherslu á öryggisþátt- inn með versnandi tíma í huga. Við höfum í rauninni aldrei verið eins vel sett hvað örygg- iskerfin varðar og því miður var það að gefnu tilefni.“ Hún segir að bæði Íslendingar og útlend- ingar eigi í hlut. „Hjá okkur hafa nokkrir hópar útlendinga verið áberandi. Vegna fyrri reynslu höfum við verið sérstaklega á varðbergi gagn- vart þeim. Því miður eru það alltaf einhverjir örfáir sem sverta heila þjóð,“ segir Svava Joh- ansen. Morgunblaðið/Árni Sæberg Öryggi Svava Johansen segir að öryggi hafi verið aukið hjá NTC og öryggisstjóri ráðinn. Vandinn eykst með versnandi ástandi í efnahagsmálum „SUMIR eru svo bí- ræfnir að þá skiptir engu þótt væli í örygg- ishliðum, þeir hlaupa bara út í bíl sem bíður fyrir utan og svo er ek- ið á fleygiferð í burtu,“ segir Sigurbjörn Gunn- arsson, framkvæmda- stjóri Lyfju, um stuld úr lyfjabúðum fyr- irtækisins. Hann tekur fram að ekki séu mörg dæmi um svona framkomu en þetta sé þó meðal þess sem við er að glíma. Hann segir að hrinan hafi náð hámarki í fyrra en á þessu ári hafi heldur dregið úr þó svo að vandinn sé enn gríðarlegur. Sigurbjörn segir að stöðugt sé unnið að því hjá fyrirtækinu að auka öryggi í verslunum fyrirtækisins til að draga úr glæpum. „Við erum með öryggismynda- vélar í nánast öllum okkar verslunum, ör- yggisverðir eru á kvöldin í þeim versl- unum sem eru opnar til miðnættis. Vörur hafa verið færðar til og við höfum reynt að innleiða nýjar aðferðir,“ segir Sig- urbjörn. Hann segir hlutskipti lögregl- unnar erfitt. Til dæmis fari góss í mörg- um tilvikum á haugana þar sem ekki sé hægt að sanna með óyggjandi hætti hvað- an varan er komin. Sigurbjörn segir að í fyrrasumar hafi erlend glæpagengi verið áberandi en í ár hafi heldur dregið úr. „Enn er búð- arþjófnaður samt gríðarlegt vandamál hjá okkur. Oft eru 2-3 saman með litla bakpoka eða í víðum úlpum. Þegar þeir koma inn í verslunina dreifa þeir sér gjarnan og 1-2 ná athygli starfsfólks meðan sá þriðji athafnar sig. Oft rífa þjófarnir vöru úr umbúðum sem örygg- ismerkið er á og skilja tóma pakkningu eftir í hillunni,“ segir Sigurbjörn Gunn- arsson. Suma skiptir engu máli þótt væli í öryggishliðum Sigurbjörn Gunnarsson ÞEIM sem staðnir verða að búðarhnupli á næstu mánuðum verður boðin sátt á staðnum sé verðmæti þýfisins undir 50 þúsund krónum. Samtök verslunar og þjónustu vinna að þessu verkefni í samvinnu við lögreglu. Með þessu vilja samtökin sýna frumkvæði til að stemma stigu við vaxandi búðarhnupli og létta álagi af lögreglu. Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ, segir að starfshópur innan samtakanna vinni að þessu verkefni. Verkefnið er kallað end- urheimt verðmæta og er unnið að breskri fyrirmynd, en þar í landi kallast það „civil recovery“. Ráðgert er að því verði hleypt af stokk- unum í haust. „Í stuttu máli gengur hugmyndin út á það að þjófum eða hnupl- urum verði gefinn kostur á að afgreiða mál með sátt á staðnum þegar um er að ræða búðarhnupl að verðmæti allt að 50 þúsund krónur. Sérstakir starfsmenn hjá verslunarfyrirtækjum fá vottun um að þeir megi ganga frá svona samkomulagi í samráði við öryggisverði,“ segir Andrés Magnússon. Sátt gerð við hnuplara á staðnum Andrés Magnússon Aðgerðir Þjófnaður á eldsneyti var vaxandi vandamál fyrri hluta sumars og var brugðist hart við, segir forstjóri N1.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.