Morgunblaðið - 29.09.2008, Side 12
12 MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Viðfangsefni næstu ára hjá
Landsvirkjun eru Þjórsá og
Tungnaá. Þrjár virkjanir í
byggð, Urriðafoss-, Hvamms- og Holtavirkjun, gætu
orðið að veruleika á næstu árum og bygging Búðar-
hálsvirkjunar er á næsta leiti. Ragnar Axelsson og
Önundur Páll Ragnarsson halda áfram yfirferð um
ónýtta virkjanakosti landsins.
Þrjár rennslisvirkjanir
í byggð, ein á hálendi
Hvar á að virkja?
Þjórsá verður vatnslítil undir
Þjórsárbrúnni á hringveg-
inum ef Urriðafossvirkjun
kemst í gagnið. Hún verður
þá 130 MW og skilar 980
gígavattsstundum (GWst) af
raforku á ári. Níu ferkíló-
metra inntakslón, Heiðarlón,
verður til með stíflu um
1.500 metra frá þjóðvegi eitt.
Rennslið í hinum náttúrulega
farvegi verður lítið á 3,5
kílómetra kafla fyrir neðan,
þ.m.t. í Urriðafossi. Alls
verða stíflur og garðar 7,6
kílómetrar að lengd og
mesta hæð mannvirkja verð-
ur ellefu metrar. Stíflan við
Heiðartanga blasir við frá
hringveginum og áin fer það-
an í jarðgöngum niður fyrir
Urriðafoss, austan hins nátt-
úrulega farvegar. Segja má
að ætlað framkvæmdasvæði
hennar og Holtavirkjunar
verði nánast samfellt, enda
farvegurinn dýpkaður fyrir
ofan lónið á þriggja kíló-
metra kafla.
Síðust í röðinni
Urriðafossvirkjun verður
byggð síðust. Undirbúningur
hefur líka gengið einna hæg-
ast þar vegna málaferla. Á
föstudag féll dómur í máli
landeiganda í Flóahreppi
gegn Landsvirkjun og ís-
lenska ríkinu. Skv. honum á
ríkið vatnsréttindi að Þjórsá
í landi Skálmholtshrauns. Í
málinu voru brigður bornar
á gildi svonefndra Títan-
samninga, en dómurinn féllst
ekki á það. Fyrir utan mála-
ferlin er samningum ólokið
við fleiri landeigendur þar
heldur en við efri virkj-
anirnar. Virkjunin er á
aðalskipulagi Ásahrepps og
Rangárþings ytra, en Flóa-
hreppur vinnur að breyt-
ingu. 215 athugasemdir bár-
ust hreppnum vegna breyt-
ingarinnar. Í rammaáætlun
fékk Urriðafossvirkjun um-
hverfiseinkunn B, en hagn-
aðar- og arðsemiseinkunn C.
Við hringveginn: Urriðafossvirkjun
Urriðafoss Vatn verður mjög lítið, en nóg fyrir seiðagöngur.
Blasir við Lón og stíflur verða rétt við þjóðveg númer eitt.
Vinnslu-
svæði
Háhita-
svæði
Fyrir-
hugað lón
Veitugöng
Mörk
friðlanda
Þjóðgarðar
Holtavirkjun
R: 1. áf. Stj.: Nei
Urriðafossvirkjun
R: 1. áf. Stj.: Nei
Hvammsvirkjun
R: 1. áf. Stj.: Nei
Búðarhálsvirkjun
R: 1. áf. Stj.: Nei
SULTARTANGALÓN
FRIÐLAND
AÐ FJALLABAKI
DÓMADALSLEIÐ
BÚRFELL
ÞJÓRSÁ
ÞJÓRSÁ
APAVATN
LAUGARVATN
GEYSIR
HEKLA
TINDFJALLAJÖKULL
MÝRDALSJÖKULLÞÓRSMÖRK
HVOLSVÖLLUR
HELLA
Blátt: Vatnsaflsvirkjun Rautt: Háhitavirkjun R: Framkvæmd er inni á rammaáætlun Stj.: Svæði er verndað í stjórnarsáttmála.
ÞJÓRSÁ
Holtavirkjun yrði sú næst
síðasta í framkvæmdaröð.
Þar er undirbúningur lengra
kominn en við Urriðafoss,
t.d. samningar við landeig-
endur.Við allar þrjár virkj-
anirnar þarf að semja við
hátt í 40 landeigendur. Sjö
eða átta samningum er lokið,
þrír eru á lokastigi og þrír
aðrir eru langt komnir, að
sögn Helga Bjarnasonar,
verkefnastjóra hjá Lands-
virkjun Power.
Uppsett afl Holtavirkjunar
verður 53 MW og orku-
framleiðslan 415 GWst á ári.
Inntakslónið, Árneslón, verð-
ur myndað með stíflu í Ár-
neskvísl við bæinn Akbraut í
Holtum. Þar verður einnig
stöðvarhús.
Tveir fossar teknir
Stíflugarðar verða í Ár-
nesi, sem Árnessýsla er
kennd við, 3,8 kílómetra
langir. Stór hluti Árness fer
undir vatn og nokkurt land
austan ár, en lónið verður 4,8
ferkílómetrar. Þar hverfur
Hestafoss, lítill foss í Ár-
neskvísl þar sem um fimmt-
ungur vatns í ánni rennur í
dag. Veitumannvirki við
Búðafoss munu hins vegar
taka 95% vatnsins í kvíslina
og setja rennslið í Búðafossi í
lágmark. Þriggja kílómetra
langur og allt að 75 metra
breiður skurður skilar vatn-
inu aftur í núverandi farveg.
Virkjunin er komin inn á
aðalskipulag Rangárþings
ytra og Skeiða- og Gnúp-
verjahrepps. Hún fékk um-
hverfiseinkunn A í 1. áfanga
rammaáætlunar, hagnaðar-
einkunn B og arðsemis-
einkunn C. Í dag er ætlunin
að bjóða framkvæmdirnar út
á árinu 2010.
Orka frá öllum þremur átti
að fara til Straumsvíkur, en
íbúakosning í Hafnarfirði 31.
mars 2007 setti strik í þann
reikning. Alcan hefur að
hluta til kostað undirbúning.
Holtavirkjun: Árnes og Búðafoss
Fall Búðafoss nánast hljóðnar. Hluti Árness (t.v.) kaffærist.
Miðhúsahólmi Áin fer en lón myndast rétt sunnan við. Árnes
sést neðst til hægri. Stöðvarhús verður við bæinn Akbraut.