Morgunblaðið - 25.09.2008, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 25.09.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2008 9 FERÐAMENN um Öskju í Dyngjufjöll rak marga í roga- stans um helgina þegar þeir ætl- uðu að baða sig í gígnum Víti en hitastig vatnsins er jafnan yfir 30 gráðum. Var vatnið ískalt þegar fólkið ætlaði að drífa sig ofan í og höfðu sumir áhyggjur af því að eldstöðvarnar í Öskju væru kulnaðar. Að sögn Magnúsar Tuma Guð- mundssonar, jarðfræðings hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Ís- lands, er orsök kalda vatnsins mun einfaldari. Leirinn á svæðinu hleypti vatninu ekki í gegn Fyrir helgina gerði mikið vatnsveður á hálendi landsins og sluppu Dyngjufjöll ekki við úr- komuna. Líklegast hefur rign- ingin flætt ofan í Víti og kælt það tímabundið en svæðið í kring er þakið leir sem hleypir vatni ekki auðveldlega í gegnum sig. Regnið hefur því að mestu leyti runnið í vatnið. Magnús Tumi tel- ur þó líklegt að hitastig vatnsins sé nú orðið eðlilegt. ylfa@mbl.is Rigningin kældi Víti tímabundið Hrútafjörður | Einn þekktasti sölu- skálinn við hringveginn, Staðarskáli í Hrútafirði, opnar í dag í nýju húsi við nýja veginn í Hrútafjarðarbotni. Vegagerðin hefur hleypt umferð- inni á nýjan veg um Hrútafjörð. Við það hvarf brúin á Síká af hringveg- inum en hún var síðasta einbreiða brúin á hringveginum milli Reykja- víkur og Akureyrar. Gamli Brúar- skálinn var rifinn og Staðarskáli fer aðeins úr þjóðleið. N1 sem á rekst- urinn lét byggja nýjan Staðarskála við hringveginn, skammt vestan Hrútafjarðarár, við ný vegamót Djúpvegar. Starfsemi Staðarskála verður með svipuðu sniði í nýju húsnæði, að sögn Kristins Guðmundssonar stöðvar- stjóra, verslun, veitingastaður og bensínafgreiðsla. Skálinn opnar klukkan átta að morgni. Staðarskáli á nýjum stað Kæra ekki frá skiptastjóra Á fimmtudag í síðustu viku var sagt frá rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á flugfélaginu City Star Airlines, sem var í eigu Ís- lendinga. Í fréttinni kom fram að upphaflega hefði kæra borist frá skiptastjóra þrotabús flugfélagsins, fengust þær upplýsingar frá deild- inni. Hið rétta er að kæran barst frá öðrum einstaklingi sem tengist fé- laginu. Er hlutaðeigandi beðinn af- sökunar á mistökunum. LEIÐRÉTT JÓSEF Halldór Þor- geirsson lögfræðingur og fyrrverandi alþing- ismaður lést 23. sept- ember síðastliðinn, 72 ára að aldri. Jósef fæddist 16. júlí 1936 á Akranesi. For- eldrar hans voru Þor- geir Jósefsson forstjóri frá Eystra-Miðfelli í Hvalfjarðarsveit og Svanlaug Sigurðar- dóttir húsfreyja frá Akranesi. Jósef Halldór ólst upp hjá foreldrum sínum á Akranesi og bjó þar alla tíð. Hann lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum á Ak- ureyri árið 1956 og lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1963. Hann starfaði sem framkvæmdastjóri Þor- geirs & Ellerts hf. til ársins 1992 en síðasta hluta starfsævi sinnar starf- aði hann sem lögfræðingur í sam- gönguráðuneytinu. Jósef sat í bæjarstjórn Akraness fyrir Sjálfstæðisflokkinn árin 1966 til 1982 og á Alþingi ár- in 1978 til 1983. Auk þess sat hann í mörg- um nefndum á vegum bæjarins. Jósef starf- aði lengi innan Lions- hreyfingarinnar á Ís- landi og var m.a. umdæmisstjóri árin 1974 og 1975 og fjölum- dæmisstjóri árin 1975 og 1976. Lionsklúbbur Akraness gerði hann að Melvin Jones-félaga árið 1986 en það er æðsta viðurkenning Lionsmanna. Jafnframt starfaði Jósef mikið á vegum Sambands málm- og skipa- smiða og Félags dráttarbrauta- og skipasmiðja, sem bæði runnu inn í Samtök iðnaðarins, og var formaður beggja félagana. Jósef kvæntist eftirlifandi konu sinni, Þóru Björk Kristinsdóttir, 15. mars 1959 í Reykholti í Borgarfirði. Þau eignuðust þrjá syni, Þorgeir, Benjamín og Ellert Kristin. Andlát Jósef Halldór Þorgeirsson www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Flottir jakkar, toppar og buxur Stærðir 38-56 www.xena.is SÉRVERSLUN GLÆSIBÆ S: 553 7060 Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 Fjölbreytt úrval af undirfötum Póstsendum Bómullar- og velúrgallar fyrir konur á öllum aldri margir litir Stærðir S - XXXL ný sending Verið velkomin Velúrgallar M b l 1 0 4 9 2 3 1 Sími 568 5170 , Smáralind, sími 554 3960 • Kringlunni, sími 533 4533 Tax-free-bomba Fríhafnarverð Verið velkomi n Fríhafnarverð á öllum vörum í verslunum okkar þessa helgi fimmtudag til sunnudags m b l1 05 01 59 Fréttir í tölvupósti Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.