Morgunblaðið - 25.09.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.09.2008, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Ég er til dæmis með gamlar sokkabuxur sem ég hef ferðast með um allan heim... 35 » KATRÍN Elvars- dóttir og Einar Falur Ingólfsson hafa verið tilnefnd til hinna virtu ljós- myndaraverð- launa Deutsche Börse Photo- graphy Prize, fyr- ir 2009. Katrín er tilnefnd fyrir sýn- inguna Margsaga, sem stendur nú yfir í Galleríi Ágúst að Bald- ursgötu 12. Í til- efni af tilnefning- unni hefur verið ákveðið að fram- lengja sýningu Katrínar til 14. október. Einar Falur er tilnefndur fyrir sýninguna Staðir – Úr dagbók 1988 – 2008, sem var í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í vor. Deutsche Börse Photography Prize eru veitt fyrir framúrskarandi framlag til samtímaljósmyndunar á árinu. Tilnefning til verðlaunanna er í höndum alþjóðlegs faghóps. Dóm- nefnd velur síðan fjóra úr hópi hinna tilnefndu og er sýning á verkum þeirra sett upp í Photographers’ Gall- ery í London. Fyrstu verðlaun nema rúmlega fimm milljónum króna. Þeir sem hafa unnið til verðlaun- anna síðustu ár eru Esko Männikkö, Walid Raad, Robert Adams og Luc Delahaye. Tilnefnd til verðlauna Katrín Elvarsdóttir Einar Falur Ingólfsson KINKI – skemmtikraftur að sunnan, er heiti einsöngleiks sem Lýðveldisleikhúsið sýnir í tónlistarhúsinu Salnum í Kópa- vogi í kvöld. Einsöngleikurinn hverfist um kertaljósakonsert Kinkis Geirs Ólafssonar og verður þetta eina tækifæri íbúa höf- uðborgarsvæðisins til að sjá verkið. Benóný Ægisson, höfundur þess og leikari, hefur starfað sem rithöfundur frá 1974. Hann hefur starfað í leikhúsi heima og er- lendis og er Kinki – skemmtikraftur að sunnan annar einleikur hans. Leikstjóri er Guðjón Sig- valdason. Sýningin í kvöld hefst klukkan 20. Leiklist Einsöngleikur Benónýs í Salnum Benóný í hlutverki Kinkis ÍSLAND er ekki líkt tungl- inu,“ nefnist fyrirlestur sem Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor við hug- og félags- vísindadeild Háskólans á Ak- ureyri, flytur í fyrirlestraröð AkureyrarAkademíunnar í dag. Eru þetta hugleiðingar um þjálfun tunglfara á Íslandi. Í fyrirlestrinum verður sagt frá ferðalögum bandarískra geimferðaefna um hálendi Ís- lands 1965 og 1967. Sagt verður m.a. frá aðferðum við þjálfun, áhuga íslenskra fjölmiðla og upplifun Íslendinga sem fóru á fjöll með geimförum. Fyrirlesturinn verður fluttur klukkan 17 í dag, fimmtudag, að Þórunnarstræti 99. Hugvísindi Þegar tunglfarar voru á Íslandi Ingólfur Ásgeir Jóhannesson VÍSINDAVAKA Rannís verð- ur haldin á morgun, föstudag, í Listasafni Reykjavíkur, Hafn- arhúsi. Stendur hún frá kl. 17 – 22. Dagurinn er tileinkaður evr- ópskum vísindamönnum og haldinn hátíðlegur víða. Hvers- kyns vísindastörf verða kynnt. Í aðdraganda vísindavök- unnar hefur verið hellt upp á vísindakaffi á hverju kvöldi í Hafnarhúsinu og hafa vís- indamenn flutt erindi. Í kvöld kl 20 er dagskráin Má bjóða þér sláturtertu og rabarbarakaramellur? Sigríður Sigurjónsdóttir prófessor við LHÍ, Bryn- hildur Pálsdóttir vöruhönnuður og Guðmundur H. Gunnarsson frá Matís kynna girnilegar nýjungar. Vísindi Vísindavaka og vísindakaffi Sigríður Sigurjónsdóttir Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „AMMA Dúna sagðist sjálf vera bara venjuleg manneskja, en fyrir mér var hún annað og meira en það,“ segir á boðskorti ljósmyndasýningar Grétu S. Guðjónsdóttur, Dúna. Sýningin er afskaplega persónuleg og hlaðin tilfinningum, ljósmyndir sem Gréta tók af ömmu sinni heitinni, Guðnýju Kristrúnu Níelsdóttur, sem kölluð var Dúna, á fimm ára tímabili. Undir lok ævinnar var hún farin að þjást af vitglöpum og segir Gréta að þess sjáist merki í myndunum ef vel sé að gáð, einkum í augum ömmu hennar. Meðal ljósmyndanna eru nokkrar sem teknar voru undir lok ævi Dúnu, m.a. á sjúkrahúsi og nokkrar af henni liðinni, við kistulagninguna. Í ljósi þess hversu viðkvæmt efni sýning- arinnar er og persónulegt, ekki að- eins fyrir Grétu heldur aðra afkom- endur Dúnu, liggur beinast við að spyrja af hverju hún hafi ákveðið að taka myndirnar og setja á sýningu. „Það sem ég kveið mest fyrir af öllu þegar ég var krakki var að missa ömmu,“ svarar Gréta, þær hafi verið afar nánar og miklir vinir. „Ég held að þetta sé mín leið til að hafa hana alltaf hjá mér, gera hana ódauðlega. Sem ljósmyndari er ég mikið í því að safna minningum, held að þetta sé viss söfnunarárátta.“ Dúna lést fyrir tæpu ári og segist Gréta með sýning- unni votta ömmu sinni virðingu og minnast með sínum hætti. Fór í listaskólapartí Amma Dúna var dugnaðarforkur, vann langt fram á áttræðisaldur og var mjög sjálfstæð, vel gefin og skemmtileg, að sögn Grétu. Gréta rifjar upp þann tíma er hún bjó í Hol- landi og var við listnám, ein með ný- fætt barn. Þá kom amma hennar út til hennar og bjó hjá henni í nokkra mánuði og fór meðal annars með henni í skólaferðalög og partí. „Hún tók fullan þátt í þessu og fannst það gaman,“ rifjar Gréta upp brosandi. Hún segir ömmu sína hafa vitað af því að hún ætlaði að halda sýningu og setið viljug fyrir. „Einhvern tíma voru mamma og systir hennar að baða hana og þá spurði hún: „Á ekk- ert að taka myndir af þessu?“,“ segir Gréta og kímir. Amma hennar hafi verið mikill húmoristi. Sýningin verður opnuð í dag kl. 17. Myndin af ömmu  Gréta S. Guðjónsdóttir minnist ömmu sinnar Dúnu með afar persónulegri ljósmyndasýningu í StartArt  Seinustu fimm árin í lífi hennar skrásett Ljósmyndir/Gréta S. Guðjónsdóttir Nöfnur Dúna yngri sýnir ömmu sinni dýrgrip úr eldhússkúffu. Hægri myndina tók Gréta af ömmu sinni síðar, þegar hún var farin að þarfnast umönnunar. „HILMARS Arnar verður saknað á Suðurlandi. Hann er að söðla um og flytja sig til höfuðborg- arinnar,“ segir Hrólfur Sæmundsson söngvari, en þessa dagana eru samstarfsmenn Hilmars Arnar Agnarssonar organista og kórstjóra, sem er að láta af störfum í Skálholti eftir nær 20 ára farsælt starf, að kveðja hann á Skálholtsstað með þrenn- um tónleikum, fjölbreytilegum tónlistarflutningi. Á þriðjudag voru Hilmar Örn og söngvararnir Hrólfur og Herdís Anna Jónasdóttir með hádeg- istónleika þar sem þau fluttu íslenska tónlist. Þau flytja efnisskrána aftur á tónleikum í Skálholti í kvöld, klukkan 20.00, en þá kemur einnig fram þýski blokkflautuleikarinn Markus Zahnhauser. Á laugardag klukkan 17.30 verður síðan mikil tónlistarveisla í Skálholtskirkju. Þar koma fram þeir kórar sem Hilmar hefur stjórnað undanfarin ár; Skálholtskórinn, Barna- og Kammerkór Bisk- upstungna og Kammerkór Suðurlands. Einnig kemur fram fjöldi hljóðfæraleikara og söngvara. Má þar á meðal nefna Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Hrólf, Margréti Stefánsdóttur og Maríönnu Más- dóttur, sálnabandið Lux Terrae, Hjörleif Valsson og Jóhann I. Stefánsson. Fyrir tónleikana leika Haukur Guðlaugsson, Steingrímur Þórhallsson og Guðjón Halldór Óskarsson á orgel kirkjunnar. Hilmar Örn kvaddur Morgunblaðið/Ásdís Organistinn Hilmar Örn Agnarsson flytur. Fjöldi flytjenda á kveðjutónleikum í Skálholtskirkju GRÉTA segir sýninguna ekki að- eins myndir af fallegri konu heldur myndir teknar á erfiðum tíma, þeg- ar heilsa ömmu hennar tók að gefa sig. „Myndirnar munu eflaust hreyfa við einhverjum, með mis- jöfnum hætti,“ segir Gréta. Það sé vissulega erfitt í fámennu samfélagi að halda jafn persónulega sýningu. Myndirnar séu afar blátt áfram og raunsæjar. „Við amma erum með þessa sýningu saman, finnst mér, þetta er okkar samband.“ Gréta segir ömmu sína ekki hafa tranað sér fram þó að hún hafi vissulega haft ákveðnar skoðanir á hlutunum. Því hafi hún viljað bíða með sýninguna þar til hún væri far- in yfir móðuna miklu. Raunsæi Vefsíða Grétu, www.greta.is. EITT af alræmdustu myndverkum evrópskrar listasögu er á leið á upp- boð. Þegar málverk Edvard Munchs af manni læstum í faðmlag vamíru, var fyrst sýnt fyrir rúmri öld var það fordæmt afar harðlega. Munch mál- aði verkið Ást og sársauka, sem oft- ast er kallað Vampíran, árið 1894. Sumir töldu það vísa til heimsókna listamannsins til vændiskvenna en aðrir að það fjallaði um dauða systur hans. Þegar nasistar fóru með völd í Þýskalandi var það tekið sem dæmi um „úrkynjaða“ list. Samkvæmt dagblaðinu The In- dependent mun verkið, sem hefur verið í eigu sömu fjölskyldu í sjö ára- tugi, verða boðið upp hjá Sotheby’s í haust. Er búst við að nýtt met verði sett þar í verði á verki eftir Munch, en matsverðið er 35 milljónir dala – um 3,3 milljarðar króna. Vampíran hefur verið kallað syst- urverk Ópsins, frægasta málverks Munchs, en bæði eru hluti af 20 verka röð sem kallast Myndröð um lífið. Þetta er það eina þeirra sem enn er í einkaeigu, en Metropolitan- safnið hafði það að láni um skeið. Vampíra í dagsljósið Málverk Munchs verður boðið upp Vampíran Málverk norska lista- mannsins Edvard Munch.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.