Morgunblaðið - 29.09.2008, Page 7

Morgunblaðið - 29.09.2008, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 7            !"# $ % $ & '!( "   $  ( #) *   '  (# $ )"            + , -" . ((  /+ 0  11# 2 '#  " 3(  $ ,( & - $ (# ( 2"( "  #) 4  )) "  ($ (")  .' '( " 4  4 + 5 &  "  '        !  6' "  (  $ & ) 8+ #!3" # & #) "  &$4(") (+ 9+8:+ / 9+;; %- #   (  #) $"  9+8:  "< "# $  #.! ( "   &    !"# $ % $ & = " 1##(<   %  &   '  (    ) *   ) >+;; ? ((3#   < "# $  #.! ( +! , +!  #.! 5.' '( "( ,- # .    !"# $ %'!(  4 ". $4 %  /    (2)  >+@; 5 & (  $ & ) 8+ #+ (+ 9+8:    &   A ) 0!  *   "  )' ).  4.!  + * (") ( 2' 24  12 ' *  " 2$4 "& " ! ' " )  3 " ). 4 4 452 6522+ * (")   )  &  "  ' " +  ) )  " !"  "  -- ("+ MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá Rafmagnsveitum ríkisins: „Í Morgunblaðinu [á laugardag] er fréttaskýring undir fyrirsögninni Misheppnuð markaðsvæðing? Þar er fjallað um hve lítil raunveruleg samkeppni hefur komist á hér á landi á raforkumarkaði og hve lítinn ávinning almennir raforkunotendur hafa af því að skipta um raforku- sala. Vitnað er í samanburð frá verðlagseftirliti ASÍ á gjaldskrám orkufyrirtækjanna, bæði í sam- keppnishlutanum og einkaleyfis- starfseminni. Því miður eru enn við- höfð óvönduð vinnubrögð hjá verð- lagseftirliti ASÍ í samanburði á gjaldskrám orkufyrirtækjanna milli ára. ASÍ hefur tekið saman kostnað fyrir heimili sem notar 4000 kWst og ber saman breytingar á milli ára. Varðandi RARIK og Orkusöluna er samanburðurinn rangur. Rétt er farið með kostnað skv. gjaldskrá í ágúst 2008. Hins vegar lítur út fyrir að þær tölur sem ASÍ notar í sam- anburði sínum og sagðar eru frá ágúst 2007 séu fengnar úr gjald- skrám sem tóku gildi meira en ári fyrr, en giltu fram til janúar 2007. Það lítur út fyrir að ASÍ noti gjald- skrá RARIK sem gilti fyrir flutning og dreifingu frá maí 2006 til og með janúar 2007. Þá virðist ASÍ nota töl- ur úr verðskrá Orkusölunnar frá mars 2006, en ekki frá ágúst 2007. Í samanburði ASÍ á raforkukostn- aði heimila 2007 og 2008 kemur fram sú staðhæfing að á tímabilinu ágúst 2007 til ágúst 2008 hafi hækkun á raforkukostnaði heimilis með 4000 kWst notkun (flutningur, dreifing og sala) hjá RARIK og dótturfélagi þess Orkusölunni verið 15,8% í þétt- býli og 23% í dreifbýli. Hið rétta er að á þessu tímabili hefur raforku- kostnaður þessa heimilis hækkað um 12,3% í þéttbýli og 12,4% í dreif- býli. Gjaldskrá RARIK vegna flutn- ings og dreifingar hefur hækkað frá ágúst 2007 til ágúst 2008 um 16,4% í þéttbýli og 15,7% í dreifbýli. Verðskrá Orkusölunnar fyrir sölu- hlutann hefur hækkað um 6% frá ágúst 2007 til ágúst 2008 en ekki 14,8% eins og fram kemur í grein- inni. Gjaldskrár RARIK frá maí 2006 til dagsins í dag má finna á heima- síðu RARIK www.rarik.is,“ segir í fréttaskýringunni. Rarik gagnrýnir verðlagseftirlit ASÍ Eftir Birki Fanndal Haraldsson Mývatnssveit | Karlakórinn Þrest- ir gladdi Mývetninga með hressi- legum og hljómmiklum söng í Reykjahlíðarkirkju á laugardags- kvöldi. Þeir komu hér við á söng- för um landið í tilefni af 100 ára afmæli Hafnarfjarðar og til að minnast þess að 100 ár eru frá því Friðrik Bjarnason tónskáld hóf störf sem tónlistarkennari í firðinum. Fáum árum síðar var kórinn stofnaður og telja þeir sig vera elstan karlakóra á land- inu. Á söngskránni voru yfir 20 vinsæl lög, sem kórinn flutti öll fallega og af miklu öryggi. Stjórnandi kórsins er Jón Kristinn Cortes en undirleikari Jónas Þórir. Það var góður endir á fögrum haustdegi við Mývatn að hlýða á þennan Þrastasöng. Hafi þeir all- ir þökk fyrir góða skemmtun. Morgunblaðið/Birkir Fanndal Haraldsson Heimsókn Karlakórinn Þrestir frá Hafnarfirði hélt tónleika í Reykjahlíð. Þrastasöngur á hausti LÆKNAFÉLAG Íslands sendir frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: Aðalfundur Læknafélags Íslands, haldinn í Kópavogi 26.–27. septem- ber 2008, lýsir yfir fullum stuðningi við stjórn og samninganefnd félags- ins í yfirstandandi kjaradeilu og heimilar þessum aðilum að hafa for- göngu um nauðsynlegar aðgerðir lækna til að ná fram ásættanlegum samningi við fjármálaráðherra. Aðalfundurinn lýsir yfir stuðningi við þá stefnu ríkisstjórnarinnar að laun séu í samræmi við menntun, reynslu og ábyrgð í starfi. Jafn- framt er lýst yfir áhyggjum vegna þeirrar þróunar sem nú er hafin ef laun lækna verða ekki samkeppn- ishæf við laun lækna í nágranna- ríkjum. Gæði íslenskrar heilbrigðisþjón- ustu byggja ekki síst á framúrskar- andi menntun og metnaði íslenskra lækna. Því er ekki að treysta að ís- lenskir læknar snúi heim til Íslands í framtíðinni eftir langt nám á er- lendri grundu ef þeim mætir óbil- girni og ætlast er til meiri kjara- skerðingar af þeim en öðrum stéttum. Fullur stuðningur er við það meðal lækna að fylgja kröfum sín- um eftir með aðgerðum ef nauðsyn krefur. Læknafélagið styður kjaradeilu lækna Morgunblaðið/Þorkell Læknar Vilja samkeppnishæf laun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.