Morgunblaðið - 29.09.2008, Page 21

Morgunblaðið - 29.09.2008, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 21 NÚ BERAST frétt- ir af því að banda- ríska alríkislögreglan ætli að skoða bókhald stórra fjármálafyr- irtækja þar vestra nánar og hafi í hyggju að refsa þeim sem farið hafa offari í fjárfestingum og beinlínis orðið valdir að hruni verðbréfa á mörkuðum heimsins. Einkum beinist rannsóknin að fjárfesting- arbankanum Lehman Brothers, tryggingafélaginu AIG og íbúða- lánasjóðunum Fanny Mae og Freddie Mac. Samtímis talar Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti fyrir því að hinir ábyrgu fyrir fjár- hagslegum hrakförum undangeng- inna vikna og mánaða verði „látnir svara til saka og þeim refsað“. Það fer um menn við slík tíð- indi. Enginn handrukkari getur tekið að sér það verkefni að berja slíka svikajöfra til hlýðni, um það verður ríkisbáknið að sjá, verkfæri hins frjálsa markaðar duga þar engan veginn til. Hérlendis eru þó lýðræðislega kosin yfirvöld í bið- stöðu, enginn hefur enn þorað að minnast á rannsókn og refsingu vegna fjárglæfra og offors íslenskra at- hafnamanna. Það get- ur nefnilega verið af- ar erfitt í litlu samfélagi þar sem tengslin milli lýðræð- islega kosinna fulltrúa þjóðarinnar og fjár- málafursta eru oft nánari og gagnsærri en gerist og gengur erlendis. Skipbrot nýfrjáls- hyggjunnar um allan heim hefur ýtt undir nostalgíu íslenskra fjármálafursta sem leita nú örvæntingarfullir að leiðum til þess að komast hratt og áhyggjulítið aftur til gullaldar þensluskeiðsins, sem ríkti upp úr aldamótum hérlendis. Þar á bæ eygja menn helst von í afnámi krónunnar og einhliða upptöku evrunnar. Eitthvað verður að gera strax, menn eru hættir að græða milljarða og botnlaust hyldýpi gjaldþrotsins blasir við mörgum. Óttinn við að farið verði að skyggnast betur í bókhald fjár- festingarfyrirtækja og útrás- arauðjöfra er sem óðast að grípa um sig, hver veit nema að skort- sala verði bönnuð og Kvíabryggja sé næsti áfangastaður fyrir þá sem hæst riðu holskeflu nýfrjáls- hyggjunnar og reyna jafnvel enn eftir að hún hefur fjarað út í eyði- sanda kaldra staðreynda. Útlitið fyrir að einhliða upptaka evrunnar geti leyst vandann nógu hratt er þó hverfandi. Í Brussel hafa menn víst nóg með sitt þótt þeir fari ekki að sinna vandræðum óekta króga sambandsins í miðju Ball- arhafi. Enn aðrir binda vonir sínar við aðgerðir Bandaríkjastjórnar til þess að finna úrlausn á vandamál- unum kringum hin svokölluðu undirmálslán og vonast til þess að hinn frjálsi heimsmarkaður hress- ist verulega við afskipti rík- isbáknsins þar vestra. Það er af sem áður var þegar ekki mátti heyrast minnst á opinber afskipti. Sannarlega er komið nýtt hljóð í strokk nýfrjálshyggjumanna enda virðast þeir fremur ráðalausir gagnvart þeim draug sem þeir sjálfir hafa vakið upp. Það vekur athygli að áhyggjur fjárglæframanna virðast eiga um- búðalausa samúð langt inn í raðir Samfylkingarinnar. Enn eru ekki allir búnir að missa trúna á lög- málum hins frjálsa markaðar að því er virðist. Í grein sem Helgi Hjörvar skrifar í Morgunblaðið 24. september lýsir hann áhyggj- um sínum af því að lánskjör fjár- málafurstanna hafi versnað og lausafjárskorts hafi orðið vart. Helgi sér ráð við því, einkavæð- ingin verður að halda áfram. „Sóknarfæri gætu t.a.m. verið í því að selja einkaaðilum Kára- hnjúkavirkjun og fleiri virkjanir í eigu hins opinbera,“ skrifar Helgi. Raunar kveðst hann vilja leigja rekstur virkjananna með samningum til ýmist 20 eða 40 ára, en þetta segir hann vera í samræmi við samkomulag rík- isstjórnarflokkanna í orku- málum,“ sem undirstrikar það áhersluatriði jafnaðarmanna að auðlindirnar séu í almannaeign en opnar fyrir einkarekstur virkj- ananna sjálfra.“ Fagra Ísland er með öðrum orðum boðið einkaaðilum til leigu eða sölu. Helgi kveðst að vísu ekki vilja virkja meira en það sem þegar er farið í gang, en vill að nægilegt rafmagn fáist fyrir álver á Bakka og Helguvík sem hann segir að ekki verði stöðvuð, en hann vill væntanlega láta einka- aðila um að græða á þessum fyr- irhuguðu álverum næstu 20-40 ár- in líka. Að þeim tíma liðnum verður álmarkaðurinn sennilega hruninn hvort eð er svo vel er við hæfi að almenningur geti tekið aftur við rekstri álveranna, sem alls óvíst er hvort munu skila neinu öðru af sér þá en fjárhags- legu tapi og óbætanlegum umverf- isspjöllum. Það er sama sagan, jafn- aðarmenn eru ávallt seinastir til að átta sig á breyttum tímum og aðstæðum. Þeir stóðu lengst allra vörð um þunglamalegt ríkisbáknið þegar nýfrjálshyggjan hófst til vegs og virðingar. Nú tvíhalda þeir hins vegar um merki nýfrjáls- hyggjunnar á vígvöllum hrynjandi markaða og virðast fáar aðrar úr- lausnir eiga aðrar en að halda einkavæðingunni áfram þar til yfir lýkur. Það brennur í kauphöllum heimsins, fjárglæfrapólitík und- angenginna ára er að sliga efna- hag íslenskra heimila. Hvenær ætlar brunalið íslenskra stjórn- málamanna að svara útkallinu? Er ekki full þörf á að hyggja að því hverjir dregnir skuli til ábyrgðar fyrir því ófremdarástandi sem nú ríkir, eða á að bíða fordæmis stjórna Bandaríkjanna og Efna- hagsbandalags Evrópu? Babú, það brennur í kauphöllunum Kristján L. Guð- laugsson skrifar um efnahagsástandið » Óttinn við að farið verði að skyggnast betur í bókhald fjárfest- ingarfyrirtækja og út- rásarauðjöfra er sem óðast að grípa um sig. Kristján L. Guðlaugsson Höfundur er blaðamaður og sagnfræðingur. VIÐ erum eina þjóðin meðal velmeg- unarríkja heims sem enn býr ekki að tæknimiðstöð (science center) til eflingar raungreinamenntun og tækniþróun. Þess vegna njóta íslensk skólabörn ekki sömu menntunaraðstöðu og börn í þeim grannríkjum okkar sem við berum okkur gjarna saman við. „Menntun í fremstu röð“ er hástemmt og vinsælt slagorð sem m.a. má sjá í stefnuyfirlýsingu nú- verandi ríkisstjórnar og í stefnu Vísinda- og tækniráðs. Þau orð verða þó innantóm meðan þetta mikilvæga atriði vantar. Vissulega eigum við í heildina gott mennta- kerfi og búum að hæfu og vel menntuðu fólki í kennarastéttum. En er það nóg? Hvað um áhuga- vakninguna? Hvað um fjölbreytni í námsaðferðum? Hversvegna nýtum við ekki úrræði sem öðrum þjóðum gefast vel? Við búum í grundvall- aratriðum við sömu þarfir í at- vinnumálum og þróun og aðrar þjóðir, og höfum tileinkað okkur fjölmargar lausnir grannþjóðanna. Menntakerfi okkar er að stofni inn- flutt, þó að það sé þróað og aðlagað okkar aðstæðum. Þar hefur þessi veigamikli þáttur orðið útundan. Samanburðarrannsóknir í raun- greinamenntun, s.s. pisa-kann- anirnar, staðfesta óviðunandi stöðu okkar í þessum efnum. Starfsemi tæknimiðstöðva er flestum fram- andi sem ekki hafa kynnst þannig stofnunum erlendis. Tækni- miðstöðvar eru stofur með leik- tækjum og öðrum gagnvirkum búnaði (hands-on), þar sem not- endur, t.d. nemendur, geta með eigin tilraunum og leikjum kynnst virkni tækja, eðlislögmálum, fram- leiðslutækni og nýsköpun. Margs- annað er að það nám gagnast best og lengst sem aflað er við upplifun og leiki; mun betur en það sem numið er af bók eða við ítroðslu. Þannig nám hentar einnig mun breiðari hópi nem- enda. Þessar stað- reyndir hafa stjórn- völd flestra ríkja gert sér ljósar og í öllum grannríkjum okkar er starfræktur fjöldi tækni- miðstöðva. T.d. vinna Norðmenn eftir markvissri stefnu í þessum málum, og hefur fjöldi tækni- miðstöðva risið þar í öllum landshlutum á síðari árum. Kennaraháskóli Ís- lands/SRR skilaði sérfræðiáliti á sl. ári, þar sem eindregið er lagt til að komið verði upp svona stofnun hérlendis til stuðnings við raungreinakennslu og áhugavakn- ingar. Fyrir liggja einnig sam- hljóða álit fjölda landssambanda á sviði kennslu, nýsköpunar og at- vinnulífs. Þrátt fyrir öll eindregin álit sérfræðinga og þjóðlífs gætir enn tregðu menntamálayfirvalda. Tæknimiðstöðvar eru mikilvægar fyrir menntun, en hafa þó enn víðtækara hlutverki að gegna. Þær miðla fróðleik og áhugavakn- ingu um tækni og vísindi. Þær halda utan um og kynna þjóð- ararfinn á tæknisviði, s.s. nýsköp- un, hugvit og tækniþróun. Þar er kynnt tækni samtímans; fram- leiðslufyrirtæki; hátæknifyrirtæki og nýjungar á sviði tækni og vís- inda. Tæknimiðstöðvar eru stolt og ásjóna hverrar þjóðar í tækni- væddu alþjóðasamfélagi. Við vilj- um standa öðrum þjóðum jafn- fætis á öllum sviðum þróunar. Þurfum við ekki að fara að skapa okkur ásýnd sem tæknivædd þjóð með opnun þjóðartækni- miðstöðvar? Síðustu fimm ár hef- ur áhugafólk úr ýmsum geirum samfélagsins unnið að úrbótum í þessum efnum. Það starf komst á formlegan grunn þegar samtökin ÁTAK voru stofnuð, fyrr á þessu ári. Nafnið stendur fyrir „Áhuga- samtök um tæknimiðstöð fyrir al- menning og kennslu“ og eru sam- tökin opin öllum. Mikil vinna er að baki í upplýsingaöflun, kynn- ingum, öflun sérfræðiálita og öðru. Ásamt samtökunum hefur verið stofnaður samráðshópur, skipaður 20 fulltrúum fjölmargra landssambanda og stofnana, ásamt fræðimönnum og áhugafólki. Efnt hefur verið til samvinnu við nokkr- ar erlendar tæknimiðstöðvar, og fyrir liggur vilyrði þeirra um ráð- gjöf og aðra aðstoð. Þeirra á meðal er Ontario Science Centre í To- ronto, ein virtasta tæknimiðstöð heims, og í forystu ASTC; alþjóða- samtaka tæknimiðstöðva. Nú þegar eru hafnir nokkrir þættir sem verða væntanlega hluti af starfsemi hinnar íslensku tæknimiðstöðvar. Má þar nefna vefsíðuna www.tsi.is, sem er bæði upplýsingaveita fyrir starfið og einnig fróðleiksnáma fyr- ir skóla og aðra. Söfnun er hafin á ýmsum tækniminjum, m.a. kominn vísir að fyrsta íslenska tölvusafn- inu. Að auki hefur ÁTAK stofnað verkefni um ritun sögu íslenskra hugvitsmanna, í samvinnu við Reykjavíkurakademíuna og Lands- samtök hugvitsmanna og -kvenna, en sú merka saga hefur enn ekki verið skráð. Enn hefur ríkisvaldið ekki komið að þessu verkefni af fullri alvöru. Fengist hafa litlir styrkir sem nægt hafa fyrir útlögð- um kostnaði. Það hefur ekki nægt til að hefja gerð vandaðra heildar- áætlana, eða rekstrarlíkans, sem er forsenda fyrir umræðu og ákvarð- anatöku. Þörfin hefur verið stað- fest. Áætlanir liggja fyrir og áhugafólk bíður með vinnufúsar hendur. Allt sem þarf er að stjórn- völd veiti lítils háttar undirbúnings- framlag. Er það til of mikils ætlast fyrir stórbætta menntunarmögu- leika íslenskra barna; fyrir kynn- ingu á tækniþróun þjóðarinnar og fyrir varðveislu tækniþróunarsögu okkar? Eina tæknivædda þjóðin án tæknimiðstöðvar Valdimar Öss- urarson skrifar um menntamál » Tæknimiðstöðvar eru mikilvægar fyrir menntun en hafa þó enn víðtækara hlutverki að gegna. Þær miðla fróð- leik og áhugavakningu um tækni og vísindi Valdimar Össurarson Höfundur er verkefnisstjóri ÁTAKs. UNDANFARIN ár hafa höfuðborgarbúar borið gæfu til að hefja þéttingu byggðar. Þetta er mjög mik- ilvægur liður í um- hverfisvitund þjóð- arinnar en í dag fer fáránlega stór hluti höfuðborgarsvæðisins undir vegi og helg- unarsvæði þeirra. Á síðustu öld var sett reglugerð í Bret- landi um hámarksnýt- ingu í skipulagi upp á 25 íbúðir á hvern hektara lands. Fallið var frá þessu þar sem slíkt „strjálbýli“ stefndi borgunum í ógöngur. Minni þétt- leiki orsakaði óhag- stæðari rekstrar- grundvöll þjónustu þar sem sífellt þurfti víðfeðmara íbúðasvæði til að gera hana raun- hæfa. Þetta þýddi lengri vegalengd- ir frá heimilunum að þjónustunni með tilheyrandi vexti vegakerfisins. Fjöldi bíla jókst í sama hlutfalli og mannlíf á götum og torgum varð fá- tæklegra. Til að verjast þessu var hámarksnýting skipulags- reglugerðar aukin upp í 50 íbúðir á hektara. Þrátt fyrir það hefur fag- fólk þar í landi fært góð rök fyrir því að styrkja mætti borgirnar enn frekar með því að auka leyfða há- marksnýtingu í 70 íbúðir á hektara án þess að skaða borgirnar með of háum byggingum. Algengur þéttleiki íbúðahverfa hér á höfuðborgarsvæðinu er 10-15 íbúðir á hektara. Samanburðurinn er sláandi. Það er verðugt verkefni okkar að hægja á útþenslu með lágri nýtingu, sem orsakar lengri akstursvegalengdir fyrir íbúana og dreifðari þjónustu. Við eigum að nýta betur þau þjónustukerfi sem til staðar eru og byggja skjólsælli borg. En því miður hefur þetta nauðsynlega ferli víða orsakað klúð- ur og oft hefði betur verið heima setið en af stað farið. Á ég hér við þann skiln- ing sem margir hafa á hugtakinu þétting byggðar: háreist hús innan um eldri lág- reista byggð. Fagmenn vita að með skyn- samlegri nýtingu má ná fram því sama með fjöl- breyttri lágreistri byggð og háhýsum. Það er að vísu mun erf- iðara verkefni en geta eða getuleysi arkitekta endurspeglast í útkom- unni. Þó svo að ég sé þeirrar skoðunar að Ís- land henti illa til há- reistrar byggðar sök- um neikvæðra áhrifa á skjólsæld og útsýni, er hægt að fara bil beggja. Til dæmis má skipuleggja hverfi með háreistum skrifstofu- byggingum líkt og La Défense-hverfið í París þar sem hinn nýi sigurbogi stendur í öndvegi. Það á ekki að dreifa há- hýsum um alla borg. Önnur hlið á sama teningi er mik- ilvægi þess að varðveita eldri bygg- ingar við endurnýjun og þéttingu eldri borgarhverfa. Það er grund- vallaratriði að samræmi sé milli ný- bygginga og eldri húsa. Með því að auka landnotkun með lágreistum nýbyggingum milli þeirra eldri höldum við a.m.k. í verðmæti umhverfisins. Slíkt sam- spil segir athyglisverða bygging- arsögu og hefur endurgerð gömul hús á verðugan stall. Þetta er reyndar mun erfiðara og flóknara verkefni en að fjarlægja gömlu hús- in og byggja „hagkvæmar nýbygg- ingar“. Geta eða of oft getuleysi arkitekta sem að þessum verkefnum koma mun í framtíðinni verða minn- isvarði um það hvernig við á 21. öld- inni svörum kalli tímans. Þetta eru mest spennandi en að sama skapi krefjandi verkefni í ís- lenskum arkitektúr í dag. Vöndum okkur! Geta eða getuleysi í skipulagsmálum? Sigurður Einarsson skrifar um skipu- lagsmál Sigurður Einarsson » Algengur þéttleiki íbúðahverfa hér á höfuðborg- arsvæðinu er 10-15 íbúðir á hektara. Sam- anburðurinn er sláandi. Höfundur er arkitekt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.