Morgunblaðið - 29.09.2008, Side 20

Morgunblaðið - 29.09.2008, Side 20
20 MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞAÐ gladdi mig ósegjanlega þegar ég opnaði Moggann á laugardaginn og sá að ritstjórinn hafði séð ástæðu til að leggja sjálfa Staksteina undir umfjöllun um málefni sem ég hafði þá daginn áður leyft mér að vekja máls á, á opinberum vettvangi. Loksins, loksins, hugsaði ég, er maður orðinn maður með mönnum. Það er sannarlega ekki á hverjum degi sem smákallar eins og ég njóta slíkrar upphefðar. Ég færi blaðinu hugheilar árnaðaróskir og þakka auðmjúklega fyrir þennan heiður. Það sem ég hafði leyft mér að nefna er þetta. Í lögum á Íslandi og raunar hvarvetna á Vesturlöndum er regla sem bannar að fólki sé mis- munað vegna kynferðis. Þetta á t.d. við um það þegar atvinnurekendur ráða sér fólk til starfa. Þeim er þá óheimilt að mismuna umsækjendum um starf á grundvelli kynferðis. Í lög- unum er jafnframt sett regla sem varðar sönnun slíkra brota. Ef leidd- ar eru líkur að beinni eða óbeinni mis- munun vegna kynferðis skal atvinnu- rekandi sýna fram á að aðrar ástæður hafi legið til grundvallar ákvörðun hans. Með öðrum orðum; ef atvik máls hlutrænt séð benda til þess að um mismunun á grundvelli kynferðis sé að ræða er það lagt á atvinnurek- andann að sýna fram á að aðrar mál- efnalegar ástæður hafi legið að baki ákvörðun hans. Sönn- unarbyrðin færist yfir á atvinnurekandann. Allt er þetta ágætt. Í jafnréttislögum er kveðið á um tilvist og hlutverk nefndar sem þeir sem telja á sér brotið geta leitað til. Það er Kærunefnd jafn- réttismála. Eftir breyt- ingar sem gerðar voru á lögunum fyrr á þessu ári hefur hlutverk nefndarinnar meira að segja fengið aukið vægi. Nú er unnt að fylgja eftir niðurstöðum hennar sem eru endanlegar á stjórnsýslustigi t.d. með dagsektum á hendur þeim sem gerast brotlegir. Við mat á því hvort brotið hafi ver- ið gegn reglunni um bann við mis- munun á grundvelli kynferðis er fyrst og fremst litið til þátta einsog sam- anburðar á menntun og starfsreynslu umsækjenda. Á síðari árum hefur hins vegar borið æ meir á því, eink- anlega í málum sem varða ráðningar að litið hafi verið til annarra þátta. Kærunefnd hefur einsog hún sjálf orðar það, litið svo á með vísan til dómaframkvæmdar að játa verði at- vinnurekanda nokkurt svigrúm við mat á vægi menntunar og starfs- reynslu umsækjenda, svo og við mat á öðrum þáttum sem máli er talið skipta og málefnalegt að líta til í við- komandi tilviki. Hvað þýðir þetta? Jú, í einstöku tilvikum kann aðstaðan að vera sú að réttmætt sé með vísan til séreðlis starfs eða sérstæðra atvika sem varða menntun eða starfsreynslu umsækjenda að taka þann framyfir sem minni menntun eða starfs- reynslu hefur. Þetta getur verið lög- legt en er auðvitað algjör undantekn- ing frá meginreglunni. Þegar horft er yfir niðurstöður Kærunefndar á síðustu árum varð- andi ráðningarmál virðist þessi und- antekning á góðri leið með að verða aðalregla. Kærunefndin hefur hvað eftir annað komist að því að tilvik sem hlutrænt séð virðast vera brot séu það ekki, með vísan til svona sjón- armiða. Ef svigrúm atvinnurekandans við mat á vægi menntunar og starfs- reynslu umsækjenda, og við mat á öðrum þáttum sem máli skipta er eins rúmt og Kærunefnd jafnréttismála virðist álíta styttist í það að að- alreglan um bann við mismunun verði haldlaus. Þá er illa farið. Þarna sýnist mér að Kærunefnd jafnréttismála sé á villigötum. Ég er sammála Staksteinum um að aðalatriði málsins er ekki að Kæru- nefndin telji alltaf að um brot sé að ræða heldur að hún komist að réttum niðurstöðum. Ég óttast hins vegar að með þessari aðferðafræði verði það oft ekki raunin. Þakkarávarp! Ástráður Haralds- son svarar Stak- steinum » Þegar horft er yfir niðurstöður Kæru- nefndar á síðustu árum varðandi ráðningarmál virðist þessi undantekn- ing á góðri leið með að verða aðalregla. Ástráður Haraldsson Höfundur er hæstaréttarlögmaður og dósent við Háskólann á Bifröst. „VEISTU að hjóla- stólinn þinn er úr áli?“ sagði lögregluþjónn við einn þeirra sem stöðv- uðu vinnu í Helguvík í sumar. Hann kaffærði rök álversandstæðinga fyrir fullt og allt, er það ekki? Eftir að grein Jakobs Björnssonar um Björk Guðmunds- dótur og álnotkun hennar birtist í Morgunblaðinu tók ritstjórn blaðsins sig til og skrifaði Staksteina þar sem sagt er að flestir álversandstæðingar séu líklega ekki samkvæmir sjálfum sér. Flestir noti þeir ál dags daglega og meira að segja Saving Iceland eldi í álpottum og noti álstangir til að halda uppi tjöldum sínum. „Hræsni,“ sagði Mogginn. Þessi gagnrýni er ekki ný. Hún hefur markvisst verið notuð gegn þeim sem eru mótfallnir frekari upp- byggingu stóriðju hér á landi, eyði- leggingu íslenskrar náttúru fyrir orkuframleiðslu og vistkerfa út um allan heim vegna báxítgraftar, og orkusölu til fyrirtækis sem montar sig af samstarfi sínu við bandaríska herinn. Auk þess þegar álvers- andstæðingar eru ásakaðir um að vilja færa íslenskt samfélag aftur til torfkofanna og byggja efnahag lands- ins á fjallagrasatínslu, hefur þessi gagnrýni verið sú fyrirferðarmesta. Sama hversu oft er búið að benda á þá staðreynd að a.m.k. 30% af áli eru framleidd fyrir hergagnaiðnaðinn (og þá skiptir engu hvort álfyrirtækið sjáft framleiðir vopnin eða ekki); sama hversu oft búið er að segja frá því hversu mikið ál endar sem land- fylling eftir að hafa gegnt hlutverki sínu sem einnota drykkjarílát; þó bú- ið sé að benda á samhengið milli lágs orkuverðs og þess hversu auðvelt það er fyrir okkur að framleiða ál, nota einu sinni, henda því svo og framleiða meira; ennþá er okkur sagt að við séum ekki sjálfum okkur samkvæm. Svo er hamrað á því, nú síðast í leiðara DV 9. sept., að það sé siðferði- leg skylda okkar Ís- lendinga að drekkja há- lendinu og rústa jarðhitasvæði fyrir orkufreka álfram- leiðslu; það sé okkar umhverfisverndarinn- legg. Ef álfyrirtækin fái ekki að byggja álver hér á landi verði þau bara byggð annars staðar og keyrð áfram á óumhverfisvænni hátt. Hvílíkt kjaftæði! Alcan vill nú auka framleiðslu sína í Straumsvík, helst stækka ál- verið og byggja fleiri álver hér á landi. Á sama tíma ætlar Alcan að byggja álver á skattfrjálsu svæði í Suður-Afríku og öllum að óvörum verður álverið keyrt áfram á kolum og kjarnorku. Orkuverðið skiptir öllu máli, ekki umhverfið. Álframleiðsla verður aldrei umhverfis- eða mann- úðarvæn. Í Orissa-héraðinu á Indlandi búa ættflokkar sem hafa alla tíð lifað í samlyndi við umhverfi sitt. Vist- fræðilegt fótspor þeirra sést varla, á sama tíma og lífsstíll hinna „þróuðu“ Vesturlandabúa er svo skaðlegur að nokkrar plánetur í viðbót þyrfti til ef allir jarðarbúar ættu að hljóta þessi „lífsgæði“ okkar. Ættflokkarnir búa við og í fjöllunum en eru svo „óheppnir“ að búa bókstaflega á hrá- efnisparadís áliðnaðarins. Barátta þeirra gegn eyðileggingu landsins síns fyrir báxítgröft hefur staðið yfir í langan tíma og hefur hingað til verið friðsamleg, innan ramma laganna. Viðbrögð yfirvalda og hagsmunaaðila hafa hins vegar verið ofbeldisfull, m.a. leitt til dauðsfalla. Nú hefur hæstiréttur landsins dæmt námufyr- irtækinu Vedanta í hag. Menning- arleg þjóðarmorð eru á næsta leiti. Andri Snær Magnason svaraði grein- um Jakobs og ritstjórn Morgunblaðs- ins og spurði „Hvenær er komið nóg?“ Og Jakob var fljótur að svara: „Þegar meirihluti kjósenda á Íslandi hefur með atkvæði sínu í þingkosn- ingum ákveðið að nóg sé komið. Fyrr ekki.“ En staðreyndin er önnur. Hnatt- rænt ferli og áhrif álframleiðslu ná langt út fyrir Ísland. Það er ekki einkamál okkar Íslendinga hvort ál sé framleitt, báxít grafið, samfélög þurrkuð út og vistkerfi lögð í rúst. Og jafnvel þó svo væri getum við rifjað upp hvað gerðist í aðdraganda og kjölfar alþingiskosninganna vorið 2007. Samfylkingin mætti til leiks með umhverfisstefnu sína „Fagra Ís- land“ og boðaði stóriðjustopp til fimm ára. Nú u.þ.b. einu og hálfu ári seinna hafa ráðherrar flokksins lýst yfir stuðningi við tvö ný álver og sam- hliða virkjun jarðhitasvæða og jök- uláa; tekið skóflustungur að álverum og skrifað undir samninga bak við lokaðar dyr. Allt í boðið lýðræðisins! Það er komið meira en nóg! Það þarf ekki að framleiða meira ál. Það þarf ekki að grafa upp meira báxít og út- rýma fleiri frumstæðum sam- félögum. Það þarf ekki að framleiða fleiri „grænar“ sprengjur, ekki fleiri létt hertæki sem drepa samt jafn vel og þau þungu, ekki fleiri „umhverf- isvæna“ bíla, ekki fleiri endurvinn- anlegar bjórdósir. Það þarf ekki að virkja fleiri ár, drekkja fleiri fossum, slóðum hreindýra og friðlöndum. Það þarf ekki að senda út fleiri „Lowest Energy Prices“ bæklinga, skrifa fleiri skýrslur um ímyndarsköpun Ís- lands og halda fleiri „Pure Energy“ landkynningarhátíðir. Það þarf að ýta á stopp. Þessi grein var skrifuð í tölvu. Hræsni? Ætti ég kannski í stað þess að skrifa greinar um skaðsemi álframleiðslu, að flytja upp í fjöll Or- issa-héraðsins og berjast gegn stór- fyrirtækjum og yfirvöldum með prik- um og steinum? Vera svo drepinn fyrir það eitt að vilja vernda jörðina og íbúa hennar? Hræsni? Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson skrifar um ál »Enn á ný eru áland- stæðingar sagðir vera hræsnarar. En fyr- ir hvað? Að vilja vernda jörðina og íbúa hennar? Að vilja heilbrigt um- hverfi og samfélag? Snorri Páll Jónsson Höfundur er listamaður. Deilur á milli stjórnenda Strætó bs annars vegar og Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar hins vegar hafa nú verið til lykta leiddar með samkomulagi á milli aðila. Að okkar mati höfðu stjórn- endur farið offari hvað varðar áminningu sem starfsfólki hafði verið veitt vegna meintra brota í starfi, brottvikningu úr starfi, auk þess sem stjórnendur höfðu neit- að að virða niðurstöður Starfs- mannafélagsins um hverjir skyldu gegna stöðu trúnaðarmanna. Öll þessi mál voru komin í far- veg dómstóla og vitnaleiðsla fyr- irhuguð í vikunni í einu málanna. Hlutaðeigandi aðilar náðu hins vegar samkomulagi um að deilu- mál þessi yrðu látin niður falla að fullu. Trúnaðarmaður okkar, sem vikið hafði verið úr starfi ólöglega að okkar mati, óskaði eftir því að við beittum okkur fyrir sam- komulagi til að tryggja hagsmuni hans, sem við og gerðum með ásættanlegri niðurstöðu. Það er meira en lítið misvísandi að for- stjóri Strætó bs. láti hafa eftir sér, eftir gerð samkomulagsins, að það sem standi eftir sé áminn- ing og uppsögn. Þetta er ekki rétt eins og hér hefur verið rakið. Við óskum Strætó bs velfarn- aðar og öllum þeim sem þar starfa. Starfsmannafélag Reykja- víkurborgar og BSRB munu leggja sitt af mörkum til að efla Strætó bs í hvívetna. Nýgert sam- komulag er liður í markvissu átaki til að beina samskiptum stjórnenda og annarra starfs- manna inn í uppbyggilegri farveg en hann hefur verið í um skeið. Ögmundur Jónasson og Garðar Hilmarsson Athugasemd vegna fréttar um Strætó bs. Garðar er formaður Starfsmanna- félags Reykjavíkurborgar. Ög- mundur er formaður BSRB. MIKIÐ hefur verið rætt um framtíð Reykjavíkurflug- vallar að undanförnu. Það má alveg segja það hreint út að frammistaða Ólafs F. Magnússonar hefur verið til fyrirmyndar. En mitt í nýjasta reiðuleysisrugli er aftur komin upp sú staða hjá þeim, sem minnst skilja um hvað málið snýst, að ryðja flugvellinum á burt. Flugvöllurinn er aðalsamgönguæð hálfrar milljónar manna á hverju ári. Flugvöllurinn er ekki bara Reykjavíkurmál, þetta er mál allra þeirra sem utan Reykjavíkur búa. Það hlýtur að vera verkefni ríkisstjórnar að ganga þannig frá þessu máli að framtíð flugvall- arins verði tryggð á þeim stað sem hann er núna. Frá upphafi hefur verið hrúgað upp í Reykja- vík alls konar þjónustu fyrir alla landsmenn sem fólk neyðist til að sækja til Reykjavíkur utan af landi. Það er komið að því, að koma því kirfilega til skila til ráðamanna borgarinnar að ef fólk utan Reykjavíkur á að sækja þangað þjónustu þá þarf sú þjónusta að vera aðgengileg. Ef þetta mál er látið druslast áfram í þekkingarleysi kjörinna borgarfulltrúa hlýtur að verða krafa allrar landsbyggðarinnar að ef reisa á nýtt stórsjúkrahús þá verði það reist á þeim stað sem geri það aðgengilegt að komast þangað. Það er alveg óhæft að hrúga upp alls konar þjónustu á einn stað og hindra svo fólk í því að sækja þá þjón- ustu sem er í mörgum tilfellum spurning um líf eða dauða. Ef Keflavíkurvöllurinn yrði gerður að innanlandsflugvelli fyrir Reykjavík er kominn tími til að safna saman þjónustu rík- isins í Keflavík. Nýtt stórsjúkra- hús yrði þá reist í Reykjanesbæ. Það er ekki neitt erfiðara fyr- ir Reykvíkinga að sækja þjónustu til Reykjanesbæjar held- ur fyrir Reykjanes- bæjarbúa að sækja þjónustu til Reykja- víkur. Það er alltaf verið jagast á því hvað hægt væri að selja lóðirnar á sem nú eru undir flugvellinum. Þegar búið er að eyði- leggja Reykjavíkurflugvöll mundu á að giska 750 þúsund vinnustundir fara í súginn árlega og fara vaxandi með hverju ári. Það yrði því bara einfalt reikn- ingsdæmi hvað það tæki mörg ár að gera hagnaðinn af lóðaríinu hjá borgarstjórn Reykjavíkur að engu. Sú hugmynd að fara að setja upp járnbraut milli Kefla- víkur og Reykjavíkur er þvílík for- áttuheimska að það er varla hægt að eyða orðum að þeirri vitleysu. Járnbrautir hafa alla tíð verið ein- hver leiðinlegasti ferðamáti sem til er og eru alveg gífurlegur slysavaldur. Það mundi allur lóð- aríispeningurinn fara í slíka heimskuframkvæmd og í viðbót tíminn sem fer í að skrölta á milli staða og þau mannslíf sem mundu tapast í sam- bandi við þá framkvæmd. Það tek- ur um það bil 5 til 8 kílómetra að stöðva lest sem er á fullri ferð og þau hryllilegu járnbrautarslys sem orðið hafa alveg nýlega í Banda- ríkjunum og Þýskalandi gætu gerst hér hvenær sem er og oft á ári. En þegar menn eru farnir að taka dæmi af flugslysum erlendis og reyna að hrekja burt flugvöll- inn með því staðsetja þau á öðrum stöðum í nágrenni við Reykjavík- urflugvöllinn þá tekur fyrst alveg steininn úr. Að lokum þetta: Ódýrast yrði að flytja alla þjónustu sem safnað hefur verið saman í Reykjavík til Reykjanesbæjar og þá getur Reykjavík verið bara fyrir sjálfa sig! Ég er viss um að Reykjanes- bær tæki því fegins hendi. Reykjavíkur- flugvöllur Bergsveinn Guð- mundsson skrifar um staðsetningu Reykjavík- urflugvallar og byggingu sjúkra- húss Bergsveinn Guðmundsson » Þegar búið er að eyði- leggja Reykja- víkurflugvöll mundu á að giska 750 þús- und vinnustund- ir fara í súginn árlega Höfundur er á ellilaunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.