Morgunblaðið - 29.09.2008, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 29.09.2008, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 15 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Viðtöl 1. og 3. október Pétur Yang Li, viðskiptafulltrúi sendiráðsins í Kína, mun hitta fulltrúa fyrirtækja sem vilja leita markaðsráðgjafar á umdæmis- svæðum sendiráðsins. Fundirnir verða haldnir á skrifstofu Útflutningsráðs Íslands, Borgartúni 35, og má bóka þá í síma 511 4000 eða með tölvupósti, utflutningsrad@utflutningsrad.is. Auk Kína eru umdæmislönd sendiráðsins: Ástralía, Mongólía, Norður-Kórea, Nýja-Sjáland, Suður-Kórea, Kambódía, Laos og Víetnam. Nánari upplýsingar veita: Andri Marteinsson, verkefnisstjóri, andri@utflutningsrad.is og Hermann Ottósson, forstöðumaður, hermann@utflutningsrad.is. ÞAÐ ER STUTT TIL KÍNA www.utflutningsrad.is www.utn.stjr.is Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is „Í TÆPA tvo áratugi hefur sann- kallað blómaskeið verið til staðar meðal seðlabanka í þróuðum ríkj- um,“ segir Þorvarður Tjörvi Ólafs- son hagfræðingur á hagfræðisviði Seðlabanka Íslands. „Verðstöðugleiki virtist tryggður eftir harða baráttu á níunda ára- tugnum, sveiflur í hagvexti og at- vinnu fóru minnkandi og þrátt fyrir mikinn hagvöxt og lítið atvinnuleysi hélst verðbólga lítil. Fjármálakrepp- ur í þróuðum ríkjum voru sjaldgæf- ar. Norðurlöndin og Japan voru undantekningar sem menn töldu skýrast af hagstjórnarmistökum í þessum löndum og hið sama gilti um tíðar kreppur í þróunar- og nýmark- aðsríkjum. Viðbrögð seðlabanka við áföllum, sérstaklega lækkun hluta- bréfaverðs 1987 og 2001 og gjald- þrotum, voru talin hafa gengið mjög vel og seðlabankar nutu mikilla vin- sælda. Greenspan var guð. Áhættu- sækni fjárfesta sótti því í sig veðrið. Allt virtist þetta vera of gott til að vera satt. Fjármálakreppan núna sýnir að svo var raunin.“ segir Þor- varður Tjörvi. Allt bendi til þess að afleiðingarnar muni leggjast æ þyngra á þjóðarbúskap landa um all- an heim næstu misserin, atvinnu- leysi aukast og hagvöxtur dragast saman. Þorvarður Tjörvi segir að fjár- málakreppan nú sé að sumu leyti hefðbundin. Hins vegar sé þetta fyrsta kreppan eftir að fjármálafyr- irtæki fóru í miklum mæli að pakka lánum inn í ýmsa fjármálagjörninga og selja. Bankar héldu að þeir hefðu dreift áhættunni af auknum útlánum með þessum hætti. „Það reyndist tálsýn,“ segir Þorvarður Tjörvi. Geta lært margt af kreppunni „Seðlabankar geta nú þegar lært margt af fjármálakreppunni og munu örugglega læra enn meira þegar henni lýkur. Ég tel að flokka megi lærdómana í þrennt. Í fyrsta lagi þá sem lúta að áhrifum hnatt- væðingar á verðbólgu og fjármála- stöðuleika, í öðru lagi lærdóma er varða starfsemi fjármálafyrirtækja og virkni markaða sem seðlabankar gerðu sér ekki grein fyrir og í þriðja lagi lærdóma er varða tengsl mark- miða seðlabanka um verðstöð- ugleika og fjármálastöðugleika og hvernig er nauðsynlegt að tvinna þetta betur saman í starfsemi seðla- banka.“ Þorvarður Tjörvi segir vanmat á áhrifum örrar þróunar aukinnar hnattvæðingar fjármálamarkaða skýrast af því að sýn seðlabanka og fjármálaeftirlits á starfsemi fjár- málafyrirtækja og virkni markaða hafi verið of þröng. „Í fyrsta lagi þá er ljóst að fjár- málaeftirlit hefur brugðist að því leyti að hin hefðbundna nálgun, kennd við Basel, sem byggist m.a. á mikilvægi eiginfjárhlutfalla út frá áhættumati á eignum fjármálafyr- irtækja, hefur reynst gagnslaus til að skilja hvers vegna fjármálafyr- irtæki með gott lánshæfismat, eig- infjárhlutföll yfir skilgreindum mörkum og aðgengi að lausafjár- stuðningi seðlabanka komast í þrot. Samspil gírunar [eignir/eigið fé], skammtímafjármögnunar og laus- fjárþrenginga hefur reynst lyk- ilatriði.“ Eftirlitið útvíkkað Þorvarður Tjörvi telur að einn helsti lærdómur kreppunnar út frá eftirlitshlutverki seðlabanka og fjár- málastöðugleika sé að eðlileg við- brögð hvers staks fjármálafyr- irtækis geti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir kerfið í heild sinni. „Annar lærdómur kreppunnar er samt einmitt að það var ekki nóg fyrir seðlabanka að fylgjast með við- skiptabönkunum, hinum kerfislega mikilvægu stofnunum eins og þær voru kallaðar. Safn fjármálafyr- irtækja sem seðlabankar þurfa að fylgjast með er stærra. Seðlabankar vanmátu mikilvægi fjárfesting- arbanka í ákvörðun framboðs láns- fjár á mörkuðum og afleiðingar þess þegar fjárfestingarbankar auka eða draga úr gírun sinni í takt við eigna- verðs- og skammtímavaxtaþróun. Mikilvægi þeirra jókst verulega eftir því sem verðbréfun (e. sec- uritization) óx ásmegin og of slök peningastefna var rekin í heiminum. Þeir mögnuðu uppsveifluna og eru að ýkja niðursveifluna sömuleiðis. Þess vegna verður fjármálaeftirlit að ná til þessara aðila sömuleiðis og spurning hvort rétt sé að setja sér- stök mörk á gírun einstakra fjár- málafyrirtækja.“ Breytt deildaskipting Að þessu sögðu segist Þorvarður Tjörvi Ólafsson vera kominn að loka- atriðinu sem tengist lærdómum kreppunnar um tengsl markmiða seðlabanka um verðstöðugleika og fjármálastöðugleika. „Fyrir kreppuna var litið á þetta sem aðgreind hlutverk og deilda- skipting seðlabanka víðast hvar end- urspeglar það viðhorf. Almennt við- horf seðlabankamanna hefur verið að peningastefnan, þ.e. ákvörðun og miðlun upplýsinga um framvindu stýrivaxta, eigi að einblína á að tryggja verðstöðugleika og að öðr- um tækjum ætti að beita til að tryggja fjármálastöðugleika. Kerf- islega mikilvægum stofnunum ætti að veita lausafjárþjónustu gegn hæf- um veðum og vaxtaálagi. Framlag peningastefnunnar til fjármálastöð- ugleika væri beinlínis fólgið í að tryggja verðstöðugleika því þá væru minni líkur á óstöðugleika í fjár- málakerfinu.“ Hann segir ljóst að ágreiningur ríki nú meðal seðlabankamanna um æskileg tengsl fjármálastöðugleika og verðstöðugleika. Það sjáist í framkvæmd peningastefnunnar báð- um megin Atlantsála og í fræðilegri umræðu innan hagfræðinnar. Þeirri umræðu sé ekki lokið en sú skoðun, að hægt sé að horfa á þessi markmið óháð hvort öðru, sé á hröðu und- anhaldi. Fleiri fjármálakreppur „Almennt séð eru því hlutverk seðlabanka óbreytt frá því fyrir kreppuna. Umhverfið er hins vegar allt annað og áskoranirnar meiri. Sjálfsumgleði sumra seðlabanka- manna hefur beðið skipbrot. Blóma- skeiði síðustu ára er lokið og seðla- bankar þurfa að taka á honum stóra sínum, læra af kreppunni sem nú skekur heimsbúskapinn og treysta innviði fjármálakerfisins til að kom- ast í gegnum þessa kreppu en um leið draga úr líkum á frekari krepp- um í framtíðinni. Það er þó ósk- hyggja ein að halda að heims- byggðin sleppi við fjármálakreppur í framtíðinni en áhrifin á hag almenn- ings og fyrirtækja munu velta á við- brögðum stjórnvalda,“ segir Þor- varður Tjörvi Ólafsson. Greenspan var guð Seðlabankar heimsins eru í brennidepli fjár- málakreppunnar í heiminum. Þeir eru taldir gegna lykilhlut- verki í að vinda ofan af ástandinu sem nú ríkir. Þorvarður Tjörvi Ólafs- son, hagfræðingur á hagfræðisviði Seðla- banka Íslands, segir óskhyggju að halda að slíkt gerist ekki aftur en viðbrögð stjórnvalda skipti máli. Morgunblaðið/Valdís Thor Hagfræðingurinn Þorvarður Tjörvi Ólafsson segir lausa- fjárþrengingar í öðrum gjald- miðlum en innlendum kalla á al- þjóðlega samvinnu seðlabanka eins og nýleg dæmi sýna. Lausa- fjárþjónusta og þrautavaralán seðlabanka er undir vaxandi áhrifum hnattvæðingar. Þorvarður Tjörvi Ólafsson telur að sýn seðlabanka og fjármálaeftirlits á starf- semi fjármálafyrirtækja og virkni markaða hafi verið of þröng. Þessar stofnanir vanmátu áhrif örrar þróunar aukinnar hnattvæðingar fjár- málamarkaða. 1) Hnattvæðing vöru, þjónustu og vinnuafls átti sinn þátt í að halda verð- bólgu niðri í þróuðum ríkjum með því að auka flæði ódýrra vara frá nýmark- aðsríkjum. Nú hefur dregið úr þessum áhrifum, m.a. vegna hærri fram- leiðslukostnaðar í nýmarkaðsríkjum þar sem laun og hrávara hefur hækkað í verði. Seðlabankar þurfa því að end- urmeta áhrif hnattvæðingar vöru og þjónustu á verðbólgu. Sú vinna var haf- in áður en kreppan skall á. 2) Hnattvæðing peningastefnu: Of slök peningastefna á heimsvísu ýtti einnig undir eignaverðsbólu um allan heim. Lágir vextir í Bandaríkjunum í kjölfar þess að netbólan sprakk leiddu til slakari peningastefnu í fjölmörgum Asíu- og olíuríkjum sem binda gengi sinna gjaldmiðla við gengi Bandaríkja- dals. Heimurinn glímir nú við afleið- ingar þess að eignaverðsbólan, sem varð til vegna þess að of slök pen- ingastefna í Bandaríkjunum hafði áhrif á peningastefnu um allan heim, hefur sprungið og húsnæðisverð lækk- ar ört um nær allan heim. 3) Hnattvæðing fjármálamarkaða (e. financial globalisation) sem hefur verið gífurlega ör og seðlabankar hafa ekki náð að fylgja þeirri hröðu þróun eftir. Ör vöxtur alls kyns fjármálafyrirtækja og -sjóða, vaxandi vinsældir verðbréf- unar (e. securitization) og aukin áhættusækni í kjölfar láglendis í vax- taumhverfi heimsins eru allt þættir sem hafa haft gífurleg áhrif á fram- vinduna í fjármálakreppunni. Seðla- bankar áttu mjög erfitt með að meta áhrif þeirra áður en kreppan skall á, m.a. vegna þess að fjármálamarkaðir gegna takmörkuðu hlutverki í þjóð- hagslíkönum seðlabanka. Flestir seðla- bankar heims vinna nú ört að því að veita fjármálamörkuðum og -stofn- unum aukið vægi í líkönum sínum. Að- greining fjármálaeftirlits og seðla- banka í ýmsum löndum var ekki heldur til þess fallin að skapa yfirsýn stjórn- valda yfir þessa markaði. Of þröngt sjónarhorn seðlabanka

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.